Morgunblaðið - 26.01.1992, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 26.01.1992, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 1992 C 5 MIKILVÆGI LUNGNAVÉLAR VIÐ OFKÆLINGU Rætt vió Aðalbjöm Þorsteinsson, lækni á Landspítalanum Hjartaskurðlækningar hófust á Landspítalanum með tilkomu hjarta- og lungnavélar árið 1986 og eru í örum vexti. Lækn- ar hafa ekki fyrr haft mögu- leika á að nota hana við með- ferð sjúklinga sein þjást af of- kælingu. Pilturinn sem bjargað var af Esjunni er fyrsta tilfellið hér á landi, þar sem vélinni var beitt. Ofkældan mann með líkamshita fyrir neðan 21 gráðu, er von- laust að lífga við.án hjarta- og • lungnavélar," segir Aðalbjörn.„Oft höfum við heyrt um, að fólk sem bjargast úr snjóflóðum látist skömmu síðar. Þá hefur komið upp hjartastopp sem ekki hefur ráðist við. Aðalhættan við upphitun sjúkl- inga er að hjartsláttartruflanir leiði til hjartastopps. Mjkilvægi hjarta- og lungnavélar er afar mikið, þar sem hún getur tekið við starfsemi hjartans ef með þarf, meðan á upphitun sjúklings stendur. Þannig höfum við vald yfír hjartanu, meðan sjúklingur er að ná upp líkamshita. Vélin heldur áfram að dæla súrefnisríku blóði um líkamann og fyrirbyggir þannig skemmdir á líffærum ef hjartað stoppar. Þessi aðferð byggist á gamalli þekkingu. Aður fyrr voru hjarta- sjúklingar kældir niður í allt að 20 gráður við skurðaðgerðir og hitaðir upp í lok aðgerðar. Ennþá er þetta gert í örfáum tilfellum við flóknar aðgerðir. Aðferðin hefur verið notuð í Ölp- unum, þar sem snjóflóð eru algeng. En hjá okkur er þessi nýi mögu- leiki að opnast og segja má að við séum rétt að byrja að nýta þá möguieika sem hjarta- og lungna- vélin gefur okkur. nestir þola ekki hjartastopp lengur en í örfáar mínútur, ef lík- amshiti er eðlilegur. Eftir þann tíma er hætta á heiiaskemmdum. Bráðakuldi getur líka bjargað, þó að það hljómi einkennilega, en minni hætta er á líffæraskemmd- um, ef líkami kólnar fljótt niður, samanber gömlu aðferðina við hjartaskurðaðgerðir.“ að ganga frá honum og fara sjálf- ur niður er það erfiðasta sem ég hef gert á ævinni," segir þessi 21 árs ungi maður. „Það bíður ekki upp á langan líftíma að liggja lengi kaldur og hreyfingarlaus í fönn. Ég stækkaði holuna og bjó um hann eins vel og kostur var. Síðan var eins og ég fengi skot af adrena- líni. Þegar hann bugast, var eins og allt færi af stað hjá mér. Nú þýddi ekki að slóra. Hver mínúta dýrmæt. Nú var ekki um að ræða að bjarga aðeins sjálfum sér, held- ur honum líka. Og ég þverbraut allar reglur á niðurleið. Sá snjó- flóðahættuna, en hafði engu að tapa. Renndi mér bara beint niður. Auðvitað spyr maður sjálfan sig. Af hveiju komst eg lokasprettinn, en ekki hann? Ég held, að það hafi bara verið einskær heppni. Líkamlega var ofboðslega lítill munur á okkur. En maður verður að athuga, að á meðan hann er að kólna í snjóskýlinu, er ég að hitna á hraðferð niður fjallið. Rollurnar í snjónum Ég held að ég hafi verið um hálftíma niður. Og þegar ég er kominn niður um 2/3 af hlíðinni og á leið fyrir Eilífsdal, fer ég að sjá rollur á víð og dreif á snjóbreið- unni. Ég var alls ekki sáttur við allar þessar rollur um hávetur. En strax og bílarnir koma í augsýn, fer ég að æpa og öskra til að vekja athygli á mér. Þá fer „roilunum" að fjölga all- ískyggilega. Og bflhurðir fara að opnast og lokast. Þessar „rollur" sem ég sá, voru þá leitarhóparnir. Hilmar í Skátabúðinni var með þeim fyrstu til mín. Ég gaf honum strax staðsetningu á snjóskýlinu og færustu mennirnir í hópnum hlupu samstundis upp hlíðina. Én ég settist inn í bil. Þá þegar var búið að panta þyrlu. Og ég staðfesti, að mögulegt væri að bjarga Heimi niður með henni. Astandi mínu á þeirri stundu get ég ekki lýst. Ég var undir ofboðs- legum áhrifum. Líkami minn yfir- fullur af adrenalíni. Maður var hálfbijálaður og snarvitlaus. Reifst og skammaðist. Eina sem komst að hjá mér, var hugsunin um strák- inn þarna uppi. Það tók 3 sólarhringa að ná mér niður. Ég svaf ekki allan þann tíma. Ég reyndi ýmist að „peppa“ sjálfan mig upp eða „gíra“ mig niður. Það var ekki fyrr en daginn eftir, að ég skynjaði hvað gerst hafði. Þá fór ég yfir atburðarásina aftur og aftur. Með róandi lyfjagjöf gat ég loks slakað á og sofnað. En það tók lengri tíma að ná líkamsstarfsem- inni í eðlilegt horf. Ég léttist um 3 kíló á þessu öllu saman. Og enn- þá spyr ég sjálfan mig. Ennþá fer ég yfir allt sem gerðist a.m.k. tvi- svar á dag. Auðvitað lærir maður af öllum ferðum. En þessi ferð kenndi mér, að lífið er ekki sjálfgefið, að við erum dauðlegri en maður gerði ráð fyrir áður. Það er hægt að brotna undan náttúruöflunum. Kannski gerði maður sér ekki fulla grein fyrir því.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.