Morgunblaðið - 06.12.1991, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 06.12.1991, Blaðsíða 26
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 6. DESEMBER 1991 Athugasemd við athugasemdir eftir Inga Boga Bogason Skáldið Jón Óskar ritaði grein í Mbl. 23. nóv. sl. og nefnir hana „Athugasemdir við skrif um Stein Steinarr”. í alllöngu máli vænir hann þar undirritaðan um að hafa misskil- ið endurminningabækur sínar og jafnvel falsað sumt í þeim. Þetta eru stór orð sem því miður fyrir Jón Óskar eru alröng. Tilefni Jóns Óskars er grein eftir undirritaðan sem birtist í Lesbók Mbl. 2. nóv. sl., „Uppruni hugmynda í ljóðum Steins Steinars”. Það eru einkanlega þessi orð mín sem Jón Óskar tekur nærri sér: „Slík tilvik kunna að hafa leitt kunningja hans (þ.e. Steins - innsk. IBB) og aðra sem stóðu honum nærri, til að draga öfgakenndar og jafnvel rangar ályktanir um skáldhæfileika hans. Jón Óskar lætur t.d. oft í veðri vaka í endurminningabókum sínum að Steinn hafi verið yfirborðskenndur - hann hafi gripið hvert tækifæri til að sýna meiri þekkingu en hann bjó yfir.” Þetta er það sem ég skrifaði, þetta er það sem Jón Óskar hafði eftir mér og þetta er það sem ég meinti. Það sem hann segir um þennan texta er hins vegar því miður ekki rétt. Það er tvennt sem ég vil staldra sérstaklega við. dregið skáldskaparhæfileika Steins í efa. Jón Óskar misskilur það þegar hann telur sjálfan sig vera viðfangið í fyrri málsgreininni í tilvitnuðum texta mínum. Ég er þarna að tala almennt um kunningja Steins en ekki Jón Óskar. Það er því erfitt að skilja hví hann tekur þessa máls- grein svo sterkt til sín. Ég vitna í texta Jóns Óskars eingöngu til þess að sýna enn frekar fram á að marg- ir töldu Stein sýna „vitsmunaiega yfírborðsmennsku” í samræðum — tilgangurinn er hvorki að segja eitt né neitt um álit Jóns Óskars á skáld- skaparhæfileikuin Steins. Hér verð- ur að ítreka að grein mín er um Stein_Steinarr en ekki Jón Óskar. * Á liinn bóginn tilfæri ég Jón Óskar, eins og allir mega sjá, sem heimild fyrir því að Steinn hafi verið yfirborðskenndur í umræð- um. Nú bregður „svo undarlega við að Jón Óskar ber af sér „að láta í veðri vaka” í bókum sínum að Steinn hafi verið yfirborðskenndur og þóst vita Ingi Bogi Bogason * Það er ekki rétt að ég ,jafn- vel fullyrði” að Jón Óskar hafi Það lagast um leið og þú færð þér myndlykil að Stöð 2. Þá getur þú horft á gífurlegt úrval af góðu sjónvarpsefni. Það eina undarlega er hvað fjölbreytnin er mikil! Heimilistæki hf SÆTÚNI 8 • SÍMI 69 15 00 fleira en raunin var. í Morgunblaðs- grein sinni tilfærir hann samt dæmi sem erfitt er að túlka öðruvísi en sem rökstuðning við hið gagnstæða: „Hann (þ.e. Steinn — innsk. IBB) hafði það sem í þá daga var kallað lexíkonþekking, en svo var nefnd kjaftaþekking þeirra manna, sem höfðu verið iðnir að fletta upp í al- fræðiritum eða fara á hlaupum yfir fræðibækur og skáldverk. Slíkir menn koma fljótt upp um takmark- anir sínar ...” Síðar greinir Jón Ósk- ar frá því að Steinn hafi beinlínis tamið sér að vita meira en hann vissi: „Langskólagengnir menn gera það að vísu líka og hver okkar sem er, en Steinn gerði meira af því en nokk- ur, sem ég hef þekkt fyrr eða síðar » Ef hér er ekki verið að fjalla um yfirborðslega hegðun, „vits- munalega yfirborðsmennsku”, þá tölum við Jón Óskar ekki sama tungumál. Ýmislegt annað í grein Jóns Ósk- ars er dapurlegt. Hann telur það hlutverk sitt að kveða niður „mis- skilningsdraug” í eitt skipti fyrir öll og segir „falsanir í íslenskri bók- menntasögu” nógar. Jón Óskar hef- ur komið þörfu verki til skila í endur- minningabókum sínum. Á því leikur enginn vafi. En Jóni Óskari leyfist ekki að halda að hans sjónarhorn, þótt um lifaða atburði sé að ræða, sé hið eina rétta. Það er nefnilega svo að bókmenntasagan, eins og sjálf mannkynssagan, verður seint skrifuð „í eitt skipti fyrir öll”. Sem betur fer tínast stöðugt til nýir þekk- ingarmolar sem þess virði er að halda til haga og setja í rétt sam- hengi. Og þá vill stundum brenna við að þeir sem lifðu tímana vissu ekki endilega best hvað var að ger- ast kringum þá. í lokin vil ég ítreka að það er leið- inlegt til þess að vita að tilfinninga- semi virts skálds, sem ranglega telur að sér vegið, skuli leiða af sér að aukaatriði í fræðilegri grein er blás- ið út sem aðalatriði. Mér þykir ástæðulaust að eyða fleiri orðum í þetta og læt hér stað- ar numið. Höfundur er bóknwnntagngnrýnnndi við Morgunblaðið. ------» ♦ «----- Sala á skraut- ljósum til styrktar þyrlukaupum NÚ FYRIR jólin gengst Slysa- varnadeild kvenna í Reykjavik fyrir sölu á sérstökum og óvei\ju- legum skrautljósum fyrir börn. Állur ágóði af sölu þeirra rennur til slysavarna og hefur þegar ver- ið ákveðið að 100 krónur af sölu- verði hvers ljóss renni í þyrlu- kaupasjóð. Frá þessu er skýrt í fréttatilkynn- ingu frá SVFÍ. Þar segir ennfremur: „Þessi skrautljós líkjast mest stjörn- uljósum en eru með öllu hættulaus. Rafhlaða framkallar lit í ljósbráðum og án efa munu þessi sérstæðu ljós gleðja mörg börn nú fyrir jólin. Til- valið er að leggja þessi ljós í barn- askó í glugga. Slysavarnakonur í Reykjavík verða við alla stórmarkaði borgar- innar nú í desember og selja skraut- ljósin. Þá verða þær við jólatréð á Áusturvelli, þegar ljós þess verða tendruð á sunnudag. Slysavarnakonur hafa á undan- förnum árum og áratugum lagt fram miklar fjárhæðir til slysavarna, og nú vilja þær leggja sitt af mörkum til að þjóðin geti eignast nýja björg- unarþyrlu.” Höfðar til -fólksíöllum starfsgreinum! fRwgiimbT&frife en það en enn von
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.