Morgunblaðið - 15.10.1991, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 15.10.1991, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBÉR 1991 Landssamband lögreglumanna: Ofaglærðir lögreglu- menn hvergi nema hér LANDSSAMBAND lögreglu- manna gekkst fyrir ráðstefnu um menntunar- og réttindamál lög- reglumanna á fimmtudaginn. Fulltrúar frá öllum lögreglufélög- um Norðurlanda sátu ráðstefnuna Kirkjuvígsla á Skagaströnd Skagaströnd. UNDANFARIN ár hefur ný kirkja verið í smiðum á Skagaströnd og hefur framkvæmdum miðað allvel áfram. Kirkjan er teiknuð af Ormari Þór Guðmundssyni og Ömólfi Hall hjá Akritektastofunni í Reykjavík, en verkinu hefur Helgi Gunnarsson byggingameistari á Skagaströnd stjórnað. Tiltölulega vel hefur gengið að fjármagna þessa nýju byggingu og lokaáfanginn við smíðina er samt fjárhagslega mjög erfíður. Þessa dagana fer fram fjáröflun meðal íbúa kauptúnsins og annarra velunnara kirkjunnar þar sem safnað er fyrir kaupum á 200 stólum en það er, sá sætafjöldi sem kirkjan tekur og kost- ar hver stóll 16 þús. kr. Undirtektir við þessa söfnun hafa verið góðar og m.a. hafa margir brottfluttir Skagstrendingar gefið upphæðir sem nema andvirði stóls eða stóla. Nýja kirkjan verður vígð sunnu- daginn 20. október nk. kl. 14.00 og mun herra Ólafur Skúlason biskup annst það verk og eru allir velkomn- ir sem vilja vera við athöfnina. Við vígsluna mun kirkjukór Hóla- neskirkju syngja við undirleik Julians Hewlett en eftir hann verður flutt frumsamið tónverk fyrir orgel og flautu sem tileinkað er kirkjunni. Þá mun Jóhanna Linnet syngja einsöng og Kristján Hjartarson flytja frumort . ljóð í tilefni dagsins. Aðrir flytjendur tónlistar eru Rosemary Angus og Skarphéðinn Einarsson. Að lokinni athöfn í kirkjunni er öllum viðstödd- um boðið í kaffíveislu í félagsheimil- inu Fellaborg þar sem ýmis atriði verða á dagskrá. Ó.B.- og vakti það furðu þeirra áð hér á landi skuli enn vera ráðnir menn til starfa í lögreglunni sem ekki hafa farið í lögregluskóla og þekkist það hvergi annars staðar á Norðurlöndum. Þorgrímur Guðmundsson for mað- ur Landssambands lögreglumanna sagði eftirtektarvert hversu langt lögreglumenn á Norðurlöndum væru komnir í sambandi við réttindamál og að við værum langt á eftir þeim á því sviði. „Dómsmálaráðuneytið túlkar lög- in ekki eins og við gerum og enn eru ráðnir menn í lögregluna sem ekki hafa farið í Lögregluskólann. Við teljum nauðsynlegt að þeir sem gæta eiga laganna viti um hvað þau snúast og því er ákveðin grunn- menntun nauðsynleg. Það er auðvit- að ekki hægt að ómenntaðir menn séu ráðnir til að gegna starfi lögregl- umanns, jafnvel menn sem ekki upp- fylla inntökuskilyrðin í skólann,” sagði Þorgrímur. „Ef hægt er að ráða suma án þess þeir fari í skólann þá mætti álykta sem svo að skólinn sé óþarf- ur. Við teljum hann hins vegar nauð- synlegan og ekki aðeins fyrir okkur, heldur ekki síður fyrir almenning í landinu. Hann á rétt á því að hafa lögreglumenn sem þekkja starfíð og eru í stakk búnir til að takast á við það,” sagði hann. Varðandi skólann sjálfan þá stöndum við nokkurn vegin jafnfæt- is hinum Norðurlandaþjóðunum að sögn Bjarka Elíassonar skólastjóra skólans. „Það sem okkur vantar er betri aðstaða og fleiri kennara til að koma öllu betur til skiia. Undan- farin tvö ár hafa nemendur héðan farið til frænda okkar í Danmörku og það sem menn hafa helst sett útá er að það vantar betri áðstöðu hér heima,” sagði Bjarki. Hann sagði jafnframt að í fyrra- haust hafi 47 hafíð nám í skólanum en í ár gætu nemendur ekki orðið nema 32 vegna íjárlagana og hús- næðisins. „Menn eru líka kallaðir hingað til endurmenntunar og á námskeið og árlega koma hingað um 200 lögreglumenn á námskeið,” sagði skólastjóri Lögregluskólans. I Svíþjóð er lögregluháskóli og þar eru menn í þijú ár að læra og Norðmenn eru að fara inná sömu braut. Hvergi á Norðurlöndunum þekkist það að lögreglumenn séu ráðnir til starfa án þess að þeir hafí áður lokið námi í lögregluskóla, að því er kom fram á blaðamannafundi í fyrradag. Morgunblaðið/Páll Þórhallsson Forseta Islands afhent framlag tíl laxaverndunar Forsvarsmenn Sambands írskra lax- og sjóbirtingsveiðimanna afhentu Vigdísi Finnbogadóttur, forseta íslands, framlag til Norður-Atlants- hafs-laxasjóðsins þegar hún var í opinberri heimsókn á írlandi á dögun- um. Sjóðurinn