Morgunblaðið - 12.10.1991, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 12.10.1991, Blaðsíða 31
31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 1991 í ^ Jtles&ur r np a mnrcrun V II 1—EðaHBBBU; 'I-1 SdfeálSiSl Reykjavíkurprófasts- dæmi vestra: ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Kaffi eftir messu. Munið kirk- jubílinn. Árni Bergur Sigur- björnsson. Fimmtudagur: Bibl- íulestur í safnaðarheimilinu kl. 20.30 og kvöldbænir í kirkjunni að honum loknum. BÚSTAÐAKIRKJA: Barna- messa kl. 11. Arna, Gunnar og Pálmi. Guðsþjónusta kl. 14. Einsöngur Eiríkur Hreinn Helg- ason. Organisti Guðni Þ. Guð- mundsson. Pálmi Matthíasson. DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Dómkórinn syngur. Organisti Marteinn H. Friðriksson. Sr. Hjalti Guðmundsson. Messa kl. 14. Skírn. Dómkórinn syngur. Organisti Marteinn H. Friðriks- son. Sr. Hjalti Guðmundsson. Samkoma Hjálpræðishersins kl. 16.30. Sr. Jakob Á. Hjálm- arsson tekur þátt í samko- munni. Hjálpræðisherinn. Mið- vikudag kl. 12.05. Hádegis- bænir. Léttur málsverður á kirkjuloftinu á eftir. Miðvikudag kl. 13.30-16.30. Samvera aldr- aðra í safnaðarheimilinu. GRENSÁSKIRKJA: Barnasam- koma kl. 11. Yngri börnin niðri, eldri börnin uppi. Fjölbreytt starf. Guðsþjónusta kl. 14. Org- anisti Árni Arinbjarnarson. Sr. Gylfi Jónsson. Þriðjudag: Kyrrðarstund kl. 12.00. Orgel- leikur í 10 mínútur. Þá helgi- stund með fyrirbænum og alt- arisgöngu. Að henni lokinni er súpa, brauð og kaffi á boðstól- um. Ollu þessu getur verið lok- ið fyrir kl. 13.00. Þriðjudag: Biblíulestur kl. 14.00 fyrir eldri borgara og vini þeirra. Opið hús og kaffiveitingar á eftir. Prest- arnir. HALLGRÍMSKIRKJA: Laugar- dag: Samvera fermingarbarna kl. 10. Sunnudag: Messa og barnasamkoma kl. 11. Ferm- ing. Fermd verða: Helga Sig- urðardóttir, Fjölnisvegi 20, Kristján Leifur Pálsson, Miklu- braut 20, og Ásgeir Valur Sig- urðsson, Frakkastíg 26b. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Kirkja heyrnarlausra: Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Miyako Þórðarson. Þriðjudag: Fyrirbænaguðsþjón- usta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúk- um. LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. Sr. Karl Sigurbjörnsson. HÁTEIGSKIRKJA: Morgun- messa ki. 10. Sr. Arngrímur Jónsson. Barnaguðsþjónusta kl. 11. Kirkjubíllinn fer ffá Suð- urhlíðum um Hlíðarnar fyrir barnaguðsþjónustuna. Há- messa kl. 14. Sr. Tómas Sveinsson. Kvöldbænir og fyrir- bænir eru í kirkjunni á miðviku- dögum kl. 18. LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands biskups. Kl. 11 óskastund barnanna. Söngur, sögur, fræðsla. Sr. Flóki Krist- insson og Jón Stefánsson org- anisti sjá um stundina. Guðs- þjónusta kl. 14. Organisti Jón Stefánsson. Prestur sr. Flóki Kristinsson. Kór Langholts- kirkju flytur stólvers. Molasopi að guðsþjónustu lokinni. LAUGARNESKIRKJA: Laugar- dagur: Guðsþjónusta kl. 11 í Hátúni 10b. Sr. Jón Dalbú Hró- bjartsson. Sunnudag: Messa kl. 11. Drengjakór Laugarnes- kirkju syngur. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson. Barnastarf á sama tíma. Heitt á könnunni Matt. 22: Brúðkaupsklæðin. eftir guðsþjónustuna. Hátíðar- guðsþjónusta kl. 14. Sr. Sigrún Oskarsdóttir prédikar. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson þjónar fyrir altari. Kór Laugarneskirkju syngur. Kaffisala Kvenfélags Laugarneskirkju í safnaðar- heimilinu strax að lokinni guðs- þjónustu. Fimmtudag: Kyrrðar- stund kl. 12. Orgelleikur, alt- arisganga, fyrirbænir. Léttur málsverður í safnaðarheimilinu að stundinni lokinni. NESKIRKJA: Barnasamkoma kl. 11. Sr. Frank M. Halldórs- son. Messa kl. 14. Fermdur verður Hlynur Páll Pálsson, Frostaskjóli 21. Prestarnir. Miðvikudag: Bænamessa kl. 18.20. Beðið fyrir sjúkum. Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson. SELTJARNARNESKIRKJA: Kynningarátak í Seltjarnarnes- kirkju. Fjölskyldumessa kl. 11. Sönghópurinn „Án skilyrða" syngur ásamt kirkjukór og organista, Þóru Guðmunds- dóttur. Bobby Arrington syngur og Inge Österby sýnir hreyfilist. Þorvaldur Halldórsson prédik- ar. Sr. Solveig Lára Guðmunds- dóttir þjónar fyrir altari. Opið hús eftir messu með ýmsum uppákomum. Léttur hádegis- verður í safnaðarheimilinu. Miðvikudagur: Kyrrðarstund kl. 12. söngur, altarisganga, fyrir- bænir. Léttur hádegisverður í safnaðarheimilinu. Reykjavíkurprófasts- dæmi eystra ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjón- usta sunnudag kl. 11 árdegis. Barnaguðsþjónusta á sama tíma í kirkjunni. Miðvikudagur: Fyrirbænaguðsþjónusta í Ár- þæjarkirkju kl. 16.30. Sr. Guð- mundur Þorsteinsson. BREIÐHOLTSKIRKJA: Barna- guðsþjónusta kl. 11. Guðsþjón- usta kl. 14. Organisti Jakob Hallgrímsson. Fundur með for- eldrum fermingarbarnanna að guðsþjónustunni lokinni. Bæ- naguðsþjónusta þriðjudag kl. 18.30. Sr. Gísli Jónasson. DIGRANESPRESTAKALL: Barnasamkoma í safnaðar- heimilinu við Bjarnhólastíg kl. 11. Guðsþjónusta í Kópavogs- kirkju kl. 11. Sr. Þorbergur Kristjánsson. ELLIHEIMILIÐ GRUND: Messa kl. 10. Sr. Magnús Björnsson. FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Hreinn Hjartarson. Organ- isti Guðný M. Magnúsdóttir. Barnasanrikoma kl. 11. Fyrir- bænir í Fella- og Hólakirkju mánudag kl. 18. Helgistund í Gerðubergi fimmtudag kl. 10. Prestarnir. GRAFARVOGSSÓKN: Barna- guðsþjónusta kl. 11 í Félag- smiðstöðinni Fjörgyn. Skólabíll- inn leggur af stað frá Hamra- hverfi kl. 10.30 og fer venjulega skólaleið. Nýr sunnudagspóst- ur. Umsjón: Valgerður, Katrín og Hans Þormar. Almenn guðs- þjónusta kl. 14. Organisti Sig- ríður Jónsdóttir. Vigfús ÞórÁrn- ason. HJALLASÓKN: Messusalur Hjallasóknar, Digranesskóla. Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Kristján Einar Þorvarðarson. FRÍKIRKJAN RVÍK: Barnaguðs- þjónusta kl. 11.00. Gestgjafar í söguhorninu Sigríður Hannes- dóttir leikkona og hundurinn Gúlli (Gúliníus). Guðsþjónusta kl. 14.00. Miðvikudagur 16. október kl. 7.30: Morgunand- akt. Orgelleikari Pavel Smid. Cecil Haraldsson. HVÍTASUNNUKIRKJAN Fílad- elfía: Sunnudagaskóli kl. 11. Almenn samkoma kl. 16.30. Tákn og undur. Sr. Halldór S. Gröndal. KRISTKIRKJA, Landakoti: Laugardaga messa kl. 14 og 20. Sunnudaga messa kl. 8.30. Hámessa kl. 10.30. Messa kl. 14 og kl. 20. Rúmhelga daga messa kl. 18. MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Laugardag messa kl. 14, sunnudag kl. 11, fimmtudag kl. 19.30. Aðra rúmhelga daga kl. 18.30. KFUM/K: Kristniboðssam- koma í kristniboðssalnum. Upphafsorð: Birna G. Jónsdótt- ir. Ræðumaður Benedikt Arn- kelsson HJÁLPRÆÐISHERINN: Sam- koma í Dómkirkjunni kl. 16.30. Kafteinn Vinke Nygaard, sr. Jakob Hjálmarsson og Daníel Óskarsson tala og stjórna. Sunnudagaskóli á sama tíma í kjallara Herkastalans. NÝJA Postulakirkjan: Guðs- þjónusta kl. 11. MOSFELLSPRESTAKALL: Messa í Lágafellskirkju kl. 14. Organisti Guðmundur Óskar Ómarsson. Barnastarf í safnað- arheimilinu kl. 11. Sr. Jón Þor- steinsson. GARÐAKIRKJA: Sunnudaga- skóli í Kirkjuhvoli kl. 13. Messa í Garðakirkju kl. 11. Nemendur á söngnámskeiði Garðasóknar annast söng. Stjórnandi Feren- ce Utassý. Sóknarprestur. BESSASTAÐAKIRKJA: Sunnu- dagaskóli kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Kirkjudagur, kaffiveiting- ar að athöfninni lokinni. Sóknarprestur. KAPELLA St. Jósefssystra, Garðabæ: Sunnudaga messa kl. 10, lesin á þýsku. VÍÐISTAÐAKIRKJA: Barna- guðsþjónusta kl. 11. Guðsþjón- usta kl. 