Morgunblaðið - 05.10.1994, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 05.10.1994, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 1994 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Ástkær móðir mín, fósturmóðir og sambýliskona, INGIBJÖRG INGIMUNDARDÓTTIR, Ásvallagötu 51, Reykjavík, lést á Hrafnistu í Reykjavík 3. október sl. Ólafía Kristfn Sigurgarðsdóttir, Erfa Andrésdóttir, Óli Jónsson. t Útför eiginmanns míns, föður, tengda- föður og afa, HELGA JÚLÍUSSONAR úrsmiðs, sem andaðist 27. september síðastlið- inn, fer fram frá Akraneskirkju í dag, miðvikudaginn 5. október kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög. Hulda Jónsdóttir, Pjetur Már Helgason, Sigurbjörg E. Eiríksdóttir, Hallfríður Helgadóttir, Símon Jón Jóhannsson, Sigriður K. Óladóttir, Agnar Guðmundsson og barnabörn. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÍSEY HALLGRÍMSDÓTTIR frá Vfðivöllum fremri f Fljótsdal, sem andaðist 28. september sl., verður jarðsungin frá Valþjófs- staðakirkju föstudaginn 7. október kl. 14.00. Bergljót Jörgensdóttir, Hrafnkell Björgvinsson, Anna Jörgensdóttir, Ólafur Valdimarsson, Þorgrímur G. Jörgensson, Ásta Magnea Sigmarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskuleg móðir okkar, ERNA HAFDÍS BERG KRISTINSDÓTTIR, Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni 12, Reykjavík, sem lést 30. september, verður jarð- sungin frá Bústaðakirkju mánudaginn 10. október kl. 13.30. Borgar Þór Guðjónsson, Bergþóra Berta Guðjónsdóttir, Ragnheiður Björk Guðjónsdóttir. t Þökkum auðsýnda samúð við fráfall og útför föður okkar og bróður, EINARS PÁLSSONAR, Hátúni 10, Reykjavík. Þórarinn Einarsson, Stefanfa Björg Einarsdóttir, Ingvar N. Pálsson og aðrir aðstandendur. t Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ÁSTU HJARTARDÓTTU R, Laugarnesvegi 84. Haraldur Steingrímsson, Jóna Ólafsdóttir, Þorvaldur Kristjánsson, Ástríður Haraldsdóttir, Árni Kristjánsson, Steingrímur Haraldsson, Þóra Pétursdóttir, Arnar, Ásta, Kristín, Anna María, Haraldur, Sandra og Helena. HELGIJÚLÍUSSON + Helgi Júlíusson úrsmiður fædd- ist í Skógurn í Reyk- holtdal 20. júní árið 1918. Hann lést á Landspítalanum 27. september síðastlið- inn. Foreldrar Helga voru hjónin Júlíus Bjarnason, bóndi á Leirá í Leir- ársveit í Borgar- firði, og Hallfríður Helgadóttir kenn- ari. Helgi átti þrjá bræður; Kristin bónda á Leirá, Bjarna vélstjóra í Reykjavík og Þórð verkfræðing í Mosfellsbæ. Arið 1944 kvæntist Helgi eftir- lifandi konu sinni, Huldu Jóns- dóttur frá Skjöldólfsstöðum á Jökuldal. Hulda og Helgi eign- uðust þrjú börn. Þau eru; Pjet- ur Már fulltrúi, f. 1945, kvænt- ur Sigurbjörgu Erlu Eiríksdótt- ur og eiga þau þrjár dætur, Atli Þór úrsmiður, f. 1950, d. 1980, hann kvæntist Sigríði Kristinu Oladóttur og eignuð- ust þau þrjú börn, og Hallfríður framhaldsskólakennari, f. 1957, gift Símoni Jóni Jóhanns- syni, Hallfríður á tvær dætur af fyrra hjónabandi. Helgi stundaði nám við Héraðsskól- ann í Reykholti árin 1935- 1937. Hann lauk íþróttakenn- araprófi frá Iþróttakennara- skólanum á Laugavatni árið 1939 og starfaði sem íþrótta- kennari á vegum UMFI árin 1940-1942. Frá árinu 1942 til 1944 vann Helgi við lögreglu- störf í Reykjavík. Arið 1944 fluttist hann til Akraness, starf- aði fyrst sem lögregluþjónn, en tók svo við forstöðumannsstarfi Bjarnalaugar og kenndi þar jafn- framt sund um ára- bil. Helgi hóf versl- unarrekstur á Akranesi árið 1956 og setti á fót úr- smíðaverkstæði, en þá hafði hann lagt stund á nám í úr- smíði við Iðnskól- ann á Akranesi og hjá Eggerti Hannah, úrsmíða- meistara í Reykaj- vík. Hann Iauk sveinsprófi