Morgunblaðið - 30.04.1991, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 30.04.1991, Blaðsíða 4
'MOÍRGtíNBIAÐIÐ ÞRIÐJÍÍÐÁGUR 30. APRÍL 1991 4 Morgunblaðið/Sverrir Homsteinn lagður að Ráðhúsi Reykjavíkur Davíð Oddsson borgarstjóri lagði homstein að Ráðhúsi Reykjavíkur á sunnudag, að viðstöddu fjölmenni. „Þetta er mikill gleði- og hátíðisdagur fyrir borgarbúa og alla þá sem hér hafa unnið að mótun Ráðhúss- ins,“ sagði Davíð og þakkaði þeim sérstaklega, sem staðið hafa að framkvæmdum um leið og hann benti á að allar tímaáætlanir hafa staðist. Á myndinni bendir Davíð á hvar skrifstofa borgarstjóra verður í Ráðhús- inu, áður en hann brýtur bita af kökuhúsinu, sem gestum var boðið upp á við athöfnina. VEÐUR VEÐURHORFUR í DAG, 30. APRÍL YFIRLIT: Yfir Grænlandshafi er 1.025 mb hæft, en dálítið lægftar- drag skammt fyrir austan land. Um 900 km suður af Hornafirði er 1.002 mb lægft sem þokast austsuðaustur. SPÁ: Hæg norðlæg eða norftvestlæg átt og skýjað með köflum sunnanlands og vestan, skýjað að mestu og smáél á annesjum norðanlands en léttskýjað á Austurlandi. Austan og norðaustan gola, skýjað og sums staðar súld á Austfjöröum í nótt. Hiti breyt- ist litið. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á MIÐVIKUDAG OG FIMMTUDAG: Hæg vestlæg eða breytileg átt og fremur svalt. Skýjað og sums staðar dálítil súld við suðvesturströndina, en annars þurrt. Víða léttskýjað um austan- vert landið. TÁKN: •Q ► Heiðskirt x Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / f f f f Rigning / / / * / * f * f * Slydda f * f * * * * * * * Snjókoma * * * ■JO' Hitastig: 10 gráður á Celsíus ý Skúrir * V El = Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur —Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl, tíma Akureyri Reykjavik hitl 6 4 veður skýjað skýjað Bergen 13 léttskýjað Helsinki 9 skýjað Kaupmannahöfn 3 skúr Narssarssuaq B skýjað Nuuk +4 skýjað Osió 13 skýjað Stokkhólmur 7 skýjað Þórshöfn 9 léttskýjað Algarve 20 léttskýjað Amsterdam 8 alskýjað Barcelona 16 léttskýjað Berlín 10 skýjað Chlcago 17 þokumóða Feneyjar 17 þokumóða Frankfurt 14 léttskýjað Glasgow 10 rigning Hamborg 9 skúrásfð.klst. Las Palmas vantar London 15 rignlng Los Angeles 28 heiðskfrt Lúxemborg 12 skýjað Madríd 18 hálfskýjað Malaga 20 léttskýjað Mallorca 18 skýjað Montreal 16 skýjað NewYork 19 skýjað Orlando 33 skýjað Parls 14 skýjað Róm 16 skýjað Vín 17 léttskýjað Washington 25 rigning Winnipeg 12 léttskýjað Efast um lagalega heimild Stefáns - segir Benedikt Árnason um upp- sagnir þj óðleikhússtj óra STARFSFÓLK Þjóðleikhússins, sem sagt var upp í byrjun ársins, efast um að Stefán Baldursson, nýr þjóðleikhússljóri, hafi haft laga- lega heimild til að ráðskast með starfslið Þjóðleikhússins fyrr en I. september þegar hann tekur formlega við starfinu. Stefán segir að nýr þjóðleikhússtjóri beri ábyrgð á rekstri leikhússins og því sé eðlilegt að hann ráði hveijir starfa við stofnunina. „Það eru margir virtir lögfræð- ingar þeirrar skoðunar að Stefán Baldursson hafi ekki haft lagalega heimild til að segja okkur upp. í lögum um Þjóðleikhúsið segir að nýr þjóðleikhússtjóri eigi að kynna sér störf stofnunarinnar frá 1. jan- úar til 1. september þegar hann tekur við starfinu. Það er tekið fram að hann hafi aðeins atkvæðisrétt þjóðleikhússtjóra við fjárhagsáætl- un næsta árs,“ sagði Benedikt Árn- ason leikari í gær, en hann ásamt fleirum sem sagt var upp störfum hafa leitað álits lögfræðinga á lög- mæti uppsagnanna. Hann sagðí að fyrst nýr þjóðleik- hússtjóri hefði aðeins atkvæðisrétt varðandi fjárhagsáætlun þá hafí hann engin völd til að ráðskast með starfsliðið því það sé ráðið til starfa af öðrum, að minnsta kosti til 1. september. „Við fengum lögfræðilegt álit á þessum aðgerðum áður en við grip- um til þeirra og þeir aðilar sem við leituðum