Morgunblaðið - 25.11.1994, Side 14

Morgunblaðið - 25.11.1994, Side 14
14 FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Myndband um Reykja- vík verð- launað MYNDBAND Ráðstefnuskrif- stofu Islands „Out of this world“ lenti í 2.-3. sæti í sam- keppni Evrópusambands ráð- stefnuborga um besta kynning- armyndband áfangastaða fyrir fundi og ráðstefnur. Hlaut myndbandið sérstök heiðursverðlaun á aðalfundi sambandsins, nýverið, ásamt myndbandi frá Granada. Aðal- verðlaunin „Golden ECU Aw- ard“, voru veitt fyrir myndband um Helsinki. Framleiðandi íslenska mynd- bandsins var Ide Film og Helgi Felixson. Á fundi Evrópusam- bands ráðstefnuborga, í Hels- inki, gerðist Reykjavíkurborg aðili að samtökunum. Þau telja nú um 90 borgir frá yfir 30 löndum. Reykjavíkurborg gagnrýnir nágrannasveitarfélögin fyrir mismunun í útboðum Fyrirtæki í Reykjavík bera skarðan bliit frá borði STJÓRN Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar hefur ítrekað við nágrannasveitarfélögin á höfuð- borgarsvæðinu að þau standi við samkomulag frá því í október í fyrra um að líta á svæðið sem einn opinn markað. Á fundi sínum á mánudag ákvað stjórnin að hefja á ný viðskipti við fyrirtæki í Kópavogi en þeim hafði verið frestað tímabundið hjá stofnuninni í mótmælaskyni við þá tilhneigingu bæjaryfirvalda þar að beina viðskiptum sínum til fyrirtækja í bænum. Stjóm Innkaupastofnunar fékk ábendingu fyrr þessu ári þess efnis að Kópavogsbær hefði einung- is boðið fyrirtækjum í bænum að taka þátt í lok- uðu útboði á framkvæmdum við fimmta áfanga Hjallaskóla. Hér var um nokkuð stórt verk að ræða þar sem kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 80 milljónir króna. í kjölfar þessa máls óskaði borgar- stjóri eftir því á fundi með bæjarstjórum á höfuð- borgarsvæðinu að sveitarfélögin legðu fram gögn um hvernig staðið hefði verið að útboðsmálum frá því í október á sl. ári. Meðan beðið var eftir þess- um upplýsingum ákvað stjórn Innkaupastofnunar að stöðva öll viðskipti við fyrirtæki í Kópavogi. Þannig hefur um skeið hvorki verið samið við verktaka úr Kópavogi né keyptar inn vörur frá fyrirtækjum í bænum. Að sögn Alfreðs Þorsteinssonar, stjómarfor- manns Innkaupastofnunar Reykjavíkur, hafa gögn um útboðsmál í Kópavogi nú borist til stofnunar- innar og voru til umræðu á stjórnarfundi á mánu- dag. Var þar ítrekað að sveitarfélögin yrðu að standa við samkomulag sitt. Samþykkt var að hefja á ný viðskipti við fyrirtæki í Kópavogi í trausti þess að ekki yrði um frekari brot að ræða á samkomulaginu. I skýrslu um útboð Reykjavíkurborgar á tímabil- inu 5. októbér 1993 til 11. nóvember 1994 kemur fram að utanbæjarfýrirtæki eru með hátt í helm- ing af verkefnum í opnum útboðum á vegum borg- arinnar. Þannig hafa aðilar í Kópavogi, Mös- fellsbæ, Garðabæ, Hafnarfirði og víðar fengið verk á vegum Reykjavíkurborgar fyrir 636 milljón- ir af 1.321 milljóna framkvæmdum. Þar að auki hafa utanbæjaraðilar fengið 338 milljóna verk gegnum lokuð útboð af 613 milljóna framkvæmd- um. „Reykjavík er opin markaður“ Hins vegar kemur í ljós að fyrirtæki í Reykja- vík fengu einungis verk fyrir 20 milljónir af 56 milljóna framkvæmdum í Garðabæ á áðurnefndu tímabili. Þá fengu Reykjavíkurfyrirtæki einungis verk að fjárhæð 22 milljónir af 232 milljóna fram- kvæmdum hjá Hafnarfjarðarbæ og tæplega 36 milljónir í