Morgunblaðið - 30.04.1991, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 30.04.1991, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. APRIL 1991 33 Minning: Dieter M. Lucas taimsmíðameistari Fæddur 13. október 1941 Dáinn 14. apríl 1991 Það var daginn aftir vel heppn- aða árshátíð tannsmíðafélaganna, hinn 14. apríl sl., að ég frétti að vinur minn Dieter Luckas hefði andast þá um morguninn. Mig setti hljóðan og lét hugann reika aftur til ársins 1965 er leiðir okkar lágu fyrst saman, en hann var tannsmið- ur eins og ég og hafði verið ráðinn til starfa hjá Ríkarði Pálssyni tann- lækni sem ég var nemandi hjá. Til að byrja með skildum við ekki hvor annan, því enga þýsku- kunnáttu hafði ég, en smátt og smátt fórum við að reyna að gera okkur skiljanlega og það merkilega gerðist að þetta fór að ganga ágæt- lega og út úr þessu kom eiginlega alveg nýtt tungumál sem engir aðr- ir en við skildum og höfðum mikið gaman af. Dieter M. Luckas var fæddur 13. október 1941 og var því tæplega fimmtugur. Hann kvæntist 1964 Anný Luckas og eignuðust þau þijú börn. Udo sem er tannsmiður, Clád- íu sem er við nám í viðskiptafræði í Þýskalandi og Frank sem er tann- smiður. Föður sinn missti Dieter á unga aldri en móður sína fyrir nokkrum árum. Þekkti ég mæta vel þá sóma- konu, sem kom hingað nokkrum sinnum. Heimili þeirra hjóna var ávallt opið vinum og vandamönnum og var gestrisni einstök, því slík hús- móðir og móðir var konan hans hún Anný mín eins og ég ávallt kallaði hana, því ég var hálfgerður heima- gangur þar. Ófáar voru veiðiferðirnar sem við fórum norður heiða og ávallt skildu þær eftir góðar minningar. Það kom ekki sjaldan fyrir þegar Dieter staldraði við einhvern hylinn að ég sagði: „hér er enginn fiskur", ávallt var svarið hið sama sem ég fékk: „láttu karlinn prufa, því nefið mitt segir að hér sé fiskur", og ávallt stóð það heima, hann setti í lax með sínum rólegheitum. Svona var Dieter. Þegar ég lærði tannsmíðar 1966 voru tannsmíðar ekki til mikillar fyrirmyndar hér á landi, en með tilkomu Dieters gjörbreyttust þær og einnig tannsmíðanámið sem hann hóf til vegs og virðingar og á hann miklar þakkir skildar. Glæsilegasta tannsmíðaverk- stæði landsins rekur Anný með Udo og Frank ásamt heildsölu og er það rekið með glæsibrag eins og þeirra er von og vísa. Með þessum fátæklegu orðum votta ég Anný Luckas og fjölskyldu mína dýpstu samúð. Hvíl vinur minn í friði. Ásgeir Þorvaldsson Það er ekki auðvelt að lýsa þeirri tilfinningu, sem gegntekur mann, þegar maður fréttir af andláti vin- ar. Á þeirri stundu verður manni ljóst hve stutt er milli lífs og dauða. En þegar almættið er annars vegar höfum við ekki mikið að segja. Dieter Maximilian Luckas var fæddur 13. október 1941 í Bamberg í Þýzkalandi. Hann var sonur Karls Luckas, hóteleiganda og konu hans Annie. Hann lærði tannsmíði í sín- um heimabæ. Dieter kvæntist eftir- lifandi konu sinni Onnu Luckas (fædd Muller) þann 12. október 1964. Þeim varð þriggja bama auð- ið en þau eru Udo, tannsmiður fæddur 12.5.1965, Claudia, við- skiptafræðinemi fædd 23.9.1966 