Morgunblaðið - 23.04.1991, Side 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIRÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1991
HANDBOLTI
Ekkier
alltsem
sýnist
Athugasemd frá
Leifi Dagfinnssyni
Morgunblaðinu hefur borist eftir-
farandi athugasemd frá Leifi Dag-
finnssyni, markverði 1. deildarliðs KR
í handknattleik:
„Mig langar til að svara þeim um-
mælum sem ég fékk í Morgunblaðinu
þann 18. apríl eftir leik KR (Knatt-
spyrnufélags Reykjavíkur) og Fram.
Svar mitt felst í því að leiðrétta lýs-
ingu blaðamannsins, sem er svotil
með öllu röng, á atviki er átti sér stað
í umræddum leik.
í fyrsta lagi skrifar blm. „Leifur
byijaði á því að mótmæia dómi þegar
Sigurði Sveinssyni var vikið af
leikvelli í tvær mín. “ Það er alls ekki
rétt. Ég mótmælti aldrei dómnum.
Það sem gerðist var það að ég stend
inní teig með boltann eftir að dómar-
amir höfðu réttilega dæmt aukakast
og sent Sigurð af leikvelli. Annar
dómari leiksins, Hákon, var við hliðina
á mér inní teig en hinn dómari leiks-
ins, Guðjón, stendhr úti á velli einbeit-
andi sér að brottvísun Sigurðar. Þar
sem ég stend og er að spyija Hákon
út í leikreglurnar varðandi hvenær á
að dæma sóp og hvenær ekki, og al-
veg hinn rólegasti þá bytjar einhver
lýður, að mér virðist forráðamenn
handkd. Fram, að kalla einhver
ókvæðisorð bæði að mér og Hákoni.
Fannst mér afskipti þeirra vera þess
eðlis að þeir vildu taka þátt í leiknum.
I mesta sakleysi og gríni sendi ég því
boltann til þeirra, þar sem þeir stóðu
við hliðarlínuna. Hákon aðhefst ekk-
ert, enda engin ástæða til. Hinsvegar
kemur Guðjón nú askvaðandi eins og
bjargvættur Fram með tvo fingur á
lofti til merkis um 2 mín. brottrekst-
ur. Virðist Guðjón hér hafa orðið að
leiksoppi Framara þar sem hann dró
þá ályktun af hrópum þeirra og beiðn-
um að ég verðskuldaði brottrekstur-
inn. Ég fékk ekki gult spjald hvað
þá tiltal frá Hákoni sem var vitni að
þessu atviki og hinn réttmæti dóm-
ari. Viðbrögð mín við þessari 2 mín.
brottvísun var einungis eitt hopp, en
ekki kjaftbrúk þvert gegn almennri
trú.
Semsagt engin mótmæli og boltan-
um ekki „spyrnt íáhorfendabekkina".
Enn hafði ég stjórn á skapsmunum
mínum en fann þó til reiði eins og
hver annar finnur til í sömu aðstöðu.
Það eina sem virkilega angraði mig
var að útskýringuna vantaði fyrir
þessum brottrekstri og voru það mín
mistök að reyna að sækjast eftir
henni, því hún er ekki auðsótt hjá
dómara eins og Guðjóni.
Tilraun minni við að nálgast Guðjón
og spyija hann, „afhveiju" var haldið
aftur af fyrirliða okkar. Sumir leik-
menn Fram voru ekki ánægðir með
þessa tilraun mína og heyrði ég kall-
að: „Rautt spjald! Rautt spjald! Og
Guðjón, einsog við manninn mælt,
veifaði rauðu spjaldi! Að mínu mati
algjörlega óréttmætt spjald. Ég get
tekið undir orð blm. „Leifur missti
stjórn á skapi sínu“. Én það gerðist
ekki fyrr en eftir að ég fékk rauða
spjaldið.
Því næst segir blaðamaður „hugð-
ist ráðast á dómarann og það reyndi
hann í þrígang". Hvernig getur blm.
fullyrt að ég ætlaði að „ráðast á dóm-
arann? Slíkt hvarflaði aldrei að mér.
