Morgunblaðið - 25.07.1991, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 25.07.1991, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 1991 3 5-9 ára börn á leikjanámskeiði: Gat kom á bátinn og bömin lentu í sjónum NIU börn á aldrinum fimm til níu ára á leikjanámskeiði Þrótt- heima lentu í sjónum undan Nauthólsvík þegar gúmmíbátur sem þau voru í sökk. Börnin voru flutt á slysadeild til rannsóknar en engum varð meint af volkinu. Það er liður í leikjanámskeiðinu að sigla í gúmmíbátum í eigu Sigl- ingaklúbbsins í Nauthólsvík. Að sögn Guðjóns Guðmundssonar, sem sér um rekstur leikjanám- skeiðsins á vegum Reykjavíkur- Hvassafellið; Viðgerð boðin út um helgina SKIPVERJAR á Hvassafelli, sem liggur laskað í höfninni í Carta- gena á Spáni eftir árekstur við bílaflutningaskip á Miðjarðarhafi, vinna nú að því að gera skipið sjóhæft, en ráðgert er að sigla skipinu til Þýskalands eða Norður- landa til viðgerða. Viðgerð á skip- inu verður að líkindum boðin út um helgina. Talið er að stálvið- gerð á skipinu muni taka um einn mánuð. Ekki verður unnt að láta gera við skipið Cartagena þar sem sumarfrí eru yfirstandandi í slippnum þar. Skipinu verður siglt um helgina í slipp í Þýskalandi eða á Norður- löndum. Að sögn Þorsteins Péturs- sonar hjá tæknideild Samskipa verð- ur viðgerðin að öllum líkindum boðin út eftir helgi, en talið er að hún taki í það minnsta 3-4 vikur. Einn maður frá Samskipum er nú í Cartagena til að meta skemmdimar. Áhöfn skipsins mun fylgja því til slipps og verður hluti hennar að því loknu sendur til íslands. Þorsteinn sagði að skipið yrði verkefnalaust að minnsta kosti í einn mánuð og það myndi kosta sitt. Skip- ið var að ijúka verkefni fyrir Líbíu- menn en ekki hafði verið gengið frá nýju verkefni fyrir það. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort leigt verði skip í stað Hvassafells meðan það er í viðgerð. Sjópróf fóru fram í fyrradag, en langur tími getur liðið áður en sjó- réttur verður haldinn. Ekki er ljóst hvar hann fer fram, en Hvassafellið var skráð á Kýpur en bílaflutninga- skipið í Panama. borgar, var ekki mikil hætta á ferðum. Nokkur ótti hefði þó grip- ið um sig meðal barnanna. Óhappið varð með þeim hætti að annar af tveimur gúmmíbátum sem börnin voru í rakst utan í gamla olíubryggju í fjöruborðinu skammt undan olíustöð Skeljungs og rifnaði við það gat á bátinn. Hann fylltist hægt og sígandi af sjó og börnin lentu í sjónum. Dýp- ið þar sem atburðurinn átti sér stað var um einn metri og sjórinn um 10-12 gráðu heitur. Starfs- menn námskeiðsins báru bömin á þurrt land og leitaði hópurinn. skjóls í bækistöð Skeljungs og fékk þar góða aðhlynningu. Að sögn Guðjóns varð það að ráði að fara með börnin öll til rannsóknar á Borgarspítalann þrátt fyrir að engum hefði orðið meint af volk- inu. Morgunblaðið/RGA Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra og Uffe Elleman-Jensen utanríkisráðherra Dana skömmu eftir komu þeirra til íslands í gær. Umferðar- slys í Viðey UMFERÐARSLYS varð í Viðey í gærmorgun. Starfsmenn Reykjavíkurborgar voru þar við vinnu á dráttarvél og bakkaði ökumaðurinn vélinni á mann sem ætlaði að tengja kerru við vélina. Lögregla var kvödd á staðinn og var maðurinn fluttur sjóleiðina til borgarinnar til rannsóknar á slysadeild. Slysið varð á svæði fyrir norðan Viðeyjarstofu. Talið er að ökumað- ur