Morgunblaðið - 07.01.1993, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 07.01.1993, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANUAR 1993 33 60, sem útskrifuðust um vorið 1943, sóttu um 5. bekk það haustið. Þar af hætti einn um áramót, svo að af þeim árgangi héldu einungis 4 piltar áfram. I þann hóp bættust 3 nem- endur, sem lokið höfðu verslunar- prófi tveimur árum fyrr, þannig að í lærdómsdeild sátu einungis 7 námsmenn. í þeirra hópi var Gísli Guðlaugsson. Eins og nræri má geta urðu kynni þessa hóps náin og mun nánari en almennt gerist um ár- ganga í menntaskóla. Kom þar bæði til að hópurinn var fámennur, svo og hitt að hér var verið að troða nýja braut, skapa nýjar hefðir, sem engin fordæmi voru fyrir. Ofan á þetta bættist að aðalkennari deildar- innar, dr. Jón Gíslason, síðar skóla- stjóri, setti metnað sinn í að nemend- ur yrðu ekki skólanum til skammar í hópi háskólaborgara. Hann gerði því miklar kröfur til nemendanna og krafðist mikilst af sjálfum sér. Við lásum saman, við skemmtum okkur saman og fylgdumst grannt með því í hvaða stúlkum hinir væru skotnir. Gísli Guðlaugsson var alvörugef- inn, en þó hrókur alls fagnaðar þeg- ar það átti við og engu óglaðari en hinir þótt eitthvað hefðu dreypt á víni en það lét hann ógert. Hann hafði létta og ljúfa frásagnargáfu, sem naut sín vel í þessum þrönga hópi. Augljóst má vera að svo löng skólaganga í skóla, sem krafðist þó nokkurs skólagjalds, sem ekki var tekið við aðra skóla, fyrir ungan mann utan af Iandi, sem ekki var af auðugum kominn, hefur verið krefjandi og vel þurft að huga að útgjöldum og eyðslu. Gísla tókst þetta með ágætum. Hlýtur það að vera umhugsunarefni nú á tímum þegar fólki er talin trú um að enginn geti stundað nám eða lokið því nema njóta framfæris hins opinbera í formi námslána, sem þá voru ekki til og engum datt í hug. Það eitt að svara námskröfum kennsluskrárinnar og yfirkennarans var í sjálfu sér þó nokkuð afrek. Það og sú staðreynd að í 7 manna hópi gafst ekkert tækifæri til undankomu varð sennilega til þess að þessi hóp- ur varð acf leggja harðar að sér en nokkur stúdentsárgangur frá nokkr- um skóla fyrr eða síðar. Ekki er þó sennilegt að þetta hafí valdið því að Gísli hvarf frá frekara námi. Hann hafði í sjálfu sér náð því markmiði sem hann hafði sett sér og langskólaganga var ekki ofar- lega í hans huga. Annað hefur senni- lega frekar valdið því að við stúd- entspróf lét Gísli staðar numið í skólagöngu, þótt hann héldi áfram að bæta við lærdóm sinn og þekk- ingu til dauðadags. Það lýsir nokkuð staðfestu Gísla Guðlaugssonar að hann valdi sér ákveðið verksvið strax í upphafi starfsferils síns og hélt sig að mestu að því alla sína starfsævi. Trygging- ar voru ævistarf hans og er óhætt að fullyrða að í því starfi, og sérstak- lega á vettvangi farmtrygginga, hafi hann öðlast meiri þekkingu en flestir aðrir landsmenn. Gísli haslaði sér völl í atvinnulífinu við lok heimsstyijaldarinnar. Friður komst á í Evrópu 8. maí 1945 og Japanir á undanhaldi. Trygginga- heimurinn var að opnast á ný. Nýir straumar, nýir skilmálar, nýir menn. Þetta var freistandi starfsvettvangur fyrir ungan mann og verkefni blas- andi við á báðar hendur. Gísli réðst til Karls D. Thulinius, sem rak tryggingafélag í Reykjavík. Starfaði hann þar m.a. með tveimur öðrum verslunarskólamönnum, þeim Gísla Ólafsyni, síðar forstjóra Trygg- ingamiðstöðvarinnar hf., og Kristni Hallssyni óperusöngvara, en þeir áttu allir eftir að hafa mikíl áhrif í tryggingaheiminum hér á landi. Þegar Vátryggingarfélagið hf. var stofnað var Gísli Guðlaugsson ráðinn til þess fyrirtækis. Umsvif þess voru mikil á tímabili. Sinnti Gísli starfi sínu þar með miklum ágætum ávann sér og félaginu mikið traust við- skiptavina þess. Tryggingastarfsemi er áhættu- samur atvinnurekstur, svo sem lesa má um í dagblöðum um þessar mundir og Vátryggingarfélagið hf. hætti störfum. Réðst Gísli þá til nafna síns og fyrrum samstarfsmanns Ólafsonar, sem hafði