Morgunblaðið - 22.12.1990, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.12.1990, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1990 Gjaldþrot Grundarkjörs: Rætt hvort höfða eigi riftunarmál unnt sé að rifta framsalinu þegar það hafi verið gert til tryggingar vegna vöruúttekta en ljóst sé að unnt sé að rifta greiðslum á skuld- um. Að sögn Skarphéðins hefur mál þetta þá þýðingu fýrir kröfuhafa að vinnist það fæst greiðsla upp í almennar kröfur, sem séu 200-210 milljónir króna en að öðrum kosti finnist ekki í búinu eignir til greiðslu á öðru en um það bil 20 milljóna króna forgangskröfum. Dómsmálaráðu- neytið: Leyfi veitt fyrir 7 0 happdrætt- um á árinu Morgunblaðið/Svemr Hafnarfjarðaræð fær stærri dælustöð Starfsmenn Hitaveitu Reykjavíkur hafa lagt nótt við dag við stækkun og tengingu á dælustöð veitunn- ar á Hafnarfjarðaræð við Reykjanesbraut. Að sögn Hreins Frímannssonar yfirverkfræðings, er gert ráð fyrir að verkinu ljúki um kl. 15 í dag. „Það er næg- ur þrýstingur á Hafnarfjarðaræð þó svo að rennslið sé tregt inn í einstaka hús,“ sagði hann. „Eftir sem áður verður að fylgjast með inntakssíunum en reynt verður að ná úr vatninu þeim útfellingum, sem eiga leið hjá dælustöðinni." SKIPTAFUNDUR hefur verið boðaður í þrotabúi Grundarkjörs þann 8. janúar næstkomandi til að taka ákvörðun um hvort búið höfði riftunarmál gegn fimm aðilum til riftunar á framsali eig- anda verslananna til þeirra á greiðslukortaávísunum að verð- mæti 30 milljónir króna síðasta mánuðinn fyrir gjaldþrot fyrir- tækisins. Að sögn Skarphéðins Þórissonar hrl., bústjóra þrotabúsins, var ákvörðun um þetta efni frestað á fyi’sta skiptafundi í október og ákveðið að boða sérstakan fund til að taka afstöðu til þessa. Eigandi Grundarkjörsverslanana framseldi greiðslukortaávísanirnar til ákveð- inna heildsölufýrirtækja, aðallega til tryggingar greiðslu á vöruúttekt en einnig til greiðslu eldri skulda. Að sögn Skarphéðins er uppi lög- fræðilegur ágreiningur, sem ekki hefur fengist úr skorið, um hvort Formaður VSÍ segir að samningar lækna séu undir smásjá: Kröfurnar þýða 60% kauphækk- un að óbreyttu fyrirkomulagi Læknar óska eftir samningafundi í dag LÆKNAR hafa óskað eftir fundi með samninganefnd ríkisins í dag vegna krafna aðstoðarlækna um auknar greiðslur fyrir yfirvinnu. „Við höfum óskað eftir fundi með það fyrir augum að leysa þetta fyrir jól ef vilji er fyrir hendi,“ sagði Haukur Þórðarson, formaður Læknafélags Islands, í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann segir lækna vi\ja firra vandræðum, sem fyrirsjáanleg séu vegna aðgerða aðstoðarlækna, einkum á slysadeild Borgarspítalans. Læknar hafa ekki gert kröfur um grunnk'aupshækkanir umfram aðra. Einar Oddur Kristjánsson, formaður Vinnuveitendasambands- ins, sagði hins vegar í samtali við Morgunblaðið í gær að VSÍ hefði það frá launaskrifstofu ríkisins að kröfur aðstoðarlæknanna um yfir- vinnuálag þýddii 60% kauphækkun, að óbreyttu vinnufýrirkomulagi. „Það gefur augaleið að eins og ástatt er í þjóðfélaginu í dag, hljóta allir slíkir samningar að vera undir mjög mikilli smásjá,“ sagði Einar Oddur. Samninganefnd ríkisins hefur krafizt þess að læknar samþykki að komið verði á reglubundnum vöktum á spítulunum til þess að vinnulotur, sem leiða til greiðslu tvöfaldrar yfirvinnu, heyri til und- antekninga. Davíð Á. Gunnarsson, forstjóri Ríkisspítálanna, og Jó- hannes Pálmason, framkvæmda- stjóri Borgarspítalans, sögðu báðir í samtölum við Morgunblaðið í gær að vegna verulegrar fækkunar að- stoðarlækna, sem fyrirsjáanleg er á næsta ári, yrði óhjákvæmilegt að breyta vinnufyrirkomulagi á sjúkra- húsunum og fjölga sérfræðingum. Talsverður fjöldi íslenzkra sérfræð- inga erlendis væri tilbúinn að koma heim ef stöður losnuðu. „Stöður aðstoðarlækna eru námsstöður. Það er spurning hvort ekki sé eðlilegra að manna spítalana eingöngu með sérfræðingum og hafa aðstoðarlæknastöðumar ein- göngu sem námsstöður,“ sagði Ðavíð Á. Gunnarsson. Jóhannes Pálmason sagði að sá tími, sem væri fram að næstu út- skrift úr læknadeild, hlyti að verða notaður til að skoða hvemig ætti að manna starfsemi spítalanna með aðstoðarlæknum að því leyti, sem hægt væri og sérfræðingum að öðru leyti. Hann sagði að fjölgun sérfræðinga myndi þýða aukin lailnaútgjöld, en því mætti ekki gleyma að sérfræðingar hefðu mikla menntun að baki og ættu að geta sinnt læknisþjönustu