og Frank, tannsmiður fæddur 9.1.1968. Dieter kom til íslands 1965 þá 24 ára gamall til að starfa að tann- smíði fyrir föður minn, Hæng Þor- steinsson og Ríkarð Pálsson tann- lækna. Hann var í fyrstu ráðinn til eins árs og hélt að þeim tíma liðnum aftur til Þýzkalands. Þegar samn- ingstími eftirmanns hans var á enda tæpu ári síðar hringdi faðir minn til Dieters og bað hann að útvega sér annan tannsmið. Honum hefur eflaust líkað vel þetta ár, því að hann bauðst samstundis til að koma aftur og þá með fjölskylduna. 1972 stofnaði hann svo eigið fýrirtæki, Tannsmíðaverkstæðið hf., sem hann rak ásamt fjölskyldu sinni til dauðadags. Það hefur frá upphafi verið eitt stærsta fyrirtæki á sínu sviði hér á landi. Ég hef þekkt Dieter allt frá barn- æsku en honum kynntist ég betur, þegar ég hóf nám í tannsmíði hjá honum árið 1979. Dieter gat verið alveg með ólíkindum skemmtilegur. Hann var stríðinn og hafði gaman af að segja sögur af sjálfum sér og öðrum. Hann átti það til að ýkja svolítið, bæta aðeins við sög- urnar en það var bara til að gera þær skemmtilegri. Það var ekki alltaf auðvelt að vera í læri hjá Dieter. Hann var strangur húsbóndi og kröfuharður. Hann var ófeiminn við að láta mann heyra það, ef honum líkaði ekki eitthvað, enda var hann mjög metnaðarfullur í sínu fagi og örugglega einn af færustu tannsmiðum, sem hér hafa starfað. Oft fannst mér hann á þeim tíma alveg óþolandi. Þegar ég hafði lok- ið einhveiju verkefni og hann lét mig byija alveg upp á nýtt, ef hann var ekki fullkomlega ánægður. En þetta var hans aðferð við að kenna pg ná því besta út úr nemandanum. I dag þegar ég lít til baka þá efast ég ekki um að þetta er sú besta skólun, sem ég hefði getað fengið. Ég á honum mikið að þakka. Dieter var alveg einstaklega gestrisinn og hjálpsamur maður. Ef einhver átti í erfiðleikum, sama hvað það var, var hann strax boð- inn og búinn til að rétta hjálpar- hönd. Mér fannst Dieter oft vera leitandi maður. Hann var hugmynd- aríkur og hrinti hugmyndum sínum oftar en ekki í framkvæmd en það tekst víst fæstum. Hann var gleði- maður og naut lífsins og fór þar stundum geyst. Lífsgleði hans gat oft verið beinlínis smitandi. Slíkir menn eiga gott. Með þessum fáum orðum kveð ég góðan vin. Elsku Anni, Udo, Claudia og Frank! Ég votta ykkur mína dýpstu samúð á þessum erfiða tíma. Carola Ida Köhler Fædd 10. nóvember 1902 Dáin 19. apríl 1991 Þegar amma, Inga Sigurrós Guð- mundsdóttir, var 17 ára, flutti hún sig frá Reykjavík þar sem hún var fædd, norður til Akureyrar. Hún hafði ráðið sig sem barnfóstru hjá hjónunum Steinþóri Einarssyni yfir- kennara og Ingibjörgu Benedikts- dóttur. Skömmu síðar hitti hún afa minn, Gunnar Snorrason, sem varð „óskaplega skotinn í henni“. Hann var sonur Snorra Jónssonar, þekkts athafnamanns á Akureyri og Lovísu Loftsdóttur, konu hans. Amma var ekki alveg viss um að hann væri sá rétti og lét hann ganga lengi á eftir sér. Afi hafði árangur sem erfiði og þau giftu sig 11. nóvem- ber 1922. Amma þreyttist aldrei á að segja sögur frá því þegar hún var ung. Það var gaman að