Morgunblaðið - 20.08.1994, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1994 C 3
lag var hálf teiknimyndalegu fólkið
komið fyrir, og það er líka alveg
eins og það á að vera, hvorki er
gert lítið úr lögreglunni eða útlag-
arnir upphafðir. Það er engin illska
eða spilling sjáanleg í opnum,
skeggjuðum og oft mjög ungum
andlitum lögregluþjónanna.
Sýningargestir eyða góðum tíma
í að skoða og kynna sér þessa
sönnu sögu sem tapar engu í með-
förum Sidney Nolans. í þessum
málverkum er hann í senn skáld,
sagnfræðingur og leikritahöfundur.
Þegar myndirnar voru sýndar fyrst,
í Melbourne 1948, setti Nolan upp
með þeim stutta texta sem standa
fyrir hinn sögulega bakgrunn, texta
sem hann tók úr hinni viðamiklu
opinberu skýrslu lögreglunnar um
atburðarásina, úr dagblöðum þess
tíma, og nákvæmri ævisögu Kellys.
Þessir textar hafa fylgt myndunum
síðan, að auki hefur verið bætt við
hugleiðingum Nolans sjálfs sem
skráðar voru eftir honum rétt fyrir
dauða hans fyrir nokkrum árum.
Umhverfis aðalpersónuna byggði
Nolan frásögn þar sem hann velti
fyrir sér ofbeldi, ást, uppátækum,
völdum og ábyrgð einstaklingsins.
Inn (þetta óf hann þráð úr sjálfsaevi-
sögu og persónulegum symbol-
isma, en meira áberandi er þó, eins
og fyrr getur, meðhöndlun hans á
landslaginu, rannsókn hans á ástr-
ölskum óbyggðum, Ijósi og rými.
Nolan nær fullkomlega að mynd-
gera þá kyrrð og þögn sem er sam-
ferða útlaganum. Og einnig að sýna
kraft kúlunnar sem fellir mannaveið-
arann af hesti sínum. Þetta er frá-
saganraleg myndlist sem gengur
jafn vel upp í nærmyndum og víðum
senum, hvort sem Nolan er að sýna
víðáttumikið landslagið fyrir norðan
Melbourne eða hinn dæmigerða
ástralska smábæ sem Kelly og
menn hans höfðu gert sig útlæga
frá að eilífu. Þannig er heill heimur
af fínlegri skynjun í myndum eins
og þeirri þar sem Fitzpatrick lög-
regluþjónn gerir hosur sínr grænar
fyrir Kate Kelly í setustofunni. Það
er þar sem Ned séstfyrst, í gegnum
gluggan með byssu í hendi, og at-
burðarásin hefst.
Þessi málverk Sidneys Nolan eru
eins fersk, sterk og heillandi og þau
voru fyrir 50 árum. Gagnrýnendur
segja að nálægð sé lykilorðið, hvert
smáatriði er rétt og sérhvert atvik
virðist satt í þessum myndum, þar
sem hrífandi örlagasaga er sett
upp, í einni senu eftir aðra, og leið-
ir að átakanlegum endalokum.
Sagan af Ned Kelly hefur skír-
skotanir og tengingar sem ná langt
út fyrir Ástralíu. Þetta getur verið
stutt saga af atburðum sem gerð-
ust langt í burtu og fyrir löngu, en
einhversstaðar í goðsagnaheimin-
um er alltaf og verður pláss fyrir
einn Ned Kelly til. Eða eins og Sidn-
ey Nolan sagði: „Kelly var ekki hálf-
ur glæpamaður og hálfur uppreisn-
armaður, hann var uppreisnar-
umbótasinni. Það er ástæðan fyrir
því að hann komst inn í tungumálið
- hann gerði eitthvað fyrir heiminn."
Einar Falur Ingólfsson
FRIEDRICH HANDEL
L EFTIR GEORG
óstytt. í Bretlandi þar sem verkið
sé helst flutt sé til hefð í styttingum
en sér hafi fundist synd að sleppa
einhverju og í raun mætti ekkert
vanta. Allar aríurnar séu partur af
sögu, því sem þurfi að segja, og
áhugvert sé að kynnast perlum sem
maður hafi aldrei heyrt.
Hörður segir að lokum að í Sál
sé verið að fjalla um nákvæmlega
sömu tilfinningar og við séum að
berjast við rétt fyrir aldamótin 2000.
