Morgunblaðið - 04.01.1994, Síða 42

Morgunblaðið - 04.01.1994, Síða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPTI/ATVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 1994 Um 250milljón króna hagnaður hjá Eimskip Selfoss seldur til Gards Rederi A/S í Noregi HAGNAÐUR Eimskips var um 250 milljónir kr. fyrstu ellefu mán- uði síðasta árs eða sem nemur 3% af veltu. Útflutningur á vegum félagsins jókst um 12% á árinu. Félagið hefur selt skip sitt Selfoss til norskra aðila og var söluverð um 125 milljónir kr. Afkoma Eimskips var jákvæð á síðari hluta ársins 1993. Sparnaðar- aðgerðir félagsins hafa gengið eft- ir, segir í frétt frá Eimskip, og veru- legur árangur hefur náðst í lækkun kostnaðar á árinu 1993. J^fnframt hefur afkoma af rekstri félagsins erlendis verið jákvæð. Þetta' tvennt hefur skipt sköpum í að snúa tap- rekstri fyrra árs til betri vegar, en á síðasta ári var tap Eimskips og dótturfélaga þess um 214 milljónir kr. fyrir skatta. Heildarflutningar Eimskips á ár- inu 1993 voru um 990 þúsund tonn en voru 913 þúsund tonn 1992. Útflutningur jókst um 12%, einkum á frystum fiski og fiskimjöli. Land- anir erlendra fiskiskipa hér á landi Tölvur Ríkið kaupir tölvu- póst- kerfi FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ hef- ur samið við Nýheija um magn- kaup á tölvupóstkerfinu cc.Mail og gildir samningurinn fyrir 500 notendur í fyrsta áfanga. Hann tekur einnig til Lotus organizer sem er skipulagsforrit og cc:Mail remote sem er tölvupóstur fyrir stakar tölvur en þar er um að ræða færri eintök. Heildarupp- hæð samningsins er tæplega 4,5 milljónir króna án virðisauka- skatts. Árið 1992 komu ráðuneytin sér Fyrirtæki Vélin var í eigu Hulu hf. á Flúð- um og framleiðir kaldavatnsrör, snjóbræðslurör og hitaþolin vatns- rör, og mun Sæplast í fyrstu fram- leiða þau rör sem fram til þessa hafa verið framleidd hjá Hulu, en síðar er stefnt að áframhaldandi þróun í röraúrvali. Hitaþolnu plast- rörin sem framleidd verða hafa haft algera sérstöðu hvað varðar styrk og hitaþol, og hafa þau m.a. vega þungt í þessari aukningu. Inn- flutningur var hins 'vegar nánast óbreyttur frá fyrra ári. Áframhald- andi aukning hefur verið í flutningi milli erlendra hafna og var aukning- in á árinu 1993 um 7% frá árinu á undan. Selfoss seldur Gengið' var frá sölu á Selfossi þann 21. desember sl. til Gards Rederi A/S í Noregi. Selfoss hefur verið í eigu Eimskips frá 1987 en skipið var smíðað í Þýskalandi árið 1977. Söluverð skipsins var um 125 milljónir kr. og varð nokkur hagn- aður af sölu þess. Skipið sinnti lengst af saltfískflutningum og var sérútbúið til slíkra flutninga. Frá l saman um að kaupa cc:Mail póst- kerfíð og setja upp á staðarnetum í þeim tilgangi að greiða fyrir sam- skiptum sín á milli. Þegar þessi ákvörðun var tekin var cc:Mail eina kerfið sem gat flutt óbrenglaðan verið notuð til lagninga á hitaveit- um víða um land. Stefnt er að flutningi vélasam- stæðunnar til Dalvíkur í janúarmán- uði nk., þannig að hægt verði að hefja framleiðslu þar snemma á næsta ári. Reiknað er með að með tilkomu nýju framleiðslunnar aukist velta Sæplasts hf. um 15-20% á ári, en velta félagsins á árinu 1992 var tæpar 300 milljónir króna. síðasta ári hefur hins vegar allur saltfiskur sem Eimskip hefur flutt farið í kæligámum með áætlana- skipum félagsins. Frá þeim tíma hefur Selfoss annast strandflutning og ýmis stórflutningaverkefni t.d. flutning á korni, mjöli, salti og byggingavörum. Samhliða sölu á Selfossi hefur Eimskip ákveðið að írafoss sem verið hefur í leiguverkefnum erlend- is um nokkurra ára bil muni annast stórflutningaverkefni til og frá landinu fyrir viðskiptavini félagsins. írafoss hefur að hluta til verið með erlendum skipvetjum en verður nú alfarið með íslenskri áhöfn. Eimskip er með tíu skip í rekstri og eru átta þeirra í áætlunarsiglingum en tvö í stórflutningum. Öll skip í eigu Eimskips og dótturfélaga þess er- lendis eru mönnuð íslenskum áhöfn- um. texta á íslensku milli PC- og Mac- intosh-tölva. Á sama tíma var ákveðið að koma upp sameiginiegri tölvupóstgátt fyrir bæði X400 og Internet-tölvupóst. Eftir er að ganga frá samskiptum við önnur póstkerfi t.d. tölvupóstkerfi Skýrr og Meistarann en að því er unnið. Er það keppikefli ríkisins að geta skipst á pósti við öll helstu kerfín á markaðnum. Þá eru um þessar mundir að hefjast umfangsmikil