sinn hlut af 420 milljóna framkvæmdum Kópavogs. Samtals er hlutur fyrirtækja í Reykja- vík um 11% af framkvæmdum nágrannajveitarfé- laganna. „Þetta sýnir það að Reykjavík er opinn markað- ur þar sem allir fá að athafna sig en aftur á móti er mjög rík tilhneiging hjá nágrannasveitarfélög- unum til að beina viðskiptum til fyrirtækja innan þeirra," sagði Alfreð. Opið mánudtil fimmtud. kl. 12 -18.30, föstud. kl. 12 -19 og laugard. kl. 10 -16. Odýrara en í Englandi! Spariskór stelpu Einnig. kr. 1.250 köílóttar skyrtur stráka kr. 1.390 M'íj'XIrkf * ?.9? ^„ _ _ Bómuilarhettubolir Stærðir; 21 -30 svartir gráir kr 1990 Barnaúlpur kr. 1.995 Staerðir 116-176. ÞOltPII) -i Vönduð Jakkaföt frá kr. 9.900 Skyrta + bindi kr. 1.290 Ath! Takmarkað Stjórnvöld greiða fyrir Rússlandsviðskiptum Samstarf lána- stofnana í imdirbimiiigi IÐNAÐAR- og viðskiptaráðuneytið hefur nú í undirbúningi að koma á föstu samstarfí þeirra íslensku lána- stofnana sem hafa heim- ild til eða beinlínis lög- bundið hlutverk að greiða fyrir ijárfesting- um íslenskra fyrirtækja utan íslands. Þetta kom fram á morgunverðar- fundi Verslunarráðs ís- lands í gær þar sem fjall- að var um viðskipti ís- lands og Rússlands. Á fundinum var greint frá því því að hjá Evrópu- bankanum er nú verið að vinna að stofnun áhættufjármagnssjóðs m.a. á Bar- entssvæðinu og fyrir Norðaustur- Rússland. Með því munu opnast nýir fjármagnsmöguleikar fyrir smærri fyrirtæki, þ.e. af þeirri stærð sem líklegt er að íslensk fyrirtæki vildu a.m.k. í upphafi verða aðilar að. Sjóðirnir leggja hlutafé aðallega í samstarfsverkefni með rússneskri þátttöku. Viðskiptafulltrúi í Mosku ráðinn Kom fram að ráðuneytið mun beita sér fyrir sérstakri kynningu á þessum sjóðum um leið og þeir taka til starfa á næstu mánuðum. Starfsmönnum Evrópubankans sem fjalla um málið verður boðið að taka þátt í þeirri kynningu auk þess sem viðræður verða teknar upp um hvernig fella megi íslenskar aðgerðir að starfsemi þéssa sjóðs. í máli Sighvats Björgvinssonar, iðnaðar- og viðskiptaráð- herra, kom fram að nú hefur endanlega verið ákveðið að höfðu samráði við utanríkisráðherra að ganga til samninga við Utflutningsráð Islands um ráðningu viðskipta- fulltrúa til Moskvu frá og rereð næstu áramótum. Hefur tekist samkomulag um að kostnaður skiptist til helminga milli ráðu- neytisins og Útflutnings- ráðs. Þá kom fram að iðnaðar- og við- skiptaráðuneytið hefur m.a. í sam- vinnu við Hafnarsamband sveitarfé- laga látið taka saman rit á rússnesku og ensku um helstu reglur sem gilda um viðskipti með fisk, sóttvamar- og heilbrigðisreglur og almonnt þá þjónustu sem í boði er í íslenskum höfnum. Bæklingurinn hefur verið prentaður í 3.500 eintökum og verið er að undirbúa umfangsmikla dreif- ingu í samráði við ýmsa aðila. I þeim tilgangi að auðvelda mark- aðssetningu vöru i Rússlandi hefur nefnd þeirri sem falið var að gera tillögur um styrkveitingar vegna markáðssóknar á EES-svæði lagt til að hér eftir verði styrkir ekki bundn- ir við EES-svæðið heldur nái einnig til annarra markaðssvæða. Þetta er þó háð því að framhald verði á þeim styrkveitingum. Veljum íslenskt! Handunnar ullar- og gjafavörur í miklu úrvali. Önnumst ódýrar hraðsendingar um allan heim. Álafossbúðin við Austurvöll við hliðina á Hótel Borg, sími 13404.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.