Morgunblaðið - 02.10.1991, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 02.10.1991, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTOBER 1991 31 Jóhanna Björnsdóttir, Syðra-Hóli - Minning Fædd 25. mars 1891 Dáin 28. september 1991 Lækkar lífdaga sól. Löng er orðin mía ferð. Fauk í faranda skjól fegin hvíldinni verð. Guð minn gefðu þinn frið gleddu og blessaðu þá sem að lögðu mér lið. Ljósið kveiktu mér hjá. (H. Andrésd.) Þessar hendingar flugu um huga minn þegar ég frétti andlát föður- systur minnar, Jóhönnu Björnsdótt- ur frá Syðra-Hóli, Jóu frænku, eins og við kölluðum hana jafnan. Lífshlaupið var orðið langt. Hún varð 100 ára í vetur og var þá svo frísk að hún sat afmælishóf sem henni var haldið á dvalarheimili aldraðra á Akureyri en þar hefur hún búið um nokkurt skeið. Jóhanna fæddist á Syðra-Hóli í Austur-Húnavatnssýslu 25. mars 1891. Foreldrar hennar voru Björn Magnússon bóndi á Syðra-Hóli og kona hans María Ögmundsdóttir. Björn var ættaður frá Holti á Ásum en María frá Fjalli á Skaga. Önnur börn þeirra hjóna sem upp komust voru: Ólafur bóndi og sjómaður og síðar smiður á Akureyri, ókvæntur, Magnús bóndi og fræðimaður á Syðra-Hóli, kvæntur Jóhönnu Al- bertsdóttur, Lárus smiður á Akur- eyri, ókvæntur, Ögmundur verka- maður í Sandgerði, kvæntur Guð- rúnu Oddsdóttur, Ragnheiður kenn- ari og saumakona, ógift, og Mar- grét, gift Sigurði Guðmundssyni trésmið í Laufási á Skagaströnd. Margrét er nú ein á lífi þeirra systk- ina. Jóhanna var þriðja elst og var yngri systkinum sínum sem önnur móðir. Jóhanna hóf ung störf heimafyr- ir og var bæði verklagin og afkasta- mikil hvort sem um var að ræða útivinnu, eldhúsverk eða handa- vinnu. Ekkert verk var.svo lítilfjör- legt að hún vandaði ekki til þess. Hún var eins og móðir hennar og systur hannyrðakona mikil, smekk- vís á liti og handbragðið fallegt. En handavinna var unnin í stopulum frístundum frá öðrum störfum. Fyrst voru hin algengu sveitastörf bæði heima og heiman. Síðar lærði hún til garðyrkjustarfa og ferðaðist um og leiðbeindi í þeim fræðum. En lengst starfaði hún sem hjúkrun- arkona við sjúkrahúsið á Blönduósi og mest af þeim tíma með jiinum mikilhæfa lækni Páli Kolka. Á þeim árum voru húsakynni sjúkrahússins heldur órífleg og þægindasnauð og starfsfólk fátt. Jóhanna var eina hjúkrunarkonan og vann því jafnan langa vinnudaga. Frístundir voru fáar og sumarfríin stutt. Þrátt fyrir það hygg ég að henni hafi fundist þessi ár góð og margir söknuðu hennar þegar hún kvaddi sjúkrahú- sið. Alla tíð var kært með þeim systk- inum öllum og studdu þau jafnan hvert annað og önnuðust móður sína sameiginlega og af mikilli ást- úð. Á miðjum aldri stofnuðu þau fjögur, Jóhanna, Ragnheiður, Lárus og Ólafur, heimHi á Akureyri og áttu þar saman mörg góð ár. I end- urminningunni er sólskin og heið- ríkja yfír heimsóknum á Eiðsvalla- götu 18 til þeirra systkina. Gest- risni þeirra, glaðlyndi og hlýtt við- mót er ógleymanlegt. Og aldrei var Jóna ánægðari en þegar þéttsetið var við veisluborð hennar. Ég á ljúfar minningar frá fyrstu bernskuárum mínum þegar þau systkinin bjuggu saman með ömmu minni í Kollugerði næsta bæ við Syðri-Hól. Ein slík er frá fallegum voi'degi. Lítil telpa er á leið rnilli bæja. Hún er ögn upp með sér af því þetta er fyrsta sendiferðin sem hún fer ein. Hún er með miða í svuntuvasanum sem hún á að skila til Óla frænda. Það er ekki löng leið en samt fínnst henni þetta heil- mikið ferðalag og svolítið ógnvekj- andi þegar túninu sleppir. Ilún er ekki há í loftinu og hrasar í blaútum þúfum og finnst hún dálítið ein í heiminum og langt heim að bænum hennar ömmu. En Jóa frænka hefur séð til hennar og kemur á móti henni. Hlý hönd tekur um lítinn blautan lófa og lítil telpa finnur ástúðina og öryggið streyma til sín og þær spjalla glaðlega saman þennan spöl sem eftir er. Þannig var Jóa frænka, ævinlega tilbúin, hjálpfús og hlý og þess nutum við frændfólk hennar fyrr og síðar. Fyrir það sendi ég henni kveðju og þakkir yfir móðuna miklu og bið henni blessunar guðs. María Magnúsdóttir frá Syðra-Hóli. Sigríður Guðmunds- dóttir Rineer - Minning Fædd 7. september 1923 Dáin 17. september 1991 Mig langar til að senda systur minni, með örfáum orðum, hinztu kveðju. Hún lézt 17. september sl. á heimili sínu í Bandaríkjunum. Sigríður Guðmundsdóttir Rineer, var fædd 7. september 