Morgunblaðið - 16.09.1992, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 16.09.1992, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 1992 AÐALFUNDUR SKOGRÆKTARFELAGS ISLANDS í Botni í Hvalfirði tók fjölskylda Helga Eyjólfssonar, Sigríður H. Hermannsdóttir, Hákon Zimsen, Helgi Zimsen, Helga Helga- dóttir, Kirstín Flygenring, Sigurður R. Helgason, Kristinn Zims- en, Kristján Zimsen, Oddný S. Jónasdóttir og Hermann Helga- son, á móti skógræktarfólki í skógarreit sem fjölskyldan hefur plantað á undanförnum árum. Karl Eiríksson forstjóri Bræðranna Ormsson, SveiTÍr Sveinsson forstjóri Héðins hf., Björn Ásgrímsson framkvæmdastjóri Um- búðamiðstöðvarinnar hf., Hjálmar Kristinsson eigandi Helgason og Co. og Tryggvi Pálsson bankastjóri íslandsbanka, en þessum aðilum var veitt sérstök viðurkenning fyrir stuðning við Skóg- ræktarfélag íslands á árinu. Þrjátíu og fimm gnmnskól- um úthlutað úr Yrkjusjóði AÐALFUNDUR Skógræktarfélags íslands var að þessu sinni haldinn á Akranesi í boði Skógræktarfélags Akraness, sem er 50 ára um þessar mundir. Á fundinum voru meðal annars sam- þykktar tillögur varðandi gerð áætlana um skjólbeltarækt og tilmæli til sveitarfélaga um að setja ákvæði um að lausaganga búfjár verði heft. Þá kom fram einlægur vilji fundarmanna til að stuðla að framhaldi landgræðsluskógaverkefnisins að minnsta kosti til aldamóta. Kynntir voru reikningar Yrkju, en 35 grunn- skólar fengu úthlutun úr sjóðnum á árinu. Á fundinum voru reikningar unar landsins, kynntir en Skóg- Yrkju, sjóðs æskunnar til rækt- ræktarfélag íslands berfjárhags- lega ábyrgð á starfsemi sjóðsins. Hann var stofnaður í tilefni af- mælis Vigdísar Finnbogadóttur forseta Islands en hún heiðraði fundinn með nærveru sinni. Fram kom að samtals 35 grunnskólar á landinu höfðu fengið úthlutun á árinu en það var í fyrsta sinn sem veitt er úr sjóðnum til plöntukaupa. Tóku 3.172 nem- endur þátt í gróðursetningunni síðastliðið vor og gróðursettu —»----------------------------- 45.160 plöntur, mest birki. Auk almennrar umræðu um störf félaganna voru flutt fræðsluerindi um skógrækt. Sig- valdi Ásgeirsson á Mógilsá gerði grein fyrir skjólbeltaræktun og áhrifum þeirra á annað gróðurfar og Ása Aradóttir plöntuvistfæð- ingur kynnti niðurstöðu úttektar á gróðursetningu Landgræðslu- skóga 1991 en þar virðist ís- lenska birkið standa sig best. Tilraunir gerðar með kynbæt- ur á lerki til nytjaskógræktar Dr. ÞRÖSTUR Eysteinsson lífeðlisfræðingur telur að innan sjö ára verði hægt að hefja ræktun á kynbættu lerki hér á landi sem hæfir íslenskum aðstæðum. Með því móti ætti að vera unnt að koma upp sterkum, viðamiklum íslenskum lerkistofni til nyljaskógræktar. Þröstur hefur unnið við rannsóknir á þessu sviði í Bandaríkjunum með góðum árangri og hefur nú verið ráðinn að hálfu til Skógræktar ríkisins, að Vöglum í Fnjóskárd- al, þar sem hann mun fá aðstöðu fyrir rannsóknir sínar á rússa- lerki. „Fólk hefur lengi kynbætt þær lífverur sem eru í kring um þa<} eins og til dæmis húsdýr," sagði Þröstur. „Vegna þess að við höf- um valið þau úr í gegnum tíðina hafa náðst fram hjá þeim þeir eiginleikar sem henta okkur og það sama er hægt að gera með tré. Þau eru eins og kýr og kind- ur að því leyti." Sagði hann að víða um lönd væri mikill áhugi á að stunda markvissari kynbæt- ur á tijám til þess að ná fram eiginleikum eins og meira viðar- magni og örari vexti. „Við erum að flytja til