Morgunblaðið - 26.09.1990, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 26.09.1990, Blaðsíða 44
Kringlan 5 Sími 692500 SJOVAí Sálmennar RISC SYSTEM/6000 KEYRIR UNIX FRAMTÍÐARINNAR: IBM AIX MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 1990 VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR. Hækkun olíuverðs á heimsmarkaði: Kostnaður meðal- togara eykst um 6 milljóiiir á ári Kostar útgerðina 1.370 milljónir OLÍUKOSTNAÐUR á meðaltogara mun hækka um 6 milljónir króna á ári verði orðið við ósk olíufélaganna um hækkun úr 150 dollurum í 250 dollara. Kostnaður útgerðarinnar vegna slíkrar hækkunar ykist um 1.370 milljónir miðað við eitt ár. wmm Olíufélögin hafa farið fram á að verð á hráolíu hækki um 40% um ^næstu mánaðamót og er þá miðað við 250 dollara verð í birgðum. Slík hækkun hefði í för með sér kostnað- arauka fyrir útgerðina upp á 1.370 milljónir króna. Sjómenn bera hluta þessarar hækkunar en laun þeirra skerðast ekki eftir að olíuverðið hefur náð 217 dollurum. Olíukostnaður á meðaltogara hækkar um 6 milljónir króna á ári miðað við verðhækkun upp í 250 dollara. Hækki verðið upp í 330 dollara, í samræmi við heimsmark- aðsverð, eykst kostnaður á togara um 4 milljónir til viðbótar. Sjá frétt á bls. 2 í „Úr verinu". Skyldusparnaður hátekjumanna 1975 og ’76: Skírteini fyrir um 250 milljónir kr. óinnleyst Vaxta- og verðbótalaus frá 1. nóvember 4.228 skyldusparnaðarskírteini, sem gefin voru út samkvæmt lögum árin 1975 og 1976, svonefndur skyldusparnaður hátekjumanna, eru ósótt hjá ríkisféhirði. Andvirði skírteinanna er um 94 milljónir kr. á núvirði. Auk þess eru fjölmörg skyldusparnaðarskírteini, útgefin á sömu árum, sem ekki hafa verið innleyst og nemur lieildarupp- hæð þeirra 159 milljónum króna á núvirði. Skíi-teinin sem gefin voru út 1975 hætta að bera vexti og verðbætur 1. nóvember næst- komandi en skírteini frá 1976 ári síðar. Um er að ræða 1.813 skyldu- sparnaðarskírteini sem voru útgef- ín 1975 og 2.415 árið 1976. Skírteinin frá 1975 voru gefin út samkvæmt 7. kafla laga nr. 11 frá 28. apríl 1975, „Um ráðstafanir í efnahagsmálum og íjármálum til að stuðla að jafnvægi í þjóðarbú- skapnum og treysta undirstöðu atvinnu og lífskjara“, en þau frá 1976 samkvæmt 3. kafla laga nr. 20 frá 5. maí 1976, „Um fjáröflun til Landhelgisgæslu og fiskvernd- ar, ríkisfjármál og fjármögnun orkuframkvæmda sveitarfélaga.“ Fyrsti innlausnardagur skírtein- anna frá 1975 var 1. febrúar 1978 en 1. febrúar 1979 á skírteinunum fcá 1976. Þau bera 4% vexti og '^’eru verðtryggð samkvæmt fram- færsluvísitölu. Skírteinin eru skráð á nafn og óheimilt er að framselja þau eða veðsetja en vextir og verð- bætur af þeim eru framtalsskyld en njóta skattfrelsis. Sigurður Þorkelsson, ríkisfé- hirðir, segir að viðbúið sé að ein- hveijir sparendur hafi týnt sínum skírteinum. Þeir geti hins vegar fengið þau innleyst gegn yfirlýs- ingu þess efnis að þeir hafi glatað þeim. Þegar hafi menn fengið skírteini sín greidd gegn slíkum yfirlýsingum. Sigurður sagði að margs .sinnis hefði verið skorað á eigendur út- gefinna skyldusparnaðarskírteina að sækja þau en 4.228 skírteini hefðu enn ekki verið sótt. Einnig hefur fjöldi manns fengið skírteini ^afhent en stór hluti þeirra ekki innleyst þau. Nafnverðið á óinn- leystum skírteinum er um 1.245 þúsund kr., eða um 159 milljónir að núvirði. „Það var gert mikið átak í því að auglýsa eftir þessum skírteinum en það hefur ekki verið gert núna í nokkur ár. Hins vegar erum við að taka þetta saman og undirbúa það að hafa samband við eigendur þeirra,“ sagði Sigurður. Morgunblaðið Ragnar Axelsson I haustblíðunni Stundum er eins og húsin halli undir flatt þegar ljósmyndarar beina linsum sínum á þann veg, en það er Þorvaldur Sæmundssón kennari og rithöfundur sem er þarna á gönguferð í haustblíðu