Morgunblaðið - 25.07.1991, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 25.07.1991, Blaðsíða 24
Ólafsfirði. MIKILL ferðamannastraumur hefur verið til Ólafsfjarðar að undanförnu og hefur raunar verið svo allt frá því að göngin um Ól- afsfjarðarmúla voru opnuð til umferðar siðastliðinn vetur. Helgarbíltúr um Tröllaskagann eða miðnætursólarferð í Ólafsfjarð- armúla freista ferðafólks í auknum mæli og hringvegurinn frá Akureyri um Ólafsfjörð, Fljót og Skagafjörð er hæfileg dagleið að aka fyrir íbúa á Eyjafjarðarsvæðinu. Stöðugt er unnið að því að bæta aðstöðu til móttöku ferðamanna í Ólafsfirði, tjaldstæði bæjarins hafa verið endurbætt og nýlega var tekinn í notkun 70 fermetra garðskáli við Hótel Ólafsfjörð og eykur hann möguleika hótelsins að taka á móti stærri hópum matargesta. I vor keypti Skeljungur hf. meiri- hluta hlutabréfa í Hótel Ólafsfirði hf. og á nú um 98% hlutafjárins. Áformaðar eru verulegar fram- KRISTNESSPIT ALI Lausar stöður hjúkrunarfræðinga Deildarstjóri óskast á hjúkrunardeild okkar. Um er að ræða afleysingarstöðu í eitt ár frá og með 1. ágúst að telja eða eftir nánara samkomulagi. Vegna vaxandi starfsemi á endurhæfingar- deild okkar vantar okkur hjúkrunarfræðinga til starfa. íbúðarhúsnæði og barnaheimili á staðnum. Upplýsingar 96-31100. gefur hjúkrunarforstjóri í síma Kristnesspítali. Slippstöðin á Akureyri: Engar nýsmíðar í sjónmáli Morgunblaðið/Sigurður Björnsson Hótelstjórinn, Baldvin Sigurðsson, í nýja gárðskálanum við Hótel Ólafsfjörð. Byggt við hót- elið í Ólafsfirði kvæmdir við hótelið því auk hins 70 fermetra garðskála sem byggður hefur verið og tengist veitingasal hótelsins verður byggð við hótelið aðstaða til bensínsölu og annarrar ferðamannaþjónustu auk þess sem lóð verður standsett. í hótelinu eru 11 tveggja manna herbergi með baði, én auk þess hefur hótelið yfir að ráða 30 rúmum úti í bæ fyrir svefnpokapláss. Bar er í hótelinu og veitingasajir rúma um 100 manns. Hótel Ólafsfjörður stendur við Ólafsfjarðarvatn og annast hótelið sölu veiðileyfa í vatninu, en þar er góð stangveiði, bæði silungur og lax. Hótelið hefur báta á vatninu en útvegar einnig róðrarferðir með trillukörlum fyrir þá sem hafa áhuga á að fara á skak. Á veturna hefur dorgveiði á ísnum á Ólafsfjarðar- vatni sífellt orðið vinsælli og óvíða er að finna skemmtilegra svæði til vélsleðaferða en Tröllaskagann. - S.B. ENGIN nýsmíðaverkefni eru hjá Slippstöðinni á Akureyri nú þeg- ar Þórunn Sveinsdóttir VE 401 hefur verið afhent eigendum sín- um. Næg viðhaldsverkefni eru hjá stöðinni fram á haustið en verulega dregur úr þeim þegar vetur nálgast. Varla er hægt að tala um að veruleg skipasmíði hafi verið í landinu um árabil. Sigurður G. Ringsted, forstjóri Slippstöðvarinnar á Akureyri, segir að ekki sé bjart framundan í ný- smíðum skipa á íslandi. Nú, þegar lokið sé smíði Þórunnar Sveinsdótt- ur, hafi Slippstöðin ekkert nýsmíða- verkefni og engir samningar um slíkt séu á borðinu. Talsvert sé um að menn ræði um að láta smíða skip, vilji það bæði og þurfi, en aðstæður í þjóðfélaginu séu ekki slíkar að þeir herði sig upp í það. Það sé náttúrulega slæm staða í skipasmíðastöð að þar séu ekki smíðuð skip. „Það hafa ekki verið smíðuð ný skip á íslandi svo neinu nemi í mörg, mörg ár. Það má segja að því hafi lokið um 1984 og síðan hafa verið að reytast svona eitt og eitt skip. Staðan er þannig núna að menn eru sáralítið að semja um að smíða skip erlendis og ekkert hér á landi. Það eru engar teljandi nýsmíðar í gangi, en það hlýtur að koma innan skamms.