Morgunblaðið - 23.04.1991, Page 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIRÞRIÐ.JUDAGUR 23. APRÍL 1991
HANDKNATTLEIKUR
Jón saf nar titlum!
Jón Kristjánsson, landsliðsmaður í Val, hefur verið iðinn við að
vinna meistaratitla á undanförnum árum. Hann fagnaði sjötta
stóra meistaratitli sínum í tveimur íþróttagreinum, á laugardag.
1988: íslands- og bikarmeistari í handknattleik með Val.
1989: íslandsmeistari í handknattleik með Val og síðan íslands-
meistari í knattspyrnu með KA.
1990: Bikarmeistari í handknattleik með Val.
1991: íslandsmeistari í handknattleik með Val.
MEISTARAR!
Mikill fögnuður braust út í búningsherbergi Valsmanna að Hlíðarenda, þegar tilkynnt var um úrslit leiksins í Hafnarfirði. Á myndinni fagna þeir Þorbjörn Jens-
son, þjálfari, lengst til vinstri, Jakob Sigurðsson, fyrirliði, Árni Sigurðsson, Einar Þorvarðarson og Finnur Jóhannsson.
■ JAKOB Sigurðsson var mikið
á ferðinni í fyrri hálfleik gegn
Stjörnunni. Hann gerði þá fimm
mörk — öll eftir hraðaupphlaup. í
síðari hálfleik reyndi Jakob hins
vegar þijú markskot en náði ekki
að skora.
■ VALSMENN gerðu alls tíu
mörk eftir hraðaupphlaup — helm-
ing marka sinna í leiknum. Valdi-
mar gerði tvö slík, Jón Kristjáns-
son einnig og Dagur Sigurðsson
eitt.
B TVEIR fulltrúar þýska liðsins
Grosswallstadt fylgdust með leik
Vals og Sljörnunnar. Þeir komu
til landsins til að ræða við Sigurð
Bjarnason. Sigurður fann sig ekki
í leiknum — gerði aðeins eitt mark
úr 10 skotum.
H BRYNJAR Harðarson náði
heldur ekki að stilla „byssuna“ nógu
vel — gerði þijú mörk úr 13 skotum.
H SIGURÐUR sagðist ekki vera
í góðri leikæfingu, hefði verið í lyft-
ingaæfingum undanfarið, og
stefndi að því að komast í góða
æfingu í sumar.
■ PATREKUR Jóhannesson lék
aðeins í vörninni hjá Stjörnunni
fyrsta stundarfjórðunginn. Eftir
það tók hann einnig þátt í sóknar-
leiknum og varð markahæstur.
Reyknesingar kusu að fá niðurstöðu á kjördag — FH vann Víking og Stjarnan lá fyrir Val:
Þriðji íslandsmeistaratrtill
Valsmanna á fiórum árum
VALSMENN urðu íslandsmeistarar í handknattleik á laugardag
og virtist það engum koma meira á óvart en þeim sjálfum. Þeir
sigruðu Stjörnuna að Hlíðarenda og töldu sig hafa stigið mikil-
vægt skref í átt að titlinum; þar til sú fregn barst í búningsklef-
ann að FH hefði sigrað Víking. Menn trúðu vart eigin eyrum —
en mikill fögnuður braust út með leikmanna og stuðningsmanna
þegar þeir áttuðu sig.
Urslit eru sem sagt ráðin þrátt
fyrir að tveimur umferðum sé
ólokið. „Ég er ekki tilbúinn til að
hrópa húrra — en það kemur von-
andi fijótlega,"
Skapti sagði Valdimar
Hallgrímsson Grímsson við Morg-
skrifar unblaðið, skömmu
eftir að tíðindin bár-
ust úr Hafnarfirði. „Ég átti alls
ekki von á að Víkingur myndu helt-
ast úr lestinni, heldur beijast áfram
í þeirri von að við myndum tapa
stigi.“
Góð byrjun Vals
„Þetta gekk rosalega vel í byij-
un, en síðustu fimm mínútur fyrri
hálfieiks héldu menn að þetta væri
búið. Hættu að leika á fullu og við
komum eins inn á völlinn eftir hlé.
Það var ekki aftur fyrr en staðan
varorðin 16:15 að við náðum okkur
á strik aftur. En ég hafði þó alltaf
á tilfinningunni að við myndum
hala inn sigur,“ sagði Valdimar.
