Morgunblaðið - 02.11.1991, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 02.11.1991, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1991 11 SYEITASÆLA OG JÓLAINNKAUP í SKOTLANDI — fimm daga ferb^ 33.990,-* Loch Achray hótelið stendur í draumfögru og hlýlegu umhverfi við rætur hins tignarlega Ben Venue fjalls í hjarta Skotlands. Hótelið er skemmtilega í sveit sett, umkringt óspilltum skógi á bökkum Achray stöðuvatnsins. Allt I kring eru víðar lendur, ótal skógarstígar og þægilegar gönguleiðir meðfram vatninu. Skammt er til hinnar sögufrægu Edinborgar, sem býður upp á stórgott tækifæri til að versla fyrir jólin. Innifalið í ferðinni er: • Flug báðar leiðir milli Keflavíkur og Glasgow með Flugleiðum. • Flugvallarskattur. • Gisting í fjórar nætur á Loch Achray hótelinu. • Hlý og notaleg svefnherbergi með sérbaði. • Akstur. • Skoðunarferðir á hverjum degi, auk verslunarferða. • Skemmtisigling. • Ríkulegur morgunverður hvern dag. • Þríréttaðar kvöldmáltíðir að eigin vali. Fjall 1980-1982. Guðmundsson á þekktri mynd sinni. En hér er einfaldlega um aðra tíma að ræða og tilgangurinn að baki allt annar, því að í hvorugu fyrra tilvik- inu voru menn að vekja athygli á sjálfum sér og ögra fólki. Það er alveg rétt sem fram kemur í viðtölum, að í myndum Sigurðar kemur fram rík ljóðræn kennd og þær hafa einnig yfirbragð kímni og vökudrauma úti í náttúrunni. Þá tel ég vísun Aðalsteins Ingólfs- sonar í viðtali við Sigurð til afa hans Árna Þórarinssonar og ljóðskáldsins Sigurðar Sigurðssonar frá Arnar- holti, og frænda hans Guðmundar dúllara, mjög rökrétta, því að hér kemur fram auðsær skyldleiki. Ekki væri heldur rétt að gleyma föður hans, Guðmundi Árnasyni innramm- ara, þeim snjalla hugmyndafræðingi, heimspekingi, lífslistamanni og sögu- manni. Þannig er það styrkur Sigurðar, að hann hrærir ýmsu úr eigin lífi og fortíð við myndheim sinn, alveg ósjálfrátt og rökrétt, en gerist ekki ósjálfstætt verkfæri hugmynda ann- arra listamanna, svo sem oft kemur fyrir í núlistum. Hann hefur þannig í engu glatað barninu í sjálfum sér né tengslum við uppruna sinn, þrátt fyrir langa búsetu erlendis og þrátt fyrir að í raun réttri teljist hann jafn mikið liollenskur listamaður og íslenskur með tilliti til skólunar hans og vistar í Amsterdam. Á sýningunni sjáum við þróun list- ar Sigurðar allan áttunda áratuginn er hann vann mestmegnis í ljósmynd- um, en einnig eina höggmynd, „Hið mikla Ijóð”, sem er gert 1981, og boðar nýja tíma í list hans. Einnig er ein ný ljósmynd frá 1991, sem getur enn boðað stefnubreytingu, því að hugmyndafræðilega listin er kom- in aftur í endurnýjaðri mynd og listp- áfar ásamt handbendum þeirra, leið- itömum listsögufræðingunum, eru sem óðast að reyna að ýta málverk- inu út í kuldann enn á ný, eftir að það hefur verið blóðmjólkað sem markaðslist á níunda áratugnum. Á ljósan hátt má þannig rekja þróunarferil Sigurðar allan áratug- inn og fram kemur hve hnitmiðaðri myndverk hans verða eftir því sem á hann líður, og hve faglega hlið vinnubragðanna verður um leið ná- kvæmari og útfærslan persónulegri og hnitmiðaðri. Slá má því föstu, að Sigurður hafi verið svo lánsamur að finna réttu hliðina á listgáfu sinni í upphafi fer- ils síns og um leið verið á réttum stað á réttum tíma. — Þetta er í heild sinni mikil og markverð sýning, er ber vott um miklar andlegar víddir og frjótt hug- arflug. Meginveigur hennar er hinn ljóðræni undirtónn og strákslega kímni, sem er í bland við dulrömm náttúrumögn. Dulramma náttúrumagn _________Myndlist_______________ Bragi Ásgeirsson Sýning Listasafns íslands í þrem sölum