Morgunblaðið - 31.05.1995, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 31.05.1995, Blaðsíða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ / Sí SBMDEK Alinnréttingar Hönnum og smíðum eftir þínum hugmyndum t.d. skápa, afgreiðsluborð, skilti, auglýsingastanda, sýningarklefa o.mfl. öKjt&DSH * Faxafeni 12. Sími 38 000 SLATTUORF ... sem^lá í gegn! ÞOR HF Reykjavík - Akureyri Reykjavík: Ármúla 11 - Simi 568-1500 Akureyri: Lónsbakka - Sími 96-11070 14 k gull Verðkr. 3.400 Stúdentastjarnan hálsmen eða prjónn jön Sipunisson Skarlgripdverzlun Laugavegi 5 - sími 551 3383 FYRIR BÖRNIN OKKAR SANDKASSAR. Einfaldar, gððar og ódýrar lausnir fyrir, Baþiaheiiniú, fjoibýhshus og i garðmn þmn Verð frá kr. 9 800 - - Einnig rólur, rennibrautir, kastalar, leikrammar og míkið fleira! í**NA®Pam letktækjasmíðastofa ; Skemmuvegi 16 (bleik gata) • 200 Kópavogur • Sími 587 0 441 I DAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags hentir í félagsstarfi aldraðra í Gerðubergi og einnig er hægt að fá upplýsingar í síma 5579020. Barnakerra tapaðist Óþrif af illgresi Góði Velvakandi VILTU benda garðeig- endum á hve mikil óprýði er af illgresinu og öðrum gróðri sem vex upp með garðveggnum götumegin. Allskyns gróður þrífst þar vel í skjólinu og í þessum illgresisgróðri festist allt mögulegt drasl. Það er ósköp einfalt að ná þessu í burtu með sköfu. Síðast en ekki síst veldur þessi gróður smátt og smátt skemmdum á steypunni í veggnum. Upplagt væri að verkstjórar sem fara nú senn að láta snyrta hina ýmsu garða í borginni kenndu unglingunum að hreinsa meðfram garð- veggnum götumegin. Garðeigandi Heiðarleg hjólreiðakona Þú, sem hjólaðir á bílinn minn (rauðan Toyota) á mótum Skipholts og Rauð- arárstígs föstudaginn 26. maí sl. um kl. 17.30, vild- irðu gjöra svo vel að hafa samband við mig í síma 5513726. Tapað/fundið Frakki tapaðist Svartur frakki var tekinn í misgripum á stúdentaaf- mæli MS sem haldið var í Valhöll á Þingvöllum laug- ardaginn 27. maí sl. í frakkanum var lyklakippa sem er eigandanum dýr- mæt. Þeir sem kannast við málið vinsamlega hringið í síma 5682265. Hjólreiðahjálmur tapaðist Ljósgrænn Hardtop barna- hjólreiðahjálmur tapaðist seinni part sl. laugardags frá Fífuborg í Grafarvogi og er hans sárt saknað. Finnandi vinsamlegast hafíð samband í síma 5676252 Lyklar fundust Lyklar fundust á lóð við Grýtubakka fyrir síðustu helgi. Lyklamir fást af- Blá og hvít barnakerra tap- aðist við Stekkjarbakka í Breiðholti. Hennar er sárt saknað. Finnandi vinsam- legast skili sem fyrst, fund- arlaun. Upplýsingar í síma 5678323. Giftingarhringur fannst Giftingarhringur með áletrun fannst í Kolaport- inu 20. maí sl. Upplýsingar í síma 5671168. Gæludýr Kettlingar fást gefins Tveir gullfallegir bröndóttir fresskettlingar, 2ja mánaða gamlir, fást gefíns. Upplýs- ingar í síma 5884843. Köttur tapaðist Skrítin, loðin, brún kisa hvarf frá heimili sínu að Njálsgötu 30 á fímmtu- dagskvöld. Finnandi, viltu vinsamlegast koma henni heim til sín eða hringja í síma 5514855. Kettlingar fást gefins 3ja mánaða svartir og hvít- ir, kassavanir kettlingar fást gefnir á góð heimili. Upplýsingar í síma 5537151 Kettlingur fannst Lítill, gulbröndóttur fress- kettlingur fannst neðst á Langholtsveginum. Upp- lýsingar í síma 5531393. SKAK Um.sjön Margelr Pétursson HVÍTUR á leik. Staðan kom upp á stór- móti í Madrid í maímán- uði. Gamla brýnið Viktor Kortsnoj (2.635) hafði hvítt og átti leik, en Eng- lendingurinn Nigel Short (2.640) stýrði svörtu mönnunum. 