Morgunblaðið - 29.10.1991, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 1991
19
Stöndum vörð um
fæðingarheimilið
eftir Solveigu Láru
Guðmundsdóttur
Á dögum niðurskurðar og sam-
dráttar í opinberri þjónustu hafa
allir skoðanir á pólitík, einkum þeg-
ar niðurskurðarhnífurinn snertir
okkur sjálf og við hörfum annað-
hvort undan eða beijumst á móti.
Sannarlega getur verið þörf á
ákveðinni hagræðingu í heilbrigðis-
kerfinu og skal ég ekki beijast
gegn henni, en þegar ákveðin hug-
sjón er lítilsvirt get ég ekki orða
bundist.
Þau eru að verða tólf árin síðan
ég fyrst lá á Fæðingarheimilinu við
Þorfinnsgötu, og var það yndisleg-
asta vika lífs míns. Ekki hafði ég
nokkurn tímann á tilfinningunni
að ég lægi á spítala, enda var ekk-
ert að mér - ég var aðeins að ala
barn - og það var mér kleift í
manneskjulegu umhverfi, umvafin
hlýju og kærleika.
Hulda Jensdóttir, þáverandi for-
stöðukona, umgekkst okkur sæng-
urkonurnar eins og gesti á heimili
sínu. Hún bar heimilið fyrir bijósti
og hafði innleitt þar nýjung, sem
þóttu þá framúrstefnulegar eins og
leikfimi, slökun og hin svokallaða
franska fæðing, þar sem við feng-
um börnin beint upp á magann við
fæðinguna. Auk þess var það alger
nýjung, að börn fengju að koma í
heimsókn til mæðra sinna og feður
fengju að taka þátt í fæðingunum.
Nú þykja þessar hugmyndir sjálf-
sagðar, en fáir muna að þær eiga
Solveig Lára Guðmundsdóttir
„Sannarlega getur ver-
ið þörf á ákveðinni hag-
ræðingu í heilbrigðis-
kerfinu og skal ég ekki
berjast gegn henni, en
þegar ákveðin hugsjón
er lítilsvirt get ég ekki
orða bundist.”
rætur sínar að rekja til Fæðingar-
heimilisins og hugsjóna þeirra, sem
lögðu grunninn að því.
Arin liðu og tíu árum eftir minn
fyrsta barnsburð auðnaðist mér að
fá að dvelja aftur á Fæðingarheim-
ilinu. Mér til mikillar ánægju fann
ég að sama hugsjónin og kærleik-
urinn réð enn ríkjum á þessu heim-
ili, þó gamla húsmóðirin, Hulda,
héldi þar ekki lengur um stjórnvöl-
inn. Ánægja mín var enn dýpri
vegna þess að í millitíðinni hafði
ég alið barn, þegar Fæðingarheim-
ilið var lokað vegna sumarleyfa í
sparnaðarskyni, þrátt fyrir það að
nóg starfsfólk væri til staðar.
Mér hafði því gefist tækifæari
til samanburðar. Nú má starfsfólk
fæðingardeildar Landspítalans ekki
taka orð mín svo, að það hafi ekki
sýnt okkur umhyggju og hlýju og
gert sitt besta við erfiðar aðstæð-
ur. En aðstæður þar voru vissulega
erfiðar, vinnuálag gífurlegt og
þrengsli svo mikil að við urðum
margar að fara heim löngu áður
en við vorum undir það búnar.
Kæru ráðamenn heilbrigðismála
á íslandi! Fæðingarheimilið er hug-
sjón, ekki stofnun. Tökum því ekki
þennan valmöguleika frá konum í
dag, sem vegna góðs mæðraeftir-
lits hafa meiri möguleika á að fylgj-
ast með því hvort von sé á eðli-
legri fæðingu.
Konur, sem aðhyllast hugsjón
Fæðingarheimilisins! Snúum bök-
um saman, og stöndum vörð um
Fæðingarheimilið, svo það verði
ekki niðurskurðarhnífnum að bráð.
Höfundur er sóknarprestur á
Seltjarnamesi.
SIEMENS
Kœli - oafrvstitœki ímiklu úrvali!
Lítiö inn til okkar og skoðiö vönduð
vestur-þýsk heimilistœki!
Hjá SIEMENS eru gœði, ending og
fallegt útlit ávallt sett á oddinn!
SMITH &NORLAND
NÓATÚNI 4 • SlMI 28300
NYR MORGUNN BETRI BRAUI
1IMM TEGUNDIR SEM GEISIA A
HOLLUSTU OG BRAGÐGÆÐUM
Byrjnðu hvern (iag með góðu brnuði frn bnknrameisturum Myllunnar
Nýjar, hentugar umbúðir. Fimm tegundir af niðursneiddu brauði
þar sem rúgmjöl er meginuppistaða í endurbættiim uppskriftum.
MYLLAN