Morgunblaðið - 02.06.1992, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 02.06.1992, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1992 25 Góð byrjun á laxavertíð: Atján laxar á land fyrsta morguninn LAXVEIÐIN fór prýðilega af stað í Þverá og Norðurá í Borgar- firði í gær. Á hádegi höfðu 10 laxar veiðst í Þverá og 8 í Norð- urá. Þótti veiðimönnum þetta mjög svo viðunandi þar sem vatns- hiti var aðeins 5 til 6 gráður og árnar báðar vatnsmiklar og hálfskolaðar. Eftir því var tekið hversu vænn laxinn var, feitur vel, og bendir það til góðs ástands á hafbeitarslóðinni. „Þetta voru yfirleitt 6 til 9 punda fiskar í fyrra, en núnar er enginn undir 10 pundum. Reyndar er þetta eins og í gamla daga og ég hef ekki séð svona fallegan vorfisk í Norðurá í þó nokkur ár,“ sagði Halldór Þórðarson sljómarmaður í SVFR sem hafði landað þremur flugulöxum á Stokkhylsbrotinu sunnanverðu. í Þverá var það sama uppi á teningnum, aðeins þrír fiskar vom undir 10 pundum og enginn minni en 8 pund, en sá stærsti 13 pund. Veiðin fékkst vítt og breitt í Þverá, þrír á efsta hluta svæðis- ins, fimm um rniðbikið og tveir á neðsta hlutanum. Sex á maðk, en fjórir á flugu og voru það „Traffic Warden“, „Tveir á kamr- inum“, „Þingeyingur" og „Thunder and Lightning“ sem gáfu laxana. Eins og í Norðurá áttu veiðimenn erfítt með að meta hvað gengið væri af fiski í ána þar sem laxinn sýnir sig lítt við svo lágt hitastig. Hins vegar voru Þverárlaxamir tíu ekki allir lúsugir. í Norðurá var hálfgert spennu- fall á Eyrinni og Brotinu fyrir neðan Laxfoss. Þar veiddist einn fiskur og aðeins tveir á Laxfoss- svæðinu. Fékkst hinn í Drottningarhyl. Eins og áður hefur hent, þegar árvatnið er kalt, veiðist betur neðar á svæð- inu, þannig gaf Stokkhylsbrot nú fjóra og Myrkhylsrennur tvo. Menn tóku hann bæði á flugu og maðk í Norðurá, en meðal flugna sem gáfu í gærmorgun voru „Gulur hundur“ og „Kjaftopna". Veiði hófst einnig síðdegis í Laxá á Ásum, en ekki náðist í veiðimenn á þeim slóðum. Morgunblaðið/Guðmundur Guðjónsson Anna Mósesdóttir og sonur hennar Ingvar Vilhjálmsson með 11 og 10 punda laxa úr Þverá. Lax Önnu tók kl. 7.08 og var því fyrsti stangarveiddi lax sumarsins. Halldór Þórðarsson með 3 stór- laxa 10, 10 og 12 punda úr Þverá. Állir tóku á flugu. Samband ungra jafnaðarmanna: Stuðningsyfirlýsingu við Jóhönnu vísað frá Stuðningsyfirlýsingu við störf Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmála- ráðherra í ríkisstjórn var vísað frá á þingi Sambands ungra jafnaðar- manna um helgina. Að sögn Sigurðar Péturssonar formanns SUJ var yfirlýsingunni vísað frá þar sem fundarmenn vildu ekki taka afstöðu til tiltekins ráðherra áður en að flokksþingi kæmi. Jón Baldur Lor- ange formaður velferðarnefndar aukaþingsins segir frávísunina hafa verið áfall og hún sýni best að ýmsir aðilar hafi hafið aðför að Jóhönnu. Sigurður Pétursson segir að allir sem tjáð hafi sig um stuðningsyfir- lýsinguna á þinginu hafi lýst yfír stuðningi við Jóhönnu og stefnu hennar. Hins vegar hafí fólk ekki viljað láta stilla sér upp við vegg og taka afstöðu til forystumanna flokksins áður en að flokksþingi kæmi. „Skoðanir eru skiptar hjá okkur eins og annars staðar og menn töldu ekki rétt að sambandið í heild sam- þykkti slíka yfírlýsingu," segir Sig- urður. Jón Baldur Lorange, formaður velferðarnefndar aukaþingsins, seg- ir að það hafi verið einróma álit nefndarinnar að leggja bæri stuðningsyfirlýsinguna fram. „Sam- band ungra jafnaðarmanna hefur undanfarið ár verið með svipaða skoðun og stefnu og Jóhanna Sigurðardóttir varðandi ríkisstjórn- arsamstarfið. Með yfirlýsingunni vildum við styðja málflutning hennar og stefnu," segir Jón Baldur. Hann segir að yfirlýsingin hafi ekki verið gerð til að styðja Jóhönnu persónulega fyrir hugsanlegan for- mannsslag. „Það er engin ástæða til þess þar sem getgátur um að húri ætli að bjóða sig fram til formanns hafa hvergi verið rökstuddar og hún ekki gefið í skyn að hún hyggist bjóða sig fram. Yfírlýsingin var því ekki ætluð í neinn formannsslag,“ segir Jón Baldur. Hann segir hins vegar að af- greiðsla stuðningsyfirlýsingarinnar sýni að full ástæða sé til að standa að baki Jóhönnu og stefnu hennar á komandi flokksþingi. „Afgreiðsla málsins var mikið áfall fyrir marga þingfulltrúa og sýnir best að ýmsir aðilar hafa hafið aðför að Jóhönnu. Við skulum vona að þingfulltrúar á flokksþingi komi í veg fyrir að Jó- hönnu Sigurðardóttur verði vísað frá eins og þessari stuðningsyfírlýs- ingu,“ segir Jón Baldur. ♦ ♦ ♦---- Flugfreyjur samþykkja nýjan kjara- samning SAMNINGANEFNDIR rafiðnað- armanna og ríkisins og banka- manna og bankanna funduðu hjá Ríkissáttasemjara í gær. Niður- staða fékkst ekki og eru samn- ingamenn rafiðnaðarmanna og ríkisins boðaðar til nýs fundar í dag. Flugfreyjufélag íslands sam- þykkti nýjan kjarasamning við Vinnuveitendasamband íslands og Flugleiðir í síðustu viku. Þórarinn V. _ Þórarinsson framkvæmdastjóri VSÍ segir að samningurinn sé eins og aðrir samningar sem gerðir hafa verið. í þessum samningi hafi að auki verið tekið á ýmsum fram- kvæmdaatriðum, til dæmis við leigufluug til sólarlanda. Vegna breytinga í heimilisdeild bjóöum vió allt að 15% - 60% afslótt vikuna 2. júní - 6. júní Ti GKS húsið, Hesthólsi 2-4 • 110 Reykjavík • Sími 6721 10
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.