tekið við forstjórastarfi hjá Tryggingamiðstöðinni hf. Þar nýttist frábær þekking Gísla á farm- tryggingum og tryggingum al- mennt, auk þess sem hann starfaði að endurtryggingum og hafði með höndum endurkröfur tryggingafé- lagsins á hendur öðrum, svo sem farmflytjendum, þegar um bóta- skyldu þeirra var að ræða í sam- bandi við meðferð á farmi. Hafði Gísli aflað sér staðgóðrar þekkingar á ákvæðum íslenskra siglingalaga um þetta efni og þeim erlendu al- þjóðaskilmálum sem vísað er til í farmskírteinum og farmsamningum. Afstaða þeirra sem um tryggingar fjalla á vegum tiyggingafélaga eru með nokkuð mismunandi hætti. Sumir virðast líta fyrst og fremst á það sem skyldu sína að forðast að þurfa að bæta tjón. Er þá oft gripið til smáaletursins og leyndra fyrir- vara og undanþága sem hinn tryggði varar sig ekki á. Skilyrði um skoðun tjóna og tilkynningar eru algengur þröskuldur í bótakröfum. Ekkert var fjær Gísla en að ríghalda í slíkar vamir, enda er ekki vitað til þess á öllum hans starfsferli að félagið sem hann starfaði hjá yrði dæmt til greiðslu bóta sem Gísli hafði hafnað. A sama hátt munu ekki þekkjast dæmi til þess að Gísli hafi stofnað til málaferla vegna endurkrafna, sem ekki fengust staðist fyrir dómi. Þetta ásamt öðru sýnir að Gísli Guð- laugsson var í vandasömum störfum sínum bæði réttsýnn og sanngjarn. Réttsýnn vegna þess að mat hans á staðreyndum, réttindum og skyldum var heilbrigt og rökrétt. Sanngjam vegna þess að hann níddist aldrei á vanþekkingu viðsemjenda sinna eða yfirsjónum. Fyrir þetta öðlaðist hann traust viðsemjenda sinna í stað tor- tryggni, vináttu í stað andúðar. Þótt Gísli væri hollur húsbændum sínum leit hann ekki síður svo á að í hollustunni fælist skylda gagnvart viðskiptavinum til að miðla þeim af þekkingu sinni og reynslu, þannig að þeir veldu kosti í fmmskógi tfygginga sem best hæfði þörfum þeirra og óskum. Um stuttan tíma eða meðan verið var að byggja álver- ið í Straumsvík réðst Gísli sem aðal- bókari til ísal hf. Gísli Guðlaugsson þræddi starfs- feril sinn til enda. Um áramót skyldi pakkað saman og kvatt langt og giftudijúgt ævistarf. Nú gæfíst tími til margvíslegra tómstundastarfa sem setið höfðu á hakanum. Senni- lega hefður hann hugsað til með gleði og tilhlökkun, að senn tæki í dag að lengja og styttast í að gróð- ur tæki að lifna í hrauninu kringum sumarbústaðinn snotra. Snarkið í arninum var honum ánægjuleg tón- list þegar hann skaust þangað með Guðrúnu sinni um helgar. Þar átti hann mikið verk óunnið. Gísli Guðlaugsson var vel íþrótt- um búinn og þrekmaður frameftir ævi. Hann hafði ánægju af að um- gangast hesta og hafði á þeim gott lag. Sá hæfíleiki hans gekk í erfð til Guðmundar sonar hans sem mik- ið hefur fengist við tamningar og margan hestinn leitt til sýninga og verðlauna. Það var unaður að ríða út með Gísla. Sú íþrótt sem hann þó stundaði mest var badminton og var hann þar sem annars staðar vel gjaldgengur. Það sýnir tryggð Gísla að áratugum saman lék hann þessa íþrótt við sömu félagana og mynduð- ust með þeim og fjölskyldum þeirra sterk vináttubönd. Gísli hafði ánægju af að tefla og náði á því sviði ágætum árangri. Þótt Gísli umgengist á vinnustað starfsfélaga, sem mjög hafa látið til sín taka við laxveiðar, er ekki til þess vitað að hann hafi fengið áhuga á þeirri íþrótt. Þó er í minni dagar við Haffjarðará þegar kunnáttumað- ur hafði leitt hann milli veiðistaða og beitt allri hæfni sinni til þess að setja í físk án árangurs, að Gísli varð eftir við ána er kvöldaði og kom heim að veiðihúsi skömmu síðar hinn rólegasti með 7-8 punda Iax, senni- lega hinn eina sem hann veiddi á lífsleiðinni. Gísli Guðlaugsson var hamingju- samur í fjölskyldulífí sínu og hjóna- bandi. Ungur að árum hitti hann unga glæsilega blómarós i Kvennaskól- anum í Reykjavík. Eftir það sá hann ekkert annað og gengu þau í hjónabnd hinn 8. desember 1945. Foreldrar Gísla voru hjónin Krist- ín Ólafsdóttir og Guðlaugur Gíslason úrsmiður en foreldrar