safnsins á verkum Sigurðar Guðmundssonar í Amsterdam hefur nú staðið yfir í nokkrar vikur og lýk- ur 17. nóvember. Sigurður Guðmundsson er vel kynntur á íslandi, þótt ekki hafi hann verið auglýstur í sama mæli og t.d. Erró, og það eru ekki mörg ár síðan hann átti nokkrar myndir á sýningu 10 íslendinga, sem haslað hafa sér völl erlendis, að Kjarvals- stöðum í tiiefni Listahátíðar. Nokkr- ar þeirra mynda eru einnig á sýning- unni í Listasafninu, auk þess sem maður hefur séð ýmsar áður bæði í listtímaritum og á sýningum hér heima. En hvað þá hlið snertir, er snýr að almenningi, mun hann ekki mjög þekktur, frekar en obbinn af íslenskum núlistamönnum, jafnvel þótt þeir búi hér heima og sýni reglu- lega. Það mun þannig fyrst og fremst vera til að kynna almenningi list Sig- urðar, að stofnað er til þessarar sýn- ingar og um leið var sett upp sýning á höggmyndum hans og nokkrum grafík-myndum í Listhúsinu Nýhöfn ásamt því, að afhjúpað var rýmisverk eftir hann við Gerðuberg. En þetta hefur nú allt verið vel tíundað hér í blaðinu áður, svo að hér verður ein- ungis fjallað um sýninguna á lista- safninu, sem er þemasýning og hefur fengið heitið „Natúra rómantíka”. Það er víst óhætt að segja, að varla hefur verið betur staðið að neinni sýningu á Listasafni Islands frá upphafi, því að um leið og hún var opnuð, kom út ein veglegasta bók, sem sést hefur um íslenskan myndlistarmann, og sem mjög er í stíl við hið besta sem gerist erlendis. En það er raunar ekki listasafnið, sem stendur að útgáfu þeirrar bók- ar, heldur er hún samvinnuverkefni Máls og menningar og hollensks út- gáfufyrirtækis. Eru ekki tök á því að víkja nema rétt að bókinni í þess- ari ritsmíð og nota eitthvað í henni sém heimild, en það er auðvitað á dagskrá að ijalla um hana sérsrak- lega. En satt að segja markar þessi bók, sem jafnframt er viðamikið kynningarrit um Iistamanninn, og sýningarskrá okkur tímamót og eftir slíkum vinnubrögðum hefur maður beðið lengi. Á þennan hátt eru myndlistar- menn markaðssettir úti í hinum stóra heimi, vel að merkja. Þá skal þess getið, að þetta er farandsýning, sem sett verður upp í Malmö, listasafninu í Pori í Finn- landi og Kunstnerenes Hus í Osló, og verður hver sýning með sérstöku yfirbragði. Þannig má segja að skipu- lagið á bak við þessa sýningu er svo sem best þekkist, og ekki anað að neinu eins og landans er háttur, held- ur hugsað langt fram í tímann. Að baki allra athafnanna standa auðvitað hollenskir umboðsmenn og listsögufræðingar gráir fyrir járnum, ef svo má að orði komast, en það er nú einmitt tímanna tákn og fátt við því að segja. Það er fyrst og fremst sá þáttur í listsköpun Sigurðar, sem kenndur er við hugmyndafræðistefnu áttunda áratugarins, sem kynntur er í lista- safninu og eru þetta nær eingöngu ljósmyndir. Á þeim árum beindist rannsóknin fyrst og fremst að sjálf- inu, og þá öðru fremur hinu ytra sjálfi, og hafa áhangendur þessara viðhorfa stundum verið skilgreindir sem „ég” kynslóðin og tímabilið einn- ig nefnt tímabil „narcissismans” í listum. Listamenn tóku ljósmyndir af sjálfum sér og frömdu ýmsa gjöm- inga og kom þá fram hugtakið Conc- ept Art, sem er samheiti yfir ýmsar listastefnur, svo sem þegar almennir hlutir verða að viðfangsefni (Objekt Kunst), hlutkennd ljóðlist, eða þegar hið ljóðræna í áþreifanlegum hlutum er dregið fram (Konkret Poesie) og sviðsettir atburðir, iðulega óundir- búnir, þar sem ýmsum listformum er blandað saman (Happening). Það er hugmyndin í sjálfum hlut- unum og einnig hin formræna rök- ræða, sem skiptir máli, svo og fijóvg- un hlutarins, þannig að úr verður listaverk. Á þann hátt er hægt að Feröaáætlun: 1. dagur Brottför frá Keflavíkurflugvelli til Glasgow. Þaðan flytur rúta farþegana til Loch Achray hótelsins. 