Morgunblaðið - 30.05.1992, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 30.05.1992, Blaðsíða 60
MlCROSOFT. einar j. WlNDOWS- SKÚLASONHF MORGUNBLAÐIÐ, ADALSTRÆTl 6, 101 REYKJAVÍK SÍMl 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1992 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR. Flóabát- inn Baldur tók niðri á skeri LEKI kom að flóabátnum Baldri er hann steytti á skeri á leið frá Brjánslæk til Flateyjar í gær. Dæld og lítið gat kom á bátinn, og tveir botntankar fylltust af vatni. Óhappið átti sér stað rétt við Flatey. Baldur fór því ekki síðari ferð sína í gær, og liggur nú við höfn í Stykkishólmi. „Það eru um 2.800 eyjar og sker í Breiðafirðinum og Baldur var einfaldlega ekki alveg á réttu róli,“ sagði Guðmundur Lárusson, framkvæmdastjóri Baldurs. „Það kom ekki einu sinni slagsíða á skipið við áreksturinn, en þó má gera ráð fyrir að farþeg- ar hafi orðið vel varir við hnykk- inn,“ sagði Guðmundur. „Við eig- um pantað pláss í slipp á þriðjudag- inn, en óvíst er hvort við getum haldið uppi áætlun þangað til. Þau mál er verið að athuga, og fæst vonandi niðurstaða í nótt.“ Tveir menn á vélhjóli slösuðust Tveir menn á stóru vél- hjóli slösuðust í Hafnarfirði er ökumaður hjólsins missti sljórn á því í beygju á tólfta tímanum í gærkvöldi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Hafnarfirði voru mennirnir á leið eftir Reykjavík- urvegi og ætluðu að beygja inn Fjarðargötu. Hjólið lenti á kant- steini, mennimir tveir köstuð- ust af því og lentu á malar- bakka. Þeir munu ekki vera lífs- hættulega slasaðir. Patreksfirði. Þröngá þingi viðhöfnina Morgunblaðið/RAX Mokafli hefur verið hjá handfærabátum fyrir vestan að undanförnu. Dagsaflinn hefur verið frá einu upp í þijú tonn á bát af góðum þorski. Vel á annað hundrað smábáta er nú á Vestfjarðamiðum, og á Patreks- firði og Tálknafirði eru hafnirnar fullar af smábátum hvaðanæva af landinu. Grásleppukarlar á þessum slóðum hafa einnig verið að gera það gott. Eins og sjá má á myndinni, sem tekin var síðdegis í gær í höfninni á Patreksfírði, er iðandi mannlíf við höfnina, og menn skegg- ræða um aflabrögð liðinnar viku. R. Schmidt. Sjá ennfremur á bls. 5. Mánaðarleg útboð ríkisbréfa að hefjast; Óskað eftir tilboðum í ríkis- bréf fyrir 300—500 milljómr FJÁRMÁLARÁÐHERRA hefur ákveðið að efna til fyrsta útboðs ríkisbréfa 10. júní nk. og verður þá óskað eftir tilboðum í bréf að fjárhæð 300-500 milljónir króna. Er gert ráð fyrir að þaðan í frá verði gefin út mánaðarlega markaðshæf ríkisbréf í stöðluðu formi og þau síðan boðin út. Hér er um að ræða óverðtryggð bréf til sex mánaða og er öllum heim- ilt að gera bindandi tilboð sam- kvæmt ákveðnum reglum. Ríkis- bréfin eru gefin út í þremur verð- gildum, 2 milljónir, 10 milljónir og 50 milljónir, og verða þau Húsnæðismálastj órn: Samþykktar lánveitingar til 533 félagslegra íbúða Skylt verði að auglýsa eftir notuðu hús- næði áður en ráðist er í nýbyggingar HÚSNÆÐISMÁLASTJÓRN afgreiddi heimildir til byggingar eða kaupa á 533 félagslegum íbúðum á fundi sínum á þriðjudag. Þetta er nokkuð minna en samþykktar lánveitingar á síðasta ári sem þá voru til allt að 594 íbúða. Ákveðið var að setja ákveðin stærðarmörk á íbúðir í þeim tilgangi að draga úr byggingarkostnaði og sett eru stífari skilyrði en áður um að framkvæmdaaðilar gangi úr skugga um hvort tíl er notað húsnæði eða húsnæði í smíðum i sveitarfélagi áður en ráðist er í nýbyggingar og er gerð sú krafa til sveitarfé- laga og byggingaraðila að auglýst verði eftir slíku húsnæði til kaups áður en ákvörðun er tekin um nýbyggingu, að sögn Yngva Arnar Kristinssonar, formanns húsnæðismálastjórnar. Úthlutunin sem ákveðin var er í Yngvi Örn sagði að með ákvörð- samræmi við heimildir fjárlaga sem un um að binda lánveitingar við gerðu ráð fyrir lánveitingum vegna stærðarmörk íbúða væri stefnt að 500-600 íbúða. því að gera félagslegar íbúðir ódýr- ari og hagkvæmari en áður hefði verið. „Okkur sýnist að á undan- förnum árum hafi íbúðir verið að stækka og við teljum okkur geta náð fram talsverðri kostnaðarlækk- un með því að setja þessar skorð- ur,“ sagði hann. „Við setjum einnig stífari skilyrði um að byggingaraðilar gangi úr skugga um hvort til er notað hús- næði eða húsnæði er í smíðum í sveitarfélagi áður en bygging á nýju húsnæði hefst til að nýta það húsnæði sem er til staðar. Við ger- um þá kröfu til sveitarfélaga og framkvæmdaaðila að þau auglýsi eftir húsnæði til kaups áður en ákvörðun er tekin um byggingu félagslegra íbúða,“ sagði hann. innleyst hjá Lánasýslu ríkisins á gjalddaga. Útboði ríkisbréfa er að einhverju leyti ætlað að koma í stað yfirdrátt- ar ríkissjóðs í Seðlabankanum við að fjármagna lánsfjárþörf ríkissjóðs til skemmri tíma. Forsenda þessarar útgáfu er jafnframt sú að verðlags- horfur eru svipaðar og á nágranna: löndum a.m.k. fram á næsta ár. í bréfi Lánasýslu ríkisins til banka og verðbréfafyrirtækja eru þau hvött til að taka þátt í útboðinu og þar með efla framþróun á íslenskum verðbréfamarkaði en það stuðli jafnframt að því að vextir ráðist af markaðsaðstæðum hveiju sinni. Samkvæmt útboðsskilmálum er lágmarksfjárhæð útboðsins 300 milljónir króna en heildarfjárhæð þess er áætluð 500 milljónir. Lög- giltum verðbréfafyrirtækjum, lög- giltum verðbréfamiðlurum, bönkum og sparisjóðum er einum heimilt að gera bindan’di tilboð í ríkisbréf sam- kvæmt tilteknu tilboðsverði. Öllum öðrum er heimilt að gera bindandi tilboð í vegið meðalverð samþykktra tilboða. Þetta er þó háð því að sam- þykkt tilboð frá áðurnefndum aðil- um verði að minnsta kosti 200 millj- ónir króna. Tilboðsgjafar skulu láta fylgja með tilboði sínu 20 þúsund króna tékka sem gefinn er út af gjaldkera innlánsstofnunar. Gangi tilboðsgjafi frá tilboði sínu glatar hann íjárhæðinni en ella gengur hún upp í viðskipti viðkomandi að- ila eða verður endursend sé tilboði hafnað af ríkissjóði. Gert er ráð fyrir að flokkur bréf- anna verði skráður á Verðbréfa- þingi íslands. Herjólfur í hringferð um landið FlekkeQord. Frá Grími Gíslasyni, ^ fréttaritara Morgunblaðsins. ÁKVEÐIÐ hefur verið að hið nýja skip Heijólfs hf., sem verður afhent á fimmtudag, haldi í hringferð um ísland eftir heimkomuna. Áætlað er að skipið komi til landsins á hvítasunnudag 7. júní. Byijað verður á hringsigling- unni í Þorlákshöfn. Ekki er enn búið að ákveða alla viðkomu- staði, en Reykjavík, ísafjörður, Akureyri og Eskifjörður verða þeirra á meðal. Tilgangurinn með siglingunni er að kynna skipið og æfa áhöfnina, en ráð- gert er að framkvæmdum við hafnaraðstöðu Heijólfs í Vest- mannaeyjum ljúki 22. júní. Skipið er um 2.200 tonn að stærð, tekur allt að 500 farþega og 70-80 bíla, og kostar um 1.100 milljónir króna. Skipa- smíðastöðin Simek í Flekkefjord í Noregi smíðaði skipið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.