Morgunblaðið - 01.02.1994, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 01.02.1994, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1994 49 Aad Groeneweg og Eyþór Sigmundsson með stórlax ór Miðfjarðará. Betri spá um Miðfjarðará en búist var við Góð heildarveiði og fleiri stórlaxar Dr. Tumi Tómasson fiskifræðingur útibús Veiðimálastofnunar á Hólum í Hjaltadal telur að ekki þurfi að hafa áhyggjur af lakri lax- gengd í Miðfjarðará á komandi sumri. Hann á von á verulegri aukn- ingu á stórlaxaveiði og telur að gönguseiðaframleiðsla hafi ekki spillst alvarlega í kuldunum í fyrra. Þetta kemur fram í árlegri skýrslu hans frá svæðinu, en hann hefur ; stundað umfangsmiklar rannsóknir á Miðfjarðará og þverám hennar Aust- urá, Núpsá og Vesturá um langt ára- bil. Þessi niðurstaða kemur nokkuð á óvart þar sem að vor- og sumarkuld- ar síðasta sumar töfðu för gönguseiða til hafs langt fram eftir sumri. Síð- asta sumar veiddust 1.028 laxar í Miðfjarðará og var það mun minna heldur en vonir höfðu staðið til. Af því voru 775 smálaxar og 253 stórlax- ar og var það einkum fæð hinna síðar- nefndu sem olli vonbrigðum. Um horfumar segir Tumi í skýrslu sinni: Þótt veiðin 1993 hafi valdið vonbrigðum, einkum stórlaxaveiðin, er ekki ástæða til að örvænta um veiðina 1994. Smálaxaveiðin 1993 verður að teljast nokkuð góð, miðað við tiltölulega kalt tíðarfar 1992 og von er til að hlutfall stórlaxa úr gönguseiðaárganginum 1992 verði eðlilegt og hærra en úr 1991-árgang- inum. Ég á því von á verulegri aukn- ingu á stórlaxaveiðinni 1994. Óvenju væn gönguseiði Þótt sumarið 1993 hafi verið með eindæmum kalt virðist gönguseiða- framleiðslan ekki hafa orðið fyrir af- gerandi áfalli, líklega vegna þess að heildarþéttleiki seiða er nú minni en áður vegna smárra árganga 1992 og 1993. Seiðin gengu hins vegar mjög seint til sjávar, en á móti kom að þau voru óvenju væn. Ekki verður annað séð en að forsendur séu til að smá- laxaveiði verði svipuð því sem var 1993, þótt í þeim efnum sé aldrei á visan að róa. Ég geri mér því alveg eins vonir um að heildarveiðin 1994 verði góð þegar upp verður staðið. UR DAGBOK LÖGREGLUIMNAR í REYKJAVÍK: 28.-31. janúar 1994 Talsvert var kvartað yfír akstri vélsleða innan borgarmarkanna. Að gefnu tilefni er rétt að minna á að á síðasta ári var sett ákvæði í umferðarlögin, sem kveður á um að í þéttbýli megi ekki í heimildar- leysi aka, stöðva eða leggja vélkn- únu ökutæki utan vega á svæði sem ekki er ætlað fyrir umferð vélknúinna ökutækja. Þannig má ekki aka vélsleða í þéttbýli innan borgarmarkanna, nema það hafí verið sérstaklega leyft af borgar- yfirvöldum eða einstökum eigend- um lóða. Undanþegin þessu ákvæði er akstur vegna óhjá- kvæmilegrar þjónustu, s.s. sjúkra- flutninga eða annarrar sambæri- legrar umferðar sem upp kann að koma. Þess fyrir utan má ekki aka vélsleða eða torfærutæki eftir vegi nema skemmstu leið yfir veg, eins og segir í umferðarlögunum. Þá liggur fyrir samþykki borgar- yfirvalda frá 6. júní 1985 er bann- að akstur hvers konar vélknúinna ökutækja utan vega í Elliðaár- dainum. Þar sem um er að ræða samspil umferðar hestamanna, vélsleðamanna og gangandi fólks, þar sem akstur vélsleða er leyfður utan þéttbýlis, þarf hver um sig að sýna varúð, forðast óþarfa hávaða og gæta fyllstu tillits- semi. Vélsleðamenn og aðrir eru hvattir til að