Morgunblaðið - 14.08.1992, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 14.08.1992, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ IÞRÓTTIR FOSTUDAGUR 14. AGUST 1992 GOLF GSÍ 50 ára Golfsamband íslands er 50 ára í dag og af því tilefni verður hátíðardagskrá í golfskála Golf- klúbbs Reykjavíkur í Grafarholti. Dagskráin hefst kl. 14 með því að Páll Ásgeir Tryggvason, formaður hátíðamefndar, setur hátíðina. Sóknarpresturinn, Vigfús Þór Ámason, flytur helgispjall og síðan verður golfsýning þar sem fjögur ungmenni leika með fjórum öldung- um og er þetta gert til að undir- strika að golf er íþrótt fyrir fólk á öllum aldri. Konráð Bjarnason, forseti GSÍ, flytur þar næst ávarp og Guðmund- ur Bjömsson, formaður GR, einnig. Gestum verður síðan boðið uppá kaffi og með því og klukkan 17 hefst opið hús golfklúbba um allt land þar sem fólk getur kynnt sér starfsemi klúbbanna og fræðst um golfíþróttina. Golfíð hefur breiðst hratt út und- anfarin ár. Þegar GSÍ var stofnað árið 1942 vom skráðir iðkendur 235 og hafði aðeins fjölgað um 30 árið 1963. Þegar sambandið er 50 ára eru skráðir iðkendur 5.500 talsins og fer ört fjölgandi. Úlfar Jónsson er með lægstu forgjöf íslensku keppendanna. íslendingar stefna að verðlaunasæti á NORÐURLANDAMÓTIÐ í golfi verður sett á Grafarholtsvelli í dag ki. 18 og keppni hefst ífyrramálið kl. 8. íslensku keppendurnir setja stefnuna á verðlaunasæti og ættu að eiga raunhæfa mögu- leika á að ná því markmiði. Kylfíngamir leika 54 holur, 36 á morgun og 18 á sunnudag, og er það í fyrsta sinn sem ekki eru leikn- ar 72 holur á NM. Svíar eru núverandi Norðurlanda- meistarar í karlaflokki en Danir í kvennaflokki. íslendingar hafa oftast verið í keppni við Finna um fjórða sætið í karlaflokki en ætla sér stærri hluti að þessu sinni, enda á heimavelli. Miðað við forgjöf þeirra keppenda sem hingað koma er víst að frábært golf verður leikið í Grafarholtinu um helgina. Svíar eru með fjóra sem eru með 0 í forgjöf og tvo sem eru með +1 þannig að þeir eru sterkir. Norð- menn virðast ekki síður sterkir því þrír era með +2, einn með +1, einn með 0 og einn með 1. Finnar era með tvo sem era með 1, þrjá sem eru með 2 og einn er með 3 í forgjöf. í dönsku sveitinni eru þrír með 0, tveir með 1 og einn með 2 en íslenska sveitin er með einn með +2, einn með 0, tvo með 1 og tvo með 2. Keppt er í höggleik og telja fímm efstu í hverri sveit á hveijum hring. Einnig er um einstaklingskeppni að ræða og þar eru þrír íslendingar auka- lega í karlaflokki, þeir Birgir L. Haf- þórsson, Sigurður Hafsteinsson og Sigurpáll Sveinsson. > PINISEEKER OPIÐ UNGLINGAMÓT verður haldið laugardaginn 15. ágúst á Keilisvellinum í Hafnarfírði. Keppt verður í flokkum 14 ára og yngri og 15 - 18 ára. Veitt verða glæsileg verðlaun fyrir 1., 2. og 3. sæti með og án forgjafar í báðum flokkum. Aukaverðlaun verða veitt fyrir næst holu á öllum par 3 holum. Ræst verður út frá kl. 9.00. Skráning er í síma 53360. Róðurinn verður öragglega erfíðari fyrir stúlkumar því forgjöf erlendu keppendanna er talsvert lægri en okk- ar stúlkna. Norska sveitin er með eina sem er með 1 í forgjöf, tvær eru með 3 og ein með 5. Hjá Finnum era tvær með 5 og tvær með 4 en sænsku stúlk- urnar era með geysisterkt lið. Þijár eru með 0 í