1923, dóttir móður minnar, Markússínú S. Markúsdóttur og fyrri manns henn- ar Guðmundar Halldórssonar, en hann lézt, er Sigga var aðeins nokk- urra ára gömul. Þetta voru erfíðir tímar, lífsbaráttan liörð og kynntist hún snemma þeirri baráttu. Hún ólst upp ein með móður sinni, þar til mamma giftist Karli Guðmunds- syni, 1930, en hann lézt fyrir fáum árum. Þá eignaðist Sigga stjúpföð- ur, sem tók henni alla tíð sem sinni eigin dóttur. Þar sem Sigga var átta árum eldri en ég, var hún allt- af stóra systir er við ólumst upp saman í gamla daga. Ég man allt- af, að hún sagði stundum í gamni, að hún ætti tvo hálfbræður, og það væri sama sem einn heill. Svo kom stríðið og tímarnir breyttust. Amer- íka var og er mikið draumaland. Þetta heillaði Siggu mikið og þang- að fór hún 1947 að heimsækja frænku sína, sem hafði gifst Banda- ríkjamanni hérá íslandi 1945. Þetta varð löng heimsókn, því hún kom aldrei aftur til Islands, nema þrisv- ar sinnum í stuttar heimsóknir. Hún giftist 1948 Charles . Rineer, og eignuðust þau fjögur börn Lindu, Pamellu, Chuck og Charles jr. Charles Rineer var sölumaður og á tímabili ferðuðust þau öll saman um Bandaríkin, er hann sinnti starfi sínu sem sölumaður. Þetta var eng- inn dans á rósum. Svo líða árin og 1964 skilja þau Sigga og Charles eftir 16 ára hjónaband, og nú stend- ur hún ein, langt frá öllum ættingj- um með fjögur börn, en Sigga gafst aldrei upp og aldrei kvartaði hún. Hélt bara áfram við að ala upp sín börn eftir því sem hún bezt gat, og ég að minnsta kosti vissi ekki fyrr en löngu seinna hve þetta var erfitt hjá þeim. Ameríka var svo miklu „lengra" í burtu í gamla daga. Hún kaus þetta sem ung stúlka að fara til Bandaríkjanna, hefði verið betra að vera kyrr á Islandi? Það er ekki hægt að svara því. Við öll ættingjar hennar á Is- landi sendum börnum og barna- börnum hennar okkar innilegustu samúðarkveðjur, sérstakar kveðjur frá móður okkar, sem nú 87 ára gömul þarf að kveðja einkadóttur sína, í hinzta sinn. Ég bið góðan Guð að fylgja henni á þeim ieiðum sem hún nú hefur lagt út á. Guðmundur R. Karlsson Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmæl- is- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal- stræti 6, Reylq'avík og á skrif- stofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta tilvitnanir í ljóð eftir þekkt skáld, og skal þá höfundar get- ið. Sama gildir ef sálmur er birt- ur. Meginregla er sú, að minn- ingargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð og með góðu línubili. Gullfallegur salur til leigu í Fossvoginum hentugur fyrir erfidrykkjur. • SEM-hópurinn. Sími 67 74 70 Y0UR RIGHTS AND DUTIES AC0URSE F0R F0REIGNERS LIVING IN ICELAND On Saturday the 5th of October the Icelandic Red Cross will hold a course for foreigners living in Iceland. This course will be in English, and is supposed to inform about the Icelandic society, rights and duties of the inhabitants, health and social security, customs etc. The course will be bascd on a booklet in English, “Icelandic Law and Icelandic Society", issued by the Ministry of Social Affaires. The coursc will take place at Þingholtsstræti 3, Reykjavík, the 5th of October from 9.30 a.m. to 16 p.m. Due to limited number of seats kindly contact us and rcgistcr at the Icelandic Red Cross, Rauðarárstíg 18, tel. (91 )-26722 before 17 p.m. Thursday the 3rd of October. Please notice that no admission fee is charged. RETTUR ÞINN 0G SKYLDUR NAMSKEIÐ FYRIR INNFLYTJENDUR UM ÍSLENSKT MÓÐFÉLAG Laugardaginn 5. október nk. heldur Rauði kross íslands námskeið fyrir fólk af erlendunr uppruna sem hefur flust til íslands. Námskeiðið verður haldið á ensku og er ætlað að fræða um uppbyggingu þjóðfélagsins, réttindi og skyldur þeirra sem hér búa, heilbrigðisþjónustu, mcnningu og fleira. Bæklingur á ensku, sem Félagsmálaráðuneytið hefur gefið út verður lagður til grundvallar námskciðinu. Námskeiðið verður haldið að Þingholtsstræti 3, Reykjavík og hefst kl. 9.30 árdegis og lýkur kl. 16 síðdegis. Fjöldi þátttakenda verður takmarkaður. Vinsantlega tilkynnið þátttöku fyrir kl. 17 fimnrtudaginn 3. október hjá Rauða krossi íslands, Rauðarárstíg 18, í síma 91-26722. Vinsamlega athugið að aðgangur er ókeypis. Rauði kross Islands Rauðarárstíg 18, 105 Reykjavík, sími: 91-26722

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.