“ Sigurður sagði að aðalkappsmál í íslenskum skipasmíðaiðnaði væri nú að sýna fram á samkeppnis- hæfi, að við getum keppt við erlend: ar þjóðir á þessum markaði. í tengslum við smíðina á Þórunni Sveinsdóttur hefði í samráði við Félag dráttarbrauta og skipasmiðja og Iðnaðarráðuneytið verið unnið sérstakt hagræðingarátak til þess að bæta vinnubrögð við allan undir- búning og framkvæmd verka af þessu tagi. Átakið hefði borið árangur sem lýsti sér einkum í Morgunblaðið/Guðmundur Hrafn Kaldbakur við bryggju hjá Slippstöðinni á Akureyri. styttri verktíma, færri vinnustund- um og þar með lækkuðum smíða- kostnaði. Með því að breyta og bæta skipulagið við vinnuna, ákveða hvar og í hvaða röð verkin séu unnin, nýtist starfskraftar manna betur. Gamla aðferðin, að smíða skipsskrokk og loka honum sem fyrst og fylla hann svo af vinn- andi mönnum sem varla hafa oln- bogarúm, sé nú aflögð. Nú sé hins vegar reynt að gera sem mest áður en skipinu er lokað. Smíði Þórunnar hafí tekið um 9 mánuði og það sé mun styttri tími en áður við sam- bærileg verk og vinnustundir til muna færri. Munurinn gæti verið allt að 3-4 mánuðir. Enn er óselt það nýsmíðaskip sem lengi hefur verið í fréttum og iðulega nefnt raðsmíðaskip. Sigurð- ur sagði að skipið tengdist ekki raðsmíði af neinu tagi, það hefði verið sérverkefni og smíðað á tíma- bili þegar verkefnaleysi hefði verið hjá stöðinni. Af og til hafi virst sem skipið myndi seljast og samningar hafi verið gerðir. Nú séu hins vegar 15-16 mánuðir síðan samningi var síðast hafnað. Á þeim tíma hafi fjöl- margir sýnt áhuga á að kaupa skip- ið en enginn gengið svo langt að ganga frá samningum. Framundan eru hjá Slippstöð- inni, að sögn Sigurðar, eingöngu viðhaldsverkefni. Þau endast fram á haustið en verulega dregur úr þeim þegar vetur nálgast. Stærsta verkefnið er endurbætur á togaran- um Kaldbak, en þar er meðal ann- ars verið að skipta um togþilfar og búnað í vinnslusal. Við þetta og önnur smærri verkefni er nú næg vinna fyrir þá liðlega 200 menn sem vinna hjá Siippstöðinni. Þessar vik- urnar eru að vísu ekki allir að störf- um þar sem sumarieyfi standa yfir. Sigurður sagði að óljósara væri um veturinn. Að vísu væri svo um sam- ið að Slippstöðin tæki Harðbak og breytti honum á sama hátt og Kald- bak, en það yrði trúlega ekki fyrr en eftir áramót. Þetta væru samt ekki næg verkefni til að halda fullri starfsemi í vetur, töluvert fleira þyrfti að koma til. Skátamót í Vaglaskógi um verslunarmannahelgina JAFN og góður ferðamannastraumur hefur verið í Vaglaskógi í sum- ar. Talsvert hefur verið unnið að því að bæta ferðamannaaðstöðu í skóginum. Skátafélagið Klakkur gengst fyrir fjölmennu skátamóti í skóginum um verslunarmannahelgina. Aðeins verða almenningi opin