Morgunblaðið - 07.11.1992, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 07.11.1992, Blaðsíða 45
I I I I j I I I I 1 I MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1992 45 Lögbann á samning Tryggingastofnunar Frá Ingibjörgu K. Þorsteinsdóttur: Þann '17. ágúst 1992 var undirritað- ur samningur milli Tryggingastofn- unar ríkisins og Bryndísar Kristins- dóttur, tannsmíðameistara. Samn- ingurinn gerir ráð fyrir því að Bryn- dís smíði og geri við gervigóma og gervitennur fyrir sjúkratryggða elli- og örorkulífeyrisþega og þá sem eru slysatryggðir samkvæmt lögum um almannatryggingar nr. 67/1971. Samningurinn var undirritaður með fyrirvara um samþykki trygginga- ráðs. Þann 21. ágúst 1992 var hann síðan staðfestur í tryggingaráði. Samningurinn tók gildi 1. september 1992. Þann 3. september 1992 barst tfyggingaráði bréf frá Guðmundi Ingva Sigurðssyni, hrl., dags. 2. sept- ember 1992. í bréfinu krafðist Guð- mundur, fyrir hönd Tannlæknafélags íslands, að samningurinn yrði fellur úr gildi þegar í stað. Sagði hann m.a. að krafan byggðist á því að samningurinn fæli í sér refsivert lög- brot, því að með honum sé tann- smíðameistaranum heimilað að stunda tannlækningar en enginn megi stunda þær nema sá sem feng- ið hefur leyfi heilbrigðisráðherra sbr. lög um tannlækningar. Helgi V. Jónsson, formaður samn- inganefndar Tryggingastofnunar ríkisins, ritaði tryggingaráði bréf dags. 17. september 1992, og segir hann í því m.a.: „Ég mótmæli þeirri fullyrðingu Tannlæknafélagsins að í gerð um- rædds verksamnings felist refsiverð- ur verknaður og hafna því að for- senda sé fyrir því að fella samning- inn úr gildi nú þegar, í fyrsta lagi vegna óvissu um niðurstöðu ágrein- ings um lagatúlkun og í öðru lagi vegna þess að ég tel að eðlilegt sé að verði talið að verktakinn hafi ekki réttindi til starfans, eigi að gefa honum færi á að ráða bót á því at- riði, áður en samningnum sé sagt upp af þeim sökum." Fjallað var um málið á fundi trygg- ingaráðs 18. september 1992 og var þá samþykkt tillaga að svari til lög- manns Tannlæknafélags íslands sem fól í sér að ekki væri fallist á kröfu hans um að samningurinn yrði felld- ur úr gildi. 13. október 1992 var tekin fyrir af fulltrúa sýslumannsins í Reykja- vík, beiðni um lögbann. Gerðarbeið- andi var Tannlæknafélag íslands en gerðarþolar voru Bryndís Kristins- dóttir, tannsmíðameistari, og Trygg- ingastofnun ríkisins. Lögmaður gerðarbeiðanda, Guðmundur Ingvi Sigurðsson hrl., krafðist þess að lög- bann yrði lagt við því, að gerðarþol- ar beittu ofangreindum samningi. Af hálfu Bryndísar mætti Hróbjartur Jónatansson hrl. Fulltrúi sýslumanns ákvað með vísan til 1. mgr. 24. gr. laga nr. 31/1990, að lögbannskröfunni yrði ekki beint að Tiyggingastofnun rík- isins, en sú málsgrein er svohljóð- andi: „Lögbann má leggja við byijaðri VELVAKANDI TÝNDUR KÖTTUR LÚSÍFER hvarf frá Vatnsenda- bletti 27 við Elliðavatn 21. júní sl. á.Veiðidegi fjölskyldunnar og hefur ekkert til hans spurst síð- an. Hann er 2ja