Morgunblaðið - 16.06.1993, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.06.1993, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 1993 Ikea-verslun í Holtagarðana FORRÁÐAMENN Ikea-verslunnarinnar hafa gert samning við Hömlur hf., eignarhaldsfélag Landsbankans, um leigu á um 7 þúsund fermetra rými í Holtagörðum þar sem Mikligarður hefur verið til húsa. Samning- urinn gildir frá 1. september og er gert ráð fyrir að Ikea-verslunin verði flutt úr Kringlunni í Holtagarða næsta sumar ásamt öllu lager- haldi sem verið hefur við Fellsmúla og Síðumúla. Formlega er leigu- samningurinn gerður við Regin hf. sem Hömlur hf., eignarhaldsfélag Landsbankans, yfirtók í nóvember sl. Sigurður Gísli Pálmason, stjómar- aðkoman þar er nú orðin erfið. Þeg- formaður Ikea-verslunarinnar, sagði í samtali við Morgunblaðið, að með flutningnum ykist rými verslunarinn- ar, öll aðstaða batnaði til muna og mikið rekstrarlegt hag-ræði næðist fram. „í dag er starfsemin á þremur stöðum en með því að flytja starfsem- ina á einn stað náum við fram spam- aði í húsnæði og reyndar einnig á fleiri sviðum. Leigusamningurinn í Kringlunni rennur út á næsta ári en Útskipun á mjölfarmi hætt vegna rottugangs ÚTSKIPUN á fiskimjöli um borð í erlent flutningaskip, sem lá við bryggju á Eski- firði, var stöðvuð í gær þegar í ijós kom að rottur leyndust í því. Búið var að sldpa út 730 tonnum af mjöli þegar ummerki eftir rottur fund- ust. Vart varð við rottugang í þessu sama skipi er það var í Vestmannaeyjum í fyrra. Skipið heitir Gulf Pride og er skráð á Bahamaeyjum en í eigu arabískra aðila. Það hét áður Grundarfoss og var í eigu Eimskipafélagsins. Skipið kom til Eskifjarðar á sunnudag þar sem það átti að taka 1.600 tonn af fiskimjöli frá Hraðfrystihúsi Eskifjarðar. í gærmorgun var búið að lesta 730 tonn þegar í ljós kom að rottur höfðu gætt sér á mjöli í lestum skipsins um nóttina. Rottuholur í lestarþiljum Að sögn Björns Kristinsson- ar, verksmiðjustjóra Hrað- frystihússins, var útskipun þá samstundis stöðvuð og mein- dýraeyðir kallaður til. Hann staðfesti að um rottur væri að ræða og fann rottuholur í lest- arþiljum skipsins. Síðdegis í gær var skipið sett í samskipta- bann af lögreglunni á Eskifírði en það átti að láta úr höfn í gærkvöldi eða í morgun. ar Ikea flytur úr húsnæðinu verður því breytt í bílastæði þannig að stæð- um mun fjölga um á annað hundrað í nýja miðbænum." Meira vöruúrval Hann sagðist búast við því að í húsnæðinu í Holtagörðum yrði hægt að bjóða fleiri vöruflokka en áður og gera verslunina lfkari Ikea-versl- unum erlendis. Þá væru uppi hug- myndir um að koma fyrir lítilli Bón- us-verslun í húsinu og ÁTVR hefði rétt til að vera með sína verslun þar til ársins 1999. „Það er einnig kostur að geta gert leigusamning meðan óvissa ríkir í efnahagsmálum í stað þess að byggja. Við höfum verið með fyrirætlanir um að byggja í Kópa- vogi en höfum nú horfið frá þeim í bili,“ sagði Sigurður Gísli Pálmason. Dýpkað við Miðbakka Morgunblaðiö/hmar faiur VERIÐ er að dýpka höfnina í Reykjavík við Mið- bakka og á verkinu að vera lokið eftir eina viku, þegar von er á fyrsta skemmtiferðaskipinu. Að sögn Hannesar Valdimarssonar hafnarstjóra munu um 20 skemmtiferðaskip leggjast við Miðbakka í sumar. Dýpkað er um einn til tvo metra og miðar verkinu vel. Mannvirkjagerð hefur staðið yfír við Miðbakka í rúmt eitt ár. Fyrirtækið Hafverk annast dýpkunina, en verktakafyrirtækið Völur hefur unnið að gerð bakkans að öðru leyti. Félagar í BSRB með lansa samninga og fá ekki launabætur eða orlofsuppbót Liðlega 40% póstmanna ættu rétt á launabótum LEA Þórarinsdóttir, formaður Póstmannafélags íslands, segist telja að ekki sé öll nótt úti um að takist að ná samn- ingum á milli opinberra starfsmanna og ríkis og sveitarfé- laga en segir að opinberir starfsmenn leggi fyrst og fremst áherslu á að fá svör frá ríkisstjórninni um ýmis réttinda- mál. Launþegar sem eiga ósamið fá ekki greiddar launabæt- ur eða orlofsuppbót, eins og um samdist á milli ASÍ og samtaka vinnuveitenda í maí. Að sögn Leu ættu liðlega 40% félagsmanna í Póstmannafélaginu rétt á launabótum sem reiknaðar eru á mánaðarlaun undir 80 þús. kr. ef um þær hefði verið samið með sama hætti og gert var í samningi ASÍ og VSÍ en hún sagði að þær greiðslur væru þó misháar. Kristín Guðmundsdóttir, formað- staðan sé sú í dag, að það sé eðlileg- ur Sjúkraliðafélags íslands, segir ast fyrir opinbera starfsmenn að að það sé ekki stór hópur í hennar félagi sem myndi njóta launaþót- anna og ekki sæti stór peningur eftir í buddunni vegna greiðslu 8.000 kr. orlofsuppótar þegar upp væri staðið. Því væri ekki mikill þrýstingur á gerð samninga vegna þessara bótagreiðslna. Kristín sagð- ist ekki hafa getað tekið þátt í umræðunni á fundi formanna aðild- arfélaga BSRB á mánudag en sagði sjúkraliða vera tilbúna til að skoða málin hvort heldur sem væri í sam- floti BSRB-félaganna eða félagið eitt og sér. „Það er mitt mat að fara sér hægt,“ sagði hún. Áhyggjur af skerðingu lífslyara Launabætur skv. samningi ASÍ og VSÍ reiknast þannig, að fundið er meðaltal heildartekna á tímabil- unum 1. febrúar - 30. apríl og 1. sept. - 30. nóv. 1993. Sú upphæð er dregin frá 80.000 kr. miðað við fullt starf allan viðmiðunartímann en útborgaðar launabætur eru helmingur. þeirrar upphæðar sem þá stendur eftir. Þeir sem hafa áunnið sér fullan orlofsrétt hjá sama vinnuveitenda næstliðið or- lofsár og voru í starfi í síðustu viku apríl eða í fyrstu viku maí fá við upphaf orlofstöku eða ekki síðar en 15. ágúst greidda sérstaka 8.000 kr. orlofsuppbót skv. samn- ingi ASÍ og VSÍ. Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, sagði að opinberir starfs- menn hefðu fyrst og fremst áhyggj- ur af atvinnuleysi og þeirri miklu skerðingu lífskjara sem ýmsir hóp- ar launþega hefðu orðið að sæta að undanfömu, sem væru mun hærri upphæðir en umræddar bóta- greiðslur. Heildarsamtökin myndu ekki hafa forgöngu um gerð kjara- samninga til lengri tíma við þessar aðstæður. íslenska brídsliðið efst íslensku konumar fengu brons í Evrópumóti 1 tvímenningi Menton, Frakklandi. Frá Guðmundi Sv. Hermannssyni, blaðamanni Morgunblaðsins. FVRSTI þjóðsöngurinn sem leikinn var á Evrópumótinu í brids í Men- ton var sá íslenski, fyrir þær Hjördísi Eyþórsdóttur og Ljósbrá Baldurs- dóttur sem enduðu f 3. sæti í Evrópumóti kvenna í tvímenningi. Á sama tima var islenska liðið að ná efsta sæti Evrópumótsins i sveitakeppni en það vann San Marínó 25-5 og ísrael 20-10 í leikjum gærdagsins. í dag Loftskeytastöö 75 ára__________ / sumar verða liðin 75 ár frá því að Loftskeytastöðin íReykjavík var stofnuð 14 Laxveiði oó hefjast Fyrsti laxinn var dreginn úr Eiliða- ánum í gær 19 Atvinnuleysi minnkar___________ Atvinnuleysi er á niðurleið sam- kvæmt tölum frá maí 24 Leiðari________________________ Vaxtalækkun - alls staðar nema hér? 24 Fosteignir ► Sumarbústaðabyggð í Kjama- skógi - Hesthús á einbýlishúsalóð- um - Fasteignamarkaðurinn - Hugmyndir um skipulag innan- húss. Úr verinu ► Norðmenn vijja segja loðnu- samningi upp - Miklir möguleikar taldir í Iúðueldi - Verð á físki- mjöli lækkar með auknu fram- boði - Lágt verð á ufsa ytra. Myndosögur ► Myndir ungra listamanna — Ljóð — Brandarar — Pennavinir — Leikhomið — Viðtal vikunnar — Náttúrudagbók — Mynda- sögur. Bronsverðlaun Hjördísar og Ljós- brár eru fyrstu verðlaun íslendinga á Evrópumóti í brids síðan ísland varð í 3. sæti á Evrópumótinu í sveitakeppni árið 1950. íslendingar hafa hins vegar nokkrum sinnum náð 4. sæti á Evrópumótum í sveita- keppni, tvímenningi og einmenningi. Sigur íslands á San Marínó var frekar auðveldur en San Marínó er í neðsta sæti á mótinu. ísraelsmenn eru hins vegar með eitt af sterkustu bridsliðum á mótinu og því var ekki hægt að bóka sigur á þeim fyrirfram. ísraelsmenn höfðu aðeins yfir í hálf- leik en í seinni hálfleik sneru íslend- ingar blaðinu við. ísraelsmenn kærðu spil í leiknum sem fór fyrir áfrýjunar- nefnd og þar féll úrskurður Islandi í vil. Röð efstu liða eftir 6 umferðir af 31 er þessi: ísland 117, Frakkland 116, Pólland 112, Danmörk 111, Holland 108, Bretland og Spánn 105, Noregur 104, Finnland, Tyrk- land og Svíþjóð 102. í dag spilar íslenska karlaliðið við Spán, Mónakó og Tyrkland. Þá hefst Evrópumót kvenna í sveitakeppni í dag. ísland spilar fyrsta leikinn við Austurríki en situr yfír í 2. umferð. Sjá bls. 18: „Hjördís og Ljósbrá..." 1 i í M í I í ( I € i * * 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.