Morgunblaðið - 19.02.1991, Side 13

Morgunblaðið - 19.02.1991, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRUAR 1991 13 Að stela lífi sínu Bókmenntir Súsanna Svavarsdóttir Þjófurinn. Höfundur: Göran Tunström. _ Þýðandi: Þórarinn Eldjárn. Útgefandi: Mál og menning. „Þjófurinn" er saga Jóhanns, drengs sem enginn vildi eiga og enginn vildi sjá. Hann er nánast hvítvoðungur þegar honum er kom- ið í fóstur hjá frænda sínum, Frið- riki Jónssyni Lök og konu hans, ídu feitu Pripp. Þau Friðrik og Ida eiga sjálf tólf börn. Börnin eru afleiðing af því að ída, sem er dóttir skókaup- mannsins í Sunne, hitti Friðrik einn daginn, þegar hún var sextán ára og vegna sakleysis og reynsluleysis, þótti henni indælt hvað hann var góður við hana. En Friðrik hefur aðeins frumþarfir og er óstöðvandi brennivínsbolti; dýrslegur á allan hátt. Á þessu áttar ída sig of seint; ekki fyrr en hún er farin að búa með honum á Torfunesi, óðali Lök- ættarinnar sem er auðvitað öfug- mæli, því þetta er hyski, sem lifír í drasli, skít og órækt. En ída tekur til hendinni og reynir eftir megni að sjá öllum farborða og halda ein- hveiju hreinlæti. Samt munar hana ekki um að bæta við sig einu barni, en það sem hún vill helst af öllu, er að verða skáldkona. Stuttu eftir að_ Jóhann kemur á heimilið, missir ída hann í gólfíð og klessir á honum andlitið. Hann verður því mesta hryggðarmynd og enginn vill hafa neitt saman við hann að sælda, nema Heiðveig, dóttir ídu og Friðriks, sem er á svipuðum aldri og Jóhann. Þau tvö láta sig dreyma um betri heim og bækur. Á unglingsárunum komast þau í bækur þegar þau finna hús Hegrans, uppgjafa kennara, autt. Húsið er fullt af mat og verðmæt- um. En Jóhann stelst aðeins til að lesa bækurnar. Þegar hér er komið sögu, eru afleiðingarnar af hrotta- skap Friðriks farnar að koma fram á Heiðveigu. Hún fer að draga sig í hlé, verða dálítið undarleg og Jó- hann nær ekki einu sinni sambandi við hana. En hann hefur fundið sína ástríðu og þegar Hegrinn stendur hann að verki, skilur hann þessa ástríðu Jóhanns og styður hann áfram til náms. í rauninni er námið sem slíkt ekki ástríða Jóhanns, heldur „Silf- urbiblían" sem er mikill helgidóm- ur, varðveitt í Uppsölum, eina gotn- eska biblían sem varðveist hefur. Tungumálið útdautt og enginn skil- ur hana lengur. Forfaðir Jóhanns hafði náð að henni frá megin- landinu, til Svíþjóðar. Hegrinn varð- veitir bréf frá forföður Jóhanns, þar sem hann segir frá svaðilför sinni með biblíuna. Og nú verður það markmið Jóhanns að stela Silf- urbiblíunni, því hann telur að í raun- inni tilheyri hún honum. Jóhann sem er orðinn enn óásjá- legri; hefur bognað í baki eftir að hann hitti föður sinn í fyrsta sinn og bar hann dauðadrukkinn langa vegalengd. Hann hellir sér út í nám- ið, tekur hæstu prófin og fær styrki til að komast til Ítalíu, til að leggja frekar stund á gotnesku og önnur miðaldamál og að lokum hefur hann lykilinn að Silfurbiblíunni, en kemst þá að því að Biblían, sem hans eig- ' in saga skiptir ekki máli. Hann hefur stolið verðmætari hlut. Það er andlit á bak við andlitið; bak við klessta andlitið hans. Það er mikið ævintýri að lesa Þjófinn. í bókinni eru margar sögur sem fiéttast saman, en á bak við hveija þeirra er saga, sem segja má að sé raunverulega sagan eða eins og Jóhann segir á einum stað: „Sagá mín stendur í vegi fyrir sögu minni.“ Textinn fylgir athöfnum persónanna; þær eiga sér allar það markmið að lifa af; sumar gera aðeins þá kröfu að fá að spóla í sama farinu, aðrar þola það ekki og fínna sér flóttaleið, ída vill kom- Göran Tunström ast aftur upp í sitt rétta þjóðfélags- þrep og lifa í andrúmslofti skáid- skapar og sjálfsvirðingar. Henni tekst það á endanum. Jóhann vill verða þjófur. Honum tekst það en hann stelur því sem við stelum öll, þegar við eigum okkur önnur mark- mið en velferð okkar. Málfar og stíll eru æði skrautleg; allt frá sora tungutaki Friðriks Jónssonar Lök og hans hyskis, til uppskrúfaðra akademískrar texta- gerðar, það er að segja þegar verið er að vitna í bréf og bækur. Hún lýsir köldum'heimi og í samskiptum persónanna er allt til nema kærleik- urinn. Kærleiksskorturinn hefur mismunandi áhrif á fjölskylduna; sumir leggjast í eymd og volæði, aðrir í hálfgerða stigamennsku, ein- hveijir flýja „á náðir“ geðveikinnar, og enn aðrir rífa sig upp úr vesal- dómnum, ná sér í menntun og starfsframa. Fjölskyldan spannar því allar stéttir samfélagsins. En hvar sem þau standa, er spuming hvort eitthvert þeirra sé railnveru- lega betur sett en annað. Þýðing Þórarins Eldjáms er mjög fín — laus við tepruskap í ruddalegu málfari Friðriks og sýnir góða þekk- ingu á miðaldamálfari og akad- emísku, og mikla hæfni í að að- greina málfar persónanna eftir stétt og stöðu. Vinningstölur laugardaginn 16. feb. 1991 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5af 5 1 6.993.607 4 183.273 3. 4af5 187 6.760 4. 3af 5 6.782 435 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 11.941.363 kr. UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002 MITSUBISHI L A N C E R BÁÐIR GÓÐIR — HVOR Á SINN HÁTT 0 Framdrif □ Handskiptur / Sjálfskiptur 0 Aflstýri, Veltistýrishjól 0 Rafdrifnar rúðuvindur og útispeglar Verð frá kr. 895.680,- MITSUBISHI MOTORS m HEKLA LAUGAVEGI 174 SÍMI695500 H Framdrif/ Aldrif 1 Handskiptur / Sjálfskiptur B Aílstýri, Veltistýrishjól 1 Rafdrifnar rúðuvindur og útispeglar Verð frá kr. 922.560.-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.