Morgunblaðið - 04.01.1994, Page 50

Morgunblaðið - 04.01.1994, Page 50
50 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 1994 ÐRÉFAÐINDI OG MÖPPUR fæst í öllum betri ritfangaverslunum Viltu auka þekkingu þína: Öldungadeild Verzlunarskóla íslands býður hagnýtt nám í fjölmörgum greinum, fýrir alla þá sem náð hafa 20 ára aldri. Innritun á vorönn fer fram dagana 4.-6. jan. kl. 8.30-18.00 og 7. jan. kl. 8.30-16.00. í boði verða eftirfarandi áfangar: Bókfærsla Bókmenntir Danska Enska Farseðlaútgáfa fslenska Skattabókhald Stærðfræði Stjómun Sölu- og markaðsfræði Tölvubókhald Tölvufræði Landafræði og saga fslands Tölvunotkun Líffræði Verslunarréttur Milliríkjaviðskipti Vélritun Ritun Þjóðhagfræði Ritvinnsla Þýðingar Saga Þýska Áföngum ofangreindra námsgreina er hægt að safna saman og láta mynda eftirtalin prófstig: • Prófaf bókhaldsbraut • Próf af ferðamálabraut • Próf af skrifstofúbraut • Verslunarpróf • Stúdentspróf Umsóknareyðublöð, námslýsingar og allar nánari upplýsingar fást á skrifstofú skólans, Ofanleiti 1. VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS Minninfr Ove Stenroth Mánudaginn 13. desember sl. varð Ove Stenroth fil.kand. bráðkvaddur á heimili sínu í Kaupmannahöfn, 57 ára að aldri. Skyndilegt fráfall hans bar að mitt í önnum ævistarfs hans sem norræns embættismanns; hann átti þennan morgun eins og oft áður að reifa mál á stjómarfundi Norræna menningarsjóðsins. Fjölmennur hóp- ur vina og samstarfsmanna fyrr og nú, víðs vegar um Norðurlönd, varð harmi sleginn við fráfall hans. Ove Stenroth fæddist 6. desember 1936 í Dalsbruk í Finnlandi, þar sem foreldrar hans ráku vel þekkta versl- un um margra ára skeið. Hann lauk stúdentsprófi við menntaskóla í Ekenás 1955. Að lokinni herþjónustu hóf hann nám við háskólann í Hels- ingfors með sagnfræði sem aðal- grein. Fil.kand.-prófi lauk hann 1965 og merk lokaritgerð hans um sýslu- menn í Kimito á 18. öld birtist í tveimur greinum í tímaritinu Genos. A háskólaárunum var hann einn af þeim fámenna hópi sænskumælandi stúdenta sem haustið 1962 stóð að stofnun stúdentafélagsins Historic- us, en það lifir enn góðu h'fi. Formað- ur þess félags var hann árin 1967-69. Starfsferill hans hófst í Ríkis- skjalasafninu þar sem hann starfaði 1965-68. í Ríkisskjalasafninu komst hann í kynni við þá traustu embættis- mannahefð sem þar var að finna, bæði í starfsanda stofnunarinnar sjálfrar og í þeirri arfleifð sem safn- inu var falin til varðveislu. Þessi hefð átti einkar vel við Ove Sten- roth, hann lifði sig inn í hana og varð raunar persónugervingur hins besta í sænsk-fínnskri embættis- mannahefð; óhlutdrægni, nákvæmni, stundvísi, öruggrar dómgreindar. Starfshæfni hans átti þó brátt eft- ir að njóta sín á allt öðrum vett- vangi, í norrænni samvinnu. Hann hafði lengi haft mikinn áhuga á nor- rænum málefnum og sá áhugi jókst er hann sótti fyrsta norræna nám- skeiðið fyrir sagnfræðistúdenta sem haldið var í Uppsölum 1966. Þetta námskeið, sem frægt er orðið, beindi mörgum þátttakendanna inn á braut norrænnar samvinnu, bæði í hugsjón og framkvæmd. Ove Stenroth réðst árið 1968 til starfa hjá Norðurlanda- ráði sem ritari menningarmálanefnd- ar þess, fyrsti nefndarritari ráðsins í fullu starfi og þar með að vissu leyti mótandi um starfshætti. Starfs- tími hans hjá Norðurlandaráði var atburðaríkt tímabil norrænni sam- vinnu, þá voru átökin um Nordek á döfinni, Helsingfors-sáttmálinn var endurnýjaður og norræni menningar- málasamningurinn gerður 1971. Eins og kunnugt er hafði þetta í för með sér að stofnað var til Nor- rænu ráðherranefndarinnar með tveimur skrifstofum. Menningar- málaskrifstofan í Kaupmannahöfn var sett á laggirnar 1972 og eðlilegt var að leitað væri til manns með hæfni Ove Stenroths í því sambandi. Hann var í fyrsta starfsmannahópn- um sem frá ársbyijun 1972 vann undir forystu Magnus Kulls að upp- byggingu hinnar nýju skrifstofu og menningarsamstarfsins. A vissan hátt var þar með skipt um sjónar- horn, hann fluttist af þingmanna- vængnum yfir á ríkisstjórnavæng samvinnunnar. Ove Stenroth hélt tryggð við RÐU LÉTTA DANSSVEIFLU ÁTVEIM DÖGUMt dæstu námskeið 8. og 9. janúar 620700 Áhugahópur um almenna dansþátttoku á Islandi hringdu nuna Nýtt! Bókhaldsnámskeið 36 klst. Ókeypis hugbúnaður innifalinn STOFNUN FYRIRTÆKIS, BÓKHALDSLÖG SKIL OG INNHEIMTA YIRÐISAUKASKATTS BÓKFÆRSLA RAUNHÆFS VERKEFNIS í TÖLVU AFSTEMMINGAR, FRÁGANGUR, UPPGJÖR Leiöbeinandi: Katrín H. Árnadóttir, viðskiptafræöingur. Mörg stéttarfélög og starfsmenntunarsjóðir styrkja þátttöku félagsmanna sinna f námskeiðinu. Sveigjanleg greiðslukjör. Upplýsingar og innritun er hjá Viðskiptaskólanum sími 624162

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.