Morgunblaðið - 21.03.1991, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 21.03.1991, Qupperneq 15
MÖÍÍÖU’Sfe’liÁ.Ðlfc) föÖlíUDiíéÖR ‘lÍ'.^MARFíl'lí1'' iy Dufl og daður _______Leiklist________ Guðrún Þóra Gunnarsdóttir Leikfélag Fjölbrautaskóla Vesturlands sýnir: Dufl og daður eftir Noel Cow- ard. Þýðendur: Leikstjóri og leik- endur. Leikstjóri: Arni Blandon. Búningar: Lilja Ingólfsdóttir og Iris Guðrún Sigurðardóttir. Ganga leikarar svo inn í starf sitt að þeir eru síleikandi hvort sem er á sviðinu eða utan þess? Kannski erum við öll svolítið hrædd við leikara, hrædd við þessa hæfileika þeirra til að leika og höldum að þeir séu að leika sér að okkur. Aðaipersónan í leik- riti Noels Cowards, Judidth Bliss, er fyrrum leikkona sem getur ómögulega lagt niður þennan fyrri starfa sinn og notar hvert andar- tak til að sýna leikræna yfirburði sína. Bliss-fjölskyldan er í sér- stæðara lagi; móðirin með sína ýktu dramatík, faðirinn stundar ritstöf og lokar sig af uppi á lofti en börnin tvö, Simon og Sorel, láta sér aðallega leiðast. Öll eru þau öfgafull í tilfinningum og eig- ingjörn í hæsta máta. Leikritið gerist eina helgi að sumarlagi í byijun þessarar aldar. Það kemur í ljós að hver og einn meðlimur Bliss-fjölskyldunnar hefur boðið til sín gesti af gagn- stæða kyninu til að eyða með helginni. Leikar fara þó þannig að gestirnir nota fyrsta tækifæri sem gefst til þess að stinga af frá gestgjöfunum, dauðfegnir að losna úr þessu ægilega húsi þar sem dregið er óspart dár að til- finningum hins venjulega. Sýning Fjölbrautaskólans á Dufli og daðri er með raunsæis- legu yfirbragði bæði hvað varðar leik og umgjörð og leikmunir not- aðir til að styðja við bakið á leikur- unum. Því stingur búningavalið svolítið í stúf, sumir búninganna falla að þeim tíma þegar leikritið á að gerast en svo eru aðrir bún- ingar eins og þeir hafi verið keypt- ir í einhverri tískuversluninni á Laugaveginum. í hléum er spiluð tónlist eftir höfund verksins, Noel Coward, og er hún hin áheyrileg- asta. Aðalhléið var tekið eftir fyrstu tvo þættina sem stóðu í einn og hálfan tíma en þriðji þátt- Anna Björk Nikulásdóttir sem leikkonan síleikandi. urinn var ekki nema um tuttugu mínútur þannig að það skapaðist misvægi í sýningunni. Það hefði farið mun betur á því að hafa hlé strax eftir fyrsta þátt því það fer aldrei vel að hafa svona stutt skott í endann á sýningu, allt líf dettur niður í sýningunni. Leikarar voru afslappaðir í hlutverkum sínum og lausir við allt fum, stundnm meira að segja svo afslappaðir að meira líf vant- aði í leikinn. Sýningin var þó í heild hin prýðilegasta og leikar- arnir höfðu látbragð og hreyfíng- ar nokkuð vel á valdi sínu, það var helst að framsögnin mætti vera skýrari. Anna Björk Nikulás- dóttir lék aðalhlutverkið, hina dramtísku leikkonu Judith BIiss. Anna Björk stóð sig með ágætum og dró skýrum dráttum þessa til- gerðarlegu konu sem alltaf er písl- arvotturinn hvernig sem hlutirnir snúast og þrátt fyrir að allir snú- ist í kringum hana. Eitt af skemmtilegri atriðum í sýning- unni er þegar Judith og börn hennar fara með tilfinninga- þrungnar senur úr leikritinu Hvirfilvindur ástarinnar sem Jud- ith hafði leikið í. Aldrei þessu vant nær fjölskyldan vel saman þegar hún er í gervi annarra per- sóna. Við erum kannski eftir allt saman sífellt að finna okkur hlut- verk í daglega lífinu. Leikur í leiknum. ■ FRAMBOÐSLISTI Verka- mannaflokks Islands í Reykjavík við Alþingiskosningarnar hefur ver- ið. ákveðinn: Listann skipa: 1. Bryiyólfur Yngvason, blaðamað- ur, 2. Páll Þorgríms Jónsson, iðn- verkamaður, 3. Hreiðar Jónsson, bifreiðastjóri, 4. Einar Halldórs- son, blaðamaður, 5. Gunnar Steinn Þórsson, iðnverkamaður, 6. Friðjón G. Steinarsson, toll- þjónn, 7. Sigurjón Guðmundsson, lagerstjóri, 8. Guðmundur Niku- lásson, bifreiðastjóri, 9. Hrönn Halldórsdóttir, fiskverkakona, 10. Gunnar. Örn Hreiðarsson, verka- maður, 11. Guðbjörg Snorradótt- ir, fiskverkakona, 12. Björk S. Ingólfsdóttir, húsmóðir, 13. Ólaf- ur Einar Júlíusson, verkamaður, 14. Jón Brynjar Jónsson, iðnverk- amaður, 15. Hulda Sassoon, hús- móðir, 16. Ósk Kristjánsdóttir, húsmóðir, 17. Esther María Ragn- arsdóttir, gangastúlka, og 18. Gunnvör Rögnvaídsdóttir, hús- móðir. DAIHATSU 19 9 1 e r k o m i n n ! OG NÚ IVIEP 3JA ÁRA ÁBVRGÐ Baðsett ágóðuverði Vegna hagstæðra samninga og magninnkaupa á baðsettum getum við boðið í einum pakka: WC, HANDLAUG, BAÐ og STURTUBOTN á einstöku verði. !
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.