Morgunblaðið - 12.10.1991, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 12.10.1991, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1991 15 Þannig viljum við muna sr. Bjarna, glaðan og broshýran. Eins þótt á sækti sjúkleiki á iiðnu vor- misseri hélt hann kímni sinni og léttleika. Þegar við heimsóttum hann á spítalann gerði hann lítið úr krankleika sínum, en fór með vísur og gamansögur. Hið eina sem sýnilega á hann fékk var að geta ekki sinnt skyldustörfum sínum við kennslu og nefndir, en þann dag var einmitt fundur í siðareglunefnd Blaðamannafélags íslands, sem hann hafði átt sæti í frá upphafí, án þess að missa einn fund úr. Slík var skyldurækni sr. Bjarni Sigurðs- sonar og trúfesti, hvort sem litið var til guðfræðideildar eða þeirra fjölmörgu félagsstjórna og nefnda, sem hann átti sæti í. Sr. Bjarr.i var ábyggilegur og heiðarlegur, sjálfum sér samkvæmur á alla lund. Við kveðjum virtan prófessor og vænan mann. Frú Aðalbjörgu Guð- mundsdóttur og fjölskyldu hans allri biðjum við blessunar Guðs. Drottinn minn gefi dauðum ró, hinum líkn, er lifa. (Úr Sólarljóðum) Fyrir hönd guðfræðinema, María Agústsdóttir. Með fáum orðum vil ég minnast föðurbróður míns, séra Bjama frá Mosfelli. Fá svið mannlífs eru til sem hann kom ekki nálægt með einum eða öðrum hætti og verða örugglega margir sem sagt geta vel og vitnað um einstök verk hans. Það sem efst er í mínum huga er sá skilningur sem hann hafði á lífinu og allri tilvem sem hans til- gerðarlausa og hlýja viðmót vottaði svo vel. Bjami var hafsjór af fróðleik, víðlesinn, vel menntaður, kennari góður og mjög svo vandaður að virðingu sinni. Mér er það einnig minnisstætt er setið var og spjallað á Hiíðarveg- inum hve afburða góður sögumaður Bjarni var og átti hann alla athygli óskipta. Þó Bjami sé ekki lengur á meðal vor mun minningin um góðan og traustan mann lifa um ókomna tíð. Elsku Aðalbjörg og fjölskylda, ég sendi ykkur mínár innilegustu samúðarkveðjur. Sif Hauksdóttir Áratugir em liðnir frá fyrstu kynnum okkar séra Bjarna Sigurðs- sonar. Lágu leiðir okkar saman er hann gerðist blaðamaður á Morgun- blaðinu árið 1949. Þá var Morgun- blaðið til húsa í gamla ísafoldarhús- inu í Austurstræti. Hann var þá orðinn lögfræðingur. Báðir vomm við galvaskir og áhugasamir í starf- inu á fréttaritstjórn blaðsins. Hún var þá fáliðuð. Þar áttum við sam- leið með ýmsum góðum blaðamönn- um næstu fimm árin. Þá tók Bjami þá ákvörðun sem kom mér á óvart þá, að gera ekki blaðamennskuna að starfsvettvangi sínum á komandi tímum, nema að hluta til. Blaða- mennska féll honum vel, m.a. af því hve hann hafði næma tilfínningu fyrir góðu máli. Við vomm á göngu saman hér fyrir innan bæ á góðviðrisdegi. Þá sagði hann mér frá þeirri ákvörðun sinni að ílendast ekki í blaða- mennskunni, heldur gerast prestur og þá prestur í sveit. Ekki ætlaði hann að hætta á blaðinu fyrr en hann hefði lokið náminu í guðfræði- deildinni og stunda námið meðfram vinnunni. Hann var þá orðinn fjöl- skyldumaður. Bjó fjölskyldan í her- mannabraggahverfí í námunda við þar sem vatnsgeymirinn stóð í gamla daga á Rauðarárholtinu. Bjarni var lærdómsmaður og framúrskarandi námsmaður. Það kom fram oftar en einu sinni. Ein- beittur var hann alla tíð og kom það fram þegar á æskuárunum. Hann sótti skóla í Hafnarfírði frá heimili sínu suður í Straumi (Straumsvík). Lét hann sjaldan eða aldrei nein vetrarveður aftra sér frá því að fara í skólann. Þessi ein- beitni reyndist gott veganesti út í lífíð og lífsbaráttuna. Aldrei var neitt mulið undir Bjarna. Draumur hans um að ger- ast prestur úti í sveit rættist. Sama árið og hann varð guðfræðingur var hann kosinn prestur í Lágafells- kirkju í Mosfellssókn. Var það ánægjulegt hve vel honum og fjöl- skyldunni var tekið af innansveitar- fólki þar. Eignaðist hann' þar trausta vini. Þar í sveitinni kom hann allvíða við á ýmsum sviðum. Minnisstæður er mér frá þeim árum áhugi hans á þvi að reisa kirkju á hinum forna, kirkjugrunni Mosfellskirkju við prestsetrið á Mosfelli. Að því vann hann af miklum krafti og naut til þess aðstoðar góðra manna. Með honum og stórbóndanum þar í Daln- um, Stefáni Þorlákssyni, bónda