betur og fljótar en óreyndir menn. Haukur Þórðarson samsinnti því að breyta þyrfti vinnufyrirkomulagi vegna fækkunar læknakandídata og fjölga sérfræðingum með ein- hveijum hætti. Ýmsar leiðir væru til i þessum efnum, en læknar væm ekki endilega inni á því að setja ætti inn í kjarasamning hvað vakt- staðan ætti að vera löng, vegna þess að það væri breytilegt frá ein- um stað til annars. Hyert sjúkrahús þyrfti að setja upp sína vaktaskipan eftir því hver verkefnin væru. Haukur sagði að læknar gætu ekki sætt sig við hlaupandi átta tíma vaktir. „Það gæti gengið hjá öðrum stéttum, en virkar ekki hjá aðstoð- arlæknum. Þeir eru heldur ekki það Atli Heimir Sveinsson Guðbjörg Þorbjarnardóttir Sigfús Halldórsson Þrír nýir í heiðurslaunaflokk Átján listamenn munu skipa heiðurslaunaflokk á næsta ári, en tillaga þess efnis var sam- þykkt við þriðju umræðu fjárlaga á Alþingi I gær. Þrír nýir Iistamenn skipa heiðurs- launaflokk, þau Atli Heimir Sveins- son tónskáld, Sigfús Ilalldórsson tónskáld og Guðbjörg Þorbjarnar- dóttir leikkona. Tveir heiðurslauna- þegar létust á árinu, þeir Guðmund- ur Daníelsson rithöfundur og Valur margir, að það gengi upp,“ sagði hann. Ýmsar leiðir voru reyndar í gær til að losa um hnútinn í samninga- viðræðunum, meðal annars höfðu læknar samband við Guðmund Bjarnason heilbrigðisráðherra og Steingrím Hermannsson forsætis- ráðherra í gær til að fá þá til að reyna að greiða fyrir lausn deilunn- ar. DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ hef- ur veitt 70 aðilum leyfi fyrir happdrættum á þessu ári, en í fyrra voru veitt leyfi fyrir 81 happdrætti. Að sögn Bryndísar Jónsdóttur hjá dómsmálaráðu- neytinu,' er aðallega um að ræða ýmis líknarfélög, íþróttafélög og pólitísk félög sem fengið hafa leyfi til að vera með happdrætti, og sagði hún að í flestum þeirra væri dregið nú fyrir jólin. Hjá Hagstofunni fengust þær upplýsingar að á þessu ári hefði sjö aðilum verið veitt heimild til að nota þjóðskrá og fyrirtækjaskrá í tengslum við happdrætti, og væru það heldur færri aðilar en fengið hefðu leyfi til þess í fyrra. Fjármálaráðherra áfrýjar skatteekta- dóminum: Dráttarvextir inn- heimtir þar til niður- staða fæst í Hæstarétti Gíslason leikari. Heildarupphæð heiðurslaunanna nemur 14,4 milljónum króna og fær hver heiðurslaunaþegi 800 þúsund krónur í sinn hlut. Er það hækkun um 50 þúsund frá síðasta ári. Fjármálaráðherra hefur ákveðið að áfrýja til Hæstaréttar dómi Borgardóms um dráttar- vexti af skattsektum, þar sem ríkissjóði er gert að endurgreiða Steinum hf. innheimta dráttar- vexti af skattsektum. Þar til nið- urstaða Hæstaréttar liggur fyrir verður haldið áfram að inn- heimta dráttarvexti af skattsekt- um, að sögn Braga Gunnarssonar Iögfræðings í fjármálaráðuneyt- inu. Bragi sagði í gær að ráðuneytis- menn væru almennt ekki sammála niðurstöðum Borgardóms og viidu lála reyna á málið fyrir Hæsta- rétti. Bragi sagði að á meðan yrðu ekki gerðar breytingar á tekjubók- haldi ríkisins og dráttarvextir áfram innheimtir af skattsektum. Þarna væri um tiltölulega fáa aðila að ræða, sem ættu að þekkja rétt sinn eftir- þá umræðu sem orðið hefði um málið, og gætu því greitt drátt- arvextina með fyrirvara. Bragi sagði að dráttarvextir á skattsektir væru ekki stór hluti af tekjum ríkissjóðs. Hins vegar væri þarna um að ræða grundvallaratriði við innheimtu og nauðsynlegt að fá niðurstöðu í málinu fyrir æðsta dómstóli landsins. Ríkisskattanefnd úrskurðaði skattsektir í tíu málum á árinu 1989, samtals að fjárhæð 3,3 milljónir kr. tæpar og í tólf málum á árinu 1998, samtals að fjárhæð 1,8 milljón kr. Fyrstu ellefu mánuði þessa árs innheimtust um 800 þúsund kr. í skattsektir og dráttarvexti af. þeim. Hvað mikill hluti af fjárhæðinni er dráttarvextir lá ekki fyrir í gær. Útlit fyr- ir hvít jól SPÁÐ er fremur hægu veðri um land allt fram á aðfangadag með vestlægri og norð-vestlægri átt og éljum á víð og dreif. Frost verður um allt land og fer harðn- andi þegar á líður. Veðurfræðing- ar búast við hvítum jólum. í vikunni komst frostið í 23°C á Staðarhóli og á Grímsstöðum á Fj'öll- um og hafís var kominn á siglingar- leið við Vestfirði. Að sögn Þórs Jak- obssonar veðurfræðings, hefur ísinn hopað og var meginjaðarinn um 30 sjómílur norð-vestur af Straumnesi þegar farið var í ískönnunarflug síðastliðinn fimmtudag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.