tölvupóstviðskipti við stofnanir EFTÁ um X400-gáttina. Viðhaldssamningur ríkisins við Nýheija er til tveggja ára og gefur rétt á uppfærslum í nýjar útgáfum auk þess sem unnt er að auka við notendafjöldann um minnst 20 í senn fyrir sama einingaverð og giid- ir f upphafi. Allar stofnanir og fyrirtæki sem eru að meirihluta í eigu ríkisins geta notið góðs af þessum samn- ingi. í fyrsta áfanga er um að ræða stjórnarráðið sem þegar er með cc:Mail í notkun hjá um 300 notend- um, embætti Ríkisskattstjóra ásamt skattstofum og dóms- og kirkju- mála’ráðuneytið fyrir hönd sýslu- mannsembætta og dómstóla. Fyrst um sinn mun Hagsýsla ríkisins hafa framkvæmd samningsins með höndum fyrir hönd ríkisins. Morgunblaðið/Þorkell TOLVUPOSTUR — Gengið var frá samningi um kaup ríkis- ins á tölvupóstkerfí í síðustu viku. Á myndinni eru standandi f.v. Jó- hann Gunnarsson, frá fjármálaráðuneyti, Guðmundur Kjærnested, frá ríkisskattstjóra, Einar Olafsson, frá Hagstofu íslands og Guðmundur Hannesson frá Nýheija. Við borðið sitja þeir Þórhallur Arason, frá fjármálaráðuneyti og Jón Vignir Karlsson, frá Nýheija. Sæplast kaupir vél til að framleiða plaströr Veltan á að aukast um 15-20% GENGIÐ hefur verið frá kaupum Sæplasts hf. á Dalvík á vél til framleiðslu á plaströrum. í frétt frá Sæplasti segir að með kaupun- um sé verið að auka fjölbreytni í framleiðslu fyrirtækisins og styrkja þannig Sæplast hf. sem plastframleiðslufyrirtæki. MENN ARSINS — Hjónin Guðrún Helga Lárusdóttir og Ágúst Guðmundur Sigurðsson, eigendur Stálskips hf., eru einu starfs- menn fyrirtækisins í landi. Guðrún er framkvæmdastjórinn og sér um fjármálastjórnina en Ágúst hefur tæknimálin á sinni könnu. Fólk Utgerðarhjón í Hafnar- firði menn ársins ÞAU Guðrún Helga Lárusdóttir og Ágúst Guðmundur Sigurðs- son, eigendur Stálskips hf., voru valin menn ársins í íslensku viðskiptalífi árið 1993 samkvæmt útnefningu tímaritsins Frjálsr- ar verslunar og Stöðvar 2. Þetta er í sjötta sinn sem slík útnefn- ing fer fram en tilgangur hennar er sá að vekja athygli á því sem vel er gert í íslensku viðskiptalífi og hvetja íslenska at- hafnamenn og fyrirtæki til dáða. í umfjöllun tímaritsins um fyr- irtækið kemur fram að rekstur Stálskips hefur gengið sérlega vel og skilað miklum hagnaði meðan fyrirtæki í sjávarútvegi hafa almennt gengið illa. Árið 1993 er engin undantekning; út- lit er fyrir góðan hagnað og í haust réðst fyrirtækið í kaup á nýjum frystitogara sem er í smíð- um á Spáni. Þau hjón stofnuðu Stálskip fyrir tuttugu og þremur árum ðða árið 1970. Fyrsta skipið sem þau keyptu var breskur síðutogari sem hét Boston Wellvale og hafði strandað við Arnarnes í ísafjarð- ardjúpi og legið í sjó um nokk- urra ára skeið. Núna gerir fyrir- tækið út frystitogarann Ými og ísfisktogarana Rán og Þór. Eru starfsmenn nú um 50 talsins. Bankamál Sparisjóðabank- inn tekur til starfa SPARISJÓÐABANKI íslands hf. tekur til starfa í dag, 4. janúar, og tekur þar með við hlutverki Lánastofnunar sparisjóðanna. Breyt- ingin er gerð í framhaldi af nýjum Iögum um banka og sparisjóði. Sparisjóðabankinn hefur aðsetur við Rauðarárstíg þar sem Lána- stofnun sparisjóðanna var áður til húsa. Hann mun gegna svipuðu hlutverki og seðlabanki, sjá um gjaldeyrisþjónustu fyrir sparisjóð- ina, ávaxta lausafé þeirra og veita ýmiss konar aðra þjónustu, að sögn Hallgríms Jónssonar formanns bankaráðs. Ekki verður um að ræða hefðbundna þjónustu viðskipta- banka við almenning en Sparisjóða- bankinn mun þó geta lánað við- skiptamönnum sparisjóða ef við- komandi sparisjóður er of lítill tii þess að geta ráðið við það sjálfur, að sögn Hallgríms. Hann segir enn- fremur að gefin verði út jöfnunar- hlutabréf og verði hlutafé bankans þá 445 milljónir, til samræmis við íög um hlutafé banka. Eigið fé bankans er rúmlega 800 milljónir en hagnaður af Lánastofnun spari- sjóðanna þetta árið liggur ekki fyr- ir. Fram hefur komið í viðskipta- blaði að hagnaður samkvæmt milli- uppgjöri fyrir fyrstu átta mánuði ársins hafi verið tæplega 69 milljón- ir. Auk Hallgríms Jónssonar for- manns munu eiga sæti í bankaráði Sparisjóðabankans Baldvin Tryggvason, Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis, Páll Jónsson, Spari- sjóði Keflavíkur, Jónas Reynisson, Sparisjóði Hafnarfjarðar og Ingólf- ur Guðnason, Sparisjóði Vestur- Húnavatnssýslu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.