Morgunblaðið - 14.06.1991, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 14.06.1991, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 1991- 15 Rannsóknastöðin Mógilsá: Áhersla lögð á aukin tengsl við almenning BREYTINGAR verða gerðar á starfsemi Rannsóknastöðvar Skógræktar ríkisins að Mógilsá í kjölfar þess að nýtt starfslið hefur verið ráðið að stöðinni. Auk áframhaldandi rannsókna og til- rauna verður nú leitast við að efla tengsl við stofnanir, félög og ein- staklinga. Meðal annars verður almenningi auðveldað að skoða gróður í landi stöðvarinnar. For- svarsmenn stöðvarinnar kynntu nýlega starfsemina þar. Sveinbjörn Dagfinnsson formaður fagráðs stöðvarinnar og fulltrúi land- búnaðarráðuneytisins í ráðinu lýsti markmiðum með rekstri stöðvarinn- ar. Aðalmarkmiðin sagði Sveinbjörn vera tvö, að auka þekkingu á skóg- rækt í landinu og miðla þeirri þekk- ingu til fagmanna, félaga og þeirra einstaklinga sem hug hafa á að rækta skóg. Sveinbjörn sagði að með nýrri reglugerð um stöðina sem sett hefði verið í fyrrasumar hefði m. a. verið stefnt að því að bæta tengsl stöðvarinnar við þá aðila sem helst sæktu til hennar þjónustu. Nýir sérfræðingar hafa verið ráðn- ir að stöðinni eftir uppsagnir starfs- manna á síðasta ári. Meðal þeirra verkefna sem þetta nýja fóik fæst við eru tegunda- og kvæmarann- sóknir, notkun trjá- og runnategunda í landgræðslu, meindýrarannsóknir og ræktunartæknitilraunir. Tæp þijátíu ár eru liðin frá því ræktun og tilraunir hófust að Mó- gilsá en stöðinni þar var komið á fót fyrir fé sem Olafur noregskonungur færði íslendingum að gjöf árið 1961. Sérfræðingar stöðvarinnar gengu með blaðamönnum um ræktaða svæðið og bentu meðal annars á þær breytingar sem stöðugt verða á gróð- urfari skógarbotnsins. Sem dæmi sýndi Þórarinn Benedikz skógfræð- ingur hindbeijaplöntur sem nú dreifa sér svo hratt að við vandræðum ligg- ur. Arni Bragson jurtaerfðafræðingur og nýr forstöðumaður á Mógilsá sagði að eitt þeirra verkefna sem ráðist verður í á næstunni að Mó- gilsá verði að gera svæðið þar að- gengilegra almenningi með því að leggja göngustíga og merkja fleiri plöntur. Almennt sögðust starfs- menn stöðvarinnar sífellt verða varir við aukinn áhuga almennings á skóg- rækt. Sem dæmi um það nefndi Árni að fyrr á árinu hefði stöðin auglýst eftir samstarfi við landeigendur um sérstakt tilraunaverkefni með aspa- rækt. Eitt hundrað og fimmtíu manns, jafnt bændur og aðrir lan- deigendur víðs vegar um land, gáfu sig fram og voru fúsir til að taka þátt í tilrauninni. „Skógurinn er farinn að tala fyrir sig sjáifur", sagði Þórarinn Benedikz skógfræðingur. „Fólk er farið að sjá hve mikla möguleika landið býður upp á í skógrækt og við þurfum ekki lengur að tala fyrir daufum eyrum.“ I sama streng tók Sigvaldi Asgeirsson sem hefur auk starfa sinna við rannsóknastöðina leiðbeint Séð yfir Rannsóknastöðina að Mógilsá. Morgunbiaðið/Þorkeii Árni Bragason forstöðumaður, Jón Loftsson skógræktarstjóri og Sveinbjörn Dagfinnsson í landi Mógilsár. um nytjaskógrækt á Suðurlandi. tegundum sem vaxið geta á landinu. Þá kom einnig fram að unnið er Aðalsöfnin verða að Múlakoti í að því að koma upp söfnum af tijá- Fljótshlíð og á Hallormsstað. Góður mcitur er betri a grilh Gómsætar ogsv'ínakjöt. Úrvals nautakjo , a AMfa, vekja athygli .. rtl, uiötborð okkðr voi Hin stórglæsrlegu kioœoro OPIÐ: H! ÚUfj] / Laugardagur KauDStaður í Mjódd k». 10-14 Mikligarður v/Sund og p Mikligarður JL- husin ' ðabæ k|. 10-18 Mikligarður Miðvangi og Ga Sunnudagur Miðvangi og Garðabæ kl. 11-18 Mikligarður vestur i bæ, LOKAÐ 17. JÚNl KAUPSTADUR ÍMJÓDD Mm WSkm 'JJl1 JXL AIIKUG4RDUR ALLAR BÚÐIR ztsma ilWI. » a- m-nzst:. I !

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.