Morgunblaðið - 23.01.1992, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 1992
Morgunblaðið/Sverrir
Herra Ólafur Skúlason biskup íslands kemur hér með poka fulla af fatnaði til slysavarnafélagsins
fyrir Kúrda.
Fatasöfnun fyrir Kúrda gengur framar vonum;
Fyrsti farmurinn fer
væntanlega út í kvöld
FYRSTA sending skyndisöfnunar Hjálparstofnunar kirkjunnar
og Slysavarnafélags Islands á fötum fyrir Kúrda fer að öllum
líkindum til Kaupmannahafnar í kvöld. Hjálparstofnun dönsku
kirkjunnar sér um að koma fötunum til Kúrdanna. Áætlað er að
6-8 40 feta gámar verði sendir héðan. Að sögn Þóris Gunnarsson-
ar, deildarstjóra Slysavarnafélags íslands, hafa viðbrögð lands-
manna verið með ólíkindum góð og mikið af góðum fötum hefur
safnast.
Þórir segir að nú þegar sé kom-
ið óhemju mikið magn og enn eigi
afrakstur söfnunarinnar úti á
landi eftir að koma. Hann segir
að fyrirtæki hafí morg hver að-
stoðað við geymslu fatnaðarins í
vöruskemmum og þess háttar.
„Við höfum enn ekki getað metið
það hversu mikið þetta er í heild-
ina en við höfum heyrt af mjög
miklu magni utan að landi. Nú
vantar okkur bara fleiri hendur
til að aðstoða við að pakka þessu.
Ástandið hjá Kúrdum hefur
greinilega komið við landann því
þetta er miklu meira en við áttum
von á í upphafí," segir Þórir.
Hann segir að mestur hluti
fatnaðarins sé mjög góður og að
mikið sé af peysum, vettlingum,
treflum, sokkum og þess háttar.
Jóhannes Tómasson, blaðafull-
trúi Hjálparstofnunar kirkjunnar,
giskar á að samtals fari 6-8 gám-
ar. „Það má reikna með að söfn-
unin bara hér á höfuðborgarsvæð-
inu fylli um 4-5 gáma og búist
er við svipuðu magni utan að
landi,“ segir Jóhannes.
Hann segir að fötin fari héðan
til Kaupmannahafnar þar sem
hjálparstofnun dönsku kirkjunnar
taki við þeim og komi þeim á
áfangastað. „Þeir eru með starfs-
menn á staðnum og þeir sjá um
flutninginn alla leið. Við teljum
það eins tryggt og ef við sæjum
um það sjálfír. Hugsanlegt er að
önnur dönsk herflugvél fari með
um tíu tonn af fötum á sunnudag.
Auk þess hefur Samskip boðið
ókeypis flutning til Kaupmanna-
hafnar og væntalega fer einnig
sending með þeim í næstu viku,“
segir Jóhannes Tómasson.
Þeir sem vilja hjálpa til við
pökkun fatnaðarins geta mætt í
Gróubúð hvenær sem er eftir
klukkan 10 í dag. Fólk er beðið
um að vera vel búið.
Framkvæmdastj óm Verkamannasambaiidsins:
Ríkisstjórnin verð-
ur að breyta tillög-
um sínuni verulega
Framhald samningaviðræðna rætt í dag
FRAMKVÆMDASTJÓRN
Verkamannasambands íslands
gerir samtökum vinnuveitenda
grein fyrir því í dag hvaða hátt
hún vill hafa á framhaldi
samningaviðræðna í kjölfar
þeirra sérkjaraviðræðna sem
fram fóru í síðustu viku. Fram-
kvæmdasljórnin fundaði í gær
um þessi mál og mun hitta vinnu-
veitendur á fundi hjá ríkissátta-
semjara klukkan 15 í dag. Áður
verður _ forsetum Alþýðusam-
bands íslands gerð grein fyrir
niðurstöðu framkvæmdastjórn-
arinnar.
