Morgunblaðið - 01.04.1995, Blaðsíða 68
68 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
BREF
TIL BLAÐSINS
Dýraglens
Grettir
i
I
\
f
i
THEN YOU'LL BE A LONELV PER50N WHO KW0W5 HOÍa) T0 PANCE
'IRr
(
y TpÉ POCfOg Ki
15 M ^
Ég veit ekki...
ég er bara
einmana flest-
um stundum...
Hvers vegna Danstíma? En hvað ef eng- Þá verður maður ein-
reynir þú ekki að inn vill dansa mana einstaklingur sem
fara í danstíma? við mig kann að dansa.
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 5691329
LEIKHÓPURINN Perlan haustið 1994.
Hvað er LEO?
Frá Önnu Maríu Geirsdóttur:
LEO er unga fólkið í Lionshreyf-
ingunni. Leo stendur fyrir Lead-
ership, Experience og Opportun-
ity, eða Forysta, Reynsla og Tæki-
færi. Fyrsti Leoklúbburinn var
stofnaður í Pennsylvaníu í Banda-
ríkjunum árið 1957 og í dag eru
nærri 5000 Leoklúbbar í 122 lönd-
um, með 120 þúsund félaga. Allir
Leoklúbbar eru blandaðir strákum
og stelpum á aldrinum 14-28 ára.
Á íslandi eru starfandi þrír Leo-
klúbbar, Leokl. Perla í Reykjavík,
Leokl. Siggi á Suðurnesjum og
Leokl. Mjölnir í Kópavogi.
Leoklúbburinn Siggi var
stofnaður 23. okt. 1988 og eru
félagsmenn þar um 10 talsins.
Leoklúbburinn Perla var stofnaður
31. maí 1992 og eru félagsmenn
í dag 28 talsins, (þess má geta
að eftir áramót hefur félagsmönn-
um í Leokl. Perlu fjölgað um 50%)
og svo loks Leokl. Mjölnir sem var
stofnaður 16. mars síðastliðinn
með 28 stofnfélaga.
í Leoklúbbum starfar ungt fólk
sem hefur áhuga á félagsstarfi og
er tilbúið að axla ábyrgð. Við vinn-
um að mannúðarmálum eins og
Lions og má geta þess að dagana
31. mars til 2. apríl nk. munum
við taka þátt í Landssöfnun Lions
, „Rauðu fjöðrinni“, og skal ágóða
af sölunni varið til gigtarrann-
sókna.
í desember síðastliðnum út-
nefndi svo Leoklúbburinn Perla
Björk Guðmundsdóttur söngkonu
„Melvin Jones-félaga“, en það er
æðsta viðurkenning Lionshreyf-
ingarinnar.
En Leoklúbbar vinna ekki ein-
ungis að mannúðarmálum. Við
leggjum áherslu á að auka þekk-
ingu og reynslu í félagsstörfum
t.d. með þjálfun í ræðumennsku
og fundarstjórn og aukum þannig
sjálfsöryggi og samstarfshæfileika
okkar.
Leo er góður og traustur félags-
skapur sem hittist hálfsmánaðar-
lega og er venjan að hafa annan
fundinn formlegan. Á hinum fund-
inum er gert eitthvað skemmtilegt
eins og að fara í keilu, kaffihús,
Bláa lónið o.s.frv. Einnig förum
við í ferðalög og má þess geta að
Leoklúbburinn Perla fór í ferð nið-
ur Hvítá síðastliðið sumar.
Fyrir utan gott samstarf milli
Leoklúbba á Islandi höfum við
verið að stuðla að góðu samstarfi
milli Leoklúbba á Norðurlöndun-
um. í janúar síðastliðnum var
haldið Norðurlandaþing Lions í
Helsingor í Danmörku. Þangað
fóru í fyrsta sinn fjórir Leomeðlim-
ir frá íslandi og sátu þeir Leonám-
stefnur á þessu þingi. Það heppn-
aðist með afbrigðum vel og mun
verða framhald á þessu á næstu
árum. Einnig eru haldin alþjóða-
þing en okkur Leofélögum finnst
réttara að byggja upp gott sam-
starf milli norðurlandanna áður
en lengra er haldið. Leofélagar
taka einnig þátt í unglingaskiptum
Lions og sérstökum Leobúðum.
Margir Leoklúbbar eiga vinaklúbb
í öðrum löndum sem þeir skrifast
á við og jafnvel heimsækja, en svo
hefur þó ekki enn verið gert á
íslandi.
Allt ungt fólk á aldrinum 14-28
ára getur orðið Leofélagar. Ungt
fólk sem vill hafa nóg að gera og
fást við félagsstörf getur fengið
ný tækifæri til að þroska forystu-
hæfileika sína í Leoklúbbi.
Leo er framtíð Lions.
ANNA MARÍA GEIRSDÓTTIR,
nemi í VÍ.
Yfirlýsing frá Veru
Frá Sonju B. Jónsdóttur:
ÞAÐ LEIÐA atvik átti sér stað við
útgáfu síðasta tölublaðs Veru að í
þemaumfjöllun blaðsins, sem snýst
um konur og kosningar, var birt
mynd af Þóru Þórarinsdóttur.
Myndin var sótt i myndasafn Veru
og hafði þann eina tilgang að sýna
konu við vinnu sína.
Vera harmar að þessi myndbirt-
ing hafi valdið óþægindum og sár-
indum og biður hlutaðeigandi af-
sökunar.
f.h. Veru,
SONJA B. JÓNSDÓTTIR, ritstjóri.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan,
hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari þar að lútandi.