Morgunblaðið - 20.06.1993, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 20.06.1993, Blaðsíða 16
16 B MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR -SUNNUOAGUR 20. JÚNÍ 1993 STJORNIN I STRÖNGU HELDUR en ekki skriplaði á skötu þegar þvi var hald- ið fram að Stjómin yrði í Eyjum um versiunarmanna- helgina. Rétt er að Stjómin sest að í Miðgarði í Skaga- firði yfir helgina og leikur fyrir balli föstudag og laug- ardag. Eins og fram hefur kom- ið er Stjómin bókuð fram að áramótum, en fregnir herma að Stjómar- liðar stefni að fríi uppúr því til að fást við annað. Stjóm- in sendi frá sér plötuna Rigg fyrir skemmstu og hefur verið á ferð og flugi að kynna þá plötu, aukinheldur sem hefðbundið ballstand tekur sinn tíma. Eins og áður sagði verður Stjómin í Miðgarði í Skaga- firði um verslunarmanna- helgina, leikur þar 30. og 31. júlí, en í ágústlok, eftir að hafa m.a. leikið í Sjallan- um, Víkurröst og Ydölum, heldur Stjómin til Noregs til tónleikahalds í Ósló 20. og 21. ágúst. Morgunblaðið/Einar Falur Á faraldsfæti Stjómin kynnir Rigg. Sérkanadísk Sloan. STEFNUR OG STRAUMAR LIKASTIL áttu fáir von á að fá öðru eins sjávarplássi og Halifax í Nýja-Skotlandi kæmi eftirminnileg og fersk rokksveit. Það má því segja að kanadíska rokk- sveitin Sloan hafi átt á brattann að sækja með fyrstu breiðskífu sína, Smeared. Sloan á við sama vanda að etja og flestar kan- adískar rokksveititir; of- urþrá eftir að slá í gegn sunnan landamæranna, þar sem lítil eftirspum er eftir Kanadarokki sem þykir ekki nógu harðsoðið. Ólíkt mörg- um öðmm Kanadasveitum hefur Sloan náð að halda sérkennum og skapa sér sérstöðu, þó í gegn skíni hrifning sveitarliða á áhrifa- völdum úr ýmsum áttum. Þannig staðsetur Sloan sig kyrfilega í framlínu banda- ríska Nirvanarokksins, en hrærir samanvið ótal öðrum hugmyndum allt frá Sonic Youth í nánast iðnaðarokk. Útkoman er skemmtileg og sérstök, kannski sérkan- adísk? HEYRDU SUMARIÐ er jafnan mikil safnplötuvertíð og enn eru nokkrar safnplötur væntanlegar. Skífan sendi frá sér safnplötu með blöndu af eriendum og innlendum rokksveitum. Sú heitir Heyrðu. AHeyrðu em nítján lög jafn margra fiytjenda, en þeir íslensku em Ný- dönsk sem á nýupptekið lag, Foss, Bubbi sem á óraf- magnaða útgáfu af Jakka- lökkum, sem komu út á síð- ustu plötu hans fyrir Steina hf., Von, SSSól á lagið Out, sem er eitt af þeim lögum sem sveitin hefur tekið upp fyrir útgáfu ytra með ensk- um upptökustjómm, og síð- asta iags disksins er og ís- lenskt, Þá veistu svarið, sem Inga söng í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Af erlendum lögum má nefna All that She Wants með Ace of Base, Believe með Lenny Kravitz, Step it Up með Stereo MC’s, Oh Carolina með Shaggy og Creep með Radiohead. F«LK S— WiÓHÁÐA listahátíðin, Ólétt ’93, heldur áfram af krafti út þessa viku, en loka- dagur listahátíðarinnar er næstkomandi sunnudagur. Á rokksviðinu hafa þegar ótal sveitir stigið á stokk, en margar eru eftir, því á miðvikudag Ieika Sexual Mutilations, Funny Bone, Fokk opps, Drop, Stoned, Skrýtnir, Fitus Quo og Burn í Faxaskála. A fimmtudag og föstudag verður svo mikið um þungt rokk í Faxaskála. Á fimmtu- dag leika Lunch, Endear- ment, Baphomet, Skurk, INRI, Superoldies, Rómeó og Júlíus, SIip, Opp jors og Móðir. Á föstudag leika Dawn of the Dead, For- garður helvítis, Kviklæst- irr Jötunuxar, Cranium, Strigaskór nr. 42,13, Sor- oricide, Bone China, Dos Pilas og Deep Jimi and the Zep Creams. ■ ROKKHÁ TÍÐIN í Hró- arskeldu nálgast, en síð- ustu fregnir þaðan herma að ekkert verði úr tónleika- haldi Red Hot Chili Pepp- ers í Evrópu að sinni, m.a. vegna veikinda bassaleikar- ans