ára geltur högni, svartur og hvítur og með hvftan rófubrodd. Ef einhver getur gefið upplýsingar um afdrif Lúsífers þá er hinn sami vinsamlegast beðinn um að hafa samband við Hallveigu í heima- síma 673621, vinnusíma 192000 eða Kattholt í síma 672909. ÁNÆGJULEG HÁDEGISSTUND Ottó Eiðsson, Þingaseli 3, Reykjavík: FYRIR skömmu fór ég með vini mínum í hádegismat í Gullna hananum. Þar sótti maður mat- inn af hlaðborði, sem var í alla staði hinn glæsilegasti, fjöl- breyttur og bragðgóður. En það sem kom okkur mest á óvart voru borðskreytingamar og and- rúmsloftið. Borðin voru skreytt laufum, stráum og greinum í haustlitum og allt féll þetta sam- an í frumlega og gimilega heild. Ég vil þakka starfsfólkinu fyrir ánægjulega hádegisstund. GLERAUGU NÝLEG unglingagleraugu með glærri umgjörð, brúnflekkóttum spöngum og í smelltu gulbrúnu hulstri töpuðust mánudaginn 26. otóber ef til vill í nágrenni Bíó- borgar eða Stjömubíós. Einnig gætu þau hafa glatast á leiðinni frá Tryggvagötu, Fischersundi, Garðastræti og Vesturgötu að Ægisgötu. Skilvís finnandi er beðinn að hringja í síma 16064 eða 606155. Fundarlaun. HOTT, HOTT Á HESTI Guðrún Guðjónsdóttir: Á EINHVER danska mynstrið Hott, hott á hesti, sem er mynd af Gunnhildi kóngamóður með Harald hárfagra á hnéinu? Ef svo er bið ég viðkomandi að hafa samband við mig í síma 40919. LÆÐA GULBRÖNDÓTT læða, svört á fótum, tapaðist frá Beijarima fyrir skömmu. Þeir sem geta veitt upplýsingar vinsamlegast hringi í síma 674259. BUXUR LEVI’S buxur með belti töpuð- ust í Sundlauginni í Efra-Breið- holti eða á leið þaðan í sumar. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 670062. ÚLPA LÍTILL strákur týndi grænni úlpu í Hlíðunum. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 26356. STYRKJUM SOPHIU Sigríður Stefánsdóttir: ÉG VIL hvetja kvenfélögin í landinu til að styrkja móðurina, Sophiu Hansen, sem er að kljást við kerfið í Tyrklandi. Þannig geta þau látið gott af sér leiða. eða yfirvofandi athöfn einstaklings eða fyrirsvarsmanns félags eða stofnunar ef gerðarbeiðandi sannar eða gerir sennilegt að athöfnin bijóti eða muni bijóta gegn lögvörðum rétti hans, að gerðarþoli hafi þegar hafist handa um athöfnina eða muni gera það og að réttindi hans muni fara forgörðum eða verða fyrir teljandi spjöllum verði hann knúinn til að bíða dóms um þau.“ Málinu var frestað til framlagn- ingar greinargerða. Það var síðan tekið fyrir 15. október og aftur 16. október 1992, en þá var bókað í gerðarbók: „Fulltrúi sýslumanns kynnir nú þá ákvörðun sína að þar sem gerðar- beiðandi hafi gert það sennilegt að vissar athafnir gerðarþola bijóti gegn lögvörðum hagsmunum gerð- arbeiðanda og að skilyrðum laga að öðru leyti er fullnægt, verði lögbann lagt við beitingu samnings þess er gerður var milli Tryggingastofnunar ríkisíns og Bryndísar Kristinsdóttur þann 17. ágúst sl., að því er tekur til tannsmíðavinnu Bryndísar í munnholi sjúklinga, gegn tryggingu sem endanlega er ákveðin 10.000.000. Fulltrúi sýslumanns