Morgunblaðið - 29.09.1994, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 29.09.1994, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1994 17 FERJUSLYSIÐ I EYSTRASALTI Hverfandi líkur á að Islend- ingar hafi verið í feijunni ANDRES Tamm, stýrimaður á eistneska skipinu Kull, í brúnni Eistneskir sjómenn á Húsavík Eru slegn- ir yfir tíð- indunum ANDRES Tamm frá Tallinn, stýri- maður um borð í Kull, sem landaði afla úr Smugunni á Húsavík í gær, sagði að eistneska áhöfnin væri felmtri slegin yfir feijuslysinu á Eystrasalti í fyrrinótt. „Við vorum í bókabúð hérna og þá var okkur sagt að fréttir af slys- inu hefðu verið í útvarpinu," sagði hann. „Okkur brá mikið, þetta er svakalegt. Við höfum engar fregnir haft að heiman og vitum ekkert. Ég ætla að hringja heim í kvöld og reyna að fá einhveijar fréttir, við höfum ekki haft tíma í dag því við höfum verið að vinna við löndun- ina,“ sagði Andres Tamm. Fimmtán Eistlendingar eru í áhöfn Kulls, flestir frá Tallinn. Hann sagði mennina eðlilega áhyggjufulla. „Ég hef aldrei ferðast með þessari feiju en ég á nokkra vini sem vinna hjá þessu fyrirtæki, ég veit ekki hvort þeir voru með í þessari ferð,“ sagði Andres Tamm. „ÞAÐ HEFUR ekki verið staðfest formlega hvort íslendingar voru um borð í feijunni Estoniu, en mér þykja líkumar á því hverfandi miðað við þær upplýsingar sem nú liggja fyrir. Þá hafa sendiráðinu ekki borist nein- ar fyrirspumir frá fóiki, sem telur sig hafa ástæðu til að .óttast um af- drif ættingja sinna,“ sagði Heimir Hannesson, sendiráðsritari í sendiráði íslands í Stpkkhólmi, í samtali við Mogunblaðið síðdegis í gær. Hannes sagði að ef íslendingar hefðu verið um borð í feijunni hefðu þeir hugsanlega verið skráðir í hóp um 500 Svía, en af þeim eru um 450 taldir iátnir. Engin íslensk nöfn „Miðað við upplýsingar okkar er engin íslensk nöfn að finna í þessum hópi, en það fer tvennum sögum af því hversu áreiðanlegt bókunar- kerfi Eistlendinganna var.“ Hannes sagði að í fjölmiðlum í Svíþjóð væru átakanlegar lýsingar frá slysinu. „Um borð í skipinu var góð ráðstefnuaðstaða og einn þeirra hópa sem fundaði þar vom 60 lög- reglumenn af Stokkhólmssvæðinu. Af þeim eru 5 á lífi nú. Þá fórst hópur ellilífeyrisþega frá Jönköping og svona má lengi telja. Að því er ég best veit hafa sænsk stjórnvöld ekki birt lista yfir nöfn þeirra sem komust af, svo ættingjar farþeg- anna um borð bíða milli vonar og ótta,“ sagði Hannes Heimisson, sendiráðsritari. Reuter Skipbrots- mönn- um hjálpað BJÖRGUNARMENN koma með tvo af þeim, sem þeir fundu á lífi, til Turku í Finnlandi. Henrik Sill- aste, sem er annar frá hægri, var skipverji á Estonia og sagði í við- tali við sænska fréttastofu, að skuthlerarnir hefðu ekki lokast alveg og sjórinn komist inn með þeim. Eins og sjá má eru skip- brotsmennimir berfættir og var injög af þeim dregið. - Almennur lífeyrissjóður VIB — var stofnaður árið 1989. ALVÍB er jullgildur lífeyrissjóður með öllum sömu réttindum og skyldum sem slíkum sjóðifylgja. Sjóðurinn jjárfestir í traustum markaðsskuldabréjum ogskilaði 15,1% raunávöxtun árið 1993.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.