Ytri ramminn sé átök tveggja þjóð-
flokka en þungamiðjan snúist um
persónuleg átök, og tilfinningar eins
og öfund og trygglyndi, ást og hat-
ur. Mjög skýr skil séu á milli per-
sóna. Hándel noti Davíð sem tákn
fyri allar dyggðir á meðan Sál sé
persónugervingur öfundarinnar.
Eitt af mikilvægustu
verkum Hándels
Aðspurður um hvers vegna óra-
tórían Sál hafi orðið fyrir valinu seg-
ir Andreas Schmidt að hann hafi
viljað flytja eitthvað af verkum
Hándels. í fyrstu hafi Messías orðið
fyrir valinu en hann hafi hætt við
þá óratóríu af því að of margar
uppfærslur á henni væru í gangi.
Hándel hafi skrifað svo mörg verk
sem væru þess virði að vera sett
upp og eitt af
þeim væri Sál.
Andreas bætir við
að hann hafi
sungið Sál nokkr-
um sinnum þann-
ig að hann hafi
vitað að óratórían
væri þess virði að
flytja.
Að sögn
Andreas er aðal-
munurinn á
Messías og Sál
að í síðarnefndu
óratóriunni er
tónlistin notuð til
þess að lýsa ólíkum persónum og
þróun þeirra. í Sál er sögð heil-
steypt saga og áherslan á skýra
persónusköpun. Honum finnst
mjög áhugavert hvernig tónlistin er
notuð til að gera ólík skapbrigði
persónanna greinileg. Andreas seg-
ir að Sál síni aðrar hliðar á Hándel
sem tónskáldi en Messías og
spennandi sé að sjá skáldið í nýju
Ijósi.
Andreas segist skilja mjög vel
að fólki finnist þægilegt að hlusta
á verk sem það þekki. Tónlistarfólk
velji einnig oft best þekktu verkin
til flutnings frekar en að takast á
við ný yerk. Það sé hins vegar nauð-
synlegt að kynnast fleiri verkum.
Svo mörg verk séu til og Hándel
sé t.d. mun fjölbreyttara tónskáld
en hinn almenni áheyrandi geri sér
grein fyrir. Hann væri best þekktur
í Bretlandi þar sem öll verk hans
væru flutt með vissu millibili.
Andreas segir að hann hafi mjög
góða reynslu af því að syngja með
Mótettukórnum og hann viti að kór-
inn geti aðlagað sig að hvaða tón-
list sem er. Hann voni að íslenskir
áheyrendur vilji kynnast Sál af eigin
raun. Óratórían sé mjög dramatískt
og spennandi verk, og hann sé full-
viss um að hún sé eitt af mikilvæg-
ustu verkum Hándels.
Davíð - draumahlutverkið
Hrafnhildur Guðmundsdóttir
syngur Davíð, eitt af fimm stærstu
hlutverkunum í óratóríunni Sál. Það
fyrsta sem blaðamaður ynnir hana
eftir er hvort hlutverkið sé vanalega
sungið af konu. Hún svarar því til
að Hándel hafi haft ákveðna mezzo-
sópransöngkonu í huga þegar hann
hafi skrifað hlut-
verkið. Hún hafi
ekki getað tekið
þátt í fyrstu upp-
færslunni í janúar
1739 og því hafi
karlmaður frum-
flutt hlutverkið.
Nú séu kontrate-
nórar í tísku og
þeir oft fengnir til
að syngja hlut-
verk Davíðs. En í
óperum sé það
algengt að
mezzosópran fari
með hlutverk
ungra drengja.
Hrafnhildur segir að hún hafi ekki
þekkt þessa óratróríu Hándels þeg-
ar fyrst var talað um að setja hana
upp. Hún hafi þó þekkt Biblíusög-
una um Davíð og Golíat og það
hafi hjálpað til. Hún hafi fengið nót-
urnar í hendurnar í byrjun sumars
og æfingar með Herði hafi hafist
upp úr verslunarmannahelgi.
Hrafnhildi finnst frábært að fá að
túlka Davíð. Hún segir að hann sé
stórkostlegt draumahlutverk fyrir
sig. Tónlistin í verkinu sé áhrifamikil
og takist á við mannlegar tilfinning-
ar. Hún bætir við að það sé ævin-
týri að fá að syngja á móti Andreas
Schmidt, sem syngur Sál. Reyndar
séu allir einsöngvararnir meiriháttar.