ákveður að fresta gerðinni til þriðjudagsins 20. október nk. kl. 13.00 og mun þá lög- bann verða lagt á, ef fram verður lögð trygging af hálfu gerðarbeið- anda í samræmi við það sem að ofan greinir." Þann 20. október 1992 var málið síðan tekið fyrir, tryggingin lögð fram og lögbannið lagt á samning- inn, að því er tekur til tannsmíða- vinnu Bryndísar í munnholi sjúkl- inga. Til skoðunar er nú hvernig fari um endurgreiðslur á reikningum sem mögulega kynnu að koma frá við- skiptavinum Bryndísar, eftir að lög- bann var sett. Fulltrúi sýslumanns ákvað að lögbannskröfunni yrði ekki beint að Tryggingastofnun ríkisins og þ.a.1. er Tryggingastofnun ekki gerðarþoli. Lögbann var lagt á beit- ingu samningsins en þó aðeins á ákveðinn þátt starfsemi Bryndísar, þ.e. að Bryndís má ekki vinna í munnholi sjúklinga sem njóta eiga endurgreiðslna frá Tryggingastofn- un. Hún má hins vegar vinna öll önnur störf sem falla undir samning- inn. Ganga verður út frá því að Bryn- dís hlíti lögbanninu, ella mætti hún búast við sekt eða varðhaldi sbr. 2. mgr. 32. gr. laga nr. 31/1990. Samn- ingurinn er enn í gildi og skv. honum ber Tryggingastofnun að endur- greiða sjúkratryggðum elli- og ör- orkulífeyrisþegum og þeim sem slysatryggðir eru samkvæmt al- mannatryggingalögum og leita þjón- ustu Bryndísar. Ef reikningur kemur til endurgreiðslu vegna vinnu Brynd- ísar, verður að gera ráð fyrir að vinn- an að baki honum sé unnin þannig að ekki bijóti í bága við lögbannið og er Tryggingastofnun því tvímæla- laust skuldbundin samkvæmt samn- ingnum til greiðslu. INGIBJÖRG K. ÞORSTEINSDÓTTIR sjúkratryggingadeild, Trygginga- stofnun ríkisins, Laugavegi 114, Reykjavík. Pennavinir Frá Ghana. skrifar 25 ára stúlka með áhuga á tónlist, ferðalögum, bréfaskriftum og körfuknattleik: Antoinette LAssey, P.O. Box 191, Buckman Ave, Cape Coast, Ghana. Átján ára Nígeríupiltur með áhuga á ferðalögum, íþróttum og skáldsögulestri: Draton Dolin, 15 Afolalan Street, Oldoi-Apapa, Lagos, Nigeria. Erlu í húsgagnaleit? Svefnsófarnir komnir Nýsending af2ja manna svefnsófum með rúmfatageymslu. 3gerðir. Stærð: 198x130. Opið laugard. kl. 10-16 ValhHSjjtijai Ármúla 8, símar 812275 og 685375. STÆRRA 0G SKEMMTILEGRA K0LAP0RT UM ! HELGINA...’ A Nú stækkum við Kolaportið og það verða meira en150 seljendur hvorn dag. Það þýðir enn skemmti- legra markaðstorg. Þar að auki tökum við í notkun nýtt rafkerfi og bjartari lýsingu en að vanda verða vafalaust allir í sólskinsskapi. Kári í Garði mætir sjálfur á staðinn og selur þingeyskt lambakjöt bæði laugardag og sunnudag. G.B. Húsgögn og H.G. Húsgögn efna á sunnudag til skemmtilegrar húsgagnaveislu, Magnea býður upp á brodd og grænmeti, Magnús verður með gæðahumar og svo mætti lengi telja... Komduí Kolaportið op gerðu luna eigin verðkönnun! KOLAPORTIÐ MARKAOSTORG OPIÐ laugardag kl.10-16 og sunnudag kl.11-17. 3rfúll búð af nýjum haustvörum. Opiö á laugardögum frá kl. 12—16. Nýbýlavegi 12, sími 44433.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.