í Dal, tókst góður kunningsskapur. Eftir lát Stefáns gekk fé af eignum hans til kirkjubyggingarinnar á Mosfelli. Kirkjan sem þar reis hefur mér ætíð fundist tengjast nafni hins látna sveitahöfðingja. Bjarni tók fljótlega ástfóstri við heimabyggð sína. Svona til að leggja á það áherslu kenndi hann sig ætíð við Mosfell. Eins og fyrr segir var Bjami lærdómsmaður. Á ' prestsskapar- árum braut hann blað í eigin lífs- sögu. Hann ákvað að fara til út- landa til framhaldsnáms. Lagði hann leið sína til Þýskalands. Hann setti sér það mark í þessu sérnámi að ljúka því með doktorsprófi. Fór hann um árabil í námsferðir og til dvalar þar. Lauk hann náminu með doktorsprófí í lögfræði með kirkju- rétt sem sérgrein frá háskólanum í Köln árið 1985. Urðu nú tímamót í lífí hans og fjölskyldunnar sem fluttist úr Mosfellssveitinni suður í Kópavog og hann gerðist háskóla- maður; lektor og dósent við guð- fræðideildina og síðar prófessor. Átti hann upp frá því heima í Kópa- vogi. Á Morgunblaðsárunum gekk Bjarni undir nafninu Strauma- Bjarni meðal samstarfsmanna og vina. Var hann hér kenndur við æskuheimilið í Straumi. Hann skrif- aði fyrstur blaðamanna Morgun- blaðsins undir nafninu Velvakandi, en þá var sá þáttur ekki eingöngu lesendabréf eins og nú. Hann var mjög fær íslenskumaður. Skrif hans í Morgunblaðið og ræður frá prest- skaparárunum og' önnur skrif bera með sér hve kjarnyrt mál hann til- einkaði sér í ræðu og riti. Hann var afbragðs ræðusmiður. í hinu hversdagslega lífi og um- sýslan var Bjarni dulur maður. En það vissu vinir hans og samstarfs- menn að ekki voru margar skóflu- stungur niður á létta lund og gamansemi ef færi gafst til slíks í góðra vina hópi. Þeir munu hafa verið teljandi á fíngrum annarrar handar sem vissu að hann hafði ekki gengið heill til skógar síðustu árin. Hann ræddi ekki sín dýpstu einkamál, kaus heldur að ræða við vini sína og kunningja um önnur hugðarefni og uppákomur hjá þeim og þeirra lífshlaup, ef persónuleg mál bar á góma. Bjami sigldi ekki lygnan sjó á lífsfleyi sínu. Óvæntir og miskunn- arlausir sjóir brotnuðu á honum og hans góðu konu, Aðalbjörgu Guð- mundsdóttur. Miklu mótlæti tóku þau af aðdáunarverðu æðruleysi. Það er trú mín að mikill andlegur styrkur og lífsreynsla Bjama og Aðalbjargar hafí fleytt þeim og fjöl- skyldunni gegnum brimskaflana. Lokið er vegferð mikils mann- kostamanns, einlægs vinar sem að lokum gat horft yfir dagsverk sitt og sagt: „Það var harla gott.” Eg og mínir færum Bjama ein- lægar þakkir fyrir samfylgdina. Við gamlir samstarfsmenn hans á Morgunblaðinu senda Aðalbjörgu, bömum þeirra og ættmennum inni- legar samúðarkveðjur. Sverrir Þórðarson Nú legg ég augun aftur, ó, Guð þinn náðarkraftur mín veri vöm í nótt. Æ, virzt mig að þér taka mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. Þessi bæn er ein af mörgum bænum sem afí minn kenndi mér. Þegar ég var lítil var ég svo heppin að fá að alast upp hjá afa og ömmu og þeim ámm gleymi ég aldrei, þau eru sennilega með betri ámm ævi minnar. Og nú er afí dáinn. Þessari setningu er erfítt að trúa. Það er nefnilega svo sjálfsagt að hafa þá sem maður elskar alltaf hjá sér. En lífið er víst ekki alltaf eins og maður vill hafa það. Afí minn var mikill náttúmunnandi, gekk mikið, ekki með neinum hægagangi heldur léttur á fæti. Ekki eru það heldur ófá tré sem hann hefur gróðursett, bæði hér heima og uppi í sumarbú- stað. Eg sé hann fyrir mér á hestbaki alveg teinréttan og með gleði- glampa í augum og ekki minnkaði glampinn þegar hann horfði á fjöl- skyldu sína og eiginkonu. Elsku amma mín. Guð styrki þig á þessari erfiðu stund. Þú veist að afa þótti mjög vænt um þig og mundu eftir öllu góðu stundunum ykkar. Eg kyssi afa minn á nef- broddinn í kveðjuskyni í huganum eins og hann kvaddi mann svo oft. Guð blessi minningu elsku afa míns, Bjarna Sigurðssonar, manns sem vildi að öllum liði vel í kringum sig. Yr SJÁ BLS. 32 15-OKT., 29.0KT., 12.NÓV., 26.NÓV., 10.DES., 7.JAN., 21JAN., 4.FEB., 18.FEB., 3.MARS .... spehnanw - efþú átt mida! í beinni útsendingu á Stöð 0annan bvern þriðjudag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.