Morgunblaðið - 23.04.1991, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIRÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 1991
B 5
HANDKNATTLEIKUR / URSLITAKEPPNIN
Stefán Kristjánsson gerði tíu
mörk fyrir FH gegn Víkingi.
FHúti-
lokaði
frekari
spennu
FH-INGAR tóku það að sér að
tryggja Valsmönnum að ís-
landsbikarinn verði geymdur
að Hlíðarenda næsta árið með
því að leggja deildarmeistara
Víkings að velli í sveiflukennd-
um leik, 27:25, á laugardag.
Víkingar höfðu tögl og hagldir
í fyrri hálfleik og framan af
þeim síðari. Þá þéttu heimamenn
hjá sér vörnina og sex marka for-
i skot deildarmeistar-
Frosti anna hvarf á aðeins
Eiðsson fjórum mínútum.
sknfar pH skoraði gex
mörk í röð og staðan
breyttist úr 12:18 í 18:18. Á þessu
tímabili tóku FH-ingar sig á í vörn-
inni, Gunnar náði að hemja Birgi
sem var hættulegasta tromp
Víkings í sóknarleiknum og við það
gjörbreyttist leikurinn. Víkingar
náðu ekki að ógna með langskotum
og Gunnar og félagar í vörn FH
náðu að fiska margar sendingar
sem ætlaðar voru Birgi. Ofan á
þetta bættist að Bergsveinn náði
sér á strik í markinu.
Víkingar náðu aftur forystunni
en stuttu síðar gerði FH út um leik-
inn með fjórum mörkum. Óskar
Helgason sá síðan um að „enda,“
íslandsmótið með síðasta marki
leiksins á lokamínútunni.
Stefán Kristjánsson var mjög
drjúgur í sóknarleik FH og Gunnar
Beinteinsson skoraði þýðingarmikil
mörk í síðari hálfleiknum. Þá varði
Bergsveinn vel.
„Við sýndum það í síðari hálf-
leiknum að það er allt hægt með
góðri baráttu. Við bundum enda á
Islandsmótið en sýndum að við get-
um þetta ennþá,“ sagði Guðjón
Árnason við Morgunblaðið eftir
leikinn.
„Við vorum kraftlausir í s.'ðari
hálfleiknum og það var alltof lítill
hreyfanleiki í sóknarleiknum.
Stefnan hjá okkur núna er að halda
2. sætinu í deildinni," sagði Birgir
Sigurðsson, besti maður Víkings í
leiknum og einn af fáum leikmönn-
um liðsins sem að ekki hafa leikið
undir getu í úrslitakeppninni. Af
öðrum leikmönnum liðsins má nefna
Trúfan sem lék vel í fyrri hálfleikn-
um. Björgvin Rúnarsson sýndi góð
tilþrif og báðir markverðir liðsins
áttu góða kafla.
- sagði Brynjar Harðarson um tap Víkings og ísiandsmeistaratitil Vals
Morgunblaðiö/Bjarni
Jón Kristjánsson hefur staðið sig mjög vel með Valsliðinu í vetur, og átti stólpaleik gegn Stjörnunni. Jón lék mjög vel í vörn og var iðinn við að mata Jakob
í hraðaupphlaupum, gerði sex mörk sjálfur auk þess að stjórna sóknarleiknum vel. Á myndinni reynir Sigurður Bjarnason að stöðva Jón á laugardag.
Þetta kom eins og þruma úr
heiðskíru lofti og ég átti alls
ekki von á þessu. Við vorum í mestu
vandræðum með Stjörnuna en náð-
um að bjarga okkur með góðri vörn
og markvörslu og mér fannst þetta
í fyrsta sinn sem vélin hikstaði. Svo
heyrðum við úrsiitin og vorum
skyndilega íslandsmeistarar,“ sagði
Brynjar Harðarson. Hann sagði að
mótið hefði gengið vel fyrir Val og
allt tal um sigur Víkinga hefði kom-
ið Valsmönnum til góða: „Það herti
okkur þegar var verið að telja sigr-
ana hjá Víkingum og við vorum
ákveðnir í að sýna að við værum
með besta liðið. Víkingar áttu hins-
vegar alltaf í vandræðum með að
standa undir þessum miklu vonum.“
Brynjar sagði að sterkasta hlið
Vals væri breiddin: „Það sást í úr-
slitakeppninni. Það var ekki hægt
að einbeita sér að einum eða tveim-
ur mönnum því það var alltaf nóg
af mönnum til að taka af skarið,“
sagði Brynjar.
