Morgunblaðið - 24.03.1993, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 24.03.1993, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1993 SNÓKER || ÍSHOKKÍ / ÍSLANDSMÓTIÐ Jóhannes og Bjami meistarar lóhannes R. Jóhannesson og ^ Bjarni Jónsson urðu íslands- meistarar í tvíliðaleik í meistara- flokki karla í snóker um helgina. Þeir unnu Ásmund Valsson og Tryggva Erlingsson 4-3 í úrslitaleik eftir að hafa verið 3-0 undir. Sumarliði Gústafsson og Ásgeir Ásgeirsson töpuðu 4-1 fyrir meist- - iurunum í undanúrslitum og urðu í 3. til 4. sæti ásamt Bjama Má Bjarnasyni og Bjama 0. Birgis- syni, sem töpuðu 4-3 í spennandi viðureign við silfurhafana. Róbert Eiríksson sigraði í einliða- leik karla í 1. flokki, vann Siguijón Sveinsson 4-1 í úrslitum. Jón Ingi Ægisson tapaði 4-2 fyrir Róbert í undanúrslitum, en Guðjón Þ. Pálmason tapaði 4-3 fyrir Siguijóni. Um helgina verður íslandsmótið fyrir 21 árs og yngri sem go fyrir 40 ára og eldri, en keppni í einliða- leik karla verður um miðjan apríl. Morgunblaðið/Rúnar Þór Akureyringar íslandsmeistarar Skautafélag Akureyrar varð um helgina íslandsmeistari í íshokkí er liðið sigraði Skautafélag Reykjavíkur tvívegis á Akureyri. Hér sækir Sigurður Sveinn Sigurðsson (nr. 13) úr Skautafélagi Akureyrar að marki Reykvíkinga í úrslitaleikn- um, en til vamar er Timo Lehtonen, hinn fínnski markvörður SR. KORFUKNATTLEIKUR / 1. DEILD KARLA Morgunblaðið/Gunnlaugur Jónsson Skagamenn 1. deildarmeistarar Skagamenn sigruðu í 1. deild karla í körfuknattleik og munu því leika í Úrvalsdeildinni í fyrsta sinn á næsta keppnis- tímabili. Efri röð frá vinstri: Guðmundur Siguijónsson, Egill Ragnarsson liðstjóri, Gísli Hallsson, Eggert Garðarsson, Keith Stewart, Dagur Þórisson, Svanur Þ. Jónasson. Neðri röð frá vinstri: Pétur Sigurðsson, Aron Pétursson lukku- tröll, Heimir F. Gunnlaugsson, Jón Þór Þórðarson, Garðar Jónsson, Bjöm Steffensen leikmaður og þjálfari. 4 4 ÚRVAL-ÚTSÝH ÍÞRÓTT AFERÐIR ÚRVALS-ÓTSÝNAR Knallspyrnuskóli i Belgiu. Hinn vinsæli knattspyrnuskóli Kristjáns Bernburg og Úrvals-Útsýnar verður starfræktur f 6. sinn nú í vor. Skólinn er fyrir alla hressa stráka á aldrinum 13—16 ára, í 3. og 4. flokki, og verður í Lokeren í Belgíu dagana 23.-30. maí. Gott verð fyrir frábæra ferð! - Tilvalin fermingargjöf! Mót 1993- æfinga- og keppnisferðir - allar greinar íþrótta. Margra ára reynsla okkar og traust sambönd tryggja velheppnaða ferð. SAMBÖND - SÉRÞEKKING - ÞJÓNUSTA ÚRVAL-ÚTSÝN, ÍÞRÓTTIR s,m, 699300 KNATTSPYRNA EM U-18: Guðni velur hópinn GUÐNI Kjartansson, þjálfari ís- lenska U-18 ára landsliðs pilta í knattspyrnu, hefur valið 16 leikmenn vegna fyrri leiksins í 16 liða úrslitum Evrópukeppn- innar, sem verður í PÍopeni í Rúmeníu 7. apríl. Islenska liðið sló Belga út úr keppn- inni í 32 liða úrslitum, tapaði 3:2 úti, en vann 5:2 heima. Heimaleikur- inn gegn Rúmenum verður 14. maí og liðið, sem stendur þá betur að vígi tryggir sér farseðilinn í átta liða úrslitakeppnina, sem verður í Eng- landi í júlí. Eftirtaldir leikmenn voru valdir til að fara til Rúmeníu: Guðmundur Benediktsson, Eker- en. Hrafnkell Kristjánsson og Jón Gunnar Gunnarsson úr FH. Helgi Sigurðsson 0g Þorvaldur Ásgeirsson frá Fram. Arni Arason og Pálmi Haraldsson í ÍA. Sigþór Júlíusson og Þorvaldur Sigbjörnsson úr KA. Atli Knútsson og Ottó Karl Ottósson frá KR. Eysteinn Hauksson, ÍBK. Magnús Sigurðsson, ÍBV. Lúðvík Jónasson, Stjömunni. Sigurbjörn Hreiðarsson, Val, og Kristinn Hafl- iðason, Víkingi. ÚRSLIT HM á skíðum Stórsvig í Oppdal í Noregi í gær: 1. Kjetil Andre Aamodt, Noregi.1:04.65 2. Johan Wallner, Svíþjóð............1:04.91 3. Alberto Tomba, Ítalíu..............1:05.48 4. Ole Christian Furuseth, Noregi ...1:05.58 5. Fredrik Nyberg, Svfþjóð...........1:05.61 6. Marc Girardelli, Luxemborg.........1:05.72 ■Þn'r kappar beijast um sigur í stór- svigskeppninni: Girardelli - 312 stig, Aamodt 310, og Tomba 301. ■Girardelli hefur náð flestum samanlögð- um stigum f heimsbikarkeppninni og stefnir á fimmta sigur sinn. Hann hefur 1.303 stig, en næstir koma Aamodt með 1.067, Franz Heinzer, Sviss 768 og Tomba 737. Handknattleikur 1. deild kvenna Vegna mistaka birtist eftirfarandi ekki vegna leiks ÍBV og Gróttu í fyrrakvöld: Mörk Gróttu: Brynhildur Þorgeirsdóttir 6/2, Elísabet Þorgeirsdóttir 3, Laufey Sig- valdadóttir 2/1, Sigríður Snorradóttir 1, Vala Pálsdóttir 1. Varin skot: Fanney Rúnarsdóttir 11/1 (þaraf þijú til mótheija). Utan vallar: 6 mínútur. ínémR FOLK ■ MARSEILLE er tilbúið að kaupa markahrókinn Xavier Gra- velaine frá Caen. Frá þessu var sagt í franska íþróttadagblaðinu L’Equipe í gær. Honum hefur verið boðinn þriggja ára samningur og kaupverð er talið rúmlega 193 millj. ísl. króna. ■ BLACKBURN skipti í gær á Roy Wegerle fyrir Kevin Gallac- her frá Coventry. Wegerle var keyptur frá QPR á 1,2 millj. punda fyrir tveimur árum, en Coventry keypti Gallacher frá Dundee Utd. fyrir þremur árum. ■ BLACBURN hafði einnig leik- mannaskipti við Chelsea. Fékk enska U-21 árs landsliðsmanninn Graeme Le Saux í staðinn fyrir miðheijann Steve Livingstone. ■ OMAR Pastoriza frá Argen- tínu, hætti sem þjálfari Atletico Madrid í gær vegna afskipta for- seta félagsins, Jesus Gil y Gil af vali í liðið. Hann hafði aðeins verið þjálfari félagsins í fimm vikur. Hann er tíundi þjálfarinn sem hefur verið rekinn frá Atletico Madrid síðasta fimm og hálfa árið. ■ ANNAR þjálfari á Spáni fékk að taka poka sinn á mánudaginn. Það er Perez Monchu, þjálfari botnliðsins Real Burgos, sem hafði leikið tuttugu leiki í röð án sigurs. B DICK Advocaat, landsliðs- þjálfari Hollands, sem mætir San Marínó í kvöld í HM, sagði að Hollendingar yrðu að skora tólf mörk í tveimur leikjum gegn San Marínó, til að hressa upp á marka- tölu sína. „San Marínó leikur vam- arleik eins og í handknattleik - allir leikmenn liðsins eru til varnar við vítateig.“ B HOLLENDINGAR leika án sterkra leikmanna, eins og Marco van Basten, Ruud Gullit, Frank Rijkaard, Dennis Bergkamp, Ronald Koeman, Danny Blind og Wim Jonk, sem em meiddir eða í leikbanni. B ROBERTO Baggio, sem hefur skorað sextán mörk í 27 landsleikj- um fyrir Ítalíu, mun missa sæti sitt í landsliðinu í kvöld, þegar Ítalía leikur gegn Möltu í HM. Roberto Mancini, miðheiji Samp- doría, mun taká stöðu hans. B MALTA leikur án þriggja sterkustu varnarmanna sinna - John Buttigieg, Joe Brincat og Richard Buhagiar, sem taka allir út leikbann. B FLEMMING Povlsen, miðhetji Dortmund, mun leika að nýju með danska landsliðinu, sem mætir Spánverjum í HM í Kaupmanna- höfn í dag. B MARCO van Basten verður ekki tilbúinn fyrir Evrópuleik AC Milan gegn IFK Gautaborg 7. apríl eins og vonast var. Van Bast- en sagði í viðtali við ítalska blaðið Gazzetta dello Sport í gær, að ökkli hans væri enn ekki nægilega góður fyrir átök á knattspyrnuvellinum. B RUUD Gullit, sem hefur ekki leikið tvo síðustu leiki AC Milan vegna meiðsla, mun fara með félag- inu til Tórínó á sunnudaginn kem- ur og er talið víst að hann leiki annan hálfleikinn. B ENGINN þeirra þrettán leik- manna Skotlands, sem léku gegn Þýskalandi í EM í Svíþjóð sl. sum- ar, verða með í vináttulandsleik gegn Þýskalandi í Glasgow í dag. Mikið er um meiðsli leikmanna í herbúðum Skota. B UWE Bein, sem átti að leika á miðjunni með Þýskalandi, getur ekki leikið - hann er með flensu. B THOMAS Doll tekur stöðu Bein, en annars er þýska liðið þannig skipað: Andreas Köpke - Olaf Thon - Guido Buchwald, Jíirgen Kohler, Thomas Helmer - Thomas Hássler, Michael Zorc, Lothar Mattháus, Doll - Jiirgen Klinsmann, Karlheinz Riedle.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.