í ályktun sem framkvæmda-
stjórnin samþykkti á fundi sínum
eru ítrekaðar fyrri samþykktir og
samþykktir þings sambandsins í
haust er leið um forsendur þess
að samningar geti tekist og að
ekki verði raskað þeim efnahags-
lega stöðugleika sem síðustu kjara-
samningar sköpuðu. Til þess að svo
geti orðið verði ríkisstjórnin „að
breyta í veigamiklum atriðum til-
lögum sínum um niðurskurð á vel-
ferðarkerfí okkar, sem beinast
öðru fremur að því að leggja álög-
ur á og auka skattbyrði elli- og
örorkulíufeyrisþega, bamafólks og
sjúkra," eins og segir í ályktuninni.
Ennfremur segir: „Verkalýðs-
hreyfíngin getur ekki unað því að
gengið sé með slíkum hætti á lífs-
kjör fólks, sem bitna með mestum
þunga á þeim sem búa við lökust
kjör, á sama tíma og engir tilburð-
ir eru hafðir uppi til að afla tekna
af fjármagni, ríkissjóður greiðir
niður sölu fyrirtækja á hlutafé og
stendur þannig með óbeinum hætti
undir skattfijálsum arðgreiðslum.
Verkalýðshreyfingin mun ekki
taka því að vandi í ríkisfjármálum
verði leystur með aukinni skatt-
gjaldatöku á almennt launafólk án
þess að leitað sé tekna af því íjár-
magni sem millifært hefur verið
frá launafólki og atvinnulífi með
óheyrilegum raunvöxtum og gegn-
um skattakerfi sem mismunar
þeim sem hafa tekjur af fjármagni
á kostnað þeirra sem afla tekna
með vinnu.“
--------» ♦ ♦---------
Rússasíldin:
Mál skýrast
á morgnn
BJÖRN Tryggvason, aðstoðar-
seðlabankastjóri, Ólafur Egilsson,
sendiherra íslands og Einar Bene-
diktsson, framkvæmdastjóri Síld-
arútvegsnefndar áttu í gær fund
með fulltrúum Utanríkisvið-
skiptabanka Rússlands um
bankaviðskipti vegna saltsíldar-
kaupa Rússa. Að sögn dr. Jóhann-
esar Nordal seðlabankastjóra
varð engin niðurstaða af fundin-
um, en reiknað er með því að nýr
fundur verði á morgun.
Jóhannes sagði að væntanlega
myndi afstaða rússneska bankans
til málsins skýrast. Jafnframt er
búist við að sömu aðilar hitti fulltrúa
rússneska innflutningsfyrirtækisins
Rosvneshtorg að máli.
SAS-flugfélagið:
Stórlækkuð fargjöld á milli
Evrópu og Norðiirlandauna
Skýrist í næstu viku hvort nýju fargjöldin verða boðin hér á landi
SAS-flugfélagið kynnti í Stokkhólmi í gær nýtt fargjald, sem felur
í sér lækkun fargjalda á nokkrum flugleiðum félagsins milli Norð-
urlandanna og Evrópu um 25-30%. Ber nýja fargjaldið nafnið
„Jackpot" og er háð þvi að einnig sé keypt hótelgisting. Þá voru
boðaðar lækkanir á öðrum fargjöldum innan Evrópu og til fjarlæg-
ari áfangastaða síðar á þessu ári. í næstu viku skýrist hvort þessi
fargjöld verða boðin á íslandi en til þess þarf leyfi samgönguráðu-
neytisins.
til samgönguráðuneytisins. Myndi
það væntanlega skýrast í næstu
viku hvort fargjöldin yrðu seld hér
á landi.
„Namibíumaðurinn“:
Ríkissjóður
kostar fæði
og gistingu
RÍKISSJÓÐUR ber kostnað
af uppihaldi manns með nam-
ibískt vegabréf, sem úrskurð-
aður hefur verið í farbann þar
til dómur gengur í Hæstarétti
um meint fjársvik hans.
Maðurinn býr á gistihúsi í
bænum og matast meðal annars
í mötuneyti lögreglustöðvarinn-
ar við Hverfisgötu, en þar er
honum gert skylt að láta vita
af sér hjá útlendingaeftirliti dag-
lega.