forgjöf og ein er með 1. Danska sveitin er með 3, 4, 3 og 4 í forgjöf. íslenska sveitin er með 3, 6, 6 og 10 í forgjöf þannig að það verð- ur á brattann að sækja hjá henni. íslendingar hafa einu sinni náð verðlaunasæti í sveitakeppninni. Karlasveitin varð í þriðja sæti þegar leikið var á Suðumesjum árið 1988. Úlfar Jónsson og Karen Sævarsdóttir hafa einnig komist á pail f einstakl- ingskeppninni. Úlfar varð annar í Noregi árið 1990 og Karen varð þá þriðja. AGANEFND KSI KNATTSPYRNA / AGANEFND Samkvæm sjálfri sér Morgunblaðinu barst í gær- kvöldi eftirfarandi yfirlýsing frá Knattspyrnusambandi Is- lands. „Vegna blaðagreina á íþróttsíð- um Morgunblaðsins 12. og 13. ágúst 1992, vill Knattspyrnusam- band íslands taka fram eftirfar- andi: I leiknum ÍA - Valur laugardag- inn 25. sl. var tveimur leikmönn- um vísað af leikvelli. Eins og kunnugt er fer leikmaður, sem vísað er af leikvelli sjálfkrafa í leikbann. Vegna þessa sjálfkrafa leiksbanns hefur sú vinnuregla skapast hjá aganefnd KSÍ að úr- skurða strax á næsta fundi sínum eftir brottvísun, hvort viðkomandi leikmaður skuli úrskurðaður í eins leiks bann eða fleiri leikja. Er þetta gert til að leikmaður fari í samfellt leikbann, ef úrskurður aganefndar felur í sér fleiri en eins leiks bann. Aganefnd byggir úrskurð sinn á atvikaskýrslu dómara og/eða eftirlitsmanns. Aganefnd er nauð- synlegt að fá upplýsingar frá dómara og/eða eftirlitsmanni um eðli viðkomandi brota, sem hafa leikbann í för með sér. í umræddum leik var eins og áður er getið tveimur leikmönnum vísað af leikvelli. Það var því á grundvelli fyrrnefndar vinnureglu aganefndar, sem starfsmaður KSÍ hafði samband við dómara leiks- ins. Það varð samkomulag milli þeirra, að dómari leiksins sendi inn til KSÍ símbréf með atvika- skýrslum sínum. Eftir þeim skýrslum úrskurðaði aganefnd KSÍ á fundi sínum 28. júlí sl. Sami háttur hefur verið hafður á í öllum sambærilegum tilvikum í sumar.“ Undir þetta rita Eggert Magn- ússon, formaður KSÍ, Eggert Steingrímsson, formaður aga- nefndar KSÍ og Snorri Finnlaugs- son, framkvæmdastjóri KSÍ. Yfirlýsing frá Gylfa Þór Orrasyni GYLFI Þór Orrason, knatt- spyrnudómari, sendi Morg- unblaðinu eftirfarandi yfirlýs- ingu vegna þess sem haft er eftir Gunnari Sigurðssyni, formanni ÍA, í blaðinu í gær í sambandi við afskipti KSÍ af dómaraskýrslum. „Mér fínnast aðdróttanir þessa reynda forystumanns úr knatt- spyrnuforystunni vera lágkúru- legar og honum til vansa. Hann virðist telja það eðlilegt að þeir, sem starfa á vettvangi KSÍ vinni starf sitt af óheilindum. Hann hlýtur þá að vera með slæma sam- visku eftir 17 ára starf sitt í stjóm og nefndum KSÍ. Menn geta haft misjafnar skoðanir á hversu góður eða lélegur knattspyrnudómari ég er, en svindlari er ég ekki.“ Gylfi Þór Orrason, knattspyrnudómari. Ikvöld Knattspyma kl. 19 1. deild kvenna: Akranesvöllur: í A - UBK KR-völlur: KR - Höttur 2. deild kvenna Keflavíkurv: ÍBK - Ægir ■Auk þess fara fram leikir í 3. og 4. deild. Margir í bann Þrír leikmenn í 1. deild karla vora dæmdir í leiks bann vegna fjög- urra gulra spjalda á síðasta fundi aganenfndar KSÍ og verða því ekki með í næsta leik. Amar Grétarsson og Pavel Kretovic leika ekki með UBK gegn Fram og Halldór Kristinsson verður ekki með KA gegn ÍA. Sjö leikmenn