hlusta á hana og þótt ég kynni sögur hennar utan að þá bað ég hana oft að segja þær. Hún sagði t.d. frá því þegar hún fór til Danmerkur og var einn vetur í húsmæðraskólanum í Holte. Þá leigði afi sér herbergi heilan vetur í Kaupmannahöfn til að geta Það er alltaf erfitt að horfast í augu við dauðann. Hann virðist ávallt koma fólki á óvart og því er illmögulegt að búa sig undir að fá frétt um lát vinar eða ættingja. Þannig var mér afar bmgðið þegar ég frétti lát Dieters, þó nokk- uð sé nú liðið síðan ég sá hann síð- ast. En ég get ekki látið hjá líða að minnast hans í nokkrum orðum, því undanfarna daga hafa minning- arnar bókstaflega hrannast upp. Fyrstu árin á Tannsmíðaverk- stæðinu í Ármúla voru einhver þau lærdómsríkustu sem ég hef lifað. Dieter var lærifaðir minn í tann- smíðum og betri meistara var ekki hægt að fá. Þessi frábæri fagmað- ur, miðlaði okkur af þekkingu sinni en það tók oft á, því hann gerði miklar kröfur. Hann var vinnusam- ur og-kenndi okkur nemendum sín- um þá tækni líka. Stundum gekk mikið á. Verkefnin hrönnuðust upp og allt átti að vera tilbúið á skömm- um tíma. En þrátt fyrir annríkið var oft gaman og mikið hlegið því húmorinn var sjaldnast langt undan hjá Dieter. Og skemmtilegast þótti honum að gera grín að sjálfum sér. Hann hló aldrei innilegar en þá. Annie og Dieter reyndust mér afar vel þann tíma sem ég vann hjá þeim og ég á þeim margt að þakka. Ég votta Annie, Udo, Claud- iu og Frank mína dýpstu samúð. Vilborg Gunnarsdóttir, Akureyri. Það veit ég að vinur minn Dieter Lúkas eða Lúkas Karlsson eins og hann nefndi sig hér, brosir og hrist- ir höfuðið þegar hann lítur til mín frá sínu sviði, þar sem ég sit við eldhúsborðið og skrifa minningar- grein um hann, lausan við höft og hömlur jarðlífsins. Við grátum gjarnan horfna vini, en ættum í raun að gleðjast með þeim og biðja fyrir sálu þeirra. Dieter var tannsmíðameistari, og kom hingað frá Þýskalandi ásamt Önnu konu sinni og ungum börnum þeirra. Hann setti upp tannsmíða- verkstæði árið 1972, fyrst í sam- vinnu við Steinunni Stephensen tannsmið, en síðan með Önnu konu sinni. Síðar gengu synirnir tveir, Udo og Frank til samstarfs við for- eldra sína. Tannsmíðaverkstæði Dieters og Önnu var hið fyrsta sinnar tegund- ar hér á landi, með fjölda starfs- manna, og þar fengum við hin að kynnast hvernig unnið er og staðið að rekstri slíkra verkstæða erlend- is. Þetta var nýtt fyrir flestum tann- smiðum hér. Tókum við feginshendi móti þessum fersku straumum, og var Dieter óþreytandi við að miðla okkur af sinni kunnáttu. Hann fékk verið nálægt henni því hann var svo „óskaplega skotinn" eins og amma sagði alltaf. Hún sagði líka frá því þegar hún fór með afa á David Harrison-mótorhjólinu frá Reykja- vík til Akureyrar árið 1930. Hún sat í hliðarvagni sem var festur við mótorhjólið og var í marga daga að jafna sig eftir ferðina. Þegar ég var barn fannst mér eins og amma væri að segja frá einhveiju fólki í ævintýrum. Þau bjuggu í höll og höfðu stofustúlkur og afi hafði ferðast út um allan heim áður en hann hitti ömmu. En svo fór að