Morgunblaðið - 02.02.1994, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 02.02.1994, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 1994 Frumsýnir spennutryllinn í KJÖLFAR MORÐINGJA Bruce Willis og Sarah Jessica Parker eiga í höggi við útsmoginn og stórhættulegan Qölda- morðingja sem leikur sér að lögreglunni eins og köttur að mús. STRIKING DISTANCE - 100 VOLTA SPENNUMYND Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð innan 16 ára. í NÝJIIOG STÓRGLÆSILEGU STJÖRNUBÍÓI HERRA JONES Sýnd kl. 7.10 og 11.30. Öld sak- leysisins Sýnd kl. 4.45 og 9. Sænsk-íslenska félagið í Jönköping Atvinnuþróunarfyrir- tæki útfærir íslenskt lýð veldisafmæli SÆNSK-íslenska félagið í Jönköping í Svíþjóð hefur samið við atvinnuþróunarverkefnið Kulturbruket — sem útleggja mætti sem menningarsmiðju — um að taka að sér útfærslu á íslensku lýðveldisafmæli. Jakob S. Jónsson, sem alla jafna starfar sem leiksviðsstjóri hjá Jönköpings lansteater, hefur verið lánaður til menningarsmiðjunnar og sagði hann að ákveðið hefði verið að beina hátíðarhöldunum að Svíum og eiga samstarf við íslensk fyrirtæki. Jakob sagði að menningarsmiðjan hefði starfað í tæpa fimm mánuði og væri rekin sem atvinnuþróunarverkefni út frá þeirri kenn- ingu að menning og iðnaðaruppbygging héldist í hendur. Þeir fá helst tækifæri til að starfa með smiðjunni sem hefðu verið atvinnulausir um langan tíma. OULIR TÓHLMR Háskólabíói fimmtudaginn 3. febrúar, kl. 20.00 Hljómsveitarstjóri: Petri Sakari Einleikari: Eugene Sarbu ffnisswjfl Bedrich Smetana: Moidá | Eduard Lalo: Symphonie Espagnole f Edward Elgar: Enigma tiibrigði i í SINFÓNlUHLJÓMSVEtT ÍSLANDS Sími Hllómsvolt allia íslendlnga 622255 Jakob sagði að sænsk- íslenska félagið í Jönköping hefði komið að máli við for- svarsmenn menningarsmiðj- unnar þegar starfsemin var nýhafín og beðið hana að taka að sér að framkvæma íslenskt þjóðhátíðarár. Hann sagði að verkefnið hentaði smiðjunni vel vegna þess að eitt af skil- yrðunum fyrir starfsemi hennar væri að hún mætti ekki taka viðskiptavini frá öðrum og með framkvæmd íslensks þjóðhátíðarárs væri alveg örugglega ekki verið að taka viðskiptavini frá neinum. Jakob segir að lagt hafí verið upp með það markmið að íslenskt þjóðhátíðarár ætti ekki bara að vera skemmtun á iíðandi stund heldur ætti líka að skilja eitthvað eftir, dreifast á langan tíma og höfða til Svía á öllum aldri. Þegar er búið að ráða sænsk- an framkvæmdastjóra sem á að halda utan um hátíðarhöld- in. Fyrir utan hann er gert ráð fyrir að 6—10 manns geti fengið vinnu við verkefnið. simi Stóra sviðið kl. 20.00: • GAURAGANGUR eftir Ólaf Hauk Simonarson. Tónlist: Hljómsveitin Nýdönsk. Lýsing: Páll Ragnarsson. Leikmynd og búningar: Guðrún Sigríður Haraldsdóttir. Leikstjórn: Þórhallur Sigurðsson. Leikendur: Ingvar E. Sigurðsson, Sigurður Sigurjónsson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Elva Ósk Ólafsdóttir, Erla Ruth Harðardóttir, Felix Bergsson, Flosi Ólafsson, Guðlaug María Bjarnadóttir, Hinrik Ólafsson, Hjalti Rögnvaldsson, Hjálmar Hjálmarsson, Jóhann Sigurðarson, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Rand- ver Þorláksson, Rúrik Haraldsson, Sigríður Þorvaldsdóttir, Sigurður Skúlason, Stefán Jónsson, Tinna Gunnlaugsdóttir, Örn Árnason o.fl. Hljómsveitin Nýdönsk: Danlel Ágúst Haraldsson, Björn Jörundur Friðbjörnsson, Stefán Hjörleifsson, Jón Ólafsson og Ólafur Hólm Einarsson. Frumsýning fös. 11. feb. - 2. sýn. mið. 16. feb. - 3. sýn. fim. 17. feb. - 4. sýn. fös. 18. feb. - 5. sýn. sun. 27. feb. • MAVURINN eftir Anton Tsjekhof Fös. 4. feb. - sun. 13. feb. - sun. 20. feb. • ALLIR SYNIR MÍNIR eftir Arthur Miller. Á morgun, örfá sæti laus, - lau. 5. feb. - lau. 12. feb. - lau. 19. feb. • SKILABOÐASKJÓÐAN eftir Þorvald Þorsteinsson Ævintýri með