í 2. deild missa af næsta leik vegna fjögurra gulra spjaida; Brynjar Jóhannesson, Víði, Dragan Manojlovic, Þrótti, Jakob Jón- harðsson, ÍBK, Páll N. Björnsson, Grindavík, Valgeir Baldursson, Stjöm- unni og Selfyssingarnir Sveinn Jóns- son og Þórarinn Jóhannsson, en Elmar Viðarsson, BÍ, fer í bann vegna rauðs spjalds og Sigurður Sighvatsson, BÍ, fær tveggja leikja bann vegna fjög- urra gulra og eins rauðs spjalds. Auk þess fengu Goran Micic, Þrótti N., Guðlaugur Jóhannesson, Hugin F., Soffía Frímannsdóttir, Þór'A. og Jón Þ. Þórisson, Ægi, leiks bann vegna brottvikningar. KNATTSPYRNA Júgóslavar ekki með í EM KSl fékk símbréf frá Knatt- spymusambandi Evrópu, UEl'A, í gær, þar sem fram kom að UEFA hefði tilkynnt Alþjóða knattspymusambandinu, FIFA, að U-21 árs landslið Júgóslavíu yrði ekki með í Evrópukeppninni, en liðið átti að leika fyrsta leik sinn á fs- landi 1. september. KSÍ sendi FIFA þegar símbréf og spurði hvort sama gilti ekki með lið Júgóslavíu í IIM, en það á annars að leika á Laugar- dalsvelli 2. september. KSÍ telur litlar líkur á því að af leiknum verði vegna ástandsins í Júgóslavíu, en verði samskiptabann Sameinuðu þjóðanna enn í gildi um næstu mánaðarmót er Ijóst að leikur- inn verður ekki á dagskrá. Verði Júgóslövum vísað úr keppninni fara tvö lið eftir sem áður úr riðlinum í úrslitakeppnina. Opin golfmót í tilefni 50 ára afmælis Golfsam- bands íslands veröa golfklúbbar landsins meö afmælismót og op- ið hús. Allir sem áhuga hafa á golfi geta þvi rennt við í næsta golfskála, fengið sér hressingu og leikið golf. Norðurlandamótið Norðurlandamótið verður haldið í Grafar- holtinu á laugardag og sunnudag. Leiknar verða 36 holur á laugardag en 18 á sunnu- dag. Mótið er sveitakeppni og einstaklings- keppni, bæði hjá konum og körlum. Coca Cola Tvö Coca Cola mót verða um helgina og verða leiknar 36 holur á hvorum stað, 18 hvorn dag. Annað mótið er á Eskifirði en hitt hjá Nesklúbbi. Norðurlandsmótið Mótið fer fram á Ólafsfirði og verða leiknar 18 holur á laugardag og annað eins á sunnu- dag. SR-mótið Mótið verður hjá Leyni á Akranesi á laugar- dag, Leiknar 18 holur með og án forgjafar. Ellen Beatrex Kvennamót í Garðabænum á sunnudag. Opna Pinseeker Unglingamót hjá Keili á laugardag. 18 hol- ur með og án forgjafar I flokki 14 ára og yngri og 15-18 ára. Lacoste Opið öldungamót hjá Leyni á sunnudag. Opið púttmót Árlegt púttmót Umboðsskifstofu Helga Hólm verður haldið i Keflavfk á laugardag- inn og verður keppt í 11 aldursflokkum. Mótið hefst kl. 10 árdegis. NAMSKEIÐ Handboltaskóli Reykjavíkur Handboltaskóli Reykjavíkur verður í íþróttahúsi Víkings, Víkinni, 17. til 28. ágúst. Námskeiðið stendur yfir frá kl. 09 til 12 og 13 til 16 og er fyrir 7 til 14 ára krakka. Leiðbeinendur verða Þorbergur Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari, og Guðjón Guðmundsson, fyrrum aðstoðarmaður landsliðsþjálfara, en skráning er í símum 33688 og 813245 og þar fást nánari upplýs- ingar. Handboltaskóli Hauka Handboltaskóli Hauka er kominn í fullan gang og stendur til 28. ágúst. Hann er fyrir krakka á aldrinum 6-14 ára og kennt er frá kl. 13 til 17 alla virka daga í Iþrótta- húsinu við Strandgötu og þar fást allar nánari upplýsingar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.