þau fluttu allslaus frá Akureyri til Reykjavíkur árið 1928. Síldin hafði brugðist og afi sem hafði lifað eins og ungur prins, þurftu nú í fyrsta skipti að ráða sig í vinnu til að sjá fyrir sér og fjöl- skyldu sinni. Þá höfðu þau eignast tvo syni, Snorra sem er látinn og Sverri, föður minn. Seinna eignuð- ust þau Svanhildi, Gunnar og Ingu Kristínu, og smám saman lagaðist fjárhagurinn. Afi setti á fót lampa- verkstæði og amma, sem var mikil hagleikskona, málaði blómamyndir á lampana. Ég held að það hafi verið amma sem átti frumkvæðið oft til landsins menn framarlega í faginu til fyrirlestra- og námskeiða- halds, og oftast ef ekki alltaf, fór þetta fram á tannsmíðaverkstæði hans, sem þó var í fullum rekstri. Allt var lagt til, og ekki hugsað um að ef til vill kunnum við hin ekki of vel á öll þau efni, tól og tæki sem þar voru, því þróunin hafði verið afar ör í faginu á þessum árum ekki síður en nú. Það er áreið- anlegt að ef Dieters hefði ekki not- ið við, stæðu tannsmiðir á íslandi ekki jafnfætis erlendum starfs- bræðrum sínum í dag. Árið 1977 var stofnað Samband íslenskra tannsmíðaverkstæða. Var Dieter einn af frumkvöðlum þess, og gjaldkeri fyrstu 6 árin. Sem fyrr var hann óþreytandi, nú í barátt- unni fyrir bættum kjörum og betri menntun stétt sinni til handa. Ég vil minnast starfsbróður míns og félaga til margra ára, sem ska- príks ákafamanns, sem kunni að gleðjast með glöðum, og sem þátt- takanda í starfi og striti samferða- manna sinna. Anny mín, Udo, Frank, Kládía og barnabömin, fyrir hönd Sam- bands íslenskra tannsmíðaverk- stæða sendi ég okkar samúðar- kveðjur. Þóra Bjarnadóttir 14. apríl rann upp sem og hver annar dagur ársins. Árla reis ég úr rekkju, gáði til veðurs og velti því fyrir mér hvort vorið næði því á næstu dögum að leysa okkur Frónbúa endanlega úr fjötmm vetr- ar. Sunnudagurinn 14. apríl leið eins og aðrir frídagar við lestur blaða, smá bíltúr og að líta inn hjá vinum og ættingjum. Er leið að kvöldi hringdi síminn sem er varla orð á gerandi. Þar sem ég er kom- að flestu sem þau komu í fram- kvæmd og hún taldi það ekki eftir sér að leggja á sig erfiði þegar á þurfti að halda. Ég man fyrst eftir ömmu þegar hún og afi áttu heima á Karfavogin- um. Þegar ég kom og gisti, sem var oft, þá var afi að vinna á verk- stæðinu og amma að búa til listi- garð í kringum húsið. Hún átti fal- legasta garð sem ég viss um. Stund- um var hún að mála á postulín og oft var hún að baka eða elda veislu- inn á miðjan aldur fæ ég oft beyg í mig þegar síminn hringiij hann getur boðað slæm tíðindi. I þetta sinn var mér tjáð að vinur minn Dieter hefði látist þá fyrr um dag- inn langt um aldur fram, aðeins 49 ára að aldri og var hann þá staddur erlendis. '■ Það var dapur maður sem reyndi að fylgjast með sjónvarpinu um kvöldið. Gegnum huga minn runnu þeir rúmlega tveir tugir ára frá því að fundum okkar Dieters bar sam- an. Þó við skildum ekki hvor annan fyrst í stað vegna ólíkrar tungu þá var hlegið allt kvöldið. Dieter Luck- as fluttist til landsins 1965, fyrst einn, en svo fylgdi fjölskyldan í