landsins tegundir frá öðrum löndum meðal annars með það að markmiði að koma af stað nytjaskógrækt en við þurf- um einnig að huga að öðrum hlutum. Ef til vill hafa þessar tegundir ýmis góð einkenni en eru ekki nógu vel aðlagaðar ís- lenskum aðstæðum. Hafa lítið frostþol eða þola illa þennan rysj- ótta vetur sem hér er. Þannig að það eru ýmis æskileg ein- kenni sem sumir einstaklingar innan tegundanna hafa og þá einstaklinga vildum við gjaman velja úr, fjölga þeim og nota til undaneldis." Hormón örva blómgun Þröstur sagði, að doktorsrit- gerð hans í Bandaríkjunum hafi snúist um að hraða kynbótum á lerki. í stuttu máli voru valin tré í skóginum með æskileg ein- kenni, teknar af þeim greinar, þær græddar á rót og ræktaðar í gróðurhúsi. Þar var vextinum hraðað með mikilli áburðargjöf og vökvun og síðan beitt ýmsum aðferðum til að örva blómgun til dæmis með hormónagjöf. Gengið hefur verið úr skugga um að hormónin hafí ekki áhrif á vöxt síðar. Því er sprautað á tréð að vorlagi og svarar það hormónag- jöfínni með blómstrun ári síðar þegar áhrif hormónsins eru horf- in. / „Rannsóknir mínar fólust í hvemig best væri áð gefa horm- ón og hversu mikið og hvort ekki væri hægt að láta lerki blómgast í gróðurhúsi en það hafði ekki verið reynt áður að ráði,“ sagð Þröstur. „Þegar blómgunin var ljós í gróðurhús- inu var farið að víxla tijánum og búa til afkvæmafjölskyldur. Þeim var síðan plantað út til að kanna vöxtinn. Um leið er hægt að framkvæma ýmsar prófanir á eiginleikum þeirra eins og frost- þoli. Með þessum hætti fást niðu- stöður mun fyrr en þegar plönt- um er plantað úti. Þröstur Eysteinsson lífeðlis- fræðingur Ég vann með mýrarlerki, evr- ópulerki og japanslerki en í leið- inni áttaði ég mig á því að ein- staklingar innan tegundanna eru það fijósamir að þeir bera mikið og gott fræ í gróðurhúsum. í íslenskri skógrækt hefur það lengi verið vandamál að fá fræ af réttum uppruna af rússalerki, en það er mest notað í skógrækt hér. Þess vegna datt mér í hug hvort hægt væri að framleiða fræ hér. Ekki einungis að kynbæta stofninn heldur koma upp fræ- garði í gróðurhúsum og fram- Ieiða alla vega hluta af því fræi sem notað er til skógræktar á íslandi. Þar að auki er það fræ sem flutt er inn dýrt og ekki endilega úrvalsfræ fyrir okkur. Það kemur úr erlendum skógum eða gróðrarstöðvum, þar sem einstaklingarnir eru mjög mis- jafnir og þar sem tré hafa verið valin með tilliti til þess hvernig þau vaxa í Finnlandi, Svíþjóð eða Rússlandi en ekki á íslandi. Það sem við þurfum að gera er að velja bestu einstaklingana sem þegar vaxa á íslandi, koma þeim í fjölgun og nota þá til undaneld- is. Þannig ættum við að fá betri tré, tré sem eru beinvaxnari, vaxa hraðar og hættir síður við kali svo dæmi séu tekin.“ Bestu einstaklingar valdir í haust verður farin sérstök ferð í skóga Iandsins og bestu lerkitréin valin. Að vori verða teknar greinar, þær græddar á rætur og þeim komið til í gróður- húsi. Ágræddu greinarnar verða í gróðurhúsi í tvö til þrjú ár og sagði Þröstur að til að byija með væri um tilraun að ræða þar sem ekki væri vitað hvort Síberíulerki eða Rússalerki svaraði til dæmis hormónagjöf. „Ef allt gengur vel, gæti verið komið lerkifræ, eða plöntur af fræi af þessum úrvals íslensku tegundum eftir sex til sjö ár, það er að segja fyrstu prófanir," sagði Þröstur. „Síðan er hugsanlegt ef farið er samhliða af stað með frægarð að hefja einhveija fræframleiðslu