„Byrjuðum uppá nýtt“
Jakob Sigurðsson, fyrirliði Vals,
sagði að liðið hefði gert sér grein
fyrir því um áramótinu að erfitt
yrði að ná efsta sætinu í undan-
keppninni. „Við byrjuðum uppá
nýtt og vissum að við þyrftum að
leggja meira að okkur. Stjórn og
leikmenn lögðu dæmið niður fyrir
sig og við sáum að við urðum að
bæta við okkur,“ sagði Jakob. „í
fyrri hlutanum voru nokkrir lykil-
menn ekki í nógu góðu formi vegna
meiðsla og við lögðum áherslu á
að allt liðið yrði í toppformi í úrslita-
Morgunblaðiö/Bjarni
Brynjar Harðarson reynir fyrir sér með vinstri hendi í leiknum gegn Stjömunni.
keppninni. Fyrir úrslitakeppnina
byijuðum við að hlaupa og lyfta og
það skilaði sér. Við unnum marga
leiki á úthaldinu, þar á meðal leik-
inn gegn Víkingum. Auk þess hefur
breiddin verið mikil og þótt ein-
hverjir dali eru alltaf leikmenn til
að taka við.
Það hefur líka hjálpað okkur að
við höfum fengið mikinn stuðning
frá áhorfendum og stjómin hefur
unnið mjög vel. Það hafa allir lagt
hönd á plóginn,“ sagði Jakob.
„Vorum búnir að vinna fyrir
þessu“
„Þetta var ekki alveg eins og við
höfðum reiknað með og við vorum
komnir inní sturtu þegar við heyrð-
um úrslitin í Hafnarfírði," sagði
Einar Þorvarðarson, markvörður
Valsmanna. Hann á stóran þátt í
sigrinum og hefur varið mjög vel í
úrslitakeppninni. Liðið allt hefur
reyndar vaxið í úrslitakeppninni.
„Við lögðum áherslu á úrslita-
keppnina en fórum að sjálfsögðu í
alla leiki til að sigra. En það breytti
miklu að Brynjar var meiddur fyrri
hluta vetrar og ungu strákarnir
voru að komast inní liðið. Þeir stóðu
sig vel, sérstaklega í úrslitakeppn-
inni. Þetta var erfítt en við vorum
búnir að vinna fyrir þessu.“
Einar æfði reyndar lítið fram að
áramótum: „Ég ætlaði ekki að vera
í markinu en það fór þannig að ég
varð að gera það, nánast æfínga-
iaus. Eftir áramótin, þegar fór að
róast hjá landsliðinu, gat ég farið
að æfa aftur.“
Einar hefur náð sér fyllilega af
meiðslunum sem hann hlaut í
B-keppninni fyrir tveimur árum.
Hann segist þó ekki gera ráð fyrir
því að fara aftur i landsliðið: „Það
stendur ekki til núna og ég er kom-
inn hinumegin við borðið. En það
er ómögulegt að spá í framtíðina.
Nú er bara stefnan að klára mótið
með og hafa gaman af síðustu leikj-
unum,“ sagði Einar.
„Lofuðu afmælisgjöf“
„Strákarnir lofuðu afmælisgjöf
til félagsins í haust og þeir ætluðu
að standa við það,“ sagði Bjami
Ákason, formaður handknattleiks-
deildar Vals, en félagið heldur uppá
80 ára afmæli í vor. „Við emm
með gott lið, markvarslan og vörnin
hafa verið sérstaklega góð í úrslita-
keppninni og ég held að við eigum
besta homapar í heimi. Það er líka
ánægjulegt að sjá hve margir ungir
strákar eru að koma fram og það
sýnir að framtíðin er björt,“ sagði
Bjarni.
„Kom eins og þruma
úr heiðskím lofti“