Morgunblaðið - 18.05.1993, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 18.05.1993, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAI 1993 11 Bók um viðurlög við afbrotum Út er komin bókin Viðurlög við afbrotum eftir Jónatan Þórmundsson, prófessor við lagadeild Háskóla íslands. í kynningu útgefanda segir m.a. „Bókin gefur glögga mynd af ís- lenska viðurlagakerfinu, þróun þess og helstu einkennum. Meðal efnis er inntak refsingar, réttlæt- ing hennar og markmið. Þá eru viðurlagategundir flokkaðar og gerður samanburður á þeim. Bók- arhöfundur gerir rækilega grein fyrir ýmsum þáttum fangelsis- mála, m.a. framkvæmd fangávist- ar og réttarstöðu fanga. Þá er fjallað um einstakar refsitégundir og þær reglur, er koma til athug- unar við ákvörðun refsingar. Enn fremur er rætt um lok refsiábyrgð- ar og brottfall viðurlaga." Bókinni fylgja laga-, dóma- og atriðisorðaskrár. Utgefandi er Bókaútgáfa Orators. Bókin er 381 blaðsiða. Frá vinstri; Hildigunnur Halldorsdottir, Lisa Ponton og Sigurður Halldórsson. Tónleikar á Sólon Islandus HILDIGUNNUR Halldórsdóttir, fiðluleikari, Lísa Ponton, víóluleikari, og Sijgurður Halldórsson, sellóleikari, halda tónleika á Sólon Islandus í kvöld, þriðjudaginn 18. maí, kl. 20.30. Á efnisskránni eru dúó fyrir fiðlu og víólu eftir J.S. Bach, Bart- ok og Mozart ogtríó eftir Beetheo- ven fyrir fiðlu, víólu og selló. Hljóðfæraleikararnir eru allir starfandi í Sinfóníuhljómsveit ís- lands en Lísa Ponton er á förum þaðan og gengur til liðs við Sinfó- níuhljómsveitina í Málmey í Sví- þjóð. Kirkjukór Stykkishólmskirkju á tónleikum. Morgunblaðið/Árni Helgason Kirkjukór Stykkishólmskirkju Hálfrar aldar afmælis minnst með tónleikum Stykkishólmi. KIRKJUKÓR Stykkishólmskirkju minntist hálfrar aldar starfs síns með fjölbreyttum tónleikum í Stykkishólms- kirkju 8. maí sl. Á fjölbreyttri efnisskrá tónleikanna voru tíu atriði alls. Um 40 manns eru starfandi í kórnum og er Jóhanna Guð- mundsdóttir söngstjóri. Gestir úr kirkjukórnum í Ingjaldshólasókn, Ólafsvíkur-, Grundarfjarðar- og Búðardalssóknum sungu með nokkur lög og eins barnakór Grunnskóla Stykkishólmsskóla og munu þá um 100 manns hafa tek- ið þátt í tónleikunum. Athygli vakti hve raddir allar féllu vel saman og hversu þjálfað- ar og vel undirbúnir allir voru sem þátt tóku í tónleikunum. Eitt lagið var eftir Skarphéðinn Óskarsson, Haukabrekku á Skóg- arströnd, organista í Narfeyrar- kirkju um skeið, en það var við texta Stefáns frá Hvítadal, Erla góða Erla. Var hann viðstaddur og hylltur af áheyrendum. Einn texti var eftir Einar Steinþórsson héðan úr bænum og var honum mjög vel tekið. Þá má geta þess að tveir af stofnendum kirkjukórs- ins eru enn starfandi og sungu með. Kveðjur og gjafir bárust Kirkjukórnum og komu gefendur með þær ásamt ávarpi. Geta má þess að sögumaður eins þáttarins var Ragnar Berg Gíslason og undirleikarar Friðrik Stefánsson, Jón Svanur Pétursson, Lana Þór- arinsdóttir, Kristín Inga Gunn- laugsdóttir, Kristín Óladóttir, Bylgja Baldursdóttir, Hafsteinn Sigurðsson, Jósep Blöndal, Daði Þór Einarsson, Margrét Pálma- dóttir og Ámý Orradóttir. - Árni. Hq mqndbönd á nsestu myndbanda- leigu Hinn eini sanni Eddie Murphy í hlutverki kvennabósa sem nytur lífsins og eltist við hamingjudísina. Bráðskemmtileg gamanmynd. MYNDBÖND Síðumúla 20, sími 679787 Útgáfudagur í dag Sálfræðileg hrollvekja í anda V~, " PSYCHO frá Brian de Palma, Utgáfudagur meistara hrollvekjunnar. 25 maí Yfirþyrmandi spennumynd. ______„.!.‘I1__
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.