í úr- smíði árið 1958 og meistara- prófi árið 1967. Eiginkona Helga starfaði hjá honum í versluninni meira og minna alla tíð en vorið 1990 seldu þau reksturinn og settust í helgan stein. Sama ár fluttu þau til Reykjavíkur í þjónustuíbúðir aldraðra við Bólstaðarhlíð. Árið 1992 lá leið þeirra aftur til Akraness og bjuggu þau á dvalarheimilinu Höfða þar til Helgi lést. Þar býr nú eftirlif- andi kona hans. Helgi vann mikið að ýmiss konar félags- störfum. Hann var um árabil félagi í Rotaryklúbbi Akraness. Oddfellowstúkunni Agli, Stang- veiðafélagi Akraness. Norræna félaginu og Ursmíðafélagi Is- lands. Hann sat í sljórn íþrótta- bandalags Akraness og var um tíma formaður Sundfélags Akraness. Einnig var hann gerður að heiðursfélaga Ung- mennafélagsins Hauks í Leirár- sveit. Helgi söng árum saman með karlakórnum Svönum og Skagakvartettinum. Jarðaför Helga fer fram frá Akranes- kirkju í dag. Kyrrir dagar og hljóðir, haust. Húmskyggðar nætur. Einnig hljóðar og kyrrar á þessu hausti. Lauffall í litfölum garði. Dökkbrýndur máni og bleikur. Sigð hans reiddi til höggs. (Símon Jón Jóhannsson.) Nú er Helgi Júlíusson tengdafað- ir minn látinn. Með honum er geng- inn góður drengur og ljúfur. Eg kynntist Helga ekki fyrr en á hans efri árum, kom seint inn í fjölskyld- una en með okkur tókst góð vin- átta. Eftir fyrstu kynni okkar varð mér brátt ljóst að hvar sem Helgi fór gat hann sér gott orð, hann var vinmargur og vinsæll. Um árabil rak hann úrsmíðaverkstæði og verslun við Akratorg á Akranesi, hann þekkti flesta ef ekki alla bæj- arbúa og hvarvetna hef ég fundið hlýhug í hans garð. Hann var einn þessara manna sem öllum líkar vel við og hann laðaði að sér fólk. Ljúf- Eríldnklvjur (ílæsilcg kaffi- hlaðborð íallegir salirogmjög góð þjónusta. llpplýsingar ísúna22322 FLUGLEIBIR HÖTEL LOFTLEIMft mennsku hans, greiðvikni og ein- stöku lundarfari var við brugðið. Hann var skemmtilegur viðræðu, glettinn og spaugsamur, sagði sög- ur, fór með vísur og ef svo bar undir hermdi hann eftir því fólki sem ekki batt bagga sína sömu hnútum og samferðamennirnir. Það er gott að hafa þekkt slíkan mann. Helgi var afskaplega félagslynd- ur maður og starfaði árum saman með ýmsum félögum. Hann var söngmaður góður og auk þess að syngja með karlakórnum Svönum um árabil naut hann vinsælda ásamt félögum sínum í Skagakvart- ettnum sem söng m.a. Skagamenn, Skagmenn skoruðu mörkin, Umbrarassa og fleiri vinsæl lög inn á hljómplötu. Eftir að Helgi hætti störfum fyrir fáeinum árum fluttist hann ásamt eiginkonu sinni til Reykjavíkur og bjuggu þau í þjón- ustuíbúð fyrir aldraða við Bólstaða- hlið. Þar var Helgi brátt vinsæll, spilaði við fólkið og stóð fyrir ýms- um skemmtilegum uppákomum á samkomum íbúanna. Hann var gerður að formanni húsfélagsins og beitti sér m.a. fyrir því að gerður var „púttvöllur" á grasflötinni fyrir utan húsið og haldin golfmót. Þegar þau hjónin fluttu á ný til Akraness og bjuggu á dvalarheimilinu Höfða hélt Helgi uppteknum hætti. Hann stóð fyrir ýmsu til skemmtunar á kvöldin, las fyrir fólkið, sagði sög- ur, sankaði að sér kveðskap og gátum til að fara með í góðum hópi, var hrókur alls fagnaðar. Hann flutti með sér hugmyndina um „púttvöllinn“ og stóð fyrir því að honum var komið á fót. Skömmu áður en Helgi dó hafði hann útveg- að heimilinu ballskákborð og fengið því pláss í húsinu. Helgi sýndi dóttur sinni og fjöl- skyldu okkar allri mikinn hlýhug. Hann fylgdist með öllum þeim margvíslegu verkefnum sem hver fjölskyldumeðlimur var að glíma við hveiju sinni í starfi, skóla og heima við og lagði oft og tíðum eitthvað til málanna án þess að vera á nokk- urn