til töldu rétt að þessu stað- ið. Eftir að efasemdir komu fram höfum við leitað til lögmannsstofu og niðurstaðan er að uppsagnirnar hafí verið fullkomlega lögmætar og umrætt starfsfólk eigi engan bóta- rétt,“ sagði Stefán Baldursson, þjóðleikhússtjóri er hann var inntur álits á málinu. „Ef það er tilfellið að lögfræðing- ar hafí komist að öðru, og mér er ekki kunnugt um það, þá stendur þar meining gegn meiningu. í lög- um um Þjóðleikhús segir að nýr leikhússtjóri beri ábyrgð á því leik- ári sem í hönd fari og að hann eigi að semja starfs- og fjárhagsáætlun fyrir leikhúsið og fara með atkvæði þegar þau mál eru tekin fyrir. Þetta felur í sér að ákveða hvað eigi að sýna og hvaða starfsfólk leikhúsið þurfi að hafa til að fram- fylgja þeirri starfsemi. Ef nýr leik- hússtjóri bæri ekki ábyrgð á leikár- inu þá yrði fýrrverandi leikhússtjóri að gera það og áhrifa nýs manns færi þá ekki að gæta fyrr en eftir tæp tvö ár og það er ankannalegt þegar haft er í huga að leikhús- stjóri er aðeins ráðinn til fjögurra ára,“ sagði Stefán. Hann sagði ennfremur að upp- sagnirnar hefðu verið gerðar í fullu samráði við sitjandi þjóðleikhús- stjóra og Þjóðleikhúsráð. „Þó svo ég hafí sagt fólkinu upp og ákveðið í hverjum yrði sagt upp þá var það gert í fullu samráði við Gísla Al- freðsson þjóðleikhússtjóra og Þjóð- leikhúsráð. Gísli hafði aidrei neitt við þetta að athuga og mótmælti þessu aldrei, fyrr en eftir að allt var afstaðið," sagði Stefán. „Ég hef kosið að ræða þetta ekki við fjölmiðla," sagði Gísli Alfreðs- son þjóðleikhússtjóri þegar hann var inntur álits á málinu. Uppsagnir við Þjóðleikhúsið: Leikarar vilja bætur ÞRÍR leikarar, sem sagt var upp störfum við Þjóðleikhúsið fyrir skömmu, hafa sent menntamálaráðherra bréf þar sem þeir fara fram á að fá samsvarandi bætur og fræðslustjóri, sem vikið var úr starfi fyrir nokkrum árum. Leikaramir sem sendu mennta- málaráðherra umrætt bréf eru Brynja Benediktsdóttir, Benedikt Ámason og Agnes Löve. „Við send- um menntamálaráðherra bréf þar sem við förum fram á samsvarandi bætur og fræðslustjóri nokkur fékk fyrir nokkmm ámm þegar honum var vikið úr starfí,“ sagði Benedikt í samtali við Morgunblaðið í gær. Benedikt sagði að bætur þær sem fræðslustjórinn fékk á sínum tíma hefðu verið byggðar á því að honum hefði verið ranglega sagt upp. „Fræðslustjórinn hafði fengið að- varanir áður en honum var sagt upp, en við fengum engar slíkar. Við gerum þetta til að vekja á því athygli að það er til fordæmi og einnig til að benda á að menn ættu ekki að leika sér að því að fleygja fólki til og frá í starfí án þess að einhver ástæða sé fyrir því,“ sagði Benedikt. Hann sagði að ekkert svar hefði enn borist frá ráðuneytinu en von- aðist til að það bærist fljótlega. Svavar Gestsson, menntamálaráð- . herra, sagði í gær að hann hefði sent þremenningunum lögfræðilegt álit á þessu máli og vildi ekki tjá sig um það að öðm leyti. Friðrik Guðjónsson útgerðarmaður látínn FRIÐRIK Guðjónsson, útgerðar- maður og síldarsaltandi, lézt í Landspítalanum 28. apríl sl. á ní- tugasta aldursári. Hann var um áratugaskeið útgerðarmaður og sildarsaltandi norður í Siglufirði, meðan bærinn var miðstöð síld- veiða og síldariðnaðar. Friðrik fæddist 9. október 1901. Hann varð stúdent frá MR 1927 og lauk kennaraprófí ári síðar. Hann fluttist til Siglufjarðar um svipað leyti, stundaði kennslu fáein ár, sam- hliða atvinnurekstri, en stóð lengst af starfsævi sinnar fyrir útgerð og sfldarsöltun í Siglufirði, unz hann flutti til Reykjavíkur árið 1955. Eftirlifandi kona hans er Ástríður Guðmundsdóttir, sem nú dvelur á Hrafnistu í Hafnarfirði. Þau héldu heimili í Siglufirði frá 1928 til 1955, að undanskildum tveimúr árum, 1935-37, er Friðrik var oddviti og skólastjóri á Hellissandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.