Morgunblaðið - 23.01.1994, Side 9
MORGÚNBLAÐIÐ MENNINGttRSTRAUMAR'SUNMnÍAfSUR 23. JANÚAR 1994
B 9
DÆGVRTÓNLIST
Kraftur Alice in Chains.
Rokkflugur
í FLÓÐI fyrirtaks rokksveita að vestan síðustu misseri
hefur nafn Alice in Chains verið nefnt með sérstakri
virðingu. Sú hefur stöðugt sótt í sig veðrið og síðasta
plata sveitarinnar, Dirt, seldist vel um allan heim. A
mánudag kemur út hér á landi ný sjö laga plata, Jar
of flies.
Hvad stendur uppúr?
ÚR VALSDISKAR
UM HVER áramót fara menn af stað og velta fyrir
sér hvað hafi nú verið best og skemmtilegast á ár-
inu, ekki síður í tónlistarlífinu en öðru. Þegar upp-
talningin byrjar vill það komast á blað sem mest er
látið með eða allir vita að á að vera gott, en þær
plötur sem koma snemma út á árinu vilja oft gleym-
ast. Að auki er málum svo háttað á íslenskum plötu-
markaði að sumar plötur, og þá helst þær sem eru
í þyngri kantinum, eiga það til að koma svo seint
hingað til lands, að þær komast aldrei á lista.
Segja má að það sé í
raun kátlegt að ætla
sér að velja tíu bestu plötur
ársins, því ef menn fylgjast
með á annað borð kemur
iðulega fyrir að ekki er
hægt að gera upp á milli
diska ólíkrar gerðar. Þann-
ig var og á liðnu ári, að
fjölbreytni var meiri en oft
áður, þó mest hafi borið á
bandarísku rokki og rappi.
Frá Bretlandi kom þó sitt-
hvað gott á nýbylgjusvið-
inu og ekki má gleyma frá-
bærum plötum frá öðrum
heimshornum.
Úrvalsdiskar
Til gamans má telja upp
nokkra erlenda diska
sem óhætt er að
^mmmmmmu mæla
' sem ekki
^ F komust á
—I—'mm.'.OL lista, ekki
eftir Árno voru spil-
Motthíosson aðir í út-
varpi og
ekki var hampað í öðrum
fjölmiðlum. Inn á milli eru
svo plötur sem allir þekkja.
Á meðal þeirra platna sem
komu út seint á síðasta ári
og bárust ekki hingað fyrr
en eftir áramót eru Dr. Dre
og Alemayehu Eshete, en
Fela Kuti- platan er
áður óútgefnar upptökur
frá 1969 og á Bamba með
hinni fráfæru senegalísku
sveit Orchestra Baobab eru
tvær plötur sem ekki hafa
fengist utan Senegal fyrr
en með þessari útgáfu.
Endurútgáfur eru annars
engar, þó vert væri að geta
margra slíkra.
Eins og sjá má ertónlist-
in úr ýmsum áttum, hart
rapp, bandarískt og breskt
nýrokk, reggí, afríkujass-
rokk, rapprokk, túrkmen-
ísk þjóðlagatónlist, seneg-
elaskt mbalax, nígerískt
afrobít, dansfönk, sveita-
tónlist, raipopp, grodda-
rokk og bara einfalt og
dægilegt popp. Þá er ekki
annað fyrir menn að gera
en henda gamla draslinu
og kaupa eftirtaldar 25
plötur, því allar fá þær
hæstu einkunn. Plöt-
urnar eru í staf-
rófsröð.
Liðsmenn Alice in Chains
hafa haft- nóg fyrir
stafni síðustu misseri, enda
hefur hljómsveitin stöðugt
sótt í sig veðrið vestan hafs
og austan. Síðasta plata
sveitarinnar, Dirt, er jafnan
talin með helstu plötum
bandarísku rokkbylgjunnar,
þó kannski megi segja að
sveitin sé í þyngri kantinum,
að minnsta kosti miðað við
margt annað sem hátt hefur
borið. Snemma áárinu 1992
sendi sveitin frá sér ljögurra
laga geisladisjt, SAP, sem
haldið heftir sig á metsölu-
listum tneira og minna síðan.
Til að halda mönnum við
efnið og leika þann leik eftir
sendir Alice in Chains frá
sér i vikunni adra smáskífu,
Jar of Flies. að þessu sinni
með sjö lögum.
Nýrrar V breiðskífu frá
Alice in Chains er beðið með
mikilli eftiivamtingu og
smáskífali nýjá verður síst
til að slá á þá eftirvæntingu.
Tónlistin á plötunni þykir og
vel til þess fallin að stækka
aðdáendahóp sveitarinnar,
því þar kveður að mörgu
leyti við nýjan tón og sum
laganna eru órafmögnuð að
mestu, líkt og var á SAP,
‘þó krafturinn ólgi enn undir
niðri. Tii að þóknast þeim
sem ekki hafa fest sér SAP
verða plöturnar tvær einnig
fáanlegar tvær í einum
pakka.