2. dagur Ferð til Inversnaid, en þangað liggur leiðin um fögur héruð til hins nafntogaða Lomond vatns. Farið verður í siglingu á vatninu, en seinni hluta dagsins varið í verslunarborginni Glasgow. 3. dagur Dagsferð til höfuðborgar Skotlands, þeirrar sögufrægu Edinborgar. Þar gefst kostur á að skoða sig um eða versla að vild. 4. dagur Um morguninn verður ekið um hálöndin Sigurður við eitt verka sinna. taka hversdagslega tilbúna hluti úr umhverfinu og umskapa í listaverk (Ready Made), jafnvel hlandskál, eins og Duchamp gerði á sínum tíma. Það var annars hinn þekkti amer- íski núlistamaður Sol Lewitt, sem bjó til hugtakið Concept Art árið 1966 og notaði það upprunalega í sambandi við naumhyggjustefnuna. Margt í hugmyndafræðilegri list áttunda áratugarins byggðist ein- göngu á hinni sjónrænu hugmynd í sjálfri sér og fyrri hugmyndir og tæknibrögð voru úthrópuð og útskúf- uð af mörgum áhangendum stefn- unnar. Fyrirgangurinn var mikill og lengi vel var málverkið með 'öllu útskúfað, sem væri það pestin sjálf. Þannig sáust t.d. ótrúlega lélegar ljósmyndir á sýningum, þar sem ein- ungis var stílað á hugmyndina, og oft bæði ómerkilega sem andlausa hugdettu listamannsins. Tilgangur- inn virtist beinlínis vera að taka vondar ljósmyndir, og svo virtist sem sumir skömmuðust sín jafnvel, ef myndirnar voru vel teknar og útfærð- ar. Þetta tímabil stóð í áratug og end- aði með ósköpum, því að söfn og sýningarsalir tæmdust svo til af fólki, vegna þess að ofstækið var svo fyrir- ferðarmikið, að það skyggði á fram- úrskarandi listamenn og annað sem mjög vel var gert. Ég minnist þess, að ég sá glæsi lega sýningu á mjög vel gerðum ljós- myndum á Boymans van Beuningen- safninu í Rotterdam á miðjum áttunda áratugnum og var það í fyrsta sinn sem ég stóð augliti til auglitis við ijómann í hollenskri hug- myndafræðilist, sem breytti um margt íyrri skoðunum mínum. Þetta tel ég þýðingarmikið að komi fram, því að ég tel styrk mynda Sig- urðar Guðmundssonar mikið til felast í jafnvægi á milli snjallrar hugmynd- ar og útfærslu hennar og eru t.d. sumar ljósmyndirnar frammúrskar- andi vel gerðar og útfærðar. Hér hlýtur hann að hafa mjög góða tækni- og fagmenn að styðjast við, og svo myndast hann mjögvel, er það sem á fagmáli nefnist fótógen. Og eins og áþreifanlegir „Ready Made” hlutir Duchamps voru útfærð- ir áratugum á undan blómaskeiði hugmyndafræðilegu listarinnar, tóku ýmsir ljósmyndarar myndir í anda hennar löngu áður. Þannig tók hinn óviðjafnanlegi Jaques Henri Lartigue mynd af konu sinni Bibi Messager sitjandi á klósettskál árið 1920, ára- tugum áður en Frank Zappa varð heimsfrægur fyrir sjálfsmynd sína á veggspjaldi, þar sem hann er að hægja sér og Sigurður tók svo upp í annarri mynd. Þetta kemur fram í bók Lartigue, „Augnablik lífs míns” (Instants de ma vie) í útgáfu Chéne- forlagsins í París 1970, og í sömu bók er maður, sem virðist vera að falla fram fyrir sig eins og Sigurður og staldrað við í Crieff, þar sem er elsta bruqghús í Skotlandi. Síðari hluta dagsins verður eytt f Stirling, gamalgróinni borg þar sem margt er að sjá og þægilegt að versla. 5. dagur Ekið til Glasgow og flug þaðan til Keflavíkur. Brottfö r/heimkoma: . 12. nóvember -16. nóvember 10. desember -14. desember FERDASKRIFSTOFA ÍSLANDS Söluaðili: Ferðaskrifstofa Islands • Skógarhlfð 18 101 Reykjavik • slmi 91-2 58 55 * Miðað við gengi 01.08. 1991

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.