Ég átti einungis ótalað við Guðjón og
fannst að ég yrði að vera nálægt
honum, þannig að hann myndi örugg-
lega heyra að þar væru mín orð á
ferð en ekki orð Framara.
Það má því spytja hvor hafí fyrr
misst stjórn á sér, dómarinn eða leik-
maðurinn.
Virðingarfyllst
Leifur Dagfinnsson."
Athugasemd
íþróttadeildar
Enginn nema Leifur sjálfur getur
fullyrt hvort hann hafi einungis ætlað
að ræða við Guðjón dómara, eftir að
hafa fengið rauða spjaldið, en af lát-
bragði hans að dæma var annað í
uppsiglingu en samræður leikmanns
og dómara.
Geir hættir hjá Granollers
Geir Sveinsson verður ekki
áfram hjá spænska liðinu
Granollers næsta tímabil. Félagið
hefur ákveðið að bæta við er-
lendri skyttu og því verður Geir
að víkja. Hann sagði við Morgun-
blaðið að hann hefði áhuga á að
vera áfram á Spáni eða í Frakkl-
andi, en eins kæmi til greina að
koma heim til íslands.
Geir sagðist hafa hugsað sér
að vera eitt ár til viðbótar hjá
Granollers enda hefði félagið sagt
að það vildi hafa hann áfram, en
aðstæður hefðu breyst. Fjórar
skyttur hefðu ieikið með liðinu í
vetur en Ijóst væri að Atli Hilm-
arsson færi og landsliðsmaðurinn
Geralda, sem er einn eftirsóttasti
örvhenti leikmaðurinn á Spáni,
væri sennilega einnig á fórum.
„Skyttuleysi háir liðinu og því er
afstaða félagsins skiljanleg,"
sagði Geir. Granollers hefur þegar
gert samning við Sovétmanninn
Atavin' og Tumichef er einnig
sterklega inni í myndinni að sögn
Geirs.
Geir sagði að erlendir línu- eða
hornamenn ættu erfitt uppdráttar
á Spáni og því væri ekki um auð-
ugan garð að gresja. „Ég hef
ekki áhuga á að fara í lakara lið
og 10 bestu tiðin eru með sam-
ingsbundna leikmenn, en það er
ljós i myrkrinu, bæði hér og í
Frakklandi. Ég skoða alla mögu-
leika í róiegheitum og þó ég hafi
ekki verið að hugsa heim í þessu
máli, þá getur alveg eins farið svo
að ég spili á íslandi næsta vetur.“
Geir Sveinsson. Leikur hann áfram á Spáni eða þá í Frakklandi?
Morgunblaöið/Bjarni
Komu til að ræða við Sigurð Bjarnason
Sigurður Bjarnason, landsliðsmaður í Stjörnunni, ræddi við tvo fulltrúa þýska úrvalsdeildarliðsins Grosswallstadt
um helgina. Gerd Zengel, yfírgfaldkeri félagsins (t.v), og Thomas Sinzel, íþróttalegur framkvæmdastjóri, komu til lands-
ins, fylgdust með leik Stjörnunnar gegn Val og ræddu síðan um hugsanlegan samning við Sigurð og forráðamenn
Stjörnunnar. Ekki er enn ákveðið hvort Sigurður gengur til liðs við þýska félagið, en viðræður gengu vel.
Frakkland:
Júlíus
með 130
mörk
- ogerí3.sætiyfir
markahæstu leikmenn
deildarinnar
JÚLÍUS Jónasson, landsliðs-
maður í handknattleik sem
leikur með Asnieres frá París
ífrönsku 1. deildinni, gerði þrjú
mörk er lið hans beið lægri
hlut fyrir Bordeaux, 22:21.
Asnieres er í 6. sæti deildarinn-
ar þegar ein umferð er eftir.
Júlíusi hefur gengið vel í vetur
og er í 3. sæti yfir markahæstu
leikmenn deildarinnar með 130
mörk. Hann sagðist í samtali við
Morgunblaðið ekki vera sáttur við
frammistöðu sína í leiknum gegn
Bordeaux.