Það eru orð að sönnu að Vals-
menn hafi byijað vel. Mörkin hlóð-
ust upp, en Stjörnumenn voru á
hinn bóginn afar slakur í byijun.
Þeir gerðu ekki annað mark sitt
fyrr en eftir 12 mínútur. Valsvörnin
var góð, Einar varði vel og hvert
hraðaupphlaupið rak annað.
Gerbreyting
Munurinn var sjö mörk í leikhléi,
14:7, en eftir að liðin komu inn að
nýju breyttist leikurinn. Stjörnu-
menn komu mjög ákveðnir úr bún-
ingsherbergi sínu og eftir 12 mín.
leik var munurinn kominn niður í
þijú mörk, 16:13, og þremur mín.
síðar var staðan orðin 16:15. Allt
virtist geta gerst — og til að auka
á raunir Hlíðarendamanna var ein-
um þeirra vikið af velli. En þá gerð-
ist það afdrifaríka atvik að Valdi-
mar braut sér leið inn úr horninu
og skoraði, þrátt fyrir að Valsmenn
væru einum færri. Eftir það var
ekki aftur snúið, Stjarnan náði að
vísu að minnka muninn í eitt mark
en sigurinn var ekki í hættu.
Stjörnuliðið lék vel í síðari hálf-
leik, Brynjar Kvaran var þá í bana-
stuði í markinu og varði ellefu skot.
En liðið fór allt of seint í gang til
að geta raunverulega ógnað Vals-
mönnum. Brynjar Kvaran var best-
ur Stjörnumanna.
Verðugur meistari
Valsliðið, eins og það hefur leikið
upp á síðkastið, er verðugur ís-
landsmeistari. Víkingur var hinn
öruggi sigurvegari deildarkeppn-
innar, en Valsmenn hófu úrslita-
keppnina aðeins tveimur stigum á
eftir. Og þegar fyrirkomulagið á
deildinni er eins og nú er það ekki
mikið, og lítið má út af bregða hjá
liði í toppbaráttunni. Lið Víkings
hefur hrunið — unnið íjóra leiki,
gert eitt jafntefli og tapað þremur,
á meðan Valsmenn hafa unnið alla
átta leiki sína. Það skiptir að vera
í toppæfingu á réttum tíma, að allt
smelli saman. Það sannast hvergi
betur en á Einari Þorvarðarsyni.
Hann æfði lítið framan af vetri
vegna anna við þjálfun landsliðsins,
en síðan af krafti í rúman mánuð
fyrir úrslitakeppni og það skilaði
sér. Hann hefur varið mjög vel í
undanförnum leikjum. Hornamenn-
irnir eru mjög góðir, Brynjar Harð-
arson hefur leikið vel í sókn að
undanförnu en ekki síður í vörn —
hann stjórnar varnarleik liðsins af
festu. Og Jón Kristjánsson er að
verða traustasti maður liðsins.
Hann stóð sig vel i vörn, var vak-
andi fyrir mögulegum hraðaupp-
hlaupum og gerði sjálfur mjög fall-
eg mörk.
Valur-Stjarnan20:17
Valsheimilið, íslandsmótið í hand-
knattleik, úrslitakeppni 1. deildar —
efri hluti — laugardaginn 20. apríl
1991.
Gangur leiksins: 1:0, 1:1, 6:1, 6:2,
6:3, 10:3, 10:4, 13:5, 14:7, 15:10
16:15, 18:15, 18:17, 20:17.
Mörk Vals: Jón Kristjánsson 6, Jak-
ob Sigurðsson 5, Valdimar Grimsson
5, Brynjar Harðarson 3/1, Dagur
Sigurðsson 1.
Varin skot: Einar Þorvarðarson
16/2 (þar af 1 er knötturinn fór aft-
ur tii mötherja).
Utan vallar: 4 mínútur.
Mörk Stjörnunnar: Patrekur Jó-
hannesson 6/1, Axel Björnsson 3,
Magnús Eggertsson 3, Magnús Sig-
urðsson 2, Hilmar Hjaltason 1, Haf-
steinn Bragason 1, Sigurður Bjarna-
son 1.
Varin skot: Brynjar Kvaran 17/1
(þar af 4/1 er knötturinn fór aftur
til mótherja).
Utíin vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Gunnar Kjartansson og
Árni Sverrisson.
Áhorfcndur: 125 greiddu aðgang,
en alls voru urn 200 áhorfendur á
leiknum.