Morgunblaðið - 23.04.1991, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ IÞROI ÍIRÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1991
B 3
SKIÐI
[FRJALSAR IÞROTTIR
Morgunblaðið/Guðmundur Jakobsson
Verðlaunahafarnir Malgorzata Mogore Tlalka (t.v.) og Peter Jurko. Þau
höfðu mikla yfirburði á alþjóða mótunum í alpagreinum og unnu Flugleiðabikar-
inn, sem veittur er fyrri besta árangurinn í öllum mótunum.
Tlalka og Jurko
sigurvegarar
Franska stúlkan, Malgorzata
Mogore Tlalka, og Peter Jurko
frá Tékkóslóvakíu unnu Flugleiða-
bikarinn í karla og kvenna flokki.
Þau höfðu mikla yfirburði á alþjóða
fis-mótunum sem fóru fram á
Isafirði, Akureyri og í Reykjavík.
Síðasta mótinu af sjö sem fram
átti að fara í Bláfjöllum á laugar-
daginn varð aflýst vegna veðurs.
Að sögn Sigurðar Einarssonar,
formanns SKÍ, var mikil ánægja
með mótin að hálfu érlendu kepp-
endanna. Hann sagði að eftirlits-
maður FIS, Jan Jaamtberg frá
Svíþjóð, hafi gefíð mótunum hæstu
einkunn. „Þessi mót eru mikilvæg
fyrir okkur og það verður framhald
á þeim,“ sagði Sigurður.
Ástaog
Valdemar
bikar-
meistarar
Asta Halldórsdóttir, ísafírði
og Valdemar Valdemars-
son, Akureyri, urðu bikarmeist-
arar SKÍ í alpagreinum 1991.
Bikarmeistari SKÍ telst sá eða
sú sem nær bestum árangri
samanlagt úr bikarmótum vetr-
arins.
Ásta hlaut samtals 145 stig,
María Magnúsdóttir, Akureyri,
varð önnur með 108 stig og
Guðrún H. Kristjánsdóttir, Ak-
ureyri, þriðja með 93 stig.
Valdemar hlaut 136 stig í
karlaflokki, Vilhelm Þorsteins-
son, Akureyri, kom næstur með
120 stig og Arnór Gunnarsson,
ísafírði, þriðji með 113 stig.
Nike semur
viðPétur
Nike International og Pétur
Guðmundsson íslandsmethafi
í kúluvarpi hafa skrifað undir samn-
ing sem gildir framyfír næstu
Olympíuleika. Þar heitir Nike á
Pétur, nái hann árangri á alþjóðleg-
um stórmótum og styrkir hann
einnig veralega til keppnisferða. í
staðinn mun Pétur aðeins keppa í
Nike-vörum og auglýsa Nike-merk-
ið.
„Þetta hefur mikið að segja fyrir
mig og kemur til með að hjálpa
mér verulega," sagði Pétur, sem á
Islandsmetið innan- og utanhúss.
„Það er einnig viðurkenning fyrir
mig að komast á samning hjá Nike
og sýnir að það er tekið eftr árangr-
inum,“ sagðj Pétur.
Árni Þór Ámason, framkvæmda-
stjóri Austurbakka, sagði að þetta
væri í fyrsta sinn sem íslendingur
gerði samning við Nike Internation-
al. „Við höfum áður boðið fyrirtæk-
inu að gera styrk við íslenska
íþróttamenn en það hefur ekki
gengið fyrr en nú og það er tölu-
verður áfangi," sagði Árni. Hann
sagði að Nike stefndi að því að fá
í þennan hóp bestu einstaklinga
heims í hverri grein.
Morgunblaðið/KGA
Árni Þór Árnason, framkvæmdastjóri Nike, og Pétur Guðmundsson skrifa
undir samninginn.
htím
FOLK
■ HÉÐINN Gilsson fékk ekki að
fara af sjúkrahúsi um helgina, eins
og hann óskaði eftir. Hann var skor-
inn upp fyrir meiðslum á hásin sl.
^^■1 miðvikudag. Lækn-
Frá ar tilkynntu honum
Jóni Halldórí að Sovétmaðurinn
Garðparssyni Túskin hafí verið
i Þyskalandi há,fan mánuð á
sjúkrahúsi - án þess að segja orð.