var stofnaður af Alþjóðlegu laxakvótanefndinnni sem Orri Vigfússon veitir forstöðu. Fé úr sjóðnum á að nota til að kaupa upp kvóta til laxveiði úr sjó og annarra aðgerða er miða að verndun Norður-Atlantshafs-laxastofnsins. Á myndinni sést forseti íslands taka við framlagi írsku samtakanna. Fólk fær lánaðar 5 eða 6 millj- ónir til viðbótar hreinni eign - segir Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra um gagnrýni formanns Félags fasteignasala á breytingarnar á húsbréfakerfinu JÓHANNA Sigurðardóttir, fé- Iagsmálaráðherra, segir ekki rétt að með breytingum á hús- bréfakerfinu sé verið að segja fólki að það eigi að búa í 3-4 herbergja íbúðum, eins og Þór- ólfur Halldórsson, formaður HERRAKVOLD F Á K S verður haldið laugardaginn 19. október 1991 kl. 19:00 í Félagsheimili Fáks í Víðidal. Þangað koma allir strákar sem vilja... • smakka krásirnar á villibráðarhlaðborðinu • hlusta á óbeislaðan ræðumann kvöldsins • freista gæfunnar í happdrættinu • syngja, tralla, og skemmta sér með öllum hinum strákunum. Viö verðum þar... en þú? Forsala aðgöngumiða verður á SKRIFSTOFU FÁKS ' ÁSTUND HESTAMANNINUM Nefndin Félags fasteignasala sagði í samtali við Morgunblaðið á fimmtudag. Fólk sem sé að kaupa íbúð í fyrsta skipti þurfi ekki stærri íbúðir en 3-4 her- bergja og fólk sem sé að stækka við sig fái lánaðar 5 eða 6 millj- ónir til viðbótar hreinni íbúðar- eign þess. Auk þess hafi ekki nema 10-20% af þeim sem hafi fengið húsbréf hingað til fengið hærri upphæð en 6 milljónir. Jóhanna sagðist hins vegar geta tekið undir að húsbréfaútgáfa hafi ekki verið meiri en ráð hafí verið fyrir gert. Hún hefði margbent á að það væri margt annað sem spennti um lánamarkaðinn en hús- bréfakerfið, auk þess sem menn horfðu ekki til þess að það hefði dregið úr lántökum víða annars staðar vegna húsnæðismála, bæði hjá bönkum, lífeyrissjóðum og í handhafaskuldabréfum. Þá væri innri fjármögnun miklu meiri í húsbréfakerfinu en menn hefðu ætlað, þ.e.a.s. að fólk léti bréfín ganga upp í kaup á öðru húsnæði eða héldi því eftir sem sparnaði. „Ég vísa því alfarið á bug að með þessum breytingum sé verið að koma öllum inn í 3-4 herbergja íbúðir. Það er auðvitað alrangt. Eftir þessa breytingu dregst hrein íbúðareign fólks frá söluverði nýrr- ar eignar, þannig að eftir sem áður er lánað til stærri eigna, þó það sé í minna mæli en verið hefur. Mér finnst að formaður Félags fast- eignasala setji þetta mjög villandi upp,” sagði Jóhanna. —————1 T-Iöfóar til JL Xfólks 1 öllum starfsgreinum! Hún sagði það líka rangt að það væri verið að innleiða biðraðæ— menningu með þessum breyting- um, það væri fyrst og fremst verið að minnka lán til þeirra sem ættu stórar eignir og væru að stækka við sig. Valið hefði staðið um þetta eða að hækka vexti í húsbréfakerf- inu og stytta lánstímann sem hefði þýtt aukna greiðslubyrði fyrir fólk sem væri að kaupa sér hóflegt húsnæði. Auk þess væri þetta það örlátt kerfi að það væri ekki hægt að kalla það skömmtunarkerfi, þar sem lánað væri 65% af verði fjög- urra herbergja íbúðar sem væru mikla hærra hlutfall en þekkst hefði áður. Um þá gagnrýni Þórólfs að lán- að væri meira til nýbygginga en eldra húsnæðis, sagði Jóhanna að það hefði alltaf tíðkast, þar væri yfirleitt um dýrari fjárfestingu að ræða, Auk þess vildi hún minna að Alþingi hefði samþykkt' fyrir um ári síðan heimild til að hækka lánshlutfall til þeirra sem væru að kaupa í fyrsta sinn og til nýbygg- inga úr 65 í 75%. Þó þetta ákvæði hefði ekki verið notað þá hefði þetta komið fram og í stað þess að hækka lánshlutfallið væri sú leið farin að hafa lánið heldur hærra til nýbygginga. „Allar þess- ar breytingar verða auðvitað endurmetnar ef breytingar verða á markaðnum almennt. Við erum einnig að taka inn endurbótalán og vildum gera það án þess að það leiddi til óhóflegrar útgáfu á hús- bréfum og þar með aukningar á afföllum, en það hafa safnast um- sóknir Upp þar alveg frá 1987 og það var nauðsynlegt að opna því leið í áföngum inmí húsbréfakerf- ið,” sagði Jóhann að lokum. Apríl í Hafnarstrætí Veitingastaðurinn Apríl hefur verið opnaður í Hafnarstræti 5, þar sem Fimman var áður til húsa. Nýir eigendur eru Erlingur Pétur Úlfarsson og Lilja Gunnarsdóttir. Staðurinn er opinn klukkan 18-01 í miðri viku og kl. 18-03 um helgar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.