höfuðborgarinn- ar. Járnblendiverksmiðjan á Grundartanga: Birgðasöfn- un vegna undirboða á erlendum mörkuðum Innflutningur eykst frá A-Evrópu JÓN Sigurðsson, forstjóri Járn- blendiverksmiðjunnar á Grund- artanga, segir að á undanförn- um tveimur misserum hafi átt sér stað mikil birgðasöfnun hjá framleiðendum kísiljárns víða í heiminum vegna mikils fram- boðs og undirboða framleið- enda í Austur-Evrópu og Kína. Segir Jón, að á næstu dögum verði ákveðið hvernig verk- smiðjan muni bregðast við þess- um atburðum. Jón Sigurðsson segir að lagerar af kísiljárni hjá framleiðendum séu víða mjög stórir um þessar mund- ir. Ástæður .þess séu mikill og vax- andi innflutningur kísiljárns frá Kína til Japans og inn á markaði í Vestur-Evrópu frá Rússlandi, Póllandi og Austur-Þýskalandi. Mikill samdráttur hafi orðið í stál- framleiðslu í þessum ríkjum og þau selji kísiljárn nú á afar lágu verði til að verða sér úti um gjaldeyri, sem þau skorti mjög. Á sama tíma sé Járnblendiverksmiðjan bundin af lágmarksverðum samkvæmt sérstöku samkomulagi við Evrópu- bandalagið. Jón segir, að ekki hafi orðið samdráttur hjá verksmiðjunni af þessum sökum, en á allra næstu dögum verði teknar ákvarðanir um aðgerðir til að bregðast við þessari auknu birgðasöfnun. Það verði gert í samráði við söluaðila Is- lenska járnblendisfélagsins í Nor- egi. Olíuverð hækkar um mánaðamótin: Má búast við enn meiri hækkun í lok október Tunnan kostar nú 40 dali - 65 ef stríð brýst út, samkvæmt spám Alþjóðabankans OLÍUVERÐ á mörkuðum erlendis hefur liðlega tvöfaldazt frá inn- rás Íraka .í Kúvæt 2. ágúst, og er verð olíutunnu nú koinið i 40 Bandaríkjadali. íslenzk olíufélög hafa beðið um 13%-40% hækkun á olíu um mánaðamótin. Eftir þá hækkun verður olíuverð hér þó í raun enn undir heimsmarkaðsverði, og ljóst er að verðið niun hækka enn ineira í lok október. „Það er ljóst hvert stefnir nú um mánaðamótin og jafnframt að það verð, sem beðið hefur verið um, er lægra en núverandi markaðsverð,“ sagði Bjarni Snæbjörn Jónsson, framkvæmdastjóri markaðssviðs hjá Skeljungi, í samtali við Morgun- blaðið. í gær. „Gasolían hækkar einna mest nú um mánaðamótin, en innkaup á henni eru ekki fyrir- sjáanleg alveg á næstu vikum. Benzínverðið á hins vegar eftir að hækka mun meira að öllu óbreyttu." Beðið hefur verið um að minnsta kosti 13% hækkun blýlauss benzíns um mánaðamótin. Fijálst verð er á kraftbenzíni, en Bjarni sagði líklegt að það hækkaði álíka mikið og það blýlausa, þótt erfitt væri að segja til um það. Svartolíu sagði hann hins vegar að öllum líkindum myndu lækka minna. Bjarni sagði að eftir mánaðamót- in væri væntanlegur farmur til landsins af blýlausu benzíni. „Það er fyrirsjáanlegt að hann verður talsvert miklu dýrari en núverandi birgðir," sagði hann. „Það verður að minnsta kosti önnur eins benz- ínhækkun um næstu mánaðamót." Gangi þetta eftir verður verð benz- ínlítrans komið upp undir 70 krón- ur í byrjun nóvember, en er nú 52 krónur. í skýrslum, sem gerðar hafa verið fyrir Alþjóðabankann, og brezka dagblaðið Financial Times vitnar til, er því spáð að olíuverð geti farið upp í 65 dali á tunnuna, bijótist átök út við Persaflóa, enda muni framboð á heimsmarkaði minnka um allt að 10 milljónir olíu- tunna á dag vegna skemmda í Kúvæt, Saudi-Arabíu og írak. Af- leiðingarnar af þessu fyrir þessu fyrir þjóðir heims yrðu hrikalegar; olíuverð myndi haldast yfir 30-40 dölum á tunnu í fimm ár. Samkvæmt frásögn Financial Times af skýrslum Alþjóðabankans mun deilan við Persaflóa valda mörgum löndum gífurlegum efna- hagserfiðleikum, jafnvel þótt ekki komi til stríðs. Þróunarlönd myndu verða fyrir tjóni, sem næmi mill- jörðum Bandaríkjadala, og telur bankinn sig geta þurft að grípa til sérstakra aðgerða til bjargar þess- um löndum. Sjá fréttir á bls. 2 og 4.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.