■ FORRÁÐAMENN Huttenberg
hafa kært seinni leik sinn gegn
Dusseldorf í úrslitakeppninni um
úrvalsdeildarsæti í handknattleik.
Þeir segja að Júgóslavinn
Pavicevic, sem tók stöðu Héðins,
hafi verið ólöglegur. Bretemeier,
þjálfari Dusseldorf, segir að
kærunni verði vísað frá það sem
Pevicevic hafí verið löglegur.
■ ESSEN varð bikarmeistari í
handknattleik með því að vinna
báða leikina gegn Niederswiirz-
bach.
■ GUIDO Buchwaldj fyrirliði
Stuttgart, fer ekki til Italíu eins
og rætt hefur verið um. Hann verð-
ur áfram hjá Stuttgart og verða
árslaun hans, með bónusum og
ýmsum öðrum greiðslum, 36 millj.
ísl. kr.
■ HORST Köppel, þjálfari Dort-
mund, tilkynnti um helgina að hann
hafí ákveðið að hætta eftir keppn-
istímanilið. Dortmund hefur ekki
gengið vel í vetur.
UCANIGGIA, landsliðsmaður
Argentínu, hefur verið seldur frá
Bologna til Flórens á 432 millj.
ísi kr.
■ LEVEKKUSEN leikur vináttu-
leik gegn Liverpool 16. eða 27.
júní.
KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ
Mark Hughes, miðherji Manchestei' United, sést hér gíma við Guido Buc-
hwald í landsleik gegn Þýskalandi, en leiknum lauk með jafntefli, 0:0, í Cardiff
að viðstöddum 30 þús. áhorfendum.
Sterkur hópur
hjá Wales
Leikið gegn íslandi á Ninian Cark í Cardiff
Aðrir leikmenn: David Phillipis
(Norwich), Paul Bodin (Crystal
Palace), Kevin Ratcliffe (Everton),
Eric Young (Crystal Palace), Alan
Melville (Oxford), Mark Aizlewood
(Bristol City), Peter Nicholas (Wat-
ford), Barry Home (Southampton),
Gary Speed (Leeds), Jeromy Goss
(Norwich), Mark Pembridge (Lut-
on), Mark Hughes (Manchester
United), lan Rush (Liverpool) og
Dean Saunders (Derby).
Tveir nýliðar eru í hópnum, Goss
og Pembridge.
GLIMA
Óskar sigraði óvænt
•r
Oskar I. Gíslason, KR, sigraði n\jög óvænt í bytjendaflokki undir
81 kg á alþjóðlegu móti í gouren fangbrögðum, sem fram fór í
Berrien í Frakklandi á dögunum. Stefán Bárðarson, UV, hafnaði í
öðru sæti i sama llokki, en sjö keppendur voru í flokknum.
Fimm ísienskir glímukappar tóku þátt í móti keltneska fangbragða-
sambandsins ásamt keppendum frá Frakklandi, Skotlandi, Englandi,
Hollandi, Svíþjóð og Belgíu. 80 keppendum var skipt í byijendur, lið-
tæka og meistaraflokk.
Sigurður Iijaltested, UV, var í öðru sæti af átta keppendum í byrj-
endaflokki yfir 81 kg, lngibergur Sigurðsson hafnaði í 3. sæti í flokki
liðtækra og Þingeyingurinn Arngeir Friðriksson í sama sæti í opnum
meistaraflokki.
Terry Yorath, landsliðsþjálfari
Wales, tilkynnti í gær 16
manna leikmannahóp sinn fyrir vin-
áttuleikinn gegn íslandi á Ninian
Park í Cardiff mið-
FráBob vikudaginn 1. maí.
Hennessy Þetta verður síðasti
lEnglandi leikur Wales-veija
fyrir Evrópuleikinn
gegn Þjóðverjum í Cardiff 5. júní.
Hópurinn sem mætir íslending-
um er skipaður eftirtöldum leik-
mönnum:
Markverðir: Neville Southall
(Everton) og Tony Norman (Sund-
erland).