virða gildandi reglur. Færð var érfið aðfaranótt laug- ardags, snjókoma og skafrenning- ur. Fátt fólk var á ferli utan dyra í miðborginni og þeir fáu, sem sáust þar eftir að vínveitingastöð- um var lokað, flýttu sér í nálæg ökutæki og af vettvangi. Þá nótt þurfti lögreglan að hafa afskipti af fjórum sendibifreiðastjórum og síðan tveimur til viðbótar aðfara- nótt sunnudags. Þeir viðurkenndu að vera að flytja fólk gegn gjaldi, en það er þeim sem og öðrum er ekki hafa til þess sérstakt leyfi með öllu óheimilt. Lögreglan vill sem fyrr hvetja bifreiðastjóra, hvort sem um er að ræða sendibíl- stjóra eða leigubílstjóra, að virða gildandi reglur er lúta að starfs- sviði hvor annars. Hvað sem líður áliti eða skoðun einstakra manna á núverandi reglum eru þær sú viðmiðun er ber að hafa í heiðri þangað til eitthvað breytist í þeim efnum. Annríki er venjulega tengt lok- un vínveitingastaðanna. Þá þyrp- ast þúsundir manna út á götumar í leit að leigubifreiðum. Breyting sú er gerð var fyrir allnokkrum árum þegar opnunartími staðanna var lengdur og átti að verða allra meina bót hefur ekki orðið til þess að bæta ástandið. Það er spurning hvort ekki væri ástæða til, úr því sem komið er, að athug- að verði sérstaklega hvort ótak- markaður opnunartími veitinga- staða geti ekki haft áhrif á þróun þessara mála til hins betra. Á laugardagsmorgun var til- kynnt um innbrot í söluturna við Kleppsveg við Lóuhóla, við Gnoð- arvog, við Norðurbrún, við Lang- holtsveg, við Hraunbæ og við Bræðraborgarstíg. I öllum tilvik- um voru spilakassar brotnir upp og úr þeim stolið skiptimynd. Þá var tilkynnt um að brotist hefði verið inn í fatahreinsun og íbúðar- hús við Njálsgötu. Alls var til- kynnt um 22 innbrot um helgina, 6 minniháttar líkamsmeiðingar og 12 ökumenn eru grunaðir um ölv- unarakstur. Þá var tilkynnt um 38 árekstra og 4 umferðarslys. Á laugardagsmorgun var vonskuveður, rok og ofankoma. Fólk hringdi mikið í neyðarsímann til að spyija um færð jafnt á göt- um borgarinnar sem og norður á Sauðárkrók. Á tímabili var mikið ónæði vegna þessara hringinga, en fólk virðist ekki átta sig á að neyðarsími lögreglu er ekki ætlað- ur til þess konar nota. Hins vegar hefur lögreglan á að skipa sér- stökum upplýsingasíma sem svar- að er í allan sólarhringinn, 699020. Fimmtán tíma beitar- húsaferð í Hrafnkelsdal Vaðbrekku, Jökuldal. BEITARHÚSAFERÐ Kristrúnar Pálsdóttur, bónda á Aðalbóli, varð lengri en hún reiknaði með síðastliðnn laugardag vegna óveðurs sem skall á meðan hún var við gegningar á Faxahúsum sem eru sex kíló- metrum innan við Aðalból í Hrafnkelsdal. Kristrún lagði af stað á Faxahús frá Aðalbóli klukkan eitt á laugardag í sæmilegu veðri en þó var byrjað að snjóa, en hún á snjósleða og gekk ferðin inneftir vel sem og gegning- arnar í húsunum. Lagði hún af stað aftur áleiðis heim þegar klukkan var rúmlega tvö en þá hafði bætt veruléga í vind og skyggni orðið mjög slæmt. Komst hún þó nokkurn veginn klakklaust út fyr- ir Laugarhús sem er rúmlega tveggja kflómetra leið en þegar túngirðing- unni utanvið Laugarhús sleppti og Aðalbólsnesið tók við var ekki viðlit að rata lengra vegna veðurs. ■ Eftir að hafa reynt að halda áfram og hálf villst auk þess sem snjósleð- inn gekk illa í kófinu sneri hún heim að Laugarhúsum en þar eru ónotuð fjárhús fjórum kílómetrum innan við Áðalból, þangað var hún komin um það bil' klukkan þrjú. Á Laugarhúsum lét hún fyrirber- ast þangað til klukkan fjögur aðfara- nótt sunnudags eða í 13 klukkutíma. Allan þann tíma var snarvitlaust veður og ekki hundi út sigandi, en þá var hennar vitjað af Sveini og Gunnari frá Aðalbóli. Hlóð byrgi úr heyböggum Aðspurð sagði Kristrún vistina á Laugarhúsum hafa verið þokkalega. Þó hafði hún blotnað aðeins úti í veðrinu og svitnað við að gefa fénu svo hrollur hafi verið í sér til að byija með, en þó varð henni ekki kalt þar sem hún hafði verið vel búin. Auk þess hlóð hún sér smá byrgi úr heyböggum sem voru í hlöð- unni á Laugarhúsum og hafðist hún þar við á' milli þess sem hún gekk um gólf sér til hressingar ásamt hundinum Lappa sem var með henni allan tímann. Kristrún sagðist ekki hafa haft neinar áhyggjur af tímanum sem hún beið á Laugarhúsum nema ef þeir heima færu að ganga út í veðrið meðan það var enn vont til að leita að henni. Ekki vissi hún gjörla hvað tíman- um leið því hún sá ekki á klukkuna því kolsvarta myrkur var í hlöðunni, kvaðst hún hafa dottað annað slagið en ávallt hafa vaknað við það að henni kóinaði. Það var svo kíukkan fjögur eins og áður sagði að Sveinn og Gunnar komu á túttujeppa og fóru heim með hana en þá hafði hún verið rúma fimmtán klukkutíma að heiman, en á venjulegum degi tekur beitarhúsa- ferðin milli einn og tvo klukkutíma. Vissu ekki hvar þeir voru í samtali við fréttaritara sagði Sveinn Pálsson bróðir Kristrúnar að hann hafí reynt að fara á snjósleða að líta eftir henni um fimm leytið á laugardaginn en ekki komist nema rétt innfyrir bæinn og orðið frá að snúa vegna veðurs. Það var síðan um klukkan sex sem þeir lögðu af stað aftur, hann og Gunnar Svavarsson systursonur hans en nú á jeppa á stórum dekkjum. Gekk sú ferð mjög hægt, þar sem veðrið var svo vont og skyggni nán- ast ekkert. Þó náðu þeir að paufast rúman kílómetra á um þrem tímum með því að ganga á undan bílnum með vasaljós. Eftir þessa þijá tíma stoppuðu þeir, enda ekki alveg vissir hvar þeir voru, og ekki má mikið útaf bera þar sem volgrur eru víða meðfram Hrafnkelu og annarstaðar í dalnum sem éta af sér og vont er að lenda ofaní. Létu þeir þar fyrirberast í bíln- um frá því klukkan níu um kvöldið þar til klukkan þijú um nóttina. Sagði Sveinn ekki hafa væst um þá í bílnum, þeim var hlýtt og með far- síma og því í sambandi heim í Aðal- ból. Klukkan þijú hafði veðrinu slot- að svo mikið að þeir sáu hvar þeir voru og gátu haldið áfram og fóru alla leið inná Faxhús og þar sem Kristrún var farin þaðan fóru þeir útá Laugarhús og fundu hana eins og áður sagði klukkan fjögur. Aðspurður sagði Sveinn að þeir heimamenn . á Aðalbóli hefðu ekki haft mjög miklar áhyggjur af Kristr- únu þar sem þeir reiknuðu með því að hún léti fyrirberast á Faxahúsum og ef hún hefði farið af stað þaðan hefði hún alltaf komist heim á Laug- arhús ef hún treysti sér ekki alla leið heim, en áður hefur komið fyrir að menn hafa verið veðurtepptir við gegningar á þessum beitarhúsum. - Sig. Að. HOTEL BORG Forréttir Heimabakað hvítlauksbrauð kr. 29J Blandað salat með avocado, grænmeti, stökkri svartrót og tóinatteningum kr. 490 Steiktir humarhalar með villihrísgrjónum, tómat, sveppunt og salati kr. 990 Ristuð hörpuskel með ratatouillc og ferskum lasagnahlöðum kr. 790 Karrýkókos-fiskisúpa með ffnt skomu grænmeti kr. 690 Hvítlauks pasta með krentsósu og fururhnetu pesto kr. 690 Kjúklinga „mille-feuille" nteð ólífum, graskeri og salati kr. 860 Grœnmetisréttir Grænmetis lasagna með blönduðu salati, ólífum og parmcsan kr. 1250 Spínat og laukterta með kremttðum vinaigrette og grænmeti kr. 1150 Aöalréttir Fiskur dagsins kr. 1390 Ofnbökuð laxasneið með hvítlauks-spínatmauki og fersku grænmeti kr. 1490 GriUuð sinnepsmarinemð kjúklingabringa með hýðishrisgrjónum, spínati og hunangssoyasósu kr. 1590 Grilluð nautalund með steiktri steinseljurót, sveppum og rauðvínssósu kr. 2390 Lambahryggur hjúpaður kryddjurtaraspi með snjóbaunum og tómötum kr. 1790 Hunangssteikt pekingönd nteð kartöllumauki, sterkum pecanhnetum og eplum kr. 2690 Tagliatelle með grillaðri kjúklingabringu og sinnepssösu kr. 1490 Rósmarin steiktur kálfahryggur nteð selleri, eplum og cidersósu kr. 1890 Prime rib nauta franthryggur nteð kremuðum sveppum, kryddbökuðum shallotlauk og hvítlauk kr. 1990 NÝR MATSEÐILL m HÁRSNYRTI- VÖRURNAR o 13010 HÁRGREIÐSLUSTOFAN KLAPPARSTÍG Fjörug bílaviðskipti Vantar góða bfla á skrá og á staðinn. Bílamarkaöurinn Smiðjuvegi 46E V/Reykjanesbraut. Kopavogi, sími 671800 Toyota 4Runner EFi ’85, rauður, 5 g., ek. 113 þ., sérskoðaður, 35“ dekk, 4:10 hlut- Daihatsu Charade TS EFi 16v ’93, rauð- ur, 1300 vél, bein innsp., 5 g., ek. aðeins 6 þ. km. Sem nýr. V. 860 þús. Mazda 626 GLX Hastcack '88, hvítur, sjólfsk., ek. 96 þ., rafm. í rúðum o.fl. V. 690 þús., sk. á ód. Nissan Sunny SLX '91, 5 g., ek. 43 þ., rafm. í rúðum, central læs. V. 860 þús., sk. á ód. Subaru Legacy 1800 '91, 5 g., ek. 55 þ., rafm. í rúðum, central læs. V. 1420 þús., sk. á ód. MMC Pajero stuttur '83, Buick-vél (ný- uppt.), upphækkaður, 35“ dekk o.fl. Óvenju gott eintak. V. 670 þús. Nissan Sunny SLX '91, hvítur, 4ra dyra, 5 g., ek. 43 þ., rafm. í rúðum, central læs. V. 860 þús., sk. á ód. Toyota Corolla XL Sedan '89, rauður, 4 g., ek. 73 þ. km. V. 620 þús., sk. á ód. Skoda Favorit '91, 5 dyra, ek. 39 þ. km. Tilboösverð kr. 290 þús. Cherokee (langur) '83, 4 g., V-6. Gott ástand. Tilboðsverð kr. 490 þús. Daihatsu Applause 16v '90, vínrauður, 5 g., ek. 68 þ., vökvast., rafm. í rúðum o.fl. V. 750 þús., sk. á ód. MMC Pajero V-6 '91, grár/blár, sjálfsk., ek. 52 þ., sóllúga, álfelgur, rafm. í öllu o.fl. V. 2.2 millj., sk. á ód. Mikið breyttur Bronco '74, 4 g., 8 cyl. (460 cc), 205 millikassi, Unimoc hásingar, 44“ dekk o.fl. V. 650 þús. MMC Pajero langur T.D. m/lntercooler 92, grænn/tvílitur, sjálfsk., ek. 52 þ., sól- lúga, álfelgur, rafm. í rúðum, central læs., spoiler, 31 “ dekk o.fl. V. 3,1 millj., sk. á ód. Subaru Legacy Artlc '92, vínrauður, sjálfsk., ek. 20 þ., rafm. í rúðum, álfelgur, central læs. V. 1880 þús., sk. á ód. Mazda 323 GLX '91, hvítur, 3ja dyra, 5 g., ek. 44 þ., rafm. í rúðum o.fl. V. 850 þús., sk. á dýrari eða ód. MMC Colt GLX '89, rauður, sjálfsk. ek. 70 þ. V. 680 þús. Honda Civic LSi '92, rauður, 3ja dyra, 5 g., ek. 18 þ. km., rafm. í rúðum, spoiler, central læsing o.fl. V. 1150 þús. Toyota 4Runner V-6 '92, blár, 5 g., ek. 32 þ., 33“ dekk, sóllúga, brettakantar o.fl. V. 2.750 þús. Toyota Douple Cap diesel '92, rauður, 5 g., ek. 46 þ., upphækkaður, 33“ dekk, lengd skúffa, brettakantar o.fl. Vsk-bíll. V. 1890 þús. Þú svalar lestrarþörf dagsins á sídum Moggans! y m
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.