Morgunblaðið - 28.03.1991, Page 14

Morgunblaðið - 28.03.1991, Page 14
£H4 Baldr frumfluttur og gildi einkaframtaksins eftirBjörn Bjarnason Áherslan á að íslenska þjóðin dragist ekki aftur úr öðrum í mennt- un og menningu er meðal þeirra meginþátta sem einkenna kosn- ingayfirlýsinguna frá 29. lands- fundi sjálfstæðismanna. Með réttu hafa margir vaxandi áhyggjur af stöðnun og kyrrstöðu í lífskjörum þjóðarinnar. Hitt er ekki síður nauð- synlegt að setja markið hátt í mennta- og menningarmálum. Þrátt fyrir auglýsingamennsku Svavars Gestssonar er þess ekki að vænta, að það verði gert undir forystu ráðherra úr Alþýðubanda- laginu. Er tími til þess kominn að gert verði upp við fortíð þess flokks í menningarlífi þjóðarinnar eins og stjórnmálalífinu almennt. í öllum listgreinum eigum við fólk sem stendur feti framar en með réttu er unnt að vænta, ef miðað er við fólksfjölda. Miklu skiptir að hið dugmikla unga fólk sem lætur að sér kveða við listsköp- un fái verðug viðfangsefni. Minnis- stætt er þegar Hamrahlíðarkórinn undir stjóm Þorgerðar Ingólfsdótt- ur vann eitt listafreka sinna með frumflutningi á tónlist Jóns Ás- geirssonar við Tímann og vatnið eftir Stein Steinar. Síðastliðinn sunnudag urðu þeir sem sóttu tónleika Sinfóníuhljóm- sveitar æskunnar (SÆ) vitni að öðrum ógleymanlegum listviðburði. Þá var frumflutt músíkdramað Baldr eftir Jón Leifs. Paul Zukofsky frá New York stjómaði 93 hljóð- færaleikumm héðan frá íslandi, Norðurlöndunum og Bandaríkjun- um. Raunar er Zukofsky meira en stjómandi SÆ, því að hann er upp- hafsmaður þess menningarstarfs, sem felst í starfi hljómsveitarinnar, líf ])ess og sál. I tónleikaskránni segir Zukofsky meðal annars: „Aðalástæða þess að ég valdi þetta verk til flutnings er hins vegar mikilvægi þess að þátttakendur kynnist manni sem vafin ótrauður að hugmynd þrátt fyrir litlar líkur á því að hún yrði að veruleika." Þeir sem hafa kynnst áhuga Pauls Zukofskys á því að starf- rækja Sinfóníuhljómsveit æskunnar vita, að þessi órð sem hann velur til að lýsa Jóni Leifs eiga eins við um Zukofsky sjálfan. Framlag hans til íslenskrar tónlistar verður seint metið til fullnustu. í samstarfí við tónlistarskólana um land allt og með því að vekja áhuga í Bandaríkjunum og á Norð- urlöndunum hefur Zukofsky tekist að nýta dugnað ungs fólks til að takast á við feiknaerfið viðfangsefni og hefur SÆ jafnan farið með sig- ur af hólmi. Yngsti hljóðfæraleikar- inn í Baldri var 11 ára. Sífellt ber- ast okkur fréttir um góðan árangur íslenskra söngvara erlendis og frá- bær frammistaða Sigrúnar Eð- valdsdóttur fiðluleikara í Sibeliusar- keppninni fyrr í vetur var staðfest- ing á því, að hér er veitt framúr- skarandi undirstöðumenntun í tón- list, þar sem tungumálið er alþjóð- legt, ef þannig má orða það. Tónlist- arkennsla hér fer að verulegu leyti fram í skólum sem reknir eru að hætti einkaskóla. Þátttakendur í SÆ leggja launalaust nótt við nýt- an dagtil að ná glæsilegum árangri. Músíkdramað Baldr var samið skömmu áður en Sinfóníuhljómsveit íslands var stofnuð fyrir rúmum 40 árum. Aldrei hefur nokkur stjórnandi hennar brotist í því að kynna sér Baldr og fá verkið búið þannig úr garði að hljómsveitin gæti flutt það. Spurt hefur verið: Hver hefði þróun íslenskrar tónlist- ar orðið, ef Baldr hefði verið frum- fluttur á fyrstu árum