Morgunblaðið - 15.03.1992, Blaðsíða 12
12 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. MARZ 1992
KAUPMANNAHAFNARBRÉF
Hirar ranglitu
Daginn er farið að lengja svo um mun-
ar, það er farið að birta um kl. 7 og það
er bjart til kl. 18. Um síðustu helgi lokk-
aði fyrsti vorlegi sunnudagurinn margan
höfuðstaðarbúann út. í útjaðri borgarinnar
eru skógarsvæði, þar sem er þögn og kyrrð
og loftið frísklegt. í skógaijaðrinum stend-
ur bekkur og á sætið hefur einhver skrifað
nafnið á elskunni sinni og hjarta utan um.
Safínn stígur í tijánum og tilfínningarnar
stíga mannfólkinu til höfuðs. En stórir staf-
ir á bekkbakinu vitna um aðrar tilfinning-
ar. „Dræb de fejlfarvede", „Drepið þá rang-
litu“. Þetta er ekki tilviljanakennt krot. Eg
hef rekist á þessi orð svo víða um borgina,
oftast á bekkjum, líka þar sem var nýbúið
að mála yfir, svo það eru greinilega ein-
hveijir sem leggja þessa iðju fyrir sig á
skipulegan hátt.
Líkt og fleiri lönd í Evrópu hefur Dan-
mörk tekið við töluverðum hópi innflytj-
enda. Sumir hafa komið í leit að betra lífi,
aðrir eru pólitískir flóttamenn. í huga al-
mennings á orðið ekki við um Norður-
landabúa, sem setjast hér að, ekki heldur
við um þjóðir Norður- og Mið-Evrópu, held-
ur Tyrki, Afríku- og Asíubúa, sumsé þá
sem hafa dekkra litarhaft en Danir, jafn-
vel þó orðið sé hlutlaust í sjálfu sér.
Á yfirborðinu er allt slétt og fellt. Það
eru landslög sem mæla gegn hvers kyns
mismunun eftir litarhætti, trú og stjórnmál-
askoðunum. Umburðarlyndið er lögboðið.
Ábyrgðarfullir blaða- og fréttamenn láta
ekkert tækifæri ónotað til að tala gegn
kynþáttafordómum, þegar þau mál ber á
góma.
Við fyrstu sýn er það þessi afstaða, sem
blasir við. En það er líka til félagsskapur
sem hefur á stefnuskrá sinni að Danir
hætti að taka við pólitískum flóttamönnum
og innflytjendum yfirleitt og sem vill halda
Danmörku fyrir Dani. í forsvari hans eru
meðal annars prestar sem túlka náunga-
kærleikann býsna þröngt og takmarka
hann við þann sem næstur er í bókstaf-
legri merkingu orðsins. Undanfarið hefur
verið rætt innan þessa hóps að leggja fé-
lagsskapinn niður og breyta honum í
fræðsluhóp því sumir félagsmenn eru
áhyggjufullir yfir að ýmsir sem laðast að
honum láta í ljós löngun til að taka til
höndunum og hreinsa til. Nota hnefana
til að koma innflytjendum í skilning um
að Danmörk sé fyrir Dani og ekki aðra.
Fyrir nokkrum árum var ég af tilviljun
samferða íslenskum iðnaðarmanni í bíl hér
í Kaupmannahöfn. Sá hafði búið hér í
mörg ár. Leiðin lá framhjá sjónvarpsbúð,
þar sem kveikt var á sjónvarpinu. Á skerm-
inum blasti við andlit prests sem mjög
hefur haft sig í frammi gegn innflytjend-
um. Þetta var umræðuþáttur um útlendinga
í Danmörku. Landi minn sagði að nú hjól-
uðu fréttamennirnir í prestinn eins og vana-
lega þegar hann kæmi fram, en það væri
sama hvað þeir segðu, almenningur væri
orðinn þreyttur á að halda þessu fólki uppi.
Það er enginn vafí á að landinn talaði
fyrir munn margra Dana. Það fyrsta sem
við sjónum blasir hér þegar þessi mál eru
annars vegar er afstaða þeirra sem vara við
kynþáttahatri, en maður verður fljótlega var
við tvískinnunginn, sér slagorðin á bekkjun-
um og víðar og heyrir útundan sér þær radd-
ir, sem landi minn nefndi. Raddir sem tauta
um að innflytjendur séu allir félagsmálahjálp
og stundi innbrot, þó tölur sýni þvert á móti
að margir í þessum hópi séu duglegir að
bjarga sér og vinni störf sem Danir líti ekki
við þrátt fyrir 10% atvinnuleysi.