27. Hxb6! - Rxb6 28. Bxf6 (Hvítur hefur tvö peð fyrir skiptamun og dá- góð sóknarfæri. Nú hefði Short átt að reyna að blíðka goðin með 28. - Hxe4, en leikur í staðinn af sér:) 28. - Kf7? 29. Dh4! - h6 30. f5 (Önnur vinningsleið var 30. Dxh6! - Kxf6 31. Rf5! 30. - Hg8 31. Bd8 - Ddl+ 32. Kh2 - g5 33. Dxh6 - Hxd8 34. f6 - Hg8 35. Dh7+ - Kxf6 36. Dxg8 og Short gafst upp. Það er erfítt að gagnrýna leik sem knýr andstæðinginn til uppgjaf- ar, en 36. e5+! var mát í næsta leik. Með morgunkaffinu að leggja hann varlega niður. TMRag U S. Pw. Of». — al righu rMwvad (c) 1996 Los Angelee Timos Syndicalo Ást er... ÞETTA er mjög gott skallalyf. Ég notaði það sjálfur í mörg ár. VERSLUNARLÁNASJÓÐUR FJÁRFESTINGARLÁN -afl til athafna! Verslunarlánasjóöur (þ.m.t. fyrrum Vebdeild íslandsbanka) hefur flutt á Kirkjusand ÍSLANDSBANKl - í takt v/ð nýja tíma Víkveiji skrífar... AÐ UNDANFÖRNU hefur viðr- að sérdeilis vel fyrir íbúa Suð- vestur-hornsins til útivistar. Vík- veiji og kunningjar hans hafa ós- part nýtt sér veðurblíðuna til sund- ferða, hjólreiðartúra og göngu- ferða. A uppstigningardag í síð- ustu viku var veður ómótstæðilega yndislegt og því Iagði Víkveiji við þriðja mann í umtalsverðan hjól- reiðartúr um höfuðborgarsvæðið. Áð var í Vesturbæjarsundlauginni um miðjan dag, þar sem margt var um manninn. Raunar svo margt, að heita mátti að uppselt væri í heitu pottana! En þegar líða tók á daginn og til stóð að hjóla aftur heim á leið, eina 11 kílómetra og marga þeirra upp í móti, kom á daginn að þrek 2/3 ferðalanganna var ekki meira en svo, að þá óaði við áframhaldandi hjólreiðum og þá voru góð ráð dýr. xxx OG ÞO, ekki svo dýr, því vagn- stjórinn hjá SVR aumkaði sig yfir uppgefna hjólreiðarmenn og ieyfði þeim góðfúslega að kippa fararskjótunum inn um afturdyr vagnsins og fá þannig flutning til síns heima. Auðvitað er ekki hægt að sýna svona lipurð dag hvern, þegar vagnarnir eru troðnir af fólki á háannatíma, en Víkveija þótti ánægjulegt að slíkur sveigjanleiki er fyrir hendi hjá vagnstjórunum, þegar aðstæður leyfa, þótt strangt til tekið sé ekki leyfilegt að heim- ila farþegum að flytja reiðskjóta sína með vögnum SVR. xxx EN ÞAÐ er eins með vagnstjór- ana og annað mannfólk, þeir eru eins misjafnir og þeir eru margir. í samskonar erindagjörð- um voru örþreyttir hjólreiðargarp- ar tveir á ferð sl. sunnudag, Vík- veiji og ungur félagi hans og bein- línis sprungu á limminu, á gatna- mótum Lönguhlíðar og Miklu- brautar, eftir að hafa lagt eitthvað á annan tug kílómetra að baki á hjólum sínum. Því lá beinast við að brosa til vagnstjóra SVR og spyrja hann, þar sem hann ók nán- ast tómum vagni sínum í austur- átt, hvort ekki væri nú hægt að skjótast með reiðskjótana inn um afturdyr vagnsins. Manninum stökk ekki bros, og sagði út um herptar varir: „Nei, slíkt er strang- lega bannað,“ og lokaði við svo búið dyrunum og ók á braut. Svo stranglega bannað getur það nú varla verið, fyrst það var minna en ekkert mál að fá að notfæra sér þjónustu SVR með þessum hætti þremur sólarhringum fyrr. Víkveija varð á að hugsa, er hann var aftur kominn af stað á hjóli sínu: „Skyldi maður mega fara inn í vagna SVR með barn í kerru eða bamavagni?! xxx ÉR VERÐUR víst að fljóta með niðurstaðan af þessu hjólreiðarævintýri, sem var á þann veg, að þegar hjólreiðargarparnir voru loks komnir heim, ótrúlega löngu síðar, þá voru þeir heldur stoltir af kílómetrafjöldanum og brekkunum sem þeir höfðu lagt að baki sér, og hugsuðu nánast hlýlega til vagnstjórans grimma, sem hafði orðið til þess að þeir áttu engan annan kost en bíta á jaxlinn og hjóla alla leið heim.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.