14. Sr. Sigurður Helgi Guðmundsson. KARMELKLAUSTUR: Sunnu- daga messa kl. 8.30. Rúmhelga daga kl. 18. KÁLFATJARNARKIRKJA: Kirkjuskóli í Stóru-Vogaskóla kl. 11. Sóknarprestur. HVALSNESKIRKJA: Sunnu- dagaskóli kl. 11 í grunnskólan- gm í Sandgerði. Sr. Hjörtur Magni Jóhannsson. ÚTSKÁLAKIRKJA: Barnaguðs- þjónusta kl. 14. Sr. Hjörtur Magni Jóhannsson. KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík: Messa kl. 16. SELFOSSKIRKJA: Barnaguðs- þjónusta kl. 11. Organisti Glúmur Gylfason. Sóknarprest- ur. AKRANESKIRKJA: Kirkjuskóli yngstu barnanna í dag kl. 13 í safnaðarheimilinu. BORGARPRESTAKALL: Fjöl- skylduguðsþjónusta í Borgar- neskirkju kl. 11. Sóknarprestur. KELDNAKIRKJA, Rang.: Messa kl. 14. Organisti Anna Magnúsdóttir. Sóknarprestur. STORÓLFSHVOLSKIRKJA: Kvöldguðsþjónusta kl. 21. Org- anisti Gunnar Marmundsson. Fundur með fermingarbörnum og foreldrum þeirra í kirkjunni eftir messu. ÍSAFJARÐARKIRKJA: Almenn guðsþjónusta kl. 11 á sunnu- dag. Órganisti: Michael A. Jo- nes. Sóknarprestur. Kirkjudag- ur Oháða safnaðarins Á morgun, sunnudaginn 13. I október kl. 14.00, verður hátíðar- guðsþjónusta í Kirkju Óháða safn- aðarins. Kirkjudagurinn er árviss hjá Óháða söfnuðinum og er hann ávallt haldinn hátíðlegur á sunnu- degi í októbermánuði. P Fyrsti prestur Safnaðarins sr. Emil Björnsson og kona hans frú Álfheiður L. Guðmundsdóttir hófu í upphafi safn- aðarstarfsins að Kirkjs ÓHáða halda sérstakan safuaðarins. kirkjudag hátíðlegan. Þannig minntist söfnuðurinn byggingar og vígslu kirkjunnar með sérstökum kirkjudegi ár hvert. Þetta framtak þeirra hjóna var til þess að fjöl- margir aðrir íslenzkir söfnuðir fylgdu í kjölfarið og nú er sérstakur kirkjudagur haldinn hátíðlegur í nær öllum söfnuðum landsins. ) Guðsþjónustan er þungamiðja hátíðarinnar og að henni lokinni gefst kirkjugestum og öllum, sem I áhuga hafa, kostur á að ræða sam- . an yfir kaffi og góðu meðlæti, sem kvehfélag safnaðarins sér um og I selur til styrktar safnaðarstarfinu. Þorsteinn Ragnarsson, safnaðarprestur. VOTN 0£ DALIR I SKOTLANDI — fimm daga ferd, 33.990,-* Loch Achray hótelið stendur í draumfögru og hlýlegu umhverfi við rætur hins tignarlega Ben Venue fjalls í hjarta Skotlands. Hótelið er skemmtilega í sveit sett, umkringt óspilltum skógi á bökkum Achray stöðuvatnsins. Allt í kring eru víðar lendur, ótal skógarstlgar og þægilegar gönguleiðir meðfram vatninu. Innifalið í ferðinni er: • Flug báðar leiðir milli Keflavíkur og Glasgow með Flugleiðum. • Flugvallarskattur. • Gisting í fjórar nætur á Loch Achray hótelinu. • Hlý og notarleg svefnherbergi með sérbaði. • Akstur. • Skoðunarferðir á hverjum degi, auk verslunarferða. • Skemmtisigling. • Rlkulegur morgunverður að skoskum hætti hvern dag. • Þríréttaðar kvöldmáltíðir að eigin vali. Ferðaáætlun: 1. dagur Brottför frá Keflavíkurflugvelli til Glasgow. Þaðan flytur rúta farþegana til Loch Achray hótelsins. 2. dagur Dagsferð til Inversnaid, en þangað liggur leiðin um fögur héruð að bökkum hins nafntogaða Lomond vatns. Farið verður I siglingu á vatninu, en síðan ekið til baka um skosku hálöndin. 3. dagur Dagsferð til höfuðborgar Skotlands, þeirrar sögufrægu Edinþorgar. Þar gefst kostur á að skoða sig um eða versla að vild. 4. dagur Dagsferð um hálöndin og meðal annars numið staðar I Crieff. Þar verður gestunum boðið að skoða Glenturret, elsta brugghús I Skotlandi. 5. dagur Brottför til Glasgow og flug þaðan til Keflavíkur. Brollför/heimkoma: 12. nóvember -16. nóvember 10. desember-14. desember FERDASKRIFSTOFA ÍSLANDS Söluaðili: Ferðaskrifstofa Islands - Skógarhllð 18 - 101 Reykjavík - slmi 91-2 58 55 * Miðað við gengi 01.08. 1991

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.