Stjórnmálaflokkarnir vita af þessum tví-
skinnungi. Framfaraflokkurinn fer ekki í
launkofa með að þeir_ vilja hefta straum
útlendinga til landsins. í rúmt ár hefur rann-
sóknardómstóll verið að störfum til að rann-
saka hvort fyrrverandi dómsmálaráðherra,
Erik Ninn-Hansen frá íhaldsflokknum, hafí
komið í veg fyrir að tamílskir flóttamenn
fengju íjölskyldur sínar til Danmerkur 1987
og þannig komið í veg fyrir það sem þeim
stóð til boða samkvæmt lögum. Ninn-Hans-
en hefur meðal annars réttlætt gerðir sínar
með því að gefa í skyn að hann hafí með
þessu aðeins verið að draga úr straumi út-
lendinga til landsins í samræmi við vilja
flokksbræðra og -systra. Það er ekki að efa
að margir kinka kolli því til samþykkis.
Jafnaðarmannaflokkurinn hefur að ýmsu
leyti átt erfíðast með að fara bil beggja í
afstöðu til útlendinga. Flokkurinn hefur um
áraraðir verið talsmaður þess að Danir legðu
sitt af mörkum til að leysa flóttamanna-
vanda heimsins og lagt línurnar í stefnu
Dana í þeim málum. En einnig þeir finna
hvernig vindurinn blæs.
Á friðsælum vordegi er ekkert sem bend-
ir til annars en að hér lifí fólk í sátt og
samlyndi. Morðhótanirnar á bekkjunum
minna á að hér er ólgandi undiralda.
Sigrún
Davíðsdóttir
r' ||| q CATERp,LLAR ^
★ 3 ★★★★★★★
★ ★★★★★★tft >/★★★★★★★
> U.
Námskeið í
sjálfsstyrkingu
fyrirkonur
Stjórnendur og eigendur
CATERPILLAR vinnuvéla
Verið er að stofna Félag stjórnenda og eigenda Caterpillar vinnuvéla.
Markmið félagsins er að miðla fróðleik um Caterpillar vinnuvélar
og notkun þeirra. Félagið er opið eigendum og
tækjastjórum sem hafa átt, eða unnið á Caterpillar
vinnuvélum. Stofnfundur verður haldinn í lok mars.
, Þeir sem hafa áhuga á að gerast stofnfélagar eru
s vinsamlegast beðnir að skrá sig hjá véladeild laugavegi 174
Heklu í síma 695726 fyrir mánudaginn 16. mars. sími 695500
Aðalmarkmið námskeiðsins er að efla sjálfstraust og
jákvætt sjálfsmat og gera þátttakendum kleift að njóta sín
til fulls í félagsskap annarra. Lögð er áhersla á að gera þátt-
takendum grein fyrir hvaða rétt þeir og aðrir eiga í mann-
legum samskiptum og hvemig þeir geta komið fram
málum sínum af festu og kurteisi, án þess að láta slá sig út
af laginu með óþægilegum athugasemdum.
Fjallað verður um atriði sem auðvelda fólki að svara fyrir
sig og halda uppi samræðum og leiðir til að auka almenna
lífsgleði. Ennfremur er rætt um hvemig hafa megi hemil á
kvíða og sektarkennd með breyttum hugsunarhætti og
taka gagnrýni þannig að maður
læri af henni - en haldi jafnframt
reisn sinni.
Upplýsingar og innritun í síma 61
22 24 sunnudag og mánudag og í
síma 123 03 aðra daga.
Anna Valdimarsdóttir,
sálfrœðingur,
Brœðraborgarstíg 7.
Á
Verktakar -
BORCO
TRAILERS
Vörubílstjórar
Tæknimaður frá BORCO vagnaverksmiðjunum
í Bandaríkjunum verður til viðtals dagana
17. - 20. mars næstkomandi.
Tryggið ykkur véla- eða malarvagn fyrir sumarið
á mjög hagstæðu verði.
Ráðgjöf - sala - þjónusta.
Skútuvogur 12A - Reykjavík - s 812530
V
■
RÝMINGARSALA
VIGNA FLUTNINGS!
BLÚSSUR 911,
8UXUR %sa, 1.580,
PEYSUR tM 2.508,
KJÓLAR luif 3.008,
TWEEDKÁPA jsM, 0.008,
HETTUÚLPUR ua( 7.080,
RYKFRAKKAR iMIÍ 0.800,
HEnUKÁPUR IM(C-11.000,
KÁPUSALAN
BORGARTÚNI 22 ,SÍMI 624362.