Morgunblaðið - 05.04.1991, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 05.04.1991, Blaðsíða 44
44 MOK’GCJNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR '5. APRÍL 1991 SATÍRA FER í SIJGINN $8*i , Kauphallarmangarinn Sherman McCoy (Tom Hanks) ásamt við- haldinu Mariu Ruskin (Melanie Griffith), meðan allt er í lukkunn- ar velstandi. sónu bókarinnar). Og útlit mynd- arinnar er forkunnargott, tónlist- in áheyrileg og samstarf þeirra Zsigmonds og De Palma er helsti kostur Bálkösts hégómans — sem verður að teljast slæm mistök á ferli þess síðarnefnda (sem ætti að forðast gamanmyndir einsog heitan eldinn og halda sig við þrillerinn) og hörmung af hálfu Pulitzer- verðlaunahafans og handritahöfundsins Cristofers. Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Bíóborgin: Bálköstur hégómans — The Bonfires of The Vanities Leikstjóri Brian De Palma. Handrit Michael Cristofer, byggt á skáldsögu Tom Wol- fes. Kvikmyndatökustjóri Vilmos Zsigmond. Tónlist Dave Grusin. Aðalleikendur Tom Hanks, Bruce Willis, Mel- anie Griffith, Kim Cattrall, Saul Rubinek, Morgan Free- man, F. Murray Abraham, John Hancock, Donald Moffat, Alan King. Bandarísk. Warner Bros 1990. Ungur verðbréfasali (Hanks), orðinn margmilljóneri á kauphali- arkænsku, tekur eina ranga beygju þegar hann er að keyra viðhaldið sitt (Griffith) af JFK flugvellinum niður á Manhattan. Lendir í Suður Bronx þar sem hjásvæfan ekur á válegan negra- pilt sem var komin vel á veg með að æra úr þeim líftóruna. Griffith vill ekki tilkynna lögreglunni um atburðinn, hefur ærna ástæðu til að forðast íjölmiðla en drykk- felldur blaðamaður á nástrái (Willis) fær afspurn af málinu og blæs það út í gulu pressunni. Draumaveröld verðbréfasalans tekur að hrynja, með hveijum deginum bætast við nýjar hremmingar. Áreksturinn verður að stórpólitísku máli og böndin berast nær og nær sexmilljóndala þakíbúðinni hans á Park Ávenue. Og Willis fylgist grannt með. Viðhaldið bregst þegar á reynir og aukinheidur mistekst Hanks að knýja fram stórviðskipti í kauphallarmanginu. En þegar fangelsisdómur blasir við í réttar- salnum dregur hann fram leyni- vopn. Það leist fáum á blikuna er De Palma valdi þá Hanks og Willis til að fara með aðalhlut- verkin í þessari kvikmyndagerð hinnar geysivinsælu háðsádeilu Wolfs um fallvaltleika og óöryggi bankóseðla. Og höfðu rétt fyrir sér. Hanks er ekki nógu burðar- mikill i hlutverk „meistara al- heimsins“, hins sigurreifa uppa sem er þess fullviss að peningar færi honum allt og verndi fyrir öllu illu sína íburðarmiklu alls- nægtaveröid en kemst svo að raun um ein vitlaus beygja getur látið jörðina brenna undir fótum manns. Og biaða- drykkjumaður bókarinnar Peter Fallow, á fátt sameiginlegt með þeirri persónu sem Wiliis bögglast við að skila á tjaldið og eru þær breytingar sem handritshöfundur gerir flest- ai' til hins verra. Bókin Bálköstur hégómansvar blæbrigðarík og spaugileg árás á ímyndaða og sjálfumglaða veröld hinna nýríku níunda áratugarins, þar sem ráðvendni og heiðar- leiki, yfir höfuð flestar mannleg- ar dyggðir voru reknar á dyr af græðgi og hégómagirnd. Þessi satíra fer mikið til í súginn sem Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Uppvakningar („Awaken- ings“). Sýnd í Stjörnubíói. Leik- stjóri: Penny Marshall. Aðal- hlutverk: Robert De Niro, Rob- in Williams, John Heard. Bandaríkin. 1990. Myndin Uppvakningar með Robert De Niro og Robin Williams í aðalhlutverkum segir ótrúlega og stórkostlega, sanna sögu um tilraun sem átti sér stað á sjúkra- húsi í New York árið 1969 þegar ungum lækni tókst að vekja nokkra sjúklinga úr áratugalöng- um dásvefni. Tilrauninni lýsti læknirinn OIi- ver Sacks í bók sinni „Awaken- ings“ sem kom út árið 1973 og myndin er gerð eftir. í henni sagði hann frá hvernig honum tókst að og hinar litríku persónur og lýs- ingar á hugsunar- og lifnaðar- háttum þeirra. Aðaláherslan lögð á vinnubr.