þó svo afkvæmin hafi ekki verið prófuð." Sagði hann að þessi aðferð þyrfti ekki að vera bundin við lerki. Þegar væri hafin fræfram- leiðsla á birkifræi í gróðurhúsi fyrir Reykjavíkursvæðið. Þá til- Sigurbjörn Einarsson hjá Iðn- tæknistofnun sýndi tvö mynd- bönd og flutti erindi um svepprót og áhrif hennar á vöxt tijá- plantna. Þá flutti Þröstur Ey- steinsson lífeðlisfræðingur erindi um kynbætur og fræframleiðslu á lerki. Fundargestum var boðið í skoðunarferð um nágrennið og var meðal annars komið við í skógarreit Skógræktarfélags Akraness sem jafnframt er vin- sælt útivistarsvæði Akurnesinga. Þá var komið við í skógræktar- reit Skógræktarfélags Skil- mannahrepps, þar sem Oddur Sigurðsson formaður félagsins gerði grein fyrir gróðursetningu. Félagið er fámennt en hefur komið miklu í verk með góðum árangri á síðustu árum. Ferðinni lauk í Botnsdal í Hvalfirði þar sem fjölskylda Helga Eyjólfsson- ar tók á móti skógræktarfólki og bauð upp á hressingu í skógar- reit sem fjölskyldan hefur plant- að á undanförnum árum. Þar voru afhent viðurkenn- ingarskjöl nokkrum þeim aðilum sem stutt hafa skógræktarstarfíð á síðasta ári af mikilli rausn eða haft um það milligöngu. Má þar nefna Bræðurna Ormsson (Beck’s bjór), Vélsmiðjuna Héðin hf. (Danfoss-hitastillar), Umbúð- amiðstöðina hf. (skógiðnaðarfyr- irtækið MoDo), Helgason og Co. (hársnyrtivörur) og Islandsbanka sem gefur til skógræktar ákveðna upphæð fyrir hvern fæddan íslending á ári. Af öðrum öflugum styrktaraðilum er skylt að nefna Búnaðarbankann sem styrkt hefur meðal annars útgáfu tveggja fræðslu- og leiðbein- ingabæklinga sem dreift verður í alla grunnskóla landsins. KG raun mætti víkka enn frekar út og velja góð birkitré fyrir norðan og austan og nota til undaneldis. Bætir ræktun um allt að 30% „Fyrir nytjaskógrækt gæti þessi aðferð bætt ræktunina um 20% til 30% í viðarvexti, þar sem skilyrði eru góð,“ sagði Þröstur. „Þá á ég við þar sem ræktunarað- ferðir eru í góðu lagi, trén eru ræktuð í góðri jörð og ungplöntu- uppeldi er í góðu standi til dæm- is þar sem svepprót er fyrir hendi. Þá er verið að hugsa langt fram í tímann þegar búið er að velja miðað við afkvæmaprófun hvaða einstaklingar gefa bestu afkvæm- in eða um 10 til 20 ár. Þetta er langtímaáætlun og ef ná á al- mennilegum kynbótum þarf hún að vera stöðugt í gangi. Þessu verkefni lýkur í raun aldrei, ekki frekar en kynbótum á. íslenska hestinum." Þröstur sagði, að skiptar skoðanir séu á því hvort lerki sé heppilegast til nytjaskógræktar hér á landi. Það vex hraðast af þeim tegundum sem hér hafa verið reyndar og því má planta í nánast hvaða skógaijörð sem er auk þess sem það þolir þurran jarðveg. „Þótt greni þurfi lengri vaxtartíma hef ég tröllatrú á því til bolviðarframleiðslu,“ sagði hann. „Þegar talað er um fýrstu nytjar af skógum þá er fyrst og fremst um útflutning á viðarkurli að ræða og þá er lerkið hagkvæm- asti kosturinn. Ég gæti einnig ímyndað mér að lerkiparkett væri ágætt. Lerki er harður viður og það þarf ekki nema einn mann með sög til þess að framleiða parkett. Hins vegar eigum við á næstu árum fyrst og fremst að hugsa um skóga til landgræðslu og þannig verða skógar í nánustu framtíð. Það verður ekki fyrr en seinna sem við getum haft af þeim einhveijar nytjar að ráði. Þegar það verður að veruleika vona ég að við verðum komin með góðan lerkistofn.“ KG

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.