Guðrúnar voru Magnfríður Benediktsdóttir og Guð- mundur Sigurðsson. Börn þerira Gísla og Guðrúnar eru Guðmundur Þór, starfsmaður kirkju- garðanna í Reykjavík, og Kristín meinatæknir, starfsmaður rann- sóknarstöðvarinnar við Barónsstíg í Reykjavík. Með andláti Gísla er stúdentahóp- ur Verslunarskólans frá 1945 rofinn og verður aldrei heill aftur. Víst vissum við þegar við sungum „gaudeamus igitur“ að „post molestam senectutem nos habebit humus“. Því skal ekki sköpum renna en minninguna um góðan félaga og kæran vin munum við varðveita uns við förum sömu leið. Guðrúnu, börnum þeirra og fjöl- skyldu allri vottum við einlæga sam- úð okkar og fjölskyldna okkar. Blessuð sé minning Gísla Guð- laugssonar. Stúdentar VÍ 1945. + Ástkær maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, HINRIKH. HANSEN kjötiðnaðarmaður, Glaðheimum 24, Reykjavík, sem lést 31. desember sl., verður jarð- sunginn frá Víðistaðakirkju, Hafnarfirði, föstudaginn 8. janúar kl. 13.30. Magnfríður Dis Eiríksdóttir, Sigrún Óskarsdóttir, Sigurður Þorleifsson, Sveinbjörn Hinriksson, Jóhannes Pálmi Hinriksson, Ásgerður Ingólfsdóttir, Hinrik A. Hansen, Ásta Jóna Skúladóttir, Gislína G. Hinriksdóttir, Sigþór Jóhannesson og barnabörn. t Útför bróður okkar, JÓNASAR ÁSGEIRSSONAR, er lést 25. desember, fer fram frá Stokkseyrarkirkju laugardaginn 9. janúar kl. 14.00. Ferð verður frá BSÍ kl. 12.30. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á líknarstofnanir. Fyrir hönd aðstandenda, Guðmunda Ásgeirsdóttir, Einar Ásgeirsson. Lokað Skrifstofa Félags járniðnaðarmanna verður lokuð föstudaginn 8. janúar vegna útfarar GUÐMUND- AR S.M. JÓNASSONAR. V Félag járniðnaðarmanna. + Móðir okkar, tengdamóðir og amma, SIGRÍÐUR HAGALÍN leikkona, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 8. janúar næstkomandi kl. 13.30. Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir, Kristín Ólafsdóttir, Björn Vignir Sigurpálsson, Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Kolbeinn Atli Björnsson. + Hjartkær móðir mín, tengdamóðir og amma, MARGRÉT JÓNSDÓTTIR, Hólagötu 36, Vestmannaeyjum, áður Tobbakoti, Þykkvabæ, verður jarðsungin frá Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardaginn 9. janúar kl. 14.30. Örn Bragi Tryggvason, Sigurlín Guðný Ingvarsdóttir, Ingvar Örn Arnarson. Minningarathöfn um föður okkar, ÁGÚSTLÁRUSSON frá Kötluholti, verður í Stykkishólmskirkju föstudaginn 8. janúar kl. 14.00. Jarðsungið verður frá Brimilsvallarkirkju laugardaginn 9. janúar kl. 14.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Helgafellskirkju. Lára Ágústsdóttir, Sæunn Ágústsdóttir. Bróðir okkar, ÞÓRÐUR S. KRISTJÁNSSON frá Álfsnesi, Drápuhlíð 15, verður jarðsunginn frá Lágafellskirkju föstudaginn 8. janúar kl. 14.00. Fyrir hönd annarra aðstandenda, Systkinin. + Hjartkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA HALLDÓRSDÓTTIR frá Eystri-Gjábakka, Vestmannaeyjum, verður jarðsungin frá Landakirkju laugardaginn 9. janúar kl. 11.00. Ásta Þórarinsdóttir, Bjarni Simensen, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐJÓN JÓNSSON frá Flateyri, Digranesvegi 62, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 8. janúar kl. 15.00. Jóhanna B. Snæfeld, börn, tengdabörn og barnabörn. + Ástkær eiginmaður minn, ERLINGUR INGIMUNDARSON plötu- og ketilsmiður, Nesvegi 62, lést á heimili sínu að kvöldi 5. janúar 1993. Guðrún Sigfúsdóttir Öfjörð. + Útför ástkærs sonar míns, fóstursonar, bróður okkar, mágs og frænda, GUÐNA VIGNIS GUÐMUNDSSONAR, sem lést þann 29. desember, fer fram frá Hallgrímskirkju föstudaginn 8. jan- úar kl. 15.00. Jarðsett verður í Fossvogskirkjugarði. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á MS-félag (slands. Sigrún Guðlaugsdóttir, Einar Magnússon, Þórunn Guðmundsdóttir, Tryggvi Guðmundsson, Þorbjörg Guðmundsdóttir, Birgir Ævarsson, Guðmundur Guðmundsson, Lára Einarsdóttir, Harpa Böðvarsdóttir og aðrir aðstandendur. #

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.