dráttarvélarinnar hafi runnið til á hálli kúplingu vélarinnar og hinn slasaði orðið fyrir hjóli vélarinnar. Hann var fluttur í sjúkrakörfu sem var á staðnum og með báti til Sundahafnar. Þaðan var ekið með hann í sjúkrabíl á slysadeild. Ekki er vitað hversu alvarleg meiðsli hans eru. Að sögn lögreglu er þetta í fyrsta sinn sem lögregla þarf að hafa afskipti af máli af þessu tagi í Viðey. í eyjunni eru tveir bilar um þessar mundir, jeppi í eigu borgarinnar og Volvo-bifreið í eigu verktaka auk dráttarvélarinnar. Utanríkisráðherra um Evrópskt efnahagssvæði: Málið úr sögunni ef ekki semst fyrir mánaðamót - segir „fiskveiðiþjóðir við Norðursjó“ standa gegn kröfum um tollfrelsi sjávarafurða JÓN Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra segir að náist samning- ar um Evrópskt efnahagssvæði ekki fyrir mánaðamót telji hann málið úr sögunni. Staða málsins sé óviss og hvorugur aðila gefi eft- ir. Evrópubandalagið kunni enga aðra samningatækni en þá að keyra málin í hnút og stilla mönnum upp við vegg. Vika sé til stefnu og úrslit skýrist eftir fund utanríkisráðherra Evrópubandalagsins á mánudag en lokalotan hefjist í vikulokin. Utanríkisráðherra hafnar því að gert verði bráðabirgðasamkomulag þar sem ekki verði tekið á ýmsum ágreiningsmálum í samningavið- ræðum EB og EFTA-ríkjanna. Hann kvaðst aðspurður engan til- gang sjá í því að ráðherrar EFTA- ríkjanna hittust til að samræma aðgerðir á lokasprettinum. Jón Baldvin sagði við fréttamenn við komu sína til landsins á Keflavíkurflugvelli í gær, að það séu ekki fyrst og fremst Spánvetjar sem standi í vegi fyrir viðunandi niðurstöðu um tollfijálsan aðgang íslenskra sjávarafurða að Evrópu- markaði heldur þjóðir í Norður-Evr- ópu. Ráðherrann vildi ekki tilgreina um hvaða þjóðir væri að ræða að öðru leyti en því að þetta væru „fiskveiðiþjóðir við Norðursjó“. Utanríkisráðherra sat í fyrra- kvöld ásamt Perrti Salolainen ut- anríkisviðskiptaráðherra Finna, Brian Mulroney, forsætisráðherra Kanada, og Davíð Oddsson, forsæt- isráðherra íslands, í Leifsstöð í gær. Á myndinni eru einnig eiginkon- ur þeirra, Mila Mulroney og Ástríður Thorarensen. liðum. Það er skoðun okkar að með þessu verði smám saman hægt að færa Sovétríkin inn í hið alþjóðlega viðskipta- og efnahagslíf. Það er geysilega stórt skref ef tekið er mið af því hvar Sovétríkin stóðu fyrir fimm árum. Gorbatsjov hefur sýnt mikla forystu og leiðtogar sjö helstu iðnríkjanna vildu styðja dyggilega við bakið á honum og því frumkvæði sem frá honum hef- urr komið. Ég tel okkur hafa gert það,“ sagði Mulroney að lokum. Davíð Oddsson sagði megintilefni heimsóknarinnar hafa verið að Mulroney vildi gera grein fyrir leið- togafundinum í London og því sem þar átti sér stað. Hefði það verið mjög fróðlegt. „Síðan hefur staðið til að standa að stofnun samtaka ríkjanna hér í norðrinu, þ.e. ís- lands, Kanada, Danmerkur vegna Grænlands, Noregs, Finnlands og Sovétríkjanna. Mulroney skrifaði mér bréf um þetta atriði og ég ítrek- aði það í samtali okkar að við mynd- um svara því jákvætt. Það verður væntanlega fundur vegna þeirra mála með haustinu og síðan er gert ráð fyrir að hann komi hér í opin- bera heimsókn. Verður tímasetn- ingin ákveðin nánar síðar,“ sagði Davíð. Aðspurður um markmið hinna fyrirhuguðu samtaka sagði forsæt- isráðherra að þau tengdust ekki síst umhverfi þessara landa, hafinu í