VÖLK
mpÓ VARLA hafi menn
náð að kasta mæðinni eftir
jólaslaginn er þegar farin að
koma mynd á sumarútgáf-
una. Nýútkomin er plata með
tónlistinni úr Evu Lunu eftir
Egil Ólafsson í flutningi
ýmissa, þar á meðal Egils
sjálfs, Eddu Heiðrúnar Bac-
hmann og Sólveigar Arnars-
dóttur. Vísast verður grúi af
safnplötum á markaði, en
einnig eru Pláhnetumenn í
þá mund að heíja upptökur
á breiðskífu. SSSóI hljóðritar
einnig breiðskífu á næstu
dögum með enskum upp-
tökumanni, en SSSól-liðar
hyggjast fara um landið í
sumar.
Ashkhabad City of Love
Auteurs ..........................................................•••••••••••••••••• New Wave
The Boo Radleys ••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••• Giont Steps
Chaka Demus & Pliers ••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••• Tease Me
Cypress Hill ............................................................ Black Sundoy
Dr. Dre ..................................................................... The Cronic
Alemayehu Eshété •••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••• Addis
Fela Kuti ••••••••••••••••••••••••••••••••••••••• The '69 Los Angeles Sessions
The Goats ••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••• Tricks of the Shade
Grant Lee Buffal •••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••• Fuzzy
Pearl Jam ................................................................ Pearl Jam
Jaimiroquoi .......................................... Emergency on Planet Eorth
Khaled ............................................................... N'issi, N'issi
LL Cool | .................................................. 14 Shots to the Dome
Willie Nelson •••••••••••••••••••••••••••'•••••••••••••• Across the Borderline
Nirvana ••••••••••••••••••••••••••••••■••••••••••••••••••••••••••■••••••• In Utero
Orthestra Baobab •••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••• Bamba
Roge Against the Machine ••••••••••••••••••• Rage Agoinst the Machine
Snoop Doggy Dog •••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••• Doggystyle
Smashing Pumpkins •••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••• Siamese Dream
Suede •••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••• Suede
The The................................................................................ Dusk
U2 ••••••••••■•••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••■••• Zooropa
WorldParty................................................................................. Bangl
Ymsir •■••••••••••••••••••••■•••••••••••••••••••••••••••••••••*•••••••••••••••••• Judgement Night
SIGTRYGGUR dyravörður
ÞAÐ ER ekki hlaupið að því að koma nýrri
hljómsveit á framfæri og þarf oft að kosta
miklu til. Félagarnir í Sigtryggi dyraverði
gripu þá til þess ráðs sem vel hefur reynst;
vera duglegir að spila og gefa út. Fyrir jól
kom út geisladiskur með Sigtryggi dyraverði,
Mr. Empty, sem liðsmenn gefa sjálfir út
og er að
mestu
tekinn
uppí
heimahúsi.
Nemendamót
Á Hausaskelja-
hæð í Hótel
íslandi.
Sigtryggur dyravörður er
' ársgömul sveit eða hér
um bil, en tók á sig núver-
andi mynd um síðustu
páska. Að sögn Jóhannesar
Eiðssonar söngvara lá þegar
í loftinu að þeir félagar
gefa það út.“ Hann bætir
við að þeir félagar hugsi
plötuna fyrst og fremst sem
kynningu, „til að koma okk-
ur á kortið".
í kjölfar plötunnar hefur
nafn Sigtryggs dyravarðar
Jesú á Hótel Islandi
NEMENDUR í Verslunarskóla íslands hafa jafnan
haldið vegleg nemendamót ár hvert og umfangið
aukist með árunum. Þetta ár halda Verslingar 62.
nemendamót sitt og setja upp af því tilefni söngleik
um Jesú Krist á Hótel í slandi.
Mikill fjöldi nemenda
tekur þátt í undir-
búningi nemendamóts
Verslunarskólans ár hvert
og þetta ár tekur á annað
hundrað manns þátt í að
setja upp Jesus Christ Sup-
erstar á Hótel íslandi. Sér
til liðs hafa Verslingar
fengið Þorstein Bachmann
sem leikstjóra, en kórstjóri
er Þorvaldur Bjarni Þor-
valdsson. Allir dansar eru
aftur á móti samdir innan-
húss, en þeim stjóma
Nanna Ósk Jónsdóttir og
Selma Bjömsdóttir.
Fyrsta sýning á herleg-
heitunum verður 3. febr-
úar, og er uppselt á hana,
en síðan býðst almenningi
að kaupa sig inn á Sýning-
ar 6. og 9. febrúar.
Kynning Félagar Sigtryggs dyravarðar.
myndu setja saman breið-
skífu, en auk hans eru í
sveitinni Jón Elvar Haf-
steinsson gítarleikari, Eiður
Alfreðsson bassaleikari og
Tómas Jóhannesson
trommuleikari.
„Við ætluðum okkur í
upphafi að taka upp eins-
konar prufu,“ segir Eiður,
„en þetta hljómaði svo vel
að okkur fannst tilvalið að
heyrst víða og platan því
greinilega náð settu marki
hvað það varðar og Jóhann-
es segir að þeir hyggist
halda áfram af krafti. Hvað
framhaldið varðar þá sé Mr.
Empty bara byijunin. „Við
erum aðeins að jafna okkur
eftir þessa törn,“ segir Jó-
hannes, „og það er nóg af
efni til viðbótar.“