Sinfóníu- hljómsveitarinnar? Hvað um önnur stórvirki Jóns Leifs eins og Eddu óratoríuna? Á einnig að bíða eftir því að einstaklingar hafi bolmagn til að standa að flutningi hennar? I tónleikaskrá vegna Baldrs kemur fram að Hekla 'hf. hafi að eigin frumkvæði stutt SÆ á tónleikun- um, Fulbright-stofnunin hafi veitt Zukofsky starfsstyrk og íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur hafi styrkt SÆ vegna tónleikanna auk þess sem nefndir eru nokkrir aðilar sem hafi veitt stuðning að þessu sinni. Einkaframtak í þágu lista Ríkisútvarpið hefur gegnt merku menningarhlutverki ekki síður en Sinfóníuhljómsveit íslands. Hvor- ugur þessara opinberu aðila sinnir þó ■ skyldum sínum við íslenska menningu betur en einkaaðilar, þegar þeir fá tækifæri til að sýna hvað í þeim býr. Nýsköpun er ekki nema að litlu leyti í höndum þess- ara opinberu fyrirtækja og þau eiga oft fullt í fangi með að halda í við þá sem starfa við miklu meira fjár- hagslegt öryggisleysi. Má raunar kenna það við menningarlejgt hneyksli, að Sinfóníuhljómsveit Is- lands skuli ekki fýrir löngu hafa flutt Baldr. Eftir landsfund Sjáífstæðis- flokksins sá hljóðvarp ríkisins ekki ástæðu til að vekja sérstaka at- hygli á öðru úr ályktunum fundar- Björn Bjarnason „Frumflutningurinn á Baldri er glæsilegt dæmi um gildi einka- framtaks í þágu menn- ingar og lista. Hann er einnig einstök staðfest- ing á því. hve þeir menn hafa rangt fyrir sér, sem óttast um framtíð íslenskrar menningar í alþjóðlegri samvinnu.“ ins en því, sem snerti það sjálft — hafin var hræðsluáróðursherferð fyrir músík- og símaútvarpsstöðinni Rás 2 gegn Sjálfstæðisflokknum. Var herferðinni sérstaklega hagað þannig að fólk á landsbyggðinni óttaðist að það fengi ekki að hlusta á Rás 2, ef einkaaðilum yrði falin rekstur hennar. Stýrkur Ríkisútvarpsins gagn- vart landsbyggðinni felst í forskot- inu sem það hefur fram yfir einka- stöðvarnar. Fyrir utan fastan tekju- stofn og auglýsingatekjur að auki situr Ríkisútvarpið eitt að dreifi- kerfí sem nær til landsins alls. Ef starfsmenn hljóðvarps ríkisins hefðu haft vægi ályktana lands- fundarins í huga þegar þeir fóru yfi1* þær (með hliðsjón af hagsmun- um vinnuveitanda síns) hefðu þeir átt að staðnæmast við þessa setn- ingu í kosningayfiriýsingu fundar- ins: „Aðstaða í sjónvarps- og út- varpsrekstri milli ríkisins og einka- aðila verði jöfnuð." Þarna er hreyft stærra máli en snertir Rás 2. Hvers vegna er ekki einkaaðilum heimilað- ur aðgangur að dreifikerfi Ríkisút- varpsins, sem hefur verið reist fyrir almannafé og er sameign þjóðarinn- ar? Hvers vegna má ekki afnema auglýsingatekjur Ríkisútvarpsins : og skapa því nýjan tekjustofn með því að leigja aðgang að dreifikerf- inu? Hvað segðu menn ef Sinfóníu- hljómsveit íslands gæti komið í veg fyrir að Sinfóníuhljómsveit æskunn- ar fengi að halda tónleika í Há- skólabíói? Eða ef væntanlegt tón- listarhús ætti aðeins að þjóna ríkis- reknum hljómsveitum? Sjálfstæðis- flokkurinn vill ekki að Rás 2 verði lögð niður — baráttan snýst um að einkaaðilar sitji við sama borð og ríkið, þá yrði útvarpsþjónusta við landsbyggðina stóraukin. Frumflutningurinn á Baldri er glæsilegt dæmi um gildi einkafram- taks í þágu menningar og lista. Hann er einnig einstök staðfesting á því. hve þeir menn hafa rangt fyrir sér, sem óttast um framtíð íslenskrar menningar