hátt afskiptasamur. Hann hafði áhyggjur af velferð okkar allra og hjálpaði þegar eitthvað bjátaði á. Þetta voru reyndar einkennandi þættir í persónugerð Helga, að bera umhyggju fyrir öðrum og hjálpa ef honum var það unnt. Oft gátum við Helgi setið saman og spjallað um menn og málefni, gamlan tíma, skrýtið fólk eða spaugileg atvik og hlógum mikið. Ef pólitík bar á góma greindi okkur stundum á og þá gerðum við góðlát- legt at hvor í öðrum. Helgi var ekki alltaf sammála vinstri tilþrifum undirritaðs og beitti þá föðurlegri framsóknarmennsku sinni til að freista þess að snúa mér á sitt band sem oftast endaði með því að við hlógum að öllu saman. Aldrei man ég eftir Helga öðruvísi en í léttu skapi þó að hann léti í ljós áhyggj- ur af öðrum. Hann hafði síst áhygg- ur af sjálfum sér og var sáttur við líf sitt þegar hann fann dauðann nálgast. Þrátt fyrir hina ljúfu lund Helga hafði lífið ekki alltaf farið um hann mjúkum höndum. Sonar- missirinn varð honum mikið áfall og sennilega hafa þau sár sem hann hlaut þá aldrei gróið að fullu þó að ekki bæri á þeim í daglegu lífi Helga. Barnabörnum sínum og ekkju sonar síns reyndist hann ein- staklega vel. Nú hafa þeir Atli hist að nýju. Þegar Helgi lagðist inn á sjúkra- hús fyrir rúmum mánuði óraði eng- an fyrir því hversu stutt hann ætti ólifað. Hann hafði vissulega fengið alvarlegan sjúkdóm en hann var að öðru leyti vel á sig kominn, hafði gengið og synt reglulega og kenndi sér ekki annars meins. Engum var ljóst hvert stefndi þar til fáum dög- um fyrir andlát hans. En svo fór sem fór. Nú hefur lífsklukka hans verið stöðvuð en við sem eftir lifum yljum okkur við minninguna um tifið og hin þýða slátt sem við feng- um að njóta meðan hann lifði. Guð gefi Huldu og öðrum aðstandendum styrk í sorg sinni. Megi þér, Helgi, farnast vel á guðs vegum. Þakka þér fyrir allt. Símon Jón Jóhannsson. Okkur systurnar langar að minn- ast Helga afa með örfáum orðum. Það er ótrúlegt til þess að hugsa að afí sé farinn. Hann sem var allt- af svo hress og kátur. Við eigum margar góðar minningar um heim- sóknir okkar til afa og ömmu upp á Skaga þar sem alltaf var tekið vel á móti okkur og áttum við marg- ar notalegar stundir með þeim sem við munum minnast. Það er tómleikatilfinning sem við finnum fyrir nú er við kveðjum afa með söknuði. Við þökkum honum fyrir allar yndislegu samverustund- irnar. Við biðjum Guð að veita ömmu styrk í sorg sinni. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vöm í nótt. Æ, virzt mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. S. Egilsson.) Hulda, Björg og Bryndís. Mig langar með nokkrum orðum að minnast Helga Júlíussonar úr- smiðs. Helgi var lærður íþrótta- kennari og var hann umsjónarmað- ur sundlaugarinnar á Akranesi í nokkur ár. A því tímabili fór hann að gera við vekjara og stofuklukkur fyrst, fyrir vini og kunningja, en síðar spurðist orðstír hans út þann- ig að áður en við varð litið var hann farinn að gera við klukkur fyrir nær alla bæjarbúa því þörfin var mikil og enginn úrsmiður bú- andi á Akranesi. Þegar hér var komið sögu setti Helgi upp úra- og skartgripaverslun ásamt Magnúsi E. Baldvinssyni úrsmið í Reykjavík og hóf úrsmiðanám hjá Eggert Hannah úrsmiðameistara sem hann lauk síðar í tímans rás. Helgi rak ásamt konu sinni Huldu Jónsdóttur glæsilegt fyrirtæki til margra ára og þegar yngri sonur þeirra hafði aldur til lærði hann úrsmíði í Úr- smiðaskólanum í Ringsted í Dan- mörku og ætlaði Helgi honum að taka við fyrirtækinu þegar þar að kæmi. Því miður varð ekki af því þar sem sonur Helga, Atli, fórst við

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.