kring og vernd þessara svæða. Síðan gætu fleiri mál verið sameig- inleg þessum þjóðum. „Ég held að það væri mjög mikilvægt ef við gætum náð saman,“ sagði forsætis- ráðherra. sem sitja í forsæti EFTA, fund í Brussel með Frans Andriessen úr framkvæmdastjórn Evrópubanda- lagsins, forsvarsmönnum Hollend- inga, sem nú sitja í forsæti EB, og Horst Krenzler yfirsamningamanni bandalagsins til að leita leiða til að ná samningum um hið Evrópska efnahagssvæði. „Þessi fundur er trúnaðarmál vegna þess að for- mennskulandið er ábyrgt fyrir hon- um og á eftir að upplýsa aðrar EFTA-þjóðir um stöðu málsins en þetta var fyrst og fremst málflutn- ingsfundur og leiddi ekki til niður- stöðu." Aðspurður sagðist Jón Baldvin ekki telja vonlaust að ná samning- um á þeim skamma tíma sem eftir er til mánaðamóta. „Það er von- laust á lengri tíma en ekki ef ætlun- in er að keyra þetta í gegn þannig að niðurstaðan verði sú að Evrópu- bandalagsráðherrarnir standi frammi fyrir því að taka samkomu- lagi eða hafna,“ sagði utanríkisráð- herra. Samferða Jóni Baldvin til lands- ins frá Brussel var Uffe Elleman- Jensen utanríkisráðherra Dana, sem mun funda með Jóni Baldvin í dag. Aðspurður um hvernig hann skýrði hina mismunandi túlkun ríkja EB og EFTA á því samkomu- lagi sem náðist á utanríkisráðherra- fundinum í Lúxemborg í júní sagði Uffe Ellemann-Jensen að hann vildi bíða með yfirlýsingar þangað til í dag er hann hefði rætt við Jón Baldvin. „Ég vil eiginlega ekki tjá mig um þetta fyrr en. við höfum rætt saman,“ sagði danski utanrík- isráðherrann. Þegar hann var spurður hvort hann teldi það enn vera raunhæft markmið að ná samningum um EES fyrir 1. ágúst sagði Elleman-Jensen að það yrði að halda áfram að reyna að ná samningum fyrir þann tíma. „Við ætluðum að vera að ljúka þess- um samningum fyrir löngu og við verðum að reyna að knýja þetta í gegn.“ Hann sagði ákveðin vandamál enn vera uppi en ef menn væru reiðubúnir að líta á hlutina í sam- hengi væri hægt að ná samkomu- lagi. Náttúrverndarráð; Undanþága til leið- sagnar verði afnumin Náttúruverndarráð ætlar að beina þeim tilmælum til Ferðamála- ráðs að afturkalla undanþágu austurrísks hópstjóra til þess að fara með hóp erlendra ferðamanna um landið l.-ll. ágúst næstkomandi. Maðurinn hefur séð um leiðsögn ferðamannahóps sem meðal annars hefur sést höggva úr bergi með meitlum og slaghömrum við Hall- bj arnarstaðakamb. Guðríður Þorvarðardóttir, starfs- maður Náttúruverndarráðs, sagði í samtali við Morgunblaðið á mið- vikudag að í framhaldi af upplýs- ingum lögreglu, landvarða, leið- sögumanna og bflstjóra um aust- urrískan ferðamannahóp sem færi miður vel með iandið hefði verið ákveðið að taka málið fyrir á Nátt- úruverndarráðsfundi. Þar hefði ver- ið ákveðið að beina þeim tilmælum til Ferðamálaráðs að afturk'alla undanþágu sem leiðsögumanni hópsins hefði verið veitt til að ferð- ast um landið með hóp erlendra ferðamanna l.-ll. ágúst næstkom- andi. í samtalinu kom fram að Austurríkismennirnir hefðu að und- anförnu sést taka sýnishorn við Tjörnes, Öskju og Helgustaðanámu. Sagði Guðríður líklegt að hér væri um þekkingarskort viðkom- andi hópstjóra að ræða sem undir- strikaði nauðsyn þess að hafa íslenska fararstjóra með erlendum ferðamönnum. Austurrísku ferða- mennirnir eru að eigin sögn jarð- fræðingar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.