Eins og fram hefur komið í
Morgunblaðinu var maðurinn í
sakadómi Reykjavíkur dæmdur
til 6 mánaða fangelsisvistar fyr-
ir ýmiss konar svik gagnvart
hóteli, heildsölufyrirtæki og
greiðslukortafyrirtæki. Helm-
ingur refsingarinnar var skil-
orðsbundinn til 3 ára í saka-
dómi. Hæstiréttur fjallar um mál
mannsins í lok þessa mánaðar.
Ms. Hekla:
Að sögn Bryndísar Torfadóttur,
deildarstjóra ferðaskrifstofudeild-
ar SAS á íslandi, er um að ræða
verulega lækkað fargjald sem
bundið er því að einnig sé keypt
hótelgisting í viðkomandi borg.
Hefst sala á þessum fargjöldum
3. febrúar og stendur eitthvað
fram eftir vori.
Hún sagði SAS hafa gert sér-
samninga við eitt hótel í hverri
þeirri borg sem þessi fargjöld eru
seld til og fái farþegar þar 50%
afslátt af gistingu. Reykjavík er
meðal þeirra borga sem SAS býð-
ur þessi fargjöld til frá Evrópu og
er Hótel Saga það hótel sem sam-
ið hefur verið við í því sambandi.
Bryndís sagði þetta vera þátt í
þeirri viðleitni SAS að reyna að
fjölga þeim erlendu ferðamönnum
sem félagið flytur til íslands. Einn-
ig væri verið að reyna að sækja
utan hins hefðbundna markaðar
ferðamanna sem hingað kemur og
reyna að höfða meira til t.d. við-
skiptamanna. „Norðurhluti
Skandinavíu er að verða með eftir-
sóttustu ferðamannastöðunum í
Evrópu,“ sagði Bryndís.
Þegar hún var spurð hvort ís-
lendingum myndu standa þessi
lágu fargjöld til boða sagði hún
það ekki ljóst ennþá því sækja
þyrfti um leyfí fyrir allar lækkanir
STJÓRNENDUR Samskipa hf. hafa ákveðið að ganga ekki að samning-
um við ríkið um þurrleigu á ms. Heklu að sinni vegna botnskemmda
á skipinu sem komið hafa í ljós. Ómar Jóhannsson, framkvæmdastjóri
Samskipa, segir að viðræður geti aftur hafist þegar Ríkisskip hafa
ákveðið um viðgerð á skipinu. Áætlaður kostnaður vegna viðgerða á
botnskemmdum ms. Heklu er fímm til tíu milljónir og telur Jóhannes
Óli Garðarsson hjá Slippstöðinni á Akureyri að taki tvær til þrjár
vikur að Ijúka henni. Samskip taka við ms. Esju 29. janúar og hefur
það þegar strandferðir fyrir félagið til Austfjarða.
Samningaviðræður stöðvast
vegna skemmda á skipinu
Stjórnendur Ríkisskipa hafa ekki
tekið ákvörðun um hvort nú þegar
verði ráðist í viðgerðir á Heklu en
áformað er að ljúka bráðabirgðavið-
gerð á skipinu í dag eða á morgun
og hefur skipið þá heimild til að
hefja strandsiglingar á ný um tiltek-
inn tíma. Tæring í botni skipsins er
rakin til titrings í skrúfu en ekki
hefur verið ákveðið hvort strax verð-
ur ráðist í að skipta um hana.
„Við teljum að ekki sé ráðlegt að
ganga að þurrleigu eða kaupum á
Heklu, sem er orðin nokkuð lúin og
teljum að ýmislegt þurfi að gera við
skipið áður en við getum rætt áfram
á þeim grunni," sagði Ómar.
Aðspurður sagði Ómar að Sam-
skip hefðu ekki keypt höfundarrétt
á nafni ms. Esju og því yrði skipinu
gefíð nýtt nafn þegar það verður
afhent félaginu í næstu viku.