Hrafnhildur segir að lokum að
uppfærslan á Sál sé skemmtileg-
asta verkefni sem hún hafi tekið
þátt í og það séu forréttindi að vinna
með Herði og Mótettukórnum. Hún
telur að enginn verði svikinn sem
komi á tónleikana tvenna.
Aðtakastávið
óþekkt verk
Þýski orgelleikarinn, Hannfried
Lucke, er mjög hrifinn af landi og
þjóð. Að sögn hans kom hann hing-
að í fyrsta skipti á síðasta ári og
heillaðist af landinu. Honum finnst
menningarlíf á íslandi ótrúlega ríkt
og áhugi almennings á listviðburð-
um mikill. Hann bendir á að hann
búi nú í fjárhagslega velstöndugu
ríki, Liechtenstein, en það sé ekki
eins ríkt af menningu og ísland. Hér
sé kannsk.i ekki eins mikið af pen-
ingum en íslendingar hafi sín eigin
þjóðareinkenni og í þau þrjú skipti
sem hann hafi komið hingað hafi
hann kynnst mjög háum gæðakröf-
um íslenskra tónlistarmanna.
Hannfried finnst Hörður Áskelsson
aðdáunarverður. Hann viti hvað
hann vilji og stjórni áhugamannakór
sem sé jafngóður og bestu atvinnu-
kórar.
Þetta er í annað sinn sem
Hannfried kemur fram með Mót-
ettukórnum sem hann álíturfrábær-
an. Hann hefur ekki tekið þátt í
flutningi á Sál áður og sagðist enn
vera að læra verkið þegar blaða-
maður ræddi við hann nokkrum
dögum fyrir frumflutninginn í Skál-
holtskirkju.
Hannfried telur mjög mikilvægt
að leika lítið spiluð verk. Það séu
allir alltaf að gera sömu hlutina í
stórborgum og flytja sömu þekktu
verkin. Hér sé fólk tilbúið að takast
á við eitthvað óþekkt. Hann segir
að Mótettukórinn geti sungið allt
og óratóría Hándels, Sál, sé mjög
áhugavert verk. Hann voni þess
vegna að fólk sýni áhuga og komi
og hlusti á laugardag og sunnudag.
AS
Sumartónleikar
Hallgrímskirkju
hafi þá verið nýir
af nálinni en geng-
ið vel og sýnt að
þarna væri nýr
markaður og tími
til tónleikahalds.
BÚSTAÐAKIRKJA OG
SAFNAÐARHEIMILI AKUREYRARKIRKJU
Minning um
tvæi ömmur
NAOMI Iwase, píanóleikari, og Jón Ragnar Örnólfsson, sellóleikari,
halda tvenna tónleika á íslandi nú i ágúst. Fyrri tónleikarnir verða í
Bústaðakirkju í Reykjavík þriðjudaginn 23. ágúst og þeir sfðari í Safnað-
arheimili Akureyrarkirkju fimmtudaginn 25. ágúst. Báðirtónleikarnir
hefjast klukkan 20.30.
efnisskránni eru: „Solitaire,"
einleiksverk fyrir selló, eftir
Hafliða Hallgrímsson, Sónata nr. 2
í b-moll fyrir píanó,. „Pezzo
Capriccioso" fyrir selló og píanó,
eftir P.l. Tsjækovskí, „Pagodes úr
„Estampes, eftur Debussy og Són-
ata nr. 3 fyrir selló og píanó, eftir
Beethoven.
Naomi Iwase er fædd í Japan
1972 en hóf píanónám í Brasilíu
aðeins þriggja ára að aldri og hélt
því áfram í San Fransisco, Tókýó
og loks í Royal Northern College
of Music í Manchester.
Hún hóf að leika opinberlega
aðeins 13 ára gömul og hefur hald-
ið tónleika í Bandaríkjunum, Japan,
Hollandi, Póllandi og Englandi. Þrjú
ár í röð, 1987 til 1989, var hún
valin til að leika á UNICEF-tónleik-
unum í San Fransisco og lék þá
meðal annars píanókonsert nr. 1,
eftir Mendelsohn.