fjölskyldutjaldsvæði við hjólhýsasvæðið meðan mótið stendur. Útivistarsvæðin í Vaglaskógi hafa verið fjölsótt í sumar. Sigurður Skúl- ason, skógarvörður, sagði að umferð fólks hefði að jafnaði verið róleg og góð. í ár hefðu tjaldsvæðin verið opnuð fyrr en í fyrra og gistinóttum ferðamanna í skóginum hefði fjölgað um 1.300, náð svipuðum fjölda og árið 1988. I góðviðrinu í fyrri hluta júlí hefði oft verið mikill manníjöldi í skóginum, allt upp í 500 manns í gistingu um nótt en auk þess hefðu MJOLKURBIKARKEPPNI DH - KR á Akureyrarvelli í kvöld kl. 20.00 EUPOCARD E EUROCARD töluvert margir komið í skóginn úr nágrannahéruðum og notið fegurðar skógarins og veðurblíðunnar við að narta í nestið sitt og sötra á kaffi úr brúsa. Að sögn Sigurðar er alltaf tals- vert um að fólk komi í skóginn án þess að tjalda þar. Se fólki heimilt að ganga um allan skóginn og nú sé unnið að því að opna gamla stíga og gera þá betur færa gangandi fólki. Umgengni á tjáldsvæðum segir Sigurður að sé í flestum tilvikum góð, þó komi fyrir að fámennir hóp- ar gangi illa um og aldrei þurfi marga til að spilla fyrir hinum sem betur gangi um. Þá hendi af og til að ónæði verði á svæðunum, einkum um helgar ef þangað komi hópar til þess að halda uppi næturglaumi. Hins vegar séu tjaldgestir að jafnaði flestir fjölskyldufólk og rólegra yfir því. Gerðar hafi verið ráðstafanir til að hleypa megi tjaldvögnum inn á almenn tjaldstæði, annars sé reynt að forðast sem mest akstur um svæðið. Innst í skóginum sé svæði fyrir um það bil 40 hjólhýsi og al- gengast sé að komið sé með þau að vori og þau tekin aftur þegar kemur fram á haust. Að undanförnu hefur verið unnið að bótum á aðstöðu fyrir ferðafólk- ið. Þannig hefur verið komið upp tveimur nýjum snyrtihúsum og þessa dagana verið að koma því þriðja fyrir. Þama eru salerni og rennandi kalt vatn. Við þessar viðbætur fjölg- ar salernum á svæðunum um helm- ing. Um verslunarmannahelgina verð- ur mikið skátamót á aðaltjaldsvæð- unum í skóginum og þau því lokuð almenningi. Hins vegar verður hjól- hýsasvæðið opið og fjölskyldufólki auk þess hleypt inn á tjaldsvæði við hliðina á því. Skátafélagið Klakkur á Akureyri stendur að mótinu í Vaglaskógi, mótsstjóri verður Jóhannes Árnason. Að sögn hans verður mótið sett að kvöldi föstudagsins 2. ágúst og stendur fram á mánudag, 5. ágúst. Þar verður mikil dagskrá eins og á hefðbundnu skátamóti, en einkum verður fengist við ýmislegt sem tengist skóginum og tillitssamri umgengni við hann. Yfirskrift mótsins er „Á grænni grein.“ Meðal þess sem skátarnir fást við verða byggingar úr timbri, endurvinnsla á pappír, sorpflokkun og viðgerð á rofabörðum. Mótsblað verður gefið út daglega og útvarps- stöð verður starfrækt í Vaglaskógi mótsdagana. Þátttakendur á skátamótinu verða um 250 talsins, víðs vegar að af landinu. Auk þess verða um 50 skát- ar í vinnubúðum svo og fjölskyldu- búðir, þar sem búist er við nokkrum tugum fjölskyldna. Að sögn Jóhann- esar hefur verið unnið að undirbún- ingi mótsins frá því í vetur leið en meginvinnan stendur þó yfir síðustu tvo mánuðina fyrir mótið sjálft.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.