ögð gulu pressunnar og blaðamaðurinn settur í sögu- mannshlutverkið. Myndin verður sjaldnast spaugileg en oftar em ekki frekar óþægileg og fjarræn. Því fer þó ijarri að Bálköstur hégómans sé alvond þó hún hafi valdið vonbrigðum, enda er það tæpast hægt með slíkan mann- skap innanborðs og raun ber vitni. Þó leikur Hanks og Willis verði seint reiknaður þeim til tekna standa aðrir sig vel í yfir höfuð vel mannaðri mynd. Rubin- ek er kostulegur sem hinn lævísi aulabárður, saksóknarinn Kra- mer,- synd að handritshöfundur hefur að mestu leiti strokað út hin hallærislegu ástamál hans. Hancock er gustmikill og kómísk- ur sem negraklerkur og falsspá- maður og Freeman fer rétt einu sinni á kostum sem dómarinn White (sem á fátt skylt með per- vekja nokkra sjúklinga sem lifað höfðu af hinn svokallaða svefn- sjúkdóm, encephalitis lethargica, á þriðja áratug aldarinnar, dular- fullan sjúkdóm sem banaði mörg- um en lagði aðra í eilífan dá- svefn. Sjúklingarnir vöknuðu til sjálfs sín þegar Sacks gaf því nýtt lyf við Parkinsonveiki sem hét L-Dopa. En brátt kom í Ijós að lyfið hafði nokkrar aukaverk- anir. Breska leikritaskáldið Harold Pinter notaði bók Sacks sem grundvöll að leikriti sínu „A Kind of Alaska" sem sagði frá konu er vaknaði til lífsins eftir 40 ára dásvefn. í þessari frábæru, eftir- minnilegu og ljúfsáru mynd Penny Marshalls leikur Robert De Niro einn svefnsýkissjúklinginn - nefndur Leonard Lowe - sem leg- ið hefur á sjúkrahúsi mestalla ævina. Hann hafði fengið sjúk- dóminn ungur drengur en seint á ijórða áratugnum er hann lagður inn og er ástand hans óbreytt þar til nýr læknir sjúkrahússins (Sacks er hér leikinn af Robin Williams) gerir á honum fyrstum tilraunir með L-Dopa árið 1969 og vekur hann úr svefninum langa. Myndin segir fyrst og fremst sögu Leonards og vel gert hand- rit Steven Zaiilan er brosiegt og sorglegt, í senn. Þótt sjúklingarnir séu gersamlega ósjálfbjarga virð- ist búa með þeim andlegt Iíf. Fyrstu viðbrögðin við lyfinu hjá Leonard, sem las mikið í æsku, er að færa andaglas eftir stafróf- inu og vísa lækninum á ljóðið Pardusdýrið eftir Rilke og líkir sér við fangað dýrið. Þegar hann vaknar hins vegar alfarið úr svefninum telur hann að allt sé óbre^itt frá því hann var drengur og bregður þegar hann lítur í spegil. Sama er að segja um aðra sjúklinga sem vakna á eftir hon- um; öll halda þau að tíminn hafi staðið í stað. De Nii'o er ekkert minna en stórkostlegur í erfiðu hlutverki, þakklátur fyrir þær dýrmætu stundir sem honum auðnast að vaka. Hann er persónugervingur alls hins besta við myndina, góð- legur og sannur og heill og lýsir hinni líkamlegu fötlun á eftir- minnilegan hátt. Persóna Will- iams er óframfærinn vísindamað- ur sem litla reynslu hefur af því að meðhöndla fólk því hann hefui' alltaf lagt stund á rannsóknir en Williams gæðir hann lífi með skemmtilegum leik. Penny Marshall stýrir tilfinn- ingaleiknum í höfn án neinnar til- gerðar eða væmni og hefur gott auga fyrir hinu smáa, dýrmæta í lífinu. Myndin er i raun fallegur en dapur óður til lífsins, hins eih- falda en kærkomna sem okkur sést yfir af því við teljum það svo sjálfsagt í daglegu amstri. Hér er sannarlega á ferðinni stórmerk bíómynd sem vel er þess virði að sjá. SVEFNINN LANGI [ö =o=o=n—n—n—o—o11 0 o NðTEl BCRC I 0 0 | kvöld SÓtltólítWNTUMH: 0 ó tm u/tiuRin II! 0 in o nftfc í » Haakur Morthens M ámI hljómsvelt III 0 III o W - M 1 kvölfl III 0 III l|l * J| Áðgöngumiðaverð á dansleik II Snyrtilegur klæðnaður III m Borðapantanir og allar nánari upplýsingar í síma 1 1440. 0 II, Hí o III o III o III o II! o III o III o Jll, o Q| í Kaupmannahöfn FÆST I' BLAÐASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTA- STÖÐINNI, KASTRUPFLUGVELLI OG ÁRÁOHÚSTORGI FÉLAGSVIST kl. 9.00 GÖMLU DANSARNIR kl.10.30 c ★ Hljóms veitin 'o Tíglar S.G.T. .£ ~o> 3 Templarahöllin Eiriksgötu 5 - Simi 20010 O c ♦ Miðasala opnar kl. 8.30. * Góð kvöldverðlaun. * Staður allra sem vilja < *Stuð og stemning a Gúttógleði. * skemmta sér án átengis ROKKSVBBT RÚNARS JULÍUSSONAR SKEMMTIR í KVOLD leikur fyrir dansi FRÍTT INN TIL KL. 24 Snyrtilegur klceðnaður VITASTIG 3 yirj, L S(MI 623137 UÖL Föstud. 5. mars opið kl. 20-03 Breski blúsgítaristinn og söngvarinn DENNYNEWMAN & HLJÓMSVEIT Denny Newman var áður meðlimur í hinni heimskunnu hljómsveit MANFREDMAN Hann leikur m.a. efni af nýútkominni hljómplötu sinni BLESS TUPELO „Minnir mjög á Eric Clapton ó köfl- um - sérstaklega í söng“. JGJ. Kl. 22. - hljómsveitin ORGIL Fyrstu tónleikar hljómsveitarinnar eftir velhepnaða tónleikaför til Frakklands. Laugard. 6. mars opið kl. 20-03 DEIMNY NEWMAN & HLJÓMSVEIT Kl. 24 - hinn frábæri sönghópur BLÁI HATTURINN JÁPÍSS djass & blús PÚLSINH - staður með metnað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.