Aðeins 16 ára gömul vann Nami
3. verðlaun í alþjóðlegu pianó-
keppninni í Chicago, sem kennd
er við Stravinski. Hún hefur hlotið
fjölmargar aðrar viðurkenningar,
nú síðast þriðju verðlaun í alþjóð-
legu Arthur Rubinstein samkeppn-
inni, þar sem hún fékk einnig sér-
staka viðurkenningu fyrir besta
túlkun á verkum Szymanowskis. í
kjölfar þessa var Naomi boðið að
fara í tónleikaferð um Pólland og
lék hún m.a. píanókonsert nr. 2,
eftir Chopin með Bydgoszicz fíl-
harmóníusveitinni og gerði upptök-
ur fyrir ríkisútvarp Póllands.
Aðalkennari Naomi Iwase í
Manchester er pólski píanóleikar-
inn Ryszard Bakst, fyrrverandi
sigurvegari og nú einn af dóm-
nefndarmönnum alþjóðlegu Chop-
in-keppninnar í Varsjá, sem haldin
er á fimm ára fresti. Naomi undir-
býr nú þátttöku í þeirri keppni árið
1995.
Jón Ragnar Örnólfsson er fædd-
ur í Reykjavík 1970. Hann hóf selló-
nám við Tónmenntaskóla Reykja-
víkur átta ára að aldri og fór síðan
í Tónlistarskólann í Reykjavík, þar
sem kennari hans var Gunnar Kvar-
an. Jón Ragnar tók stúdentspróf
frá Menntaskólanum í Reykjavík
árið 1990 og lauk einleikaraprófi
frá Tónlistarskólanum ári síðar. Af
því tilefni lék hann sellókonsert
Schumanns með sinfóníuhljóm-
sveit í Háskólabíói og hélt einleiks-
tónleika í íslensku óperunni.
Jón Ragnar hóf framhaldsnám
við tónlistarháskólann í Manchest-
er, The Royal Northern College of
Music, haustið 1991. Hann útskrif-
aðist með „Postgraduate Diploma
in Advanced Studies in Perform-
ance“ vorið 1993. Sellókennari
hans var Moray Welsh, þekktur
einleikari, sem gegnir nú einnig
stöðu fyrsta sellóleikara við Sinf-
óníuhljómsveit Lundúna.
Auk framhaldsnáms í sellóleik
hjá rússneska sellóleikaranum
Leonid Gorokæhov í Manchester
undirbýr Jón Ragnar að taka meist-
aragráðu vorið 1995 og fjallar próf-
ritgerð hans um tónsmíðar Atla
Heimis Sveinssonar. Meðal ann-
arra kennara og sellóleikara, sem
Jón Ragnar hefur hlotið leiðsögn
hjá um lengri eða skemmri tíma
má nefna Channing Robbins,
Ralph Kirschbaum, Arto Noras,
Erling Blöndal-Bengtson og Bern-'
ard Greenhouse.
Jón Ragnar tók þátt í frumflutn-
ingi verksins „Tíminn og vatnið,"
eftir Atla Heimi Sveinsson undir
stjórn Pauls Zukovskys á Listahá-
tíð í Reykjavík í júní síðastliðnum
og gegndi stöðu fyrsta sellóleikara.
í samtali við Morgunblaðið sagði
Jón að þau Naomi væru aðeins
stödd hér í tvær vikur. „Við komum
heim til að halda þessa tvennu
tónleika, kíkja á landann og heim-
sækja fjölskylduna," sagði hann.
Um samsetningu efnisskrárinnar,
sagði Jón að hún væri hugsuð
þannig að hér væri fremur um sam-
leikstónleika að ræða en dúett.
„Við leggjum megin áherslu á ein-
leiksverk og leikum aðeins eitt
stórt dúó saman. í öðrum verkum,
sem hafa bæði hljóðfærin er annað
þeirra ríkjandi."
En hvert er tilefnið?
„Þetta eru minningartónleikar,"
sagði Jón. „Tónleikarnir hér í
Reykjavík eru í minningu Finnborg-
ar Örnólfsdóttur og þeir á Akur-
eyri í minningu Arnfríðar Ingimars-
dóttur. Þær voru ömmur mínar,
sem ég missti í fyrra, báðar sama
árið.“
Aðspurður hvort hann og Naomi
hyggðu á áframhaldandi samvinnu
á tónleikasviðinu, sagði Jón: „Já,
en ekki alveg á næstunni. Það er
mikið að gera næsta árið hjá okkur
báðum. En það verður örugglega
tími til að æfa eitthvað sarnan."
ssv
Jón Ragnar Örnólfsson
og Naomi Iwase.