söngvum Sun. 6. feb. kl. 14, örfá sæti laus, - sun. 6. feb. kl. 17 - sun. 13. feb. kl. 14, - nokkur sæti laus, þri. 15. feb. kl. 17, nokkur sæti laus, - sun. 20. feb. kl. 14. Smíðaverkstæðið kl. 20.30: • BLOÐBRULLAUP eftir Federico Garcia Lorca Á morgun, nokkur sæti laus, - lau. 5. feb., uppselt, - lau. 12. feb. - lau. 19. feb. - fim. 24. feb., uppselt, - fös. 25. feb., uppselt. Sýningin er ekki við hæfi barna. Ekki er unnt að hleypa gestum í salinn eftir að sýning er hafin. Litla sviðið kl. 20.00: • SEIÐUR SKUGGANNA eftir Lars Norón Fös. 4. feb. - lau. 5. feb. - fim. 10. feb. - lau. 12. feb. Ekki er unnt að hleypa gestum í salinn eftir að sýning er hafin. Miðasala Þjóðleikhússins er opin alia daga nema mánu- daga frá kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Tek- ið á móti símapöntunum virka daga frá kl. 10.00. Griena linan 996160. icy/yie^i/yi eftir Pjotr I. Tsjajkovskí. Texti eftir Púshkín í þýðingu Þorsteins Gylfasonar. Sýning laugardaginn 5. febrúar kl. 20, næst sfðasta sinn. Sýning laugardaginn 12. febrúar kl. 20 síðasta sinn. Miðasalan er opin frá kl. 15-19 daglega, sýningardaga til kl. 20. Sími 11475 - Greiðslukortaþjónusta. MUNIÐ GJAFAKORTIN OKKAR! IÁ ill • GÓÐVERKIN KALLA! eftir Ármann Guð- mundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason. Fös. 4/2 kl. 20.30 - iau. 5/2 kl. 20.30. SÝNINGUM LYKUR í FEBRÚAR. • BAR PAR oftir Jim Cartwrlght SÝNT I ÞORPINU, HÖFÐAHLÍÐ 1 Fös. 4/2 kl. 20.30 - lau. 5/2 kl. 20.30. Ath. Ekkl or unnt að hleypa gestum í sallnn eftir að sýning hefst. Aðalmiðasalan I Samkomuhúsinu er opin alla virka daga nema mánudaga kl. 14-18 og fram að sýningu sýningardaga. Símsvari tekur við miðapöntunum utan opnunartima. Ósóttar pantanir að Bar pari seldar I miöasölunni I Þorpinu frá kl. 19 sýningardaga. Sími 21400 - Greiðslukortaþjónusta. LEIKFELAG REYKJAVIKUR Stóra svið kl. 20: • EVA LUNA leikrit eftir Kjartan Ragnarsson og Óskar Jónasson unnið upp úr bók Isabel Allende. Fim. 3/2 uppselt, fös. 4/2 uppselt, sun. 6/2, uppselt, fim. 10/2 örfá sæti laus, lau. 12/2 uppsett, sun. 13/2, örfá sæti laus, fim. 17/2, fös. 18/2, uppselt, lau. 19/2 uppselt, sun. 2/72, fim. 24/2, fös. 25/2 uppselt, lau. 26/2 uppselt. Geisladiskur með lögunum úr Evu Lunu til sölu í miðasölu. ATH. 2 miðar og geisladiskur aðeins kr. 5.000,- • RONJA RÆNINGJADÓTTIR e. Astrid Lindgren Aukasýning sun. 6/2, allra sfðasta sýning. • SPANSKFLUGAN e. Arnold og Bach Sýn. lau. 5/2, uppselt, næst síðasta sýning, fös. 11/2, siðasta sýning. Litla svið kl. 20: • ELÍN HELENA e Árna Ibsen Fös. 4/2, lau. 5/2, fös. 11/2, lau. 12/2,fáar sýningar eftir. Ath.: Ekkl er hægt að hleypa gestum inn f salinn eftir að sýning er hafin. Miöasalan er opin frá kl. 13-20 alla daga nema mánudaga. Tekið á móti miðapöntunum í sfma 680680 ki. 10-12 alla virka daga. Bréfasfmi 680383. - Greiöslukortaþjónusta. Óskalistinn Á óskalista menningar- smiðjunnar eru Meistarinn, leikrit Hrafnhildar Guð- mundsdóttur Hagalín, bók- menntaveisla, sem farið yrði með út á bókasöfn, skóla, sjúkrahús, elliheimili og stofn- anir, kvikmyndahátíð, ræðu- keppni í framhaldsskólum að fyrirmynd MORFÍS-keppn- innar, ritgerðasamkeppni í efri bekkjum grunnskóla, sjó- mannadagurinn og 17. júní. Þjóðhátíðardaginn ber upp á föstudag en stefnt er að því að hafa hátíðarhöld alla helg- ina í samvinnu við kaup- mannasamtökin og íþrótta- félögin í Jönköping. Þá hefur Jakob hitt forsvarsmenn Út- flutningsráðs og bent á mögu- leika þess að kynna ísland sem ferðamanna- og fram- leiðsluland, að afla markaða og koma á samvinnu. Jakob segir Jönköping-svæðið bjóða upp á ýmsa möguleika, þar sé markvisst unnið að því að bæta samgöngur og vöru- flutningamiðstöð Norður- landa sé staðsett þar, svo eitt- hvað sé nefnt. Jakob hefur einnig átt fundi með