Flea. Þijár sveitir hafa síðan bæst við, ekki af verri endanum, því New Order, Anthrax og Diesel hafa slegist í hóp þess grúa sem þegar er búið að segja frá. SÓKN Steinasveita inn á Skandinavíumarkað hefur ekki borið ýkja mikinn árangur fram að þessu, meðal annars vegna vandræða fyrirtækis þess sem samið var við um útgáfu ytra. Loks er búið að greiða úr þvi og fyrir skemmstu komu út í Evrópu plötur á ensku með Todmobile og Jet Black Joe, sem reyndar var á ensku fyrir. r I ?odmobileplatan, sem er JL önnur plata Todmobile á ensku, er safn ýmissa laga, en um leið og diskur- inn kemur út var gefinn út smágeisli með laginu Eilíf ró, sem heitir á ensku Passi- on Time. Jet Black Joe var fyrir enska útgáfu, enda hafa þeir félagar ekki vald á öðru máli. Platan er að stofni plata Jet Black Joe frá síðustu jólum, en fimm lögum hefur verið bætt á til viðbótar. Líkt og með Tod- mobile var gefinn út smágeisli til kynningar með lögunum Falling og Take me Away. DÆGURTÓNLIST Eru dagar Bogomils taldir? Frú CostaddMosó BOGOMIL Font þekkja líklega allir enda hefur hann verið áberandi í ís- lensku skemmtanalífi síðustu misseri við tón- leikahald og ýmsa skemmtan. I marslok tók Bogomil upp plötu á tón- leikum í Hlégarði í Mos- fellsbæ, öðru nafni Costa del Mosó, með hljómsveit. sinni, Milijónamæring- unum. Sú plata kom út sl. fimmtudag, 17. júní. Sigtryggur Baldursson heitir maðurinn á bak við Bogomil Font og hann ■■■■H segir að platan sé aðallega gerð vegna þrýstings frá ýmum aðilum sem ósk- að hafa eindregið eftir því að fá að heyra Bogomil heima í stofu. Sig- tryggur segir að hann hafí verið endregið á móti plötuútgáfu f upp- hafí, „því Bogomil Font og Milljóna- mæringamir er ballhljómsveit1*. Hann segir þó að úr hafi orðið að taka upp ball með Bogomil og millj- ónungunum og gefa út ballplötu. „Nú halda vísast eflir Áma Mafthíasson Skemmtikraftur Bogomil í Costa del Mosó. margir að vegna þess að lögum oft á tíðum vera þetta sé ballplata sé hún mjög til sóma fyrir lögin eitthvað lakari fyrir vikið, og mjög skemmtilegar." en það er öðru nær, því Sigtryggur segist hafa ég tók upptökumar og reynt að velja lög sem vann þær svo að ég þyrfti mynduðu skemmtilega ekki að skammast mín fyr- heild saman, en alls valdi ir plötuna. Platan hljómar hann fimmtán lög af tutt- mjög vel og mér finnst ugu sem útgáfuhæf þóttu, okkar útgáfur á þessum „í ákveðninni röð sem mér fannst skemmtileg til hlustunar". Sigtryggur segir að Bogomil sé ekki búinn að syngja sitt síðasta, en það dragi að endalokunum, „Hann er búinn að gerá nóg af sér í bili. Ég ætla að leyfa honum að baula fram eftir sumri, en ég er orðinn ansi leiður á að spila ekki á trommurnar mínar.“ Sigtryggur segir að Bog- omil hafi notið meiri hylli en hann hafði ætlað í upp- hafi, enda stóð til að stunda aðra tónlist og sköpun meðfram. Það verði þó viss eftirsjá að honum, „því Bogomil er enginn vandræðaseggur. I upphafí átti fólk erfitt með að taka mark á Bog- omil, það hélt að þetta væri eitthvað rugl og að vissu leyti skiljanlegt í ljósi bakgrunns míns sem trommara Sykurmolanna. Það eru líka endalausar mótsagnir í Bogomil og í þessu öllu er ákveðið spé, en það er svo fín lína á milli. Þetta er aldrei algert spé og aldrei alger alvara. Bogomil er fyrst og fremst skemmtikraftur, ég lít ekki á hann sem alvarlegan tón- listarmann, en samt er al- vara í tónlistinni," segir Sigtryggur og bætir við að Bogomil og Milljónamær- ingunum hafi ekki farið að ganga ailt í haginn fyrr en fólk fór að mæta á tónleika og frammistaða þeirra fé- laga spurðist út. ENN SKANDINAVÍU- ÚTGÁFA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.