kjöl- farið. Hann kvagntist eftirlifandi eiginkonu sinni, Önnu, 12. október 1964, fæddri 16. mars 1940, hún er líka af þýskum uppruna. Þau s eignuðustu þrjú mannvænlég börn. Elstur er Udo, en sambýliskona hans er Rósa Linda Tborarensen, þá Claudia, gift Þórði Backmann og eiga þau tvo drengi, þau búa erlendis. Yngstur er Frank, en hann er enn í foreldrahúsum. Synirnir hafa rekið með foreldr- um sínum tannsmíðaverkstæðið í Síðumúla 29 hér í bæ. Þeir fetuðu í fótspor föður síns og lærðu tann- smíðar. Því láni átti ég að fagna að fara með Dieter í nokkrar veiði- ferðir og eru þær ógleymanlegar. Bæði var, að hann var slunginn veiðimaður og húmoristi hinn mesti. Á undanförnum árum hef ég unnið þó nokkuð fyrir þau hjón bæði við T uppbyggingu verkstæðisins í Síð- umúla og við heimili þeirra í Ásbúð 96 í Garðabæ. Öll okkar samskipti voru með ágætum og var það ekki síst að þakka hinni glæsilegu konu hans, Önnu. Það var sama hvenær maður heimsótti þau hjónin alltaf var sama hlýjan og skemmtilega viðmótið. Það er undarlegt að maður skuli fæðast til þessa lífs og þurfa að upplifa það að einn af öðrum sam- ferðamönnum skuli verða burt kall- s aðir á öllum aldursskeiðum, uns komið er að manni sjálfum, en svona er lífið. Um ætt og uppruna Dieters verða aðrir að skrá, ég er þeim hnútum ekki nógu kunnugur. Við þessar línur get ég ekki lokið án þess að ítreka góð samskipti við Önnu. Hún er einhver sú dugleg- asta kona sem ég hef kynnst, að öðrum konum ólöstuðum. Elsku Anna mín, börn og barna- börn, við hjónin biðjum guð að styrkja ykkur á þessum sorgartím- um. Megi Dieter ganga jafn glaður um lendur eilífðar eins og hann var hér í heimi. Blessuð sé minning hans. Þráinn Þorvaldsson mat. Hún bakaði fallegustu kökur sem ég hef séð. Ekki venjulegar kökur heldur kökur skreyttar með marsípanblómum eða einhveiju öðru punti. Hún bjó alla ævi að því sem hún lærði í húsmæðraskólanum í Holte. Afi dó árið 1974 og áttu þau þá hús í Básendanum. Amma treysti sér ekki til að búa þar ein með Gunnari, syni sínum, sem er þroska- heftur, og þau tvö fluttu stuttu seinna í Efstaland í Fossvoginum. Gunnar bjó heima hjá ömmu þar til fyrir nokkrum árum að hann' flutti í sambýli fyrir þroskahefta. Hann heimsótti þó ömmu lengst af um hveija helgi. Það var ótrúlegt hvað amma var alltaf dugleg. Hún var ekki heilsu- hraust en hún hafði alltaf þrek til að baka og hún átti alltaf heima- bakaðar kökur í skápunum sínum. Hún hugsaði mikið um útlit sitt og á hveijum degi setti hún á sig vara- lit og skartgripi. Hún fór alltaf regl- ulega í hárgreiðslu og endurnýjaði fötin sín öðru hveiju. Hún bar allt- af með sér hvað hún var mikil dama. Síðastliðið haust fór amma á elli-' heimilið Grund. Hún ætlaði sér allt- af heim aftur en heilsu hennar hrak- aði svo hratt svo ekkert varð úr því. Það er sorglegt að sjá á eftir ömmu en ég er þakklát fyrir að hún skyldi fá að halda reisn sinni alla ævi og vera ekki ósjálfbjarga í lang- an tíma. Svanhildur Kr. Sverrisdóttir Inga S. Guðmunds- dóttir - Minning
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.