í alþjóðlegri samvinnu. Varla er unnt að ímynda sér íslenskara viðfangsefni en Baldr, hvort heldur litið er á kveikj- una að verkinu eða útfærslu alla, þó þurfti eriendan hugsjóna- og dugnaðarmann með dyggri aðstoð ungs áhugafólks og einstaklinga sem höfðu trú á framtakinu til að láta drauminn rætast. Höfundur skipar þriðja sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Rcykjavík. Minnisblað lesenda MORGUNBLAÐIÐ veitir les- endum sínum að venju upplýs- ingar um heilsugæslu, sérleyf- isferðir, strætisvagna og aðra þjónustu um bænadaga og páska. Slysadeild Slysadeild og sjúkravakt Borg- arspítalans er opin allan sólar- hringinn. Sími þar er 696600. Læknisþj ónusta Helgarvakt lækna er frá klukk- an 17 á miðvikudegi fyrir páska til klukkan 8.00 á þriðjudags- morgni eftir páska. Símanúmer vaktarinnar er 21230. Veittar eru upplýsingar um læknavakt og Iyfjabúðir í síma 18888, sem er símsvari Læknafé- lags Reykjavíkur. Tannlæknavakt Upplýsingar um neyðarvakt Tannlæknafélagsins eru veittar hjá Læknafélagi Reykjavíkur í síma 18888. Slökkvilið Slökkviliðið í Reykjavík hefur símann 11100, slökkviliðið i Hafn- arfírði 51100 og slökkviliðið á Akureyri 22222. Lögregla Lögreglan í Reykjavík hefur símann 699010, en neyðarsími hennar er 11166 og upplýsing- asími 699020. Lögreglan á Akur- eyri er í síma 23222, í Kópavogi 41200 og Hafnarfirði 51166. Sjúkrabifreiðir I Reykjavík er hægt að leita aðstoðar sjúkrabifreiða í síma 11100, í Hafnarfírði 51100 og Akureyri 22222. Lyfjavarsla Á skírdag er Laugavegsapótek opið til kl. 10.00 að morgni föstu- dagsins langa. Á föstudaginn langa, páskadag og annan í pásk- um verður Iðunn apótek opið allan sólarhringinn, en á laugardag fyr- ir páska verður Garðsapótek opið frá klukkan 9.00 til 22.00. Bilanir Bilanir í hitaveitu, vatnsveitu og gatnakerfi tilkynnist til Véla- miðstöðvar Reykjavíkur í síma 27311. Þar verður vakt allan sól- arhringinn frá skírdegi til annars í páskum. Símabilanir er hægt að tilkynna í síma 05 frá klukkan 8.00 tii 24.00 alla daga. Rafmagn- sveita Reykjavíkur er með bilana- vakt allan sólarhringinn í síma 686230. í neyðartilfellum fara viðgerðir fram eins fljótt og auðið er. Guðsþjónustur Tilkynningar um guðsþjónustur eru á bls. 80-81. Skrá yfir ferm- ingarbörn er á bls. 82-84. Dagskrár útvarps- og sj ónvarpsstöðva Dagskrár útvarps- og sjón- varpsstöðvanna, ásamt efnisúr- dráttum nokkurra dagskrárliða eru á bls. B1-B12. Afgreiðslutími verslana og söluturna Leyfílegt er að hafa verslanir opnar frá klukkan 9.00 til 16.00 laugardag fyrir páska, en að öðru leyti verða þær lokaðar um pá- skana. Sölutumar mega vera opn- ir á skírdag, laugardag fyrir páska og annan í páskum til klukkan 23.30, en verða að vemju lokaðir á föstudaginn langa og páskadag. Afgreiðslutími bensínstöðva Á skírdag og annan í páskum verða bensínstöðvar opnar frá klukkan 12.00 til 16.30, en álaug- ardag fyrir páska frá klukkan 7.30 til 20.00. Þær verða hins vegar lokaðar á föstudaginn langa og páskadag. Bifreiðastjórum er einnig bent á sjálfsala sem eru á bensínstöðvum víðs vegar um borgina og á landsbyggðinni. Strætisvagnar Reykjavíkur Á skírdag verður ekið eins og á sunnudögum, föstudaginn langa hefst akstur um kl. 13.00, og verður ekið samkvæmt sunnu- dagstímatöflu. Á laugardag fyrir páska hefst akstur á venjulegnm