Morgunblaðið - 14.08.1994, Side 19

Morgunblaðið - 14.08.1994, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 1994 19 Þetta kann að hljóma eins og þræl- dómur, en það er ekki svo. Þetta er það sem við höfum kosið okkur. Það sem við viljum. Það verður að gera hlutina með jákvæðu hugarfari eða snúa sér að einhverju öðru. Hlöðver dokar við, hugsar sig um og heldur svo áfram: „Sko, þræla og ekki þræla. Það sem skiptir öllu máli er að fjölskyldan sé ánægð og börnin vaxi vel úr grasi. Mér finnst ég vera heppn- asti maður í heimi að eiga þessa konu og þessi börn. Þetta er fjár- sjóður.“ Á skemmtistaðina Svona í lokin, hvernig getur þú ímyndað þér fjölskylduna eftir 5, 10 eða 15 ár? Enn á fullu í Hlölla- bátum? „Þessu er vandsvarað," segir Hlöðver. Hann hugsar sig um og segist síðan telja að flest verði við það sama og vonandi að það gangi vel. „En svona þar fyrir utan, þá reikna ég alveg eins með því, að eftir 10 til 15 ár þá veijum við ærnum tíma í að laumast á skemmtistaðina til að hafa auga með dætrum okkar!“ Gott íbúöarhótel á Benidorm aðeins kr. 39.900 Nú er allt uppselt út ágústmánuð til Benidorm og við seljum síðustu sætin þangað 7. og 14. september. Við höfum nú fengið 10 viðbótaríbúðir á afbragðsgóðu íbúðarhóteli, Flamingo Park sem er staðsett rétt við gamla bæinn og stutt á ströndina. Góður garður með sundlaug, bar, veitingastað og móttakan er opin allan sólarhringinn. Allar íbúðirnar eru með eldhúsi, baði, stofu, svefnherbergi og svölum. Njóttu einstaks veðurs á Benidorm í september við góðan aðbúnað á frábæru verði með Heimsferðum. Verð kr. 31) • 1)00 Verð kr. «) 4 • 1)00 pr. mann m.v. hjón pr. mann m.v. 2 íbúð, Flamingo Park. Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 624600 1 Flugvallaskattar og forfallagjöld kr. 3.660 f. fullorðna, kr. 2.405 f. börn. Blab allra landsmanna! - kjarni málsins!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.