Morgunblaðið - 28.03.1991, Síða 12

Morgunblaðið - 28.03.1991, Síða 12
MOKGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARZ 1991 Tónlistardagur í Hallgrímskirkju 30. mars: Orgelhátíð í tengsl- um við söfnunar- átak vegna nýs orgels Dýrustu orgelpípurnar nær uppseldar ORGELHATIÐ verður í Hallgrímskirkju laugardaginn fyrir páska. A annað hundrað tóniistarmenn koma fram, kórar, söngv- arar og hljóðfæraleikarar. Tónleikarnir, sem hefjast klukkan 11 og standa samfleytt til klukkan 22, eru liður í söfnunarátaki vegna nýs orgels, en samskonar hátíð var haldin fyrir ári. Þá hófst fjár- öflun vegna orgelsins, en samið var um smíði þess haustið 1989 og er gert ráð fyrir að það verði tilbúið sumarið 1992. Fólki og fyrirtækjum gefst kostur á að kaupa pípur í orgelið og leggja þannig sitt af mörkum, en kostnaður er um 70 miHjónir. 5.275 pípur eru í orgelinu og kosta þær minnstu 2.000 krónur, en stærstu pípurnar kosta 100.000 krónur. Salan hefur gengið vel og eru dýrustu orgelpípurnar nær uppseldar. Orgelið, sem er í smíðum hjá Klais orgelframleiðendunum í Bonn í Þýskalandi, vegur um 25 tonn og eru stærstu pípurnar um 10 metrar. Sigurður Elí Haralds- son, formaður söfnunamefndar, sagði við Morgunblaðið að þær væm nær uppseldar, en um 15% af orgelpípunum hefðu selst fyrir um 10 milljónir króna síðan söfn- unarátakið hófst í apríl í fyrra. „Þetta er stórt menningarátak og það eru afskaplega margir ein- staklingar, sem hafa sýnt örlæti í sambandi við söfnunina. Orgelið er dýrt og svo virðist, sem við séum að takast á við hið ómögu- lega, en við höfum þá trú að það muni takast." Hann sagði að þriðjungur kaup- verðs hefði verið greiddur við undirskrift samninga með frjáls- um framlögum, en söfnun hefði staðið yfir í mörg ár. 25% verðs- ins verður greiddur, þegar orgelið verður afgreitt úr verksmiðjunni og sama upphæð, þegar það kem- ur til landsins. Eftirstöðvamar verða síðan greiddar þremur mán- uðum eftir að það hefur verið tek- ið út og sannreynt samkvæmt samningi. Sigurður Elí sagði að 15 milljónir kæmu frá Reykjavík- urborg, en vonir stæðu til að ekki þyrfti að greiða virðisaukaskatt af orgelinu. Pípunum var skipt í fjóra verð- flokka eftir stærð. Gefendur fá litprentuð og tölusett gjafabréf og nöfn gefenda eru skráð og varðveitt og tengjast þau ákveðn- um tóni orgelsins. „Gefendur geta þvi sagt með sanni að þeir eigi ákveðinn tón,“ sagði Hörður Áskelsson, organisti Hallgríms- kirkju. Orgelhátíðin í fyrra vakti mikla athygli og var stöðugur straumur fólks í Hallgrímskirkju til að fylgj- ast með tónlistarflutningnum. Hátíðin verður endurtekin laugar- daginn 30. mars og þá getur fólk komið í Hallgrímskirkju, skráð sig og pantað orgelpípur. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis, en kvenfélag Hallgrímskirkju og Mótettukór Hallgrímskirkju selja veitingar og páskablóm til ágóða fyrir orgelsjóð. Þá verða kynntar teikningar af væntanlegu orgeli. Eftir mesSu á skírdagskvöld verður Getsemanestund þar sem altari kirkjunnar verður afskrýtt. Föstudaginn langa og laugardag- inn verða því aðeins sjö rauðar rósir á altarinu og svart altaris- klæði, sem sýnir pelikanamóður rista bijóst sitt til að geta gefið ungum sínum fæðu. í lok orgel- hátíðarinnar verður helgistund, þar sem altari kirkjunnar verður skrýtt að nýju, en það er liður í undirbúningi messu hátíðar kirkj- unnar, upprísu Jesús Krists. Tónleikar í 11 tíma LAUGARDAGINN 30. mars verður 11 stunda orgelhátíð í Hallgrímskirkju, þar sem á annað hundrað tónlistarmenn koma fram. Tónleikarnir hefj- ast klukkan 11 og standa sam- fleytt til klukkan 22. Kl. 11.00: Hörður Áskelsson og Inga Rós Ingólfsdóttir. Selló og orgel. Kl. 11.30: Básúnukvartett. Oddur Bjömsson, Sigurður Þorbergsson, Björn R. Einarsson og Edward J. Frederiksen. Kl. 11.50: Orthulf Prunner. Orgel. Kl. 12.50: Oddur Bjömsson og Hörður Áskelsson. Básúna og org- el. Kl. 13.00: Karlakór Reykjavíkur. Stjórnandi er Friðrik Kristinsson. KI. 13.15: Strengjasveit yngri deildar Tónlistarskólans í Reykja- vík. Stjórnandi er Rut Ingólfsdóttir. Kl. 13.30: Hlín Pétursdóttir og Hörður Áskelsson. Sópran og orgel. KI. 13.40: Kammersveit Reykjavík- ur. Kl. 14.00: Marteinn H. Friðriksson. Orgel. Kl. 15.00: Mótettukór Hallgríms- kirkju, Ásdís Kristmundsdóttir sópran, Magnús Þ. Baldvinsson bassi og Marteinn H. Friðriksson orgel. Stjórnandi