Morgunblaðið - 14.05.1991, Side 36

Morgunblaðið - 14.05.1991, Side 36
36 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 1991 ATVINNUA UGL YSINGAR REYKJALUNDUR Fóstru vantar til afleysinga á barnaheimili Reykjalundar sem fyrst. Upplýsingar hjá forstöðumanni í síma 666200. Málarar óskast Einungis faglærðir eða þaulvanir menn koma til greina. Þurfa að geta hafið störf fljótlega. Upplýsingar í síma 985-25.829. Almálun Svanþór Þorbjörnsson málarameistari Vélamenn - bílstjórar Viljum ráða vana vélamenn og bílstjóra til starfa. Upplýsingar í síma 622700 á skrifstofutíma. ÍSTAK Auglýsingastjóri Viljum ráða auglýsingastjóra að tírparitinu Lopa og bandi, sem getur hafið störf sem fyrst. Lifandi starf, góð laun. Upplýsingar gefur ritstjóri blaðsins. _ , ‘Bókaforíagið Lífogsaga sími 689938. abendi FÞÐCJÖF OC R4ÐNINCAR Vantar þig 50% starf? Við leitum nú að fólki í eftirtalin störf: 1. Bókhald og almenn skrifstofustörf hjá framleiðslufyrirtæki. Um er að ræða 50% starf. Vinnutími frá kl. 8-12. Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi reynslu af sambæri- legu starfi og góða tölvukunnáttu auk góðrar þekkingar á bókhaldi og almenn- um skrifstofustörfum. 2. Bókhald og almenn skrifstofustörf. Hjá litlu ríkisfyrirtæki. Um er að ræða 50% starf við bókhald, launaútreikninga og öll almenn skrifstofustörf. Vinnutími frá kl. 13-17. Ábendi, Laugavegi 178, sími 689099. (á mótum Bolholts og Laugavegar) Opið frá kt. 9-12 og 13-16. ESPRIl LAUGAVEGI 101 Afgreiðslustörf Óskum að ráða afgreiðslustúlku. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst, hafi reynslu af afgreiðslustörfum og séu á aldrinum 18-25 ára. Umsækjendur komi til viðtals í verslunina miðvikudaginn 15. maí. Esprit hús, Laugavegi 101. BORGARSPÍTALINN Staða sérfræðings í geðlækningum er laust við móttökudeild geðdeildar Borg- arspítala. Starfinu fylgir kennsluskylda. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um náms- og starfsferil ásamt upplýsingum um fræðilegar rannsóknir og ritstörf. Umsóknir berist Stjórn sjúkrastofnana Reykjavíkurborgar fyrir 1. júní 1991. Aðstoðarmaður f sundlaug Vinnu- og dvalarheimili Sjálfsbjargar óskar að ráða aðstoðarmann í sundlaug Sjálfs- bjargar í afleysingar. Upplýsingar gefur Kristín Erna Guðmunds- dóttir, yfirsjúkraþjálfari í síma 29133 miðviku- daginn 15. maí eftir kl. 13.00. Skjólgarður Höfn Hornafirði Hjúkrunarfræðingar Á Höfn í Hornafirði er elli- og hjúkrunarheim- ili með fæðingardeild sem heitir Skjólgarður. íbúar eru 14 á vistdeild og 31 á hjúkrunar- deild, á fæðingardeild eru 12-24 fæðingar á ári. Stöðugildi eru samtals 35, þar af eru 4 hjúkrunarfræðingar starfandi en þeir eru Amalía Þorgrímsdóttir, Ester Þorvaldsdóttir, Sigrún Hermannsdóttir og Þóra Ingimars- dóttir. Okkur vantar hjúkrunarfræðinga til starfa. Mikil atvinna er á Hornafirði enda talsverð uppbygging og íbúum fjölgar jafnt og þétt. Náttúrufegurð í Austur-Skaftafellssýslu er margrómuð, veðurfar milt og samgöngur góðar. Allar nánari upplýsingar veita Ásmundur Gíslason, framkvæmdastjóri, og Þóra Ingi- marsdóttir, hjúkrunarforstjóri, símar 97-81118 og 97-81221. Skjólgarður. Hjúkrunarfræðingar Sjúkrahús Hvammstanga óskar eftir hjúkr- unarfræðingi til sumarafleysinga í júlí og ágúst á kvöld- og morgunv. Einnig vantar hjúkrunarfræðing í fasta stöðu frá 1. sept- ember. Nánari upplýsingar hjá hjúkrunarforstjóra í símum 95-12329 og 12920. IANDSPÍTALINN Reyklaus vinnustaður Handlæknisdeild - sérfræðingur Laus er til umsóknar staða sérfræðings (100%) staða í handlæknisfræðum við hand- læknisdeild Landspítalans. Staða þessi er laus frá 15. júní 1991. Umsækjandi skal hafa viðurkenningu í al- mennum skurðlækningum. Þess er sérstak- lega óskað að umsækjandi hafi reynslu af skurðaðgerðum í gegnum kviðsjá (laparo- scopic surgery). Umsóknir á umsóknareyðublöðum lækna, ásamt prófskírteinum, upplýsingum um starfsferil, ritstörf og fleiri upplýsingum, sendist Stjórnarnefnd Ríkisspítala fyrir 15. júní 1991. Upplýsingar gefur Jónas Magnússon, próf- essor í handlæknisfræðum. Rafeindavirki Laus er afleysingastaða rafeindavirkja á Eðlisfræði- og tæknideild Landspítalans. Starfið felst m.a. í viðhaldi og viðgerðum á tækjabúnaði Ríkisspítala. Ráðning til 1. okt- óber 1991. Góður umsækjandi á möguleika á áframhaldandi starfi. Umsækjandi þarf að hafa lokið iðnskólaprófi í rafeindavirkjun. Reynsla í viðgerðum á flókn- um rafeindabúnaði æskileg. Viðkomandi þarf að vera tilbúinn að sækja þjálfunarnámskeið erlendis. Umsóknarfrestur er til 14. júní. Upplýsingar gefur Þórður Helgason, for- stöðumaður, í síma 601595. Læknaritari Starf læknaritara (50%) á Eðlisfræði- og tæknideild er laust til umsóknar. Umsækj- andi þarf að vera félagi í Læknaritarafélagi íslands. Góð málakunnátta æskileg auk tölvukunnáttu. Umsækjandi þarf að vera tilþúinn að sækja endurmenntunarnámskeið. Umsóknarfrestur er til 14. júní. Upplýsingar gefur Þórður Helgason, forstöðumaður í síma 601595. Barnaspítali Hringsins Aðstoðarlæknar Lausar eru þrjár stöður 2. aðstoðarlæknis. Um er að ræða almenn störf aðstoðarlækna. Þátttaka í vöktum samkvæmt fyrirframgerðri áætlun. Bundnar vaktir. Tvær stöður veitast frá 1. ágúst 1991 til 31. janúar 1992. Eim staða veitist frá 15. júlí til 31. janúar 1992. Umsóknarfrestur er til 15. júní 1991. Nánari upplýsingar gefur prófessor Víkingur H. Arnórsson í síma 601050. Umsóknir á eyðublöðum lækna, Ijósrit af prófskírteini, upplýsingar um starfsferil ásamt staðfest- ingu yfirmanna sendist forstöðulækni. Reykjavík, 14. mai 1991. Vélamenn Viljum ráða sem fyrst vélskóflustjóra og véla- mann með kranaréttindi. Upplýsingar gefur Sigurður Kristjánsson í síma 681833. Björgun hf., Sævarhöfða 33, Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.