tíma, og er þá ekið eftir laugar- dagstímatöflu. Á páskadag hefst akstur um kl. 13.00 og er ekið samkvæmt sunnudagstímatöflu, og á annan í páskum verður ekið eins og á sunnudögum. Strætisvagnar Kópavogs Á skirdag verður ekið eins og venjulega á sunnudögum, en á föstudaginn langa hefst akstur um kl. 14 og eftir það er ekið eins og á sunnudögum. Laugar- dag fyri páska verður ekið eins og á venjulegum laugardegi, á páskadag verður ekið eins og á föstudaginn langa, og á annan í páskum verður ekið eins og á sunnudögum. Mosfellsleið Á skírdag og annan í páskum verður ekið samkvæmt sunnu- dagsáætlun. Á laugardaginn fyrir páska verður ekið samkvæmt venjulegri laugardagsáætlun, en engar ferðir verða á föstudaginn langa og páskadag. Langferðabifreiðir Eins og undanfarin ár eru pásk- ar ætíð miklir annatímar hjá sér- leyfishöfum, og því verða margar aukaferðir til að anna eftirspurn. Á skírdag verður ekið samkvæmt venjulegri áætlun á flestum leið- um, en aukaferðir eru til og frá Hólmavík, Höfn í Hornafirði og Króksfjarðarnesi. Á föstudaginn langa og páskadag er ekki ekið á lengri leiðum, en ferðir eru til'og frá Borgarneái, Grindavík og Bláa lóninu, Hveragerði/Selfoss/Eyr- arbakka/Stokkseyri og Þorláks- höfn, svo og Keflavík og Sand- gerði. Annan í páskum er yfírleitt ekið samkvæmt sunnudagsáætl- un, en aukaferðir til Akureyrar, í Biskupstungur, til Búðardals, Hólmavíkur, Hafnar í Hornafirði, frá Króksfjarðarnesi og á Snæ- fellsnesið. Daglegar ferðir verða alla páskahelgina tvisvar á dag í Bláa lónið. Allar nánariu upplýs- ingar um akstur sérleyfisbifreiða um páskana veitir BSÍ í síma 91-22300. Vegaeftirlit Símsvari Vegaeftirlitsins veitir upplýsingar um færð á helstu vegum í símum 91-21001 og 91-21002. Vegaeftirlitið verður einnig með vakt frá klukkan 8.00 til 12.00 á skírdag, laugardag fyrir páska og annan páskadag. Tilkynningarþjónusta fyrir ferðamenn Ferðamenn geta hringt í síma 91-686068 allan sólarhringinn og látið vita um ferða- og tímaáætlun sína, þannig að hægt sé að gera viðeigandi ráðstafanir komi þeir ekki fram á réttum tíma. Eru ferðamenn hvattir til að notfæra sér þessa þjónustu, hvort heldur sem um er að ræða stuttar eða langar ferðir. Þjónusta þessi er rekin af Landssambandi hjálpar- sveita skáta og Landssambandi flugbjörgunarsveita í samvinnu við vaktfyrirtækið Securitas, ferðafólki að kostnaðarlausu. Opnunartími íþróttamannvirkja Laugardalslaug, Vesturbæjar- laug og Breiðholtslaug verða opn- ar frá klukkan 8.00 til 17.30 á skírdag og annan í páskum, en frá klukkan 7.30 til 17.30 laugar- dag fyrir páska. Lokað verður á föstudaginn langa og páskadag. Sundhöllin verður opin frá klukk- an 8.00 til 14.30 á skírdag og annan í páskum, en frá klukkan 7.30 til 17.30 laugardag fyrir páska. Lokað verður á föstudag- inn langa og páskadag. Skauta- svellið í Laugardal verður opið frá klukkan 10.00 til 18.00 á skírdag og annan í páskum, og frá klukk- an 13.00 til 18.00 laugardag fyrir páska. Lokað verður á föstudag- inn .langa og páskadag. Skíða- svæði í Bláfjöllum og Skálafelli verða opin frá klukkan 10.00 til 18.00 alla dagana, en opnunartími þar og á skautasvellinu er með fyrirvara um veður. Upplýsingar eru veittar í símsvara á skauta- svellinu í síma 685533 og á skíða- svæðunum í síma 80111.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.