er Hörður Áskels- son. Kl. 16.00: Guðný Guðmundsdóttir og Gunnar Kvaran. Fiðla og selló. Kl. 16.40: Kór Austurbæjarskóla. Stjórnandi er Pétur Hafþór Jóns- son. KI. 17.00: Ásdís Kristmundsdóttir og Hörður Áskelsson. Sópran og orgel. Kl. 17.10: Árni Arinbjarnarson. Orgel. Ki. 17.40: Inga Backman og Hörð- ur Áskelsson. Sópran og orgel. Kl. 17.50: Glúmur Gylfason. Orgel. Kl. 18.20: Sigrún Margrét Gústafs- dóttir, Solveig Björling og Gústaf Jóhannesson. Flauta, alt og orgel. Kl. 18.50: Kór Garðakirkju. Stjórn- andi Ferenc Utassy. Kl. 19.20: Daði Kólbeinsson og Hörður Áskelsson. Óbó og orgel. Kl. 19.50: Ragnar Björnsson. Org- el. Kl. 20.30: Guðrún Finnbjarnar- dóttir og Hörður Áskelsson. Alt og orgel. Kl. 21.30: Helgistund. j Morgunblaðið/Sverrir Sr. Karl Sigurbjörnsson, lengst til hægri, með gjafabréf vegna orgelsjóðs Hallgrímskirkju. Jóhann- es Pálmason, formaður sóknarnefndar Hallgrímskirkju, heldur á nýrri útgáfu Passíusálmanna, sem forlag Hallgrímskirkju hefur gefið út, og til vinstri er sr. Ragnar Fjalar Lárusson með eldri útgáfu. I baksýn syngja félagar úr Mótettukórnum undir stjórn Harðar Áskelssonar, en kórinn tekur þátt í orgelhátíð Hallgrímskirkju 30. mars n.k.. Leynilögga í vandræðum _________Leiklist___________ Guðrún Þóra Gunnarsdóttir Leikdeild Ungmennafélags Biskupstungna sýndi í félags- heimiii Kópavogs leikritið Grip- ið í tómt. Höfundur og leikstjóri: Pétur Eggérz. Lagahöfundur: Ingvi Þór Korm- áksson. Utsetning og upptaka laga: Sig- urður Rúnar Jónsson. Áhugaleikfélög hafa einatt verið dugleg við að sinna íslenskri leik- ritun og oftar en ekki veríð með frumsýningar á verkum ungra höf- unda. Skemmst er að minnast leik- rita Sjóns í Kvennaskólanum og Flensborg og leikrits Valgeirs Skagfjörðs hjá Leikfélagi Kópa- vogs. Leikdeild Ungmennafélags Biskupstungna ferðast nú um Suð- urland með nýjan íslenskan gam- anleik í farteskinu, Grípið í tómt eftir Pétur Eggerz, en þessi leik- sýning er liður í M-hátíð sem nú stendur yfír á Suðurlandi. Á þessu ferðalagi sínu kom leikdeildin við í Kópavogi og var þar með eina sýningu sl. mánudagskvöld. Grípið í tómt er farsi og söguþráð- urinn er ekki beysinn fremur en títt er um gamanleiki af þessu tagi þar sem allt snýst um brand- ara augnabliksins. Aðalsöguhetjan er Leynráður Ljóstran, sem eins og nafnið gefur sterklega til kynna, er starfsmaður leynilög- reglu ríkisins. Leynráður er einfalt og græskulaust manngrey sem lendir í þeirri ógæfu að passa ekki inn í tölvukerfið og þar með eru örlög hans ráðin. Það gengur á ýmsu áður en ljóst er um hvað málið snýst og til sögunnar koma m.a. ráðherra, lögreglustjóri, síma- mær, að ógleymdri konu Leynráðs sem sér um að hann hlaupi ekki út á náttfötunum í æsingnum. Leikritið fór ágætlega af stað ,og fyrstu atriðin voru lifandi og kómísk. Textinn var sniðugur, leik- ið var með tvíræðni, orðaleiki og útúrsnúninga á tungumálinu. En svo var mesti dampurinn úr verk- inu og brandararnir voru flestir hálflífvana; höfundur náði ekki að láta verkið standa undir sér alla leið til enda. Leikurinn byggðist allur á fremur augljósum bröndur- um og þegar þeir náðu ekki að lifna féll verkið um sjálft sig, lúmskari fyndni hefði ekki skaðað því hún er yfírleitt öllu lífseigari. Þeir sýndu það líka leikararnir að þeir voru, margir hveijir, vel hæfir til þess að leika á fíngerðari nótunum. Flestir léku þó á frekar ýktan máta, bæði hvað varðar hreyfíngar og framsögn en krydduðu leikinn með skemmtilegum svipbrigðum og sniðugu fasi. Það síðastnefna á einkum við Brynjar Sigurðsson, sem lék Leynráð sjálfan, hann átti mikinn þátt í því að lífga upp á verkið. Tónlistin, sem samin.var fyrir leikritið, var í litlausara lagi og hefði lagahöfundur að ósekju mátt bæta smá fjöri í lögin. Þess er þó að gæta að tónlist líður alltaf fyrir það að vera spiluð af bandi í leik- húsi, mesti krafturinn vill þá dofna. Mér fannst fæst lögin þó bæta verkið, til þess hefði þurft að hafa mun þjálfaðri söngvara. Ekki bætti úr skák að ein leikkona, sem grein- ilega þjáðist af slæmsku í hálsi, var samt látin syngja af veikum mætti. Við þessar kringumstæður hefði átt að sleppa söngatriðinu því það breytti engu um gang verksins og fyrir vikið hefði verið betri hraði í sýningunni. Leikarar sýningarinnar „Gripið í tómt“ ásamt höfundi.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.