Morgunblaðið - 11.07.1993, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 11.07.1993, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 11. JÚLÍ 1993 RAÐAUGi YSINGAR Einbýlishús á Akranesi Til sölu nýlegt 2ja hæða timburhús, 189 fm (5 svefnherbergi) ásamt 33 fm bílskúr, á góðum stað. Skipti möguleg á húsnæði á Reykjavíkursvæðinu. Upplýsingar hjá Fasteignasölunni Berg hf., Akranesi, sími 93-11944. Álmur hf. Húsaviðgerðir og nýsmíði Alhliða viðhaldsþjónusta - nýsmíði - sprunguviðgerðir - o.fl. 10 ára traust þjónusta! Byggingameistarar annast alla vinnu. Símar 667469, 657247 og 985-27941. Atvinnuhúsnæði Til leigu ca 160 fm húsnæði við Dalshraun í Hafnarfirði. Húsnæðið leigist í einu eða tvennu lagi fyrir hreinlega starfsemi. Upplýsingar í síma 52784 á kvöldin. Skrifstofuhúsnæði 50-100fm Verkfræðistofa óskar eftir húsnæði til leigu í Reykjavík sem fyrst. Upplýsingar í síma 694498 á skrifstofutíma. Til leigu gott skrifstofuhúsnæði í miðbænum, 450 fm. Hentugt fyrir lögfræðiskrifstofur. Upplýsingar í síma 13414 á morgun og næstu daga. Til sölu - til leigu Rúmlega 200 m2glæsilegt húsnæði á 2. hæð í þessu nýlega húsi við Lækjartorg. Fullinnréttað sem skrifstofur með öllum lögn- um, kaffistofuaðstöðu, Ijósum, gardínum og parket á gólfum. Hægt að skipta í tvennt. Einstök staðsetning með útsýni til Esjunnar, yfir Arnarhól, Stjórnarráðið og Lækjartorg. Upplýsingar í síma 614444, á skrifstofutíma. BORGARNESBÆR Húsnæði til leigu Til leigu er 560 m2 atvinnuhúsnæði við Sól- bakka í Borgarnesi. Húsnæðið er hentugt tii ýmiskonar atvinnustarfsemi. Umsóknum skal skilað á bæjarskrifstofuna á Borgarbraut 11 fyrir 1. ágúst 1993. Allar nánari upplýsingar fást á bæjarskrif- stofunni. F.h. Framkvæmdasjóðs Borgarnesbæjar: Bæjarritarinn í Borgarnesi. Skrifstofupláss Nú þegar er til leigu á 2. hæð í þessu glæsi- lega húsi við Bæjarhraun í Hafnarfirði ca. 46 m2 skrifstofupláss. Húsnæðið er mjög vel innréttað til skrifstofureksturs með sér kaffi- aðstöðu. Lyfta er í húsinu. Þeir, sem áhuga hefðu, vinsamlegast leggið inn nafn, kennitölu og síma í pósthólf nr. 496, 222 Hafnarfirði, sem fyrst. París - (Place d’ltalie) 3-4 herb. íbúð m. svölum („penthouse") fæst í skiptum fyrir 4hjóla drifna bifreið á íslandi í tvær vikur, frá 5. ágúst. Vinsamleg- ast hringið „collect" í Josy Parseval sími 90 33 1 45 81 66 44 í París (talar ensku). Lagnaleitartæki Til sölu tæki sem finnur allar lagnir í jörðu (einnig plast og stein). Verð aðeins kr. 8.490 m/vsk. Pöntunarsímar 91-651048, 985-40087 og 91-652448, fax 91-652478. Jóhann Helgi & Co. hf. Til sölu Tæki og innanstokksmunir fyrir 40 manna mötuneyti til sölu. Selst annað hvort í heilu lagi eða einstaka hlutir. Allar nánari upplýsingar gefur Arnfinnur Ingi í síma 671837 frá kl. 13.00 til 16.30. Húsgögn Mikið úrval af notuðum skrifstofuhúsgögnum til sölu s.s. skrifborð, stólar, skáparog margt fleira. Allar nánari upplýsingar gefur Arnfinnur Ingi í síma 685616 frá kl. 13.00 til 16.30 í dag og á morgun. RAFMAGNSEFTIRLIT RIKISINS Auglýsing um faggildingu Rafmagnseftirlit ríkisins auglýsir eftir aðilum sem hyggjast sækja um faggildingu til að annastframkvæmd eftirlits með raforkuvirkjum. Skriflegt erindi þar að lútandi sendist Rafmagnseftirliti ríksins, Síðumúla 13, 108 Reykjavík, fyrir 15. júlí nk. Rafmagnseftirlit ríkisins. Hjólagrafa Til sölu Komatsu PW-150 árg. 1988. Mjög gott ástand. Upplýsingar í síma 91-25268, Hilmar, eftir kl. 20. Fyrirtæki til sölu Einstakt tækifæri fyrir athafnamann, til sölu er sérstök áhaldaleiga sem skilar góðum tekjum. Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt: „T-3875“. Kaffihús með veislueldhúsi Eitt glæsilegasta kaffihús borgarinnar er til sölu, staðsett miðsvæðis í glæsilegu húsi, sem býður uppá mikla möguleika. Falleg söluaðstaða og gott veislueldhús. Áhugasamir leggi inn nafn og síma á auglýs- ingadeild Mbl., merkt: „K-10929“, fyrir 16. júlí nk. Gott fyrirtæki til sölu Höfum til sölu gott heild- og smásölufyrirtæki. Fyrirtækið er vel staðsett í borginni, með margra ára traust viðskiptasambönd og býður upp á mikla möguleika fyrir réttan aðila. Áhugasamir hafi samband í símum 28370 og 627036. Ráð hf., rekstrar- og lögfræðiráðgjöf, Garðastræti 38, Reykjavík. Verbúðir hf. Höfn, Hornafirði, auglýsa Ákveðið hefur verið að leigja út rekstur eða selja Verbúðir hf. Um er að ræða húsið Ás- garð með 36 herbergjum, öll með salerni og sturtum, og þriggja herbergja íbúð. í hús- inu er þvottahús með þvottavél og þurrkur- um, gufubað og sturtur, rúmgóðar setustofur með sjónvarpi, kapalkerfi o.fl. Húsið er í góðu ástandi og vel staðsett með útsýni yfir höfnina og fjörðinn. Það hefur verið nýtt sem verbúðir allt árið og að hluta sem hótel á sumrin. Þetta er kjörið tækifæri fyrir aðila í ferða- mannaþjónustu að nýta sér þessa aðstöðu í ört vaxandi ferðaiðnaði í Austur-Skaftafells- sýslu eða fyrir samhent hjón að reka gistiað- stöðu í húsinu. Nánari upplýsingar veitir Þórólfur Sigurðs- son, stjórnarformaður Verbúða hf., í síma 97-81200. Til sölu íbúðarhús, byggt 1980, fiskverkunarhús og hjallur ásamt 9.000 fm lóð sem er að hluta skógi vaxin, að Gerðhömrum við norðanverð- an Dýrafjörð. Þar er sérkennilegt, veðursæld og mjög fallegt. Þar er sannkallaður drauma- staður þeirra sem vilja njóta útivistar jafnt sumar sem vetur. Óskað er eftir tilboðum í eignirnar. Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Upplýsingar í s. 94-4545, s. 94-8279, 94-7361 og hjá Birni Jóhannessyni hdl. í s. 94-4577.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.