Hann sagðist koma heim til ís-
lands 12. maí til að taka þátt í
undirbúningi landsliðsins fyrir B-
keppnina. „Við eigum eftir að spila
einn leik í deildinni og síðan æfinga-
leik gegn Leningrad 9. maí,“ sagði
Júlíus. Hann sagðist ekki vera bú-
inn að skrifa undir nýjan samning
við félagið en bjóst við að gera það
áður en hann kæmi heim.
Það er Ijóst að ef Júlíus verður
áfram hjá félaginu verður það að
sætta sig við að gefa hann lausan
í undirbúning landsliðsins og síðan
B-keppnina. Hann sagði að það
hafi orðið að samkomulagi að hann
myndi aðeins spila með félaginu
ákveðinn tíma næsta vetur og kæmi
heim til íslans þess á milli til að
æfa með landsliðinu. Það má því
búast við að Júlíus verði á ferð og
flugi næsta vetur.
Júlíus Jónasson.
Teka og Bidasoa
töpuðu óvænt stigum
Barcelona er nú orðið eitt á toppnum á Spáni
BARCELONA er eitt á toppi
spænsku 1. deildarinnar í
handknattleik eftir leiki helgar-
innar. Liðum íslendinganna
gekk hins vegar ekki vel, nema
hvað Sigurður Sveinsson og
félagar í Atletico Madrid unnu,
en þeir teljast þó varla með í
baráttunni um meistaratitilinn.
Kristján Aráson og félagar í
Teka töpuðu mjög óvænt á
heimavelli fyrir Valeneia, 19:22.
Rúmenarnir Stinga og Voinea, sem
■■■^■1 leika með Valencia,
FráAtla eru báðir meiddir og
Hilmarssyni Voru því ekki með,
áSpám 0g þv]- ]<orna úrsjjtin
enn meira á óvart
en ella. Jafnt var í hléi, 12:12.
Markvörður gestanna lék stórt hlut-
verk og varði m.a. þijú vítaköst í
síðari hálfleik.
Þess má geta að Cabanas, einn
besti maður Teka, verður ekki
meira með í vetur. Liðbönd í hné
hans eru slitin.
Kristján gerði þijú mörk en
markahæstur hjá Teka var Papitu
með sex.
Alfreð Gíslason og félagar í Bid-
asoa gerðu aðeins jafntefli á úti-
velli gegn nágrannaliðinu Arrate,
21:21. Bidasoa hafði örugga forystu
í hálfleik, 7:11, en heimaliðið kom
ákveðið til leiks eftir hlé og komst
þremur mörkum yfir, 16:13. Á þeim
tíma fór rúmenski markvörðurinn
Buligan á kostum í marki þessi.
Alfreð gerði 8/2 mörk. Pólverjinn
Bogdan, sem tekinn var úr umferð
hluta af leiknum, gerði Wenta 3/1
mörk.
Barcelona vann Caja Madrid
26:21. Júgóslavarnir í liði Barcelona
léku mjög vel. Portner gerði 11/7
mörk og Vujovic 7/2. Þá var mark-
vörður liðsins, Rico, mjög góður.
Granollers tapaði mjög óvænt á
heimavelli fyrir Mepamsa, 18:24.
Geir Sveinsson gerði eitt mark í
leiknum.
Sigurður Sveinsson gerði þijú
mörk er Atletico Madrid sigraði
Alicante á útivelli, 25:23. Staðan í
deildinni er nú þannig að Barcglona
er efst með 20 stig, Bidasoa er með
19, Teka 18, Atletico Madrid 15,
Valencia 11, Granollers 10, Caja
Madrid 9, Mepamsa 8, Alicante 7
og Arrate 3.
Þess má geta að lið Barcelona á
bæði eftir að leika í Santander,
gegn Kristján og félögum í Teka,
og í Irun gegn Alfreð og samheijum
í Bidasoa. Allt getur því enn gerst.