fram- kvæmdastjóra Kvikmynda- sjóðs og með hljómplötuútgef- endum og fengið jákvæðar undirtektir. Jakob segir ekki loku fyrir það skotið ef allt gangi að óskum að eitt atvinnuþróun- arvgrkefnið í tengslum við ís- lenska þjóðhátíðarárið geti orðið til þess að í Jönköping verði komið á fót miðstöð fyr- ir íslenskar þjónustuvörur, þekkingu og kynningu. „Von- andi sér einhver sér hag í að skoða það nánar, við tækjum því fegins hendi,“ sagði Jakob. Undirbúningur kominn á skrið Ef allt gengur vel verður byijað að æfa og setja upp Meistarann í haust. Þegar er frágengið hver verður leik- stjóri og hver gerir leikmynd. Samvinna á milli Jönköpings lánsteater og Riksteater, sem er ferðaieikhús, er í deiglunni vegna uppsetningarinnar og ef það gengur eftir verður farið í leikför með stykkið. Jakob sagði að nú væri verið að koma á samvinnuhópum skóla vegna ræðukeppni og ritgerðasamkeppni. Á sjó- mannadaginn er stefnt að því að setja upp sýningu um þorskastríðin og jafnvel fá íslenskt varðskip til að koma utan. Reynt verður að fá ís- lenska tónlistarmenn til að koma til Jönköping, STEF, Samtök tónskálda og eigenda flutningsréttar, hafa látið í té íslenskt efni, þegar hefur ver- ið gert samkomulag við skemmtistaði um að leika ís- lenska tónlist og útvarps- stöðvar hafa tekið vel í að gera þætti um íslenska tónlist í tengslum við vissar uppá- komur í íslenska þjóðarhátíð- arárinu. Ástm og peningarnir Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Móttökustjórinn („The Concierge"). Sýnd í Há- skólabíói. Leikstjóri: Barry Sonnenfeld. Hand- rit: Mark Rosenthal og Lawrence Konner. Aðal- hlutverk: Michael J. Fox, Gabrielle Anwar, Michael Tucker, Anthony Higgins og Bob Balaban. í bandarísku gaman- myndinni Móttökustjóran- um leikur Michael J. Fox móttökustjóra á stóru hóteli sem dreymir drauminn bjarta um að eignast ein- hvem daginn sitt eigið hót- el. Myndin hét „For Love or Money“ í Bandaríkjunum en gekk ekki þar sem skyldi og heitinu var breytt fyrir Evrópudreifínguna. En það er ekki nóg að breyta nafn- inu, einhver hefði þurft að breyta myndinni í leiðinni. Fox hefur ekki riðið feit- um hesti frá kvikmyndaver- unum í Hollywood upp á síðkastið og er þessi mynd dæmigerð fyrir verkefnaval- ið hjá honum að undan- förnu, léttvæg og einfeldn- ingsleg ef ekki galtóm smá- mynd þar sem veikleikar hans sem leikara koma ber- lega í ljós. Þessi reyndi leik- ari virkar yfírmáta stressað- ur frammi fyrir myndavél- unum en reynir hvað hann getur að sýnast ábúðamikill svona eins og móttökustjór- ar eiga sjálfsagt að vera með því að vera á eilífum þeytingi helst með farsíma við eyrað og skima sífellt í kringum sig aldrei í rónni. Það er svosem allt í lagi í smáskömmtun en svona er hann alla myndina og er ill- þolandi til lengdar. Nú er Fox ágætur leikari eins og þeir vita sem séð hafa t.d. „Casualties of War“ eftir Brian De Palma svo kannski þessi stressaði leikur sé að einhveiju leyti á ábyrgð leikstjórans, Barry Sonnenfelds (Addamsfjöl- skyldan 1 og 2). Og handrit- ið er ekki burðugt heldur, húmorinn er ekki mikill og persónugerðirnar grunnar. Segir það mestmegnis af því hvernig Fox fær milljóna- mæring, leikinn af breska leikaranum Anthony Higg- ins sem ekki hefur sést í langan tíma, til að leggja pening í draumahótelið sitt en báðir eru skotnir í sömu stelpunni, Gabrielle Anwar, svo spurningin verður á end- anum þessi; hvort er nú betra að lifa fyrir ást eða peninga? En svo þarf ekki einu sinni að velja á milli þegar allt kemur til alls í þessu gervilega Hollywood- ævintýri. Higgins er auðvit- að skíthæll og skóarasonur- inn hreppir prinsessuna og hálft konungsríkið að